Tíminn - 29.05.1965, Blaðsíða 2
TÍMINN
LAUGARDAGUR 29. malRISGS !
FÖSTUDAGUR 28. maí.
NTB-Dhanbad. — Alls 375 ind
verskir kolanámumenn fórust í
mjög öflugri sprengingu í
námu einni nálægt Thanbad í
indverska ríkinu Bihar í morg
un. Þar að auki særðust 16
meian, sem stóðu við námugöng
in, mjög alvarlega.
Slys þetta átti sér stað, þegar
verið var að skipta um vakt,
og voru því um helmingi fleiri
en venjulega. Náman er við
Dhori, sem er um 100 km frá
Dhanbad í austurhluta Ind-
lands.
NTB-Saigon. — Mörg hundruð
manns fórust eða særðust í
hörðum bardögum og loftár-
ásum í Suður-Víetnam í dag, og
varð þetta einn blóðugasti dag
ur Víetnam-stríðsins til þessa.
Jafnframt misstu 9 bandarískir
hermenn iífið, þegar tvær þyrl
ur rákust á við herstöðina í
Bien Hoa. Kviknaði í þyrlunum
sem hröpuffu þegar eftir árekst
urinn. Þyrlurnar voru í um 30
metra hæð yfir flugbrautinni
í Bien Hoa, sem er aðcins 20
km. frá Saigon. 11 menn voru
um borð, og þeir tveir, sem
af komust, særðust hættulega.
Stjórnmálaástandið í Saigon
er enn spennt, og af þeim sök
um hefur Maxwell Tayior, hers
höfðingi, sendiherra Bandaríkj
anna í Suður-Víetnam, frestað
fyrirhugaðri för sinni til Wash
ington, þar sem hann átti að
gefa Johnson forseta og Rusk
utanríkisráðherra skýrslu um
ástandið og þróun styrjaldar-
NTB-Cannes. — Brezka kvik-
myndin „The Knack“, sem leik
stjórinn Richard Lester hefur
gert, fékk í dag heiðursverð-
launin á kvikmyndahátíðinni í
Cannes, „Gullpálmann“. Rich-
ard Lester gerði fyrir nokru
kvikmyndina „A Ilard Day‘s
Night“ með The Beatles. Verð-
launin sem bezta kvikmynda-
leikkonan og bezti kvikmynda-
lcikarinn fóru cinnig til Breta,
þ.e. Samantha Eggar og Ter-
ence Stamp, sem bæði fengu
vcrðlaunin fyrir leik sinn í
bandarísku kvikmyndinni „The
Collector".
NTB-Köln. — Hinn 51 árs
gamli Otto Kaiser, fyrrum lið-
þjálfi í SS-sveitum nazista, sem
er ákærður fyrir að hafa pynt-
að til dauða rúmlega 100 fanga
í Sachsenhausen-fangabúðunum
í síð-ari heimsstyrjöld, var í
dag dæmdur í 15 ára þvingunar
vinnu. Átta aðrir stríðsglæpa-
menn, sem ásamt Kaiser voru
ákærðir fyrir að hafa átt þátt
í morðum á 10.000 sot'ézkum
föngum, voru dæmdir í þving-
unarvinnu í 12 til 22 mánuði.
10. maðurinn, sem ákærður var,
var sýknaður.
IKVENNASKOL-
ANUM SLITIG
Kvennaskólanum í Reykjavík
var slitið 22. maí s. 1. að við-
stöddu fjölmenni. Forstöðuhona
skólans, frú Guðrún P. Helga-
dóttir, minntist í upphafi for-
setafrúar Dóru Þórhallsdóttur
og frú Laufeyjar Þorgeirsdótt-
ur, en þær höfðu báðar átt
sæti í skólanefnd, og lauk for-
stöðukona miklu l'ofsorði á stört
þeirra.
Þar næst gerði forstöðukonan
grein fyrir starfsemi skólans
þetta §kólaárið og skýrði frá
úrslitum vorprófa. 231 náms-
mær settist í skólann í haust og
41 stúlka brautskráðist úr skól-
anum að þessu sinni. Hæstu
einkunn í bóklegum greinum á
lokaprófi hlaut Sigurbjörg
Björnsdóttir, námsmær í 4.
taekk Z., 9.18. í 3. bekk hlaut
Elín Hjartardóttir hæstu eink-
unn, 9,00, í 2. bekk Bergljót
Kristjánsdóttir 9,14, og í 1. bekk
Ingibjörg Ingadóttir 9,15. Mið-
skólaprófi lauk 41 stúlka, 63
unglingaprófi, og 64 luku prófi
upp í 2. bekk. Sýning á hann-
yrðum og teikningum náms-
meyja var haldin í skólanum
16. og 17. maí og var mjög fjöl-
sótt.
Þá minntist forstöðukona á
sjóðsstofnun við skólann. Stúlk
urnar, sem voru að brautskrást,
stofnuðu minningarsjóð um
látna bekkj arsystur sína, Hildi
Ólafsdóttur, en hún lézt af slys
förum 24. janúar 1963, er þær
voru í 2. bekk, og var öllum
harmdauði-
Kvennaskólastúlkur, sem
b rautskráðust fyrir 40 árum,
gáfu gjöf í Systrasjóð til minn-
ingar um látnar skólasystur.
Fyrir hönd Kvennaskólastúlkna
sem brautskráðust fyrir 25 ár-
um, mælti frú Auðbjörg Björns
dóttir, og fyrir hönd 20 ára
árgangsins mælti frú Salóme
Þorkelsdóttir. Fyrir hönd 10
ára árgangsins mælti frá Hild-
ur Bjarnadóttir, og frú Elín
Tryggvadóttir talaði fyrir hönd
5 ára árgangsins. Fulltrúar af-
mælisárganganna fóru viður-
Framhald á 14. síðu.
.v3v^W‘W.;.;cí\\\wvtóli‘t
■,v.v...v.\vuvvvvvvvvu*uuui»M
Susanne Relth sundurbrotln í Raufarhöfn. — TÍMAMYND—JE.
Susanne Reith mun styttast um 8
metra er hún verður sett saman
MB-Reykjavík, miðvikudag.
Enn liggur Susanne Reith í
tiveimur hlutum á Raufarhöfn,
en þegar ísa leysir þar nyðra er
ætlunin að setja hlutana sam
an nyrðra eða draga þá hvorn
í sínu iagi þangað sem aðstaða
er betri. Verður skipið stytt um
8 metra við samset'ninguna.
Blaðið spurði Kristin Guð-
brandsson í Björgun h. f. um
það í dag, hvenær hann bygg
ist við að skipið færi frá Rauf
arhöfn, og hvernig sú ferð yrði.
Kristinn kvaðst lítið nýtt geta
sagt um málið. Skipið er nú al-
gerlega eign Björgunar h. f. og
fyrirtækið mun gera allt sem
unnt er til þess að, láta þau
verðmæti sem liggja í skipinu
ekki fara forgörðum.
Aftari hluti skipsins er vel
geymdur í höfninni á Raufar-
höfn, en framhlutinn situr enn
fastur á grunni og í ís, en
strax og ísa leysir er ætlunin
að draga hann á flot. Allar vél
ar og tæki eru í skipinu og allt
er óskemmt. Nokkur sjór komst
í vélarúmið í vor, en það var
strax þurrkað og þétt.
Kristinn kvað það vaka fyrir
þeim Björgunar-mönnum, að
reyna að skeyta skipshlutana
saman á Raufarhöfn, svo hægt
væri að sigla skipinu brott til
fullnaðarviðgerðar. Tækist það
ekki yrðu hlutarnir dregnir til
staðar, sem slík viðgerð væri
möguleg. Hann kvað óhjákvæmi
legt að stytta skipið allmikið við
fyrstu samsetningu, vegna
skemmda, sem orðið hefðu við
brotið, og er áætlað að/ þurfl
að stytta skipið um 8 metra.
Pípugerð Reykjavikur-
borgar tekur ti! starfa
Um þessar mundir er að taka til
starfa ný pípugerð á vegum
Reykjavíkurborgar í Ártúnshöfða,
og er hún staðsett norðan við
malbikunarstöðina, í gamla grjót
námi borgarinnar. Á hún að fram
leiða steinsteyptar pípur og hol-
ræsabrunna.
B ARN ALIST ARSYNING
CiB-Reykjavík, föstudag.
Opnuð verður á laugardag kl.
3 sýning í Handíða- og mynd-
listarskólanum á myndum eftir
börn á aldrinum 8—12 ára. sem
Althúr Ólafsson teiknikennari
héfur kennt í Mýrarhúsaskólanum
í vetur á vegum Ilandíðasltólains.
Kurt Zier skólastjóri sagði
fréttámönnum í dag. að til þess
arar sýningar væri stofnað í
þeim tilgangi að sýna, hversu
mætti takast um kennsluaðferð
við börn á bessum aldri begar
börn hefðu frjálslegan tján-
ingarhátt j rnyndgerð sem
aæti með nærgætnilegn leið-
beiningu gefið sanna mynd
af sálarlífi þeirra og . verið for-
eidrum og kennurum nauðsyn-
leg í umgengni við börn. T.ián í
ing þeirra fengi fyrst útrás - í
að gera myndir begar ban !
hefðu ekkí tileinkað sér orðaforða
og á nefndu aldursskeiðr yrði
iðulega tii verk slíks hug-
myndaflugs sem einslakling-
arnir yrðg máske aidrei upp
frá því megnugir að skapa, því
iö- eftir 12 ára aldurinn hæfist
nýtt timabil. geigjuskeiðið. og
þá hætti barnið að vera uppruna-
legt eins og það áður var.
Sýningin, sem er á tveim hæð
um Handiðaskólans verður op-
in fram yfii hvítasunnu daglega
kl. 2—10 e.h..
Byggingarframkvæmdir hófust í
nóvember s.l. Reistar voru tvær
skemmur, sem áður voru sunn
an til í Öskjuhlíðinni, auk þess
steypt síló fyrir efni og reist hús
fyrir afgreiðslu og starfsmenn.
Gólfflötur verksmíðjunnar er ca.
1000 ferm., auk starfsmannahúss,
um 80 ferm., að stærð, fyrir verk
stjóra, afgreiðslumann, kaffistofu,
böð og snyrtiklefa.
Keyptar voru pipugerðarvélar
frá fyrirtækinu Ringsted Jern-
stöberi & Maskinfabrik A/S
(RIMAS)' í Danmörku. Voru
keyptar tvær vélar af gerðinni
306, sem framleiða pípur allt að
120 cm í Þvermál. Sjálf steypu
vélin er 500 lítra þvingunarbland
ari af gerðinni Schlosser. Þá voru
einnig keyptir sjálfvirkir skammt
arar, sem mæla efnið eftir rúm
fangi í hverja blöndu fyrir sig,
steypuflutningsvagn og ýms önn
ur tæki. Rafeindaheilar stjórna
steypublöndununni, þannig að
ekki þarf annað en setja inn gata
spjald, til að fá ákveðna steypu
blöndu.
Meðalafköst véla af sömu gerð
svara til þess, að önnur litla vélin
framleiði um 300 stk. af 10 cm.
pípum, hín um 200 af 25 cm. píp
um og stóra vélin um 120 stk. af
60 cm pípum á dag, og er þá
miðað við átta stunda vinnu og
tvo menn við hverja vél. Hræri-
vélin framleiðir um 10 rúmm. af
steypu á klst. Gert er ráð fyrir
að um 15—20 manns muni starfa
við verksmiðjuna.
Trésmíðameistari við þessar
Framhald á 14. síðu.