Morgunblaðið - 14.11.1976, Qupperneq 27
1
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÖVEMBER 1976
27
Tongsun Park með fulltrúadeild-
armanninum Hanna. sem hann á
að hafa haft á snærum sfnum
ásamt með fleiri bandarískum
þingmönnum.
Louisiana er búinn að játa, að
kona sín hafi þegið stórgjafir af
Tongsun í ríkisstjórakosningun-
um 1971 og sjálfur hafi hann þeg-
ið ýmsar „smágjafir". Tongsun lét
þess náttúrulega getið, að gjafirn-
ar væru „bara handa fjölskyld-
unni“ og kæmu kosningunum
ekkert við. En ríkisstjórinn lýsti
fyrir sitt leyti yfir þvf, að ekkert
þætti sér eðlilegra en vinir gæfu
hverjir öðrum gjafir. Hann er enn
þeirrar skoðunar.
Tongsun mun nú búinn að játa
það á sig, að hann hafi gefið þó
nokkrum þingmönnum svona vin-
argjafir. Hann var einu sinni hætt
kominn vegna þessarar gjafmildi
sinnar. Árið 1973 var leitað á hon-
um i tolli; hann var að koma til
Bandaríkjanna frá Suðurkóreu.
Hann reyndi þá að eyðileggja lista
með nöfnum bandarfskra stjórn-
málamanna, en tókst ekki. En 90
nöfn voru á listanum — og mishá-
ar fjárupphæðir fyrir aftan þau.
Park bar það fyrir sig, að þessir
menn hefðu beðið sig að leggja fé
í kosningasjóði sína. Sjálfur hafi
hann ekki einu sinni haft grun
um neitt misjafnt. En heldur þyk-
ir ósennilegt, að hæstaréttardóm-
ararnir taki hann trúanlegum, og
kann svo að fara, að brátt ljúki
góðgerðastarfsemi hans. Meðan
harin gerði vinum sínum í
Washington veizlur af örlæti
hjartans komst hann eitt sinn svo
langt að snæða kvöldverð með
Gerald Ford. Það verða viðbrigði,
þegar hann fer að rífa í sig trosið f
tugthúsinu.
— HELLA PICK.
Israelsmennirnir reynt að taka
sig til fanga. En þeir hefðu gripið
f tómt. Annars sagðist hann
halda, að þeir hefðu getað gert
meiri usla en varð, ef þeir hefðu
kært sig um það.
Mér lék hugur á að vita, hvort
Amin hefði verið alvara, er hann
sagði Breta velkomna aftur til
(Jganda. Eg fór því á stúfana og
ræddi við hvfta menn, sem enn
starfa f (Jganda. Enn eru þar ein-
ir 100 kaupsýslumenn, trúboðar.
Flestir þeirra sögðust ekki vera f
neinni hættu. Þeir gætu sinnt
störfum sfnum áhyggjulausir.
Þóttust þeir vita, að brezkir kaup-
sýslumenn mundu brátt flykkjast
aftur til (Jganda. Þegar ég heim-
sótti Amin sfðast sat hann á af-
rfskum trétróni; vildi hann sýna
mér vopnin sln, tók upp sovézka
skriðdrekavarnarbyssu og leizt
mér ekki á blikuna um tfma, hélt
hahn skyti gat á húsvegginn. Við
tæptum svo á ýmsum heimsmál-
um, en að lokum hallaði hann sér
að mér og sagðist skyldi trúa mér
fyrir þvf, að hann ætlaði að segja
af sér embætti, þegar hann væri
búinn að koma fram efnahagsum-
bótum sánum og orðinn svo slit-
inn, að hann gæti ekki stjórnað
lengur. Það er nú það. Mér fannst
Amin hreint ekkert lotlegur. Og
efnahagsumbæturnar ná senni-
lega ekki fram að ganga á næstu
dögum. Ætli (Jgandabúar fái ekki
að hafa Amin áfram um sinn...
— NORMAN KIRKHAM
GEIMFERÐIR^HHHHl
Hernadur-
inn í himin-
geimnum
NÝLEGA tókst Bandaríkjamönnum að smtða fyrsta geimfarið, sem nota
má oftar en einu sinni. OV 101 heitir skeyti þetta. Á að skjóta því upp á
hringbraut i 1000 km hæð. Hringsólar það svo um jörðu I 30 daga, en
snýr þá aftur til jarðar og lendir á flugvelli, rétt eins og algengar flugvélar.
Skeytið er heldur klunnalegt á að Ifta, enda er það nokkurs konar
flutningaskip. Forstöðumenn geimferðaáætlunar Bandarfkjastjórnar
segja, að með þvf sé runnin upp ,,ný öld f flutningum" og má kannski
færa það til sanns vegar. Þvf miður grunar ýmsa, að skeytið verði ekki svo
mjög notað til þeirra flutninga, sem algengastir eru hér nær jörðu, heldur
verði vopn flutt f þvf um himingeiminn.
Skeytið verður á hringferð um jörðu f 30 daga samfleytt, eins og fyrr
segir. Og áreiðanlega verður ekki látið ónotað tækifærið til að gefa gætur
að umstangi Sovétmanna á jörðu niðri. Skeytinu er einnig ætlað að bera
marga gervihnetti og láta þá út hér og þar um geiminn; nokkrir þessara
hnatta verða njósnahnettir. Myndavélar um borð munu nema liðsflutn-
inga, skotstöðvar eldflauga og margvfsleg hernaðarmannvirki. Lfka verða
í skeytinu „þefarar", sem taka eftir þvf, er eldflaugum verður skotið upp
af landi eða úr kafi. Komi til ófriðar getur skeytið haft upp á gervihnöttum
óvina og eyðilagt þá eða tekið. Ef stórhætta steðjar að fara sérlegar
innbyggðar vftisvélar f gang og sprengja skeytið.
Það er fyrirsjáanlegt, að með þessu skeyti má flytja „geimhermenn",
þegar þar að kemur. Einnig má skjóta úr því eldflaugum að skotmörkum á
jörðu.
Svo átti að heita, að skeytið væri á vegum bandarfsku geimferðaáætl-
unarinnar. En flugherinn hefur verið mjög með í ráðum, enda vandséð, að
skeytið komi öðrum að miklu gagni fyrst um sinn. Málsvari flughersins
neitaði því að vfsu fyrir skömmu, að skeytið yrði notað eins og „orrustu-
flugvél" f geimnum. Hann gekkst hins vegar við þvf, að bandaríska
landvarnaráðuneytið hefði lengi „haft f huga" notagildi þess f hernaði. En
þess má Ifka geta, að landvarnaráðuneytið er að láta smfða, fyrir sig
annan merkilegan grip. Það er nokkurs konar „dráttarbátur" til geim-
ferða. Hann er f eldflaugalfki og verður hafður til þess að færa gervihnetti
til og frá f geimnum og jafnvel 350 þúsund kflómetra burt frá jörðu . . .
— CHARLES FOLEY
ÖRBIRGÐ & ALSNÆGTIR
Að svelta
fyrir sæl-
kerana
Nýlega kom út í Bretlandi bók
með nýstárlegri kenningu um
það, hvers vegna mikill hluti
jarðarbúa sylti hálfu hungri og
dæi jafnvel úr sulti. Höfundurinn
heitir Susan George. Hún heldur
þvf fram, að hungur í heiminum
stafi ekki fyrst og fremst af óhóf-
legri fólksfjölgun svo, sem margir
telja, en miklu heldur af ómann-
úðlegri búnaðarstefnu, sem vel-
megandi ríki og f jölþjóðlegir mat-
vælahringir ástundi f þriðja
heiminum. Þessir aðiljar þröngvi
sínum siðum, jafnvel mataræði,
upp á fólk f þriðja heiminum
undir ýmsu góðu yfirskini og
muni illa enda, ef svo heldur
áfram. í nafni „þróunar" eru
fátækar þjóðir hvattar til að
rækta æ meira og auka matvæla-
framleiðslu — til þess að þær
verði æ háðari innflutningi land-
búnaðarvéla, áburðar, skepnu-
fóðurs og fleira, og einnig til þess,
að neytendur í vel stæðum rfkjum
fái ódýran mat.
Fjölþjóðlegir auðhringir eru
mörgum fátækum þjóðum þungir
i skauti. Þarf tæpast að telja
dæmi þess. Þó má nefna hér
fáein. Stjórnin i Sri Lanka, sem
áður hét Ceylon, hefur uppi
miklar fyrirætlanir um það að
þjóðnýta atvinnuvégina. Samt
sem áður ræður Brooke-Bond
Liebighringurinn.enn allritexækt
þar á eyjunni — og þriðjungnum
af teútflutningnum. Nú er te
helzta útflutningsvara Sri Lanka.
Hlutur hringsins er sem sé ósmár
— og gott dæmi um það, hve
stjórnvöld f þriðja heiminum
mega sín lítils gegn auðhringum,
þótt þau hafi fullan vilja.
Filippseyingar fá að jafnaði
einungis 100 hitaeiningum meira
'a dag í mat en Bangladeshbúar,
sem eiga alræmd kjör. Nú rekur
Del Monte ávaxtahringurinn stór-
kostlegan landbúnað á Filipps-
eyjum. En þar selur fyrirtækið
aðeins 10% uppskerunnar. Hinn
fer annað. Þá má minna á það, að
Afríkumenn sjá Evrópumönnum
fyrir alls kyns jurtaolíu, ávöxtum,
grænmeti og nú orðið jafnvel
kjöti. Mexíkanar og Suður-
ameríkumenn leggja aftur á móti
jarðarber og aspargus á borð
hinna velmegandi meðbræðra
sinna fyrir norðan. Ýmis Suður-
asíuríki hjálpa Japönum um það,
sem þá „vantar“ f matinn. Sömu
sögu er að segja vfðar:
landbúnaðurinn í þessum ríkjum
er rekinn aðallega handa þeim,
sem hafa kappnóg að éta fyrir.
Það er einhvern veginn öfug-
snúið, að æ meira af korn-
uppskerunni i þriðja heiminum
er fínmalað til að fita skepnur,
sem verða þá svo dýrar, að inn-
fæddir hafa alls ekki efni á þeim
— og „verður“ því að flytja þær
út til þeirra, sem geta borgað.
Susan George fullyrðir, að þessi
búnaðarstefna fjölþjóðlegra auð-
hringa — og ýmissa vestrænna
rfkisstjórna geti riðið fátækum
þjóðum að fullu, ef ekkert verði
að gert. En málið er erfitt viður-
eignar. Það eru ekki bara út-
lendingar og innfæddir, sem eiga
þarna hagsmuni; valdaklfkur í
mörgum ríkjum þriðja heimsins
sjá sér hag f því að fylgja
auðhringunum að málum.
Hringarnir eru svo sem nógu öfl-
ugir, en þeir standa sannarlega
ekki einir uppi: um það leyti sem
hungursneyðin geisaði f Eþíópfu
og 100 þúsund manns sultu til
bana var fulltrúi Spillers-
hringsins á ferð um landið með
flokki frá Matvæla- og land-
búnaðarstofnun Sameinuðu þjóð-
anna, FAO. Þeir voru að „athuga
grundvöll fyrir þróun kjötút-
flutnings", eins og það heitir á
kansellímáli. Kjötið átti sem sé
ekki að fara oní hinn sveltandi lýð
í landinu. Það átti að fóðra með
því gæludýr á vesturlöndum ...
, — JUCHARD NORTON-TAYLOR
Glæsilegt einbýlishús
í Garðabæ til sölu
í húsinu eru 3 íbúðir en hægt er að breyta því í eina íbúð. Húsið er
tæpir 400 fm á tveimur hæðum. Hitaveita og sérrafmagn.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „Garðabær — 2581 ".
Sjávarlóð í Skerjafirði
Til sölu sjávarlóð í Skerjafirði á bezta stað. Allar
upplýsingar veittar á skrifstofu minni, að Skóla-
vörðustíg 1 2.
Þorsteinn Júlíusson hrl.,
sími 14045.
BYGGINGAVÖRUVERZLUN BYKO
KOPAVOGS SF
NÝBÝLAVEGI 8 SÍMI;41000 vlLr
IMOXIIK
veggstrigi í náttúrulegum litum
90 sm breidd
korkveggklceðning i veggfódursformi
90 sm breidd