Morgunblaðið - 14.11.1976, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÖVEMBER 1976
23
Sveinbjörn Jónsson (t.v.) og Erland Westbye.
Uppgræðsla vega-
kanta gengur vel
NYTT JOLAKORT
FRÁ ÁSGRÍMSSAFNI
EINS og flestum er kunnugt þá hefur
Vegagerð ríkisins nú I seinni tíð sáð
grasfræi og áburði I sár þau sem
myndast hafa við vegagerðarfram-
kvæmdir. Fyrst um sinn var um
handdreifingu vinnuflokka Vega-
gerðarinnar að ræða, en nú hin síð-
ustu 4 sumur hefur þetta verk verið
unnið á vegum Sáningar hf. með þar
til gerðum tankbll sem „sprautar"
blöndu fræs, áburðar og vatns, auk
bindiefnis í sumum tilfellum, yfir
svæði við vegarkant. Hefur bifreið
þessi nú starfað eitthvað I öllum
kjördæmum landsins, og að sögn eru
viðkomandi aðilar ánægðir með
árangurinn
Það var á árinu 1971 að Sveinbjörn
Jónsson í Ofnasmiðjunni rakst á grein í
norsku tímariti um vatnsdreifingu fræs
og áburðar meðfram vegarköntum í
Noregi. Vegna áhuga á uppgræðslu
almennt, setti Sveinbjörn sig í sam-
band við höfund greinarinnar, Norð-
manninn Erland Westbye, en hann er
sérfræðingur um gróðurfar, og hlutuð-
ust þeir til um að fyrirtækið Sáning hf
var stofnað Keypti fyrirtækið dreifing-
artæki, sem hverju sinni getur tekið 5
þúsund litra af dreifiblöndu. Samning-
ar um dreifingu fræs og áburðar með-
fram vegum landsins náðust við Vega-
gerð rikisins, og var hafist handa á
árinu 1973, en dreifing fer fram frá
maílokum til byrjun ágúst. Síðan hefur
verið unnið að dreifingu viðs vegar um
land síðustu fjögur sumur. í byrjun átti
fyrirtækið við nokkra erfiðleika að
striða vegna bilana á tækjum og bif-
reið, en seinni hluta timabilsins hefur
þetta gengið að mestu snurðulaust, að
sögn Sveinbjarnar Sveinbjörn giskaði
á að það væru tæpir 2000 hektarar
sem dreift hefði verið í fyrir Vegagerð-
ina og áburði hefur verið dreift i aðra
1 500 hektara Þá hefur og verið unnið
dálitið fyrir aðra. í hvern hektara fara
um 40 kg af grasfræi þ.e. um 25 kg
túnvingull og 1 5 kg af vallarsveifgrasi.
Áburður sá sem blandað er saman í
blönduna er kjarni og þrífosfat. Stund-
um er notað bindiefni í blöndunni. Er
það gert til að tryggja að grasfræið og
áburðurinn nái að festa rætur og spira i
stað þess að renna á brott þar sem
vegarkantur er nokkuð hallandi. Þetta
efni er nokkuð dýrt og hefur ekki neina
yfirburðakosti að sögn verkfræðinga
Vegagerðarinnar, svo sennilega verður
horfið frá því að nota það, nema að til
komi ódýrara bindiefni, en nú er ein-
mitt verið að gera tilraunir með tættan
blaðapappír og hafa þær tilraunir borið
góðan árangur i Noregi en þar hefur
Westbye notað slfkt bindiefni með
ágætum árangri.
Að sögn Rögnvalds Jónssonar verk-
fræðings hjá Vegagerðinni, sem haft
hefur umsjón með sáningunni, hefur
þessi sáningaraðferð tekist vel Sagði
hann Sáningu hf. hafa staðið við það
sem beðið var um Kostnað Vegagerð-
arinnar í þessum framkvæmdum sagði
hann vera um 39 milljónir króna.
Næði sú tala bæði yfir efni og vinnu
Ekki sagðist Rögnvaldur geta tjáð sig
um framhald á þessu verki þar sem
samningar væru aðeins gerðir til eins
árs i senn Væri hann þó ángæður með
verkið og verkefni sagði hann vera til
frekara framhalds
Sveinbjörn sagðist vilja geta þess að
verkið hefði i alla staði verið ánægju-
legt að vinna Samstarfið við Vega-
gerðina hefði verið hið ákjósanlegasta.
Sagði hann fyrirtækið einnig hafa notið
mikillar velvildar með fjármálafyrir-
greiðslu hjá Búnaðarbankanum. Þá
hefðu þeir einnig verið heppnir með
allan starfskraft þessa þrjá mánuði sem
verk stæði yfir, og einnig hefðu góðir
menn fengist i hlutafélagið um tækja-
kaupin
Danskir
herra- og
dðmu-
inniskðr
VANDAÐ
OG
FJÖLBREYTT
ÚRVAL
VE RZLUNIN
1 EYsiPP
Batikmyndir
Sigrúnar
til sýnis
í NY
EIN glæsilegasta skart-
gripaverzlun New York
borgar, „Cartier“, á
fimmtu breiðgötu, sýnir
um mundir þrjár batik-
myndir eftir Sigrúnu Jóns-
dóttir. Verða myndirnar til
sýnis frá 10. nóvember og í
tvær vikur.
Sigrún er þekkt víóa um heim
fyrir batik- og kirkjumyndir sínar
og hefur hún hloiió mörg verð-
laun fyrir þær, m.a. í Monaco
1968.
Það er aóalræðismannsskrif-
stofa Islands í New York og
Loftleiðir sem hafa haft milli-
göngu um þetta mál.
Biblían og
spíritisminn
Ut er kominn bæklingurinn
„Biblfan og spiritisminn" eftir
Benedikt Arnkelsson cand. theol.
Utgefandi er Þríeykið á Akureyri
og er ritið 16 blaðsíður.
Jólakort Asgrímssafns á þessu
ári er prentað eftir olfumálverk-
inu Vor á Húsafelli. Myndin er
máluð árið 1950. Þetta kort ver
gert f minningu aldarafmælis Ás-
grfms Jónssonar á þessu ári, og
verður ekki endurprentað.
Kortið er í sömu stærð og hin
fyrri listaverkakort safnsins, með
íslenzkum, dönskum og enskum
texta á bakhlið, ásamt ljósmynd
af Asgrími, sem Ósvaldur Knud-
sen rók af honum árið 1956.
Myndiðn sá um Ijósmyndun, Lit-
róf gerði myndamót, en Vikings-
prent hf. annaðist prentun.
Einnig hefur safnið látið endur-
prenta nokkur kort sem ófáanleg
hafa verið um árabil, þeirra á
meðal Ur Svarfaðardal, Úr Mý-
vatnssveit og Hver f Krýsuvík.
Það er föst venja Asgrímssafns
að byrja snemma sölu jólakort-
anna til hægðarauka fyrir þá sem
langt þurfa að senda jóla- og ný-
árskveðju, en þessar litlu eftir-
prentanir af verkum Ásgríms
Jónssonar má telja góða land-
kynningu.
Listaverkakortin eru aðeins til
sölu í Ásgrimssafni, Bergstaða-
stræti 74, á opnunardögum, og í
verzlun Rammagerðarinnar í
Hafnarstræti 17.
Ásgrímssafn er opið sunnu-
daga, þriðjudaga og fimmtudaga
frá kl. 1,30—4.