Morgunblaðið - 30.11.1976, Blaðsíða 1
48 SlÐUR
278. tbl. 63. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
12fórustog
70 særðust
Darajani, Kenya —
29. nóvember — Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 12 manns
létu lífið og 70 meíddust þegar
sjö járnbrautarvagnar fóru út
af sporinu nálægt Darajani f
dag. Lestin var á leið frá Mom-
basa tii Nairobi þegar slysið
varð, en það vildi þannig til, að
brú brast undan lestinni. Svo
virðist sem fióð hafi veikt
undirstöður brúarinnar.
Fremsti vagninn og sex aðrir
runnu út af sporinu. Einn vagn-
anna varð undir þeim fremsta
og lagðist hann algjörlega sam-
an. í þessum vagni voru flestar
þeirra, sem fórust.
Framhald á bls. 23
Símamynd AP
Aðstoðarutanríkisráðherra Breta:
Brezka stjórnin von-
góð um samkomulag
Húll, London, 29. nóvember — fréttaritari
Morgunblaðsins Nigel Robson, AP.
BREZKA stjórnin sagði á mánudag að hún væri sann-
færð um að Bretar og tslendingar fyndu leiðir til að geta
haldið áfram veiðum á miðum hvors annars. Kom það
fram hjá David Owen, aðstoðarutanríkisráðherra, sem
sagði jafnframt að hann harmaði það að brezkir togarar
yrðu að hætta veiðum við tsland á miðvikudag, þegar
samkomulag Breta og tslendinga gengur úr gildi.
símasamband við formann
héraðsstjórnar
Humberside, Harry Lewis,
og tjáði honum að hann
væri vongóður um að
tslendingar og Efnahags-
bandalagið yrðu búin að ná
samkomulagi þann 1.
janúar.
Viðræður Norð-
manna við EBE
hafa siglt í strand
BrUssel 29. nóvember — NTB
SAMNINGAVIÐRÆÐURNAR A
MILLI Norðmanna og Efnahags-
bandalags Evrópu um fiskveiðar
hafa siglt f strand. Er ekki búizt
við að skriður komist á þær aftur
fyrr en EBE-Iöndin hafa leyst sfn
á milli pólitfskt vandamál við til-
72 menn
f órust 1
flugslysi
Moskvu 29. nóvember —
Reuter.
SOVÉZK flugvél af gerðinni
Tupolev TU-104 fórst skömmu
eftir flugtak í gærkvöldi og
með henni allir sem um borð
voru, eða 72 menn, að þvi er
starfsfólk vestrænna flug-
félaga hefur skýrt frá.
Flugvélin, sem er tveggja
hreyfla þota frá sovézka flug-
félaginu Aeroflot, skall niður
um 30 kílómetrum frá Sehrem-
etyevoflugvelli við Moskvu.
Neyðarráðstafanir voru gerðar
á flugvellinum um það leyti
sem slysið varð án þess að
ástæður væru gefnar. Slökkvi-
bilar stóðu reiðubúnir og
sjúkrabílar sáust aka i norður-
átt með blikkandi ljós eftir
veginum til Leningrad, sem
liggur nærri flugvellinum.
Veðurskilyrði voru slæm og
að minnsta kosti einni sovézkri
flugvél hafði verið snúið til
annars flugvallar við Moskvu.
Talsmenn Aeroflot og flug-
málaráðuneytisins neituðu að
staðfesta þessar fréttir, en
neituðu þeim heldur ekki.
Talsmaður ráðuneytisins sagði
Framhald á bls. 22
högun fiskveiða aðildarlandanna
nfu.
Jens Evensen, hafréttarráð-
herra Noregs, og Finn Olav
Gundelach, sem á sæti í fram-
kvæmdanefnd EBE og fer með
utanríkismálefni þess, ræddust
við á mánudag og voru þeir sam-
mala um, að þó að viðræðurnar
væru langt komnar þá væru tvö
erfið pólitisk vandamál óleyst,
sem Gundelach þarf að fá umboð
tit að geta leyst.
Ákveðið hefur verið að halda
nýjar samningaviðræður 16. og
17. desember, eða skömmu eftir
að ráðherrafundur bandalagsins
kemur saman til að ræða um fisk-
veiðistefnu EBE.
Evensen sagði á blaðamanna-
fundi, að það væri enn ekki ljóst
hvort samkomulag gæti náðst fyr-
ir áramót.
„Mér hefur allan timann verið
það ljóst, að á meðan Efnahags-
bandalagið hefur ekki ákveðið
eigin stefnu i fiskveiðimálum, þá
verður það erfitt fyrir okkur að»
finna sameiginlega lausn. Ég
hafði alltaf búizt við því að samn-
ingarnir myndu taka langan
tíma.“
Hafréttarráðherrann lagði
áherzlu á að ef ekki yrði búið að
semja um fiskveiðar í Norðursjó
Framhald á bls. 22
Af 17. hæð
með börn
í fanginu
Paris 29. nóvember — Reuter.
ÞRJÁTlU og eins árs gömul móð-
ir hoppaði i dag af svölum á 17.
hæð Ibúðarhúss I París. Hélt hún
á tveim ungum börnum sinum í
fanginu. Að sögn lögreglunnar
létust þau öll.
Owen sagði að samninga-
maður Efnahagsbandalags-
ins, Finn Olav Gundelach,
væri sannfærður um að
þegar næst yrði setzt við
samningaborð yrðu báðir
aðilar i aðstöðu til að geta
gefið út yfirlýsingu um það
fyrirkomulag, sem þeir
vildu hafa á fiskveiðum
sínum eftir 1. janúar.
Sagði Owen þetta vegna
fyrirspurnar, sem borin
var fram eftir að ráð-
herrann hafði gefið
skýrslu um málefni Efna-
hagsbandalagsins.
Þá hafði Gundelach í dag
Nýtt verkfall
námamanna?
Barnsley 29. nóvember. Reuter.
LEIÐTOGAR samtaka um
helmings allra kolanámamanna í
Bretlandi mæltu í dag með því að
gripið yrði *'l aðgerða, þar á
meðal hugsanlegra verkfallsað-
gerða, til stuðnings kröfum um að
kolanámumenn fái að ljúka
starfsævi sinni sextugir en haldi
fullum launum eftir það.
Það var Arthur Scargill, leið-
togi námamanna í Yorkshire, sem
löngum hafa verið herskáir, og
leiðtogar skozkra og velskra
námamanna, sem hvöttu til þessa.
Getur þetta leitt til þess að náma-
menn komist í beina andstöðu við
stjórn Verkamannaflokksiris, sem
reynt hefur að halda í við iauna-
hækkanir.
Kolanefndin, sem heyrir undir
ríkið og rekur brezku kola-
námurnar, hefur þegar hafnað
Framhald á bls. 23
Ættuð að setjaþak
á olíuinnf lutning
— segir Giscard d’Estaing á leiðtogafundi EBE
Haag 29. nóvember — Reuter
VALERY Giscard d’Esteaing, for-
seti Frakklands, lagði f dag til að
öll lönd Efnahagsbandalagsins
færu að dæmi Frakka og settu
þak á olfuinnflutning sinn, að
LEIÐTOGAFUNDUR. Myndin er frá setningu fundar leiðtoga Efna-
hagsbandalagslandanna í gær. símamvnd ap
sögn embættismanna EBE. Sagði
forsetinn á fundi leiðtoga EBE-
landa, að þeir ættu að koma sér
saman um áætlun um að spara
orku til að draga úr olfu-
innflutningskostnaði.
Frakkar hafa sett þak á olíuinn-
flutning sinn á næsta ári og má
hann ekki fara fram yfir 55
milljarði franka. Þetta þýðar að ef
verðhækkanir á olíu verða of
miklar, verða Frakkar að draga
úr oliunotkun sinni til að fara
ekki fram úr áætluninni. Frakkar
settu einnig þak á oliuinnflutning
sinn á þessu ári og mátti hann
ekki verða meiri að meiri að
verðmæti en 51 milljarður
franka.
Embættismenn sögðu, að engin
viðbrögð hefðu enn orðið við til-
lögu forsetans. Framh.á bls. 23