Morgunblaðið - 30.11.1976, Blaðsíða 16
40
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1976
Gæzluvellirnir eru fyrst
og fremst útivistarsvæði
Leikvellir í Rvík eru 120
— Blásarakvöld
Framhald af bls. 38
fyrir svonefnda klassíska tón-
list. Þaö má vera að þetta geri
svo sem ekkert til, því það
góða sigri að lokum, en ákaf-
lega er leiðinlegt að sjá fólk
opinbera heimsku sína og lé-
legan smekk. Þessi lestur er
sprottinn fram vegna þess
munar, sem er á auglýsingu,
greiddri af almannafé, sem lé-
leg tónlist fær í fjölmiðlum, í
alls konar formi og tónlist, þar
sem leitað er á önnur mið en til
skemmtunar eingöngu.
Manuela Wiestler, Kristján Þ.
Stephensen, Sigurður I.
Snorrason, Stefán Þ. Stephen-
sen ög Hafsteinn Guðmunds-
son eru góðir tónlistarmenn,
sem eiga að baki langt nám og
hafa dugaö vel í starfi sínu og
eiga heimtingu á því að sitja
við sama borð, sem aðrir þegn-
ar þessa samfélags.
Á efnisskrá tónleikanna
voru verk eftir; Franz Danzi,
Jacques Ibert, Leif Þórarins-
son, Villa-Lobos og Paul
Hindemith. Blásarakvintett
eftir Danzi er léttur og leik-
andi og var merkilega vel flutt-
ur. Svona tónlist er ekki auð-
veld í flutningi, vegna þess að
tónhugsunin í þeim er ljós,
þrátt fyrir mikinn hraða.
Næsta verk tónleikanna, fimm
smástykki fyrir óbó, klarinett
og fagott, eftir impessionist-
ann Ibert, var vel flutt, en
hefði mátt vera blæbrigðarík-
ara. Blásarakvintett eftir Leif
Þórarinsson var allt of stuttur.
Verkið er á köflum vel unnið
og minnir oft á söngverkið
Angelus Domini. Það sem
helst mætti finna að, er að
tónhugmyndirnar eru of þétt-
ar og þykkt unnar. Eftir Villa-
Lobos var flutt Bachiana
Brasileiras nr. 6 fyrir flautu og
fagott. Manuela Wiesler er frá-
bær flautuleikari og var unun
að hluta á hana í þessu verki.
Bezta verkið á tónleikum var
kvintett eftir Hindemith. Bæði
er, að verkið er frábærlega vel
samið og var auk þess mjög vel
leikið.
Af einstökum hljóðfæraleik-
urum sem sérlega stóðu sig
vel, mætti nefna Manuelu
Wiesler og Kristján Þ.
Stephensen. Félagar þeirra
stóðu sig og mjög vel og var
samspil þeirra og tónjafnvægi
oft á tíðum frábært, eins t.d. í
síðasta verkinu, sem er mjög
blæbrigðarikt og skemmtilegt.
Jón Ásgeirsson.
Birger O. Kronmann
Birger O. Kron-
mann látinn
Birger Ove Kronmann, fyrrver-
andi sendiherra Dana á íslandi,
lézt í Kaupmannahöfn 2. nóvemb-
er s.l. og fór jarðarförin fram í
kyrrþey. Birger Kronmann var
sendiherra Danmerkur á íslandi í
8 ár eða frá 1965 til 1973.
Reykjavík 25.11. 76.
Nú nýverið hafa birst í fjölmiðl-
um fréttir frá starfshópi um leik-
vallamál, en sá starfshópur starf-
ar á vegum Landssamb. íslenskra
barnaverndarfélaga. 1 yfirlýsingu
starfhópsins kemur fram þung
gagnrýni hvað varðar rekstur og
aðbúnað gæsluvalla einkum og
sér í lagi i Reykjavík. I þessari
gagnrýni kemur margt fram sem
vissulega á fullan rétt á sér en á
hinn bóginn einnig ýmislegt sem
gefur villandi yfirsýn um þessi
mál þeim sem lítt þekkja til og
gefur því tilefni til þess að vekja
ahygli á eftirfarandi.
Á vegum Reykjavíkurborgar
eru 120 barnaleikvellir, þar af eru
33 gæsluvellir og 4 starfsvellir,
aðrir leikvellir skiptast í opin
leiksvæði, sparkvelli og körfu-
boltavelli.
Gæsluvellir borgarinnar eru
fyrst og fremst hugsaðir sem úti-
vistarsvæði þar sem forráðamönn-
um barna er gefinn kostur á að
hafa börn sín nokkra tíma á dag í
öruggri gæslu frá umferð og ann-
arri hættu. Það er ekki tilgangur-
inn með gæsluvöllum að þeir séu
þannig úr garði gerðir að þeir
komi í stað eða til jafns við dag-
vistunarstofnarir þar sem börn
eru höfð í fóstri hálfu og heilu
dagana. Á sama hátt er engan
veginn æskilegt að fólk setji börn
sln inn á gæsluvelli með sama
hugarfari og það gerir varðandi
dagvistunarstofnanir. Gæsluvöll-
ur á að vera verndað útivistar-
svæði fyrir barnið og þvf á að-
staða til leikja innan dyra að vera
í lágmarki. Aðstaða til þess að
veita börnunum eitthvert skjól
þarf þó að vera til staðar og að því
er nú miðað af hálfu leikvalla-
nefndar Reykjavíkur, þó með það
i huga að útiveran verði áfram
höfð í fyrirrúmi.
Sé barnið hraust er því nauðsyn
að dvelja úti einhvern tíma dag
hvern jafnvel þó ekki sé alltaf sól
og bliða. I fréttayfirlýsingu
starfshópsins segir m.a. að gæslu-
völlum hér sé haldið opnum, jafn-
vel þó barnaskólum sé lokað
vegna veðurs.
Varðandi þetta atriði er rétt að
benda á að það er skylda að mæta
í barnaskólana og því jafnframt
skylda skólayfirvalda að tilkynna
sé skólum lokað vegna veðurs.
Það er hins vegar engin skylda að
setja barn sitt á gæsluvöll en það
segir sig sjálft að forráðamaður
barns sem lætur 2—5 ára barn
sitt út í slfkt ofsaveður er víðs
fjarri því að vera starfi sinu vax-
inn. Komi slíkt tilfelli fram er
ágætt að einhver ábyrgur aðili
eins og starfsfólk gæsluvalla, geti
vitnað um slikt athæfi.
Varðandi leiktæki á gæsluvöll-
um þá er það rétt að þau hafa
fyrst og fremst verið einföld og í
hefðbundnum stíl.
Leikvallanefnd Reykjavikur
hefur nú nýverið látið teikna
nýjar gerðir leiktækja sem
væntanlega munu verða tekin í
notkun smám saman og gefa
aukna möguleika til fjölbreytni.
Þá er rétt að vekja athygli á
uppbyggingu starfsvalla sem nú
er lögð rík áhersla á f rfkum mæli,
en þar er einmitt verið að reyna
að mæta athafnaþrá barna á vissu
aldursskeiði. Reynslan hefur sýnt
að það eru fyrst og fremst börn á
aldrinum 6—12 ára sem sækja
starfsvellina og á þeim 4 völlum
sem starfræktir voru s.l. sumar á
vegum borgarinnar mættu 8234
börn eða að meðaltali 69 börn á
dag.
1 fréttatilk. starfshópsis kemur
fram að starfsfólk gæsluvallanna
sé I yfirgnæfandi meirihluta ófag-
lært. Þetta er rétt og það er einnig
rétt að leikvallanefnd Reykjavfk-
ur hefur um árabil lagt á það rika
áherslu að fá til starfa með ofag-
lærðu fólki lærðar fóstrur. En það
breytir ekki þeirri staðreynd að
viðast hvar er vel og samvisku-
lega unnið af þeim sem halda um
hendur yngstu borgaranna í leið-
andi leik og umhyggju á leikvöll-
um Reykjavfkurborgar.
Margrét S.Einarsdóttir
formaður Leikvallan. Reykjavfk-
ur
EN SAMT FRA MARANTZ
&
Superscope A 260 magnari.Veró kr. 63.800.
•- — ■ V
STEREQ AMPLIFIER
Superscope höfuðtól kr. 4.600.
Auövitaö eru Marantz
hljómtækin dýr.
Auövitað hefur ungt fólk
ekki fjárráð um of.
Þess vegna varö Super-
scope til, fyrsta flokks
hljómtæki á viöráðan-
legu verði.
Meö tæknieinföldun og
stórframleiðslu tókst þetta.
Superscope frá Marantz
vegna unga fólksins.sem
gerir kröfur til tóngæöa.
Leiöandi fyrirtæki
á sviði sjónvarps
útvarps og hljómtækja
SAMVALDAR NESCO
HUÓMTÆKJASAMSTÆÐUR
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SlMAR: 27788,19192,19150.