Tíminn - 29.05.1965, Blaðsíða 1

Tíminn - 29.05.1965, Blaðsíða 1
VCRZLUNAR MANNA /SSKRtFTARSÍMI 16688 16688 16688 HANDBÓK VERZLUNAR MANNA ÁSKRIFTARSÍMI 16688 16688 16688 119. tbl. — Laugardagur 29. maí 1965 — 49. árg. Varpa Aldershot fannst í fyrradag MB-Reykjavík, föstudag. Varðskipið Þór fann í geer botnvörpu á þeim slóðum, sem togarinn Aldershot var við veiðar á, þegar hinn sögu legi eltingarleikur hófst á dögunum. Þótt enn sé ekki opinberlega búið að úrskurða að hér sé um vörpu Alder- shot að ræða eru svo sterkar líkur fyrir því, að stappar nærri fullvissu. Eins og mönnum er í fersku minni var Leslie Gumby skipstjóri á Aldershot sýkn- aður af ákæru um brot á fiskveiðilögsögureglugerðinni vegna skorts á sönnunum, og reið þar baggamuninn, að varpan, sem varðskipsmenn 'töldu að hefði verið höggvin af skipiriu, þegar eltingaleik urinn hófst, fannst ekki. Bæði skipstjórinn og Sak- sóknari ríkisins áfrýjuðu mál inu til Hæstaréttar og þar eð varpan er nú fundin fer ekki hjá því að Hæstiréttur verður að endurskoða dóm undirréttar með tilliti til þess. Varpan íannst rétt innan við fiskveiðilögsögulínuna, svo að ekki fer á milli mála, að skip það sem hún tilheyr ir, hefur verið á veiðum á ólöglegum stað. Trollið er alveg heilt, báðir vírar höggn ir og á öðrum hleranum er læsilegt eitthváð af nafninu Aldershot. Þar eð trollið hef P,'-amhalc á 14 síðu 1 «BBi SILDIN ER STYGG SIGURVEGARINN Nýbakaöur heimsmeistari i hnefaleik- um, Casjij£s, Clay rekuj, út .£[■, xér tunguna framan í áhorfendur í Lewiston, sem öskruðu „svik", eftir að hann hafði sigrað andsfæðing sinn, Sonny Liston, á rothöggí strax á fyrstu mfnútu keppninnar. Þeir sem höfðu borgað hundrað dollara í aðgangseyri, þótti þetta nokkuð sfutt gaman on töldu brögð í tafli, en Cassius Clay svaraði fullum hálsi. Myndin af Liston að hníga í gólfið undan rothögginu eru á íþróttasíðu í dag. FB-MB-Reykjavík, föstudag. f kvöld náðum við í Jón Ein- arsson skipstjóra á síldarleitar- skipinu Hafþór, og sagði hann, að síldin hefði verið heldur eafið við- úiéí'gnár síVasta sólarhring.' Hún væri ákaflega stygg, en nóg virtist þó vera af henni, ef sjómönnunum tækist a'ðcins að kasta á hana. Aðeins einn bátur hélt áleiðis í land í dag, að sögn Jóns, Ólafur Magnússon með um 1300 mál. Að- FÆÐIST SURTLA? MB—Reykjavík, föstudag. Allt bendir til þess, aS ný eyja sé fædd, nokkur hundruS metrum frá Surtsey. Sigurjón Einarsson, flugmaður hjá Flugmálastjórninni, flaug þarna yfir í dag, og hann tel- ur sig fullvissan um það, að upp sé komin lítil hrauneyja. Fleiri flugmenn, sem flugu þarna yfir í dag, telja einnig, að þarna hafi myndazt eyja, þótt þeir séu ekki eins vissir og Sigurjón. Sigurjón flaug þarna yfir um miðjan dag í dag. Hann kvað gos- ið hafa magnazt og ryki nú mun meira úr því en fyrr. Lagði vatns gufuna yfir Surtsey, þegar hann flaug yfir. Hann telur sig hafa- séð greinilega, að hraun væri komið upp úr, en Sigurjón hefur fylgzt ákaflega vel með Surtseyj- argosinu frá upphafi, og hann hef- ur einnig fylgzt mjög vel með þeim umbrotum, sem hafa verið í nágrenni Surtseyjar. Er því mjög ósennilegt, að honum hafi skjátl- azt. Hann kvaðst ekki hafa séð neina glóð, enda hafi glaðasólskin verið og því vart um það að ræða að sjá hana, nema því aðeins að um kröftugt hraunrennsli væri að ræða. Hreinn Eggertsson frá Þyt flaug einnig yfir gosstöðvarnar í dag. Hann sagði, að gosið hefði greini- 1 lega færzt í aukana, og kvað hann blettinn í kringum gosið hafa ver- ið mjög dökkan, og ekki annað að sjá en eyjan væri að skjóta upp kollinum þá og þegar, eða væri í yfirborðinu. Hann kvað aur og gosefni hafa þeytzt upp í að minnsta kosti tíu metra hæð og mikla gufu hefði lagt upp, þannig að það hefði ekki verið gott að sjá, hvort dökkninn á sjónum væri yfirborð eyjar eða um væri að ræða þykkt lag af vikri og gos- efnum, sem flytu á sjónum. Hreinn kvaðst hafa farið nokkrum sinn- um yfir hinar nýju gosstöðvar, og hefði aldrei verið eins mikill kraft ur í gosinu og nú. eins einn bátur er búinn að fara vestursvæðinu og virtist sem þar tvo túra, Þorsteinn, allir hinir eru væri um að ræða á yfirborðinu í annarri veiðiferð sinni. Bátarnir sjó, sem konitan væri úr bráðnuð- eru nú um 55—60 mílur austur afium ís. Jakob kvað slíkan sjó hafa Balatanga, og munu 25 bátar veraj komnir á síldveiðar. Jón sagði, að Hafþór væri all- mikiu dýpra úti en veiðiflotinn, eða 107 sjómílur austur af Dala- tanga. Veður væri skínandi gott og svartaþoka, dæmigert Aust- fjarðaveður, en frekar andkalt ér þó ennþá. Víða hefði orðið vart við síld, torfurnar stæðu ekki mjög djúpt, síldin væri aðeins allt of stygg ennþá til þess að hægt væri að ná henni. Ægir kom úr síldarleitarleið- angri sínum í gær, og átti blaðið í dag tal við Jakob Jakobsson fiski- fræðing og Svend Áge Malmberg haffræðing og spurði þá um nið- urstöður ferðarinnar. Jakob sagði, að of snemmt væri aö segja til um það ennþá, hverjar veiðihorfur væru á vestursvæðinu, myndi það koma betur í ljós eftir næstu ferð, en Ægir fer aðra ferð eftir helg- ina vestur og norður fyrir land. Jakob kvað ekki mjög mikinn mun á sjávarhitanum fyrir norð- an og austan, því alls staðar á þessu svæði væri sjórinn mjög kaldur, en hins vegar liti út fyrir, að talsverður eðlismunur væri á sjónum, hann væri ferskari á Framnalc s 14. siðu efV g&t FARIN ÚR ÞÝZKALANDI Heimsókn Elizabethar Eng landsdrottningar og Philips prins til Vestur-Þýzkalands lauk í gærkvöldi, þegar kon ungssnekltjan sigldi úr höfn í Hamborg. Heimsóknin hófst 18. þessa mánaðar og hvarvetna, þar sem drottn- ingin og maður hennar létu sjá sig, mætti mikill mann- fjöldi tiil þess að fagna þeim. Heimsókn þessi er sú fyrsta í 53 ár, sem brezkur þjóöhöfðingi hefur farið í til Þýzkalands, og er því talinn merkur atburður í sögunni. Síðasti brezki þjóðhöfðing- inn, sem kom til Þýzkalands, var Georg konungur, sem kom þangað árið 1913. Drottningin lauk heim- sókn sinni i gær með dvöi i Hamborg. Hundruð þús- und'ir manna fögnuðu drottn- ingunni, þegar hún kom til b orgarinnar. Hún sat tveizlu borgarstjórnarinnar í ráðhús inu, og um kvöldið hélt hún veizlu í konungssnekkjunni til heiðurs forseta Vestmr- Þýzkalands, Heinrickh Liibke Seint i gærkvöldi hélt svo drottningin úr höfn. Hér á myndinn: sést drottningin og Philip prins, en myndin var tekin þegar þau heimsóttu Mannesmann stálverksmiðjurnar i Duis- burg.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.