Morgunblaðið - 15.05.1977, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.05.1977, Blaðsíða 24
24 raðaugiýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Skipseigendur Höfum verið beðnir að auglýsa eftir 40—60 lesta fískiskipi. Góð útborgun fyrir rétt skip. Borgarskip s/f., skipasala Grettisgata 56, Sími 12320, Ólafur Stefánsson hdl. Skúli B. Ólafs viðskiptafr. heimasimi 1 2077 heimasimi 23676 Kvennadeild Breiðfirðingafélagsins fer í skemmtiferð sunnudaginn 22. maí. Farið verður frá Umferðarmiðstöð kl. 10. Uppl. í símum 33180 — 85098 — 33088. Dráttarvélar Til sölu eru tvær Zetor dráttarvélar 4718 árg. 1974. Vélarnar eru á nýjum dekkj- um. Véla/eiga Símonar Símonarsonar Kríuhólum 6, sími 74422. <* — Minning Ragnheiður Framhald af bls. 30 vinstri höndin þyrfti ekki að vita um allt sem hægri höndin gjörði. Frk. Ragnheiður fylgdist með námsmeyjum sínum löngu eftir að þær voru farnar úr skólanum og tryggari og traustari vin var ekki hægt að eignast. Ég var svo lánsöm að kynnast frk. Ragnheiði, er ég stundaði nám við Kvennaskólann árin 1915—1918, og sfðar, er ég var kennari við skólann í 34 ár, reynd- ist hún mér ávallt sannur vinur, sem ég bar óbilandi traust til. Frk. Ragnheiður var ákaflega barngóð og hændust börn ósjálf- rátt að henni. Hún rak smábarna- skóla hér í Reykjavík um árabil og þótti foreldrum ungra barna mikill fengur í að koma börnum sínum í smábarnaskóla hennar, og mikið orð fór af því, hve börn- in nutu góðrar kennslu hjá henni. Frk. Ragnheiður lét sér einnig mjög annt um líknarstörí, var hún gjaldkeri Minningargjafa- sjóðs Landspítalans frá stofnun hans 1916 þar til ársins 1972. Kvennaskólinn mun ávallt minnast frk. Ragnheiðar Jóns- dóttur og þakkar henni öll hennar frábæru störf fyrir skólann og þjóðina alla og óskar að hin íslenska þjóð mætti eignast sem flestar konur henni líkar. Blessuð sé minning hennar. Sigríður Briem Thorsteinsson. Síðastliðið laugardagskvöld andaðist fröken Ragnheiður Jóns- dóttir fyrrverandi skólastjóri Kvennaskólans í Reykjavík. Þó að aldurinn væri orðinn hár og kraftarnir að þrotum komnir þá kom samt andlát hennar á óvart. Hún hafði verið óvenju heilsugóð allt fram á miðjan sl. vetur. Kynni mín af fröken Ragn- heiði, eins og hún var ávallt kölluð og ávörpuð, eru orðin löng eða frá því að ég gekk í Kvenna- skólann í Reykjavík á árunum rétt fyrir síðari heimsstyrjöldina. Hún var frábær kennari. Nánari kunningsskapur og vin- átta varð milli okkar alllöngu síðar, eða þegar dætur mínar Guð- fínna Svava og Sigurborg gerðust nemendur í Kvennaskólanum. Þá var það, að frk. Regnheiður, sem um langt árabil bjó á sumrin í sumarhúsi sínu við Þingvalla- vatn, réð þær til sín til aðstoðar við heimilisstörf, garðyrkju og annað, sem til féll. Þetta var mikill og góður skóli fyrir syst- urnar og búa þær að þeim Iær- dómi i matreiðslu, garðyrkju og reglusemi í hvívetna á meðan þeim endist aldur. Eitt af því, sem frk. Ragnheiður lét aldrei undir höfuð leggjast í þegar hún dvaldi í sumar- ! bústaðnum, var að færa dagbók. Hún var ekki margorð í þessum skrifum. Skráð var veðurfar, gestakomur og einstakir atburðir ef henni þótti tíðindum sæta. Þær eru ófáar heimsóknir okkar hjóna í hvamminn fagra þar sem lyngið og blágresið óx svo vel og frk. Ragnheiður hafði hreiðrað svo vel um sig á bakka Þingvallavatns. Trén í garðinum, kartöflurnar og grænmetið — allt virtist dafna sem best verður á kosið, enda vel hlúð að jarðar- gróðrinum engu síður en þroska nemendanna i skóalanum hinn árstimann. Það, sem var hvað mest áber- andi í fari frk. Ragnheiðar auk reglusemi og góðs aga, var hvað hún var óvenju hreinskilin. Þegar hún lét álit sitt i ljós, þá var það tæpitungulaust og gat ekki mis- skilist. Nú þegar frk. Ragnheiður er ekki lengur á meðal okkar, þá söknum við, sem áttum því láni að fagna að kynnast henni, mikils persónuleika og góðs og tryggs vinar. Það má vera okkur huggun að rifja upp orð Biblíunnar: „Eins og þér sáið svo munuð þér upp- skera“. Um leið og ég þakka fyrir allt, sem hún hefur verið mér og mínum, þá óska ég þess af alhug að hún megi handan við móðuna miklu njóta ríkulega alls þess góða, sem hún sáði til og hlúði að hér í jarðlífinu. Blessuð sé minn- ing hennar. Sigrún Jónsdóttir Útför frk. Ragnheiðar Jónsdóttur hefur farið fram í kyrrþey sam- kvæmt ósk hennar. ADOLY'SINOASÍMINN ER: ^22480 J JRoromiblflbiíi STÓR-BINGÓ í Sigtúni fimmtud. 19. maí kl. 20.30. Húsið opnað kl. 19.30. Stórglæsilegir vinningar, 18 umferðir, sólarlandaferðir, stólar, skíði, heimil- istæki og margt fleira. Til styrktar skíðagöngumönnum Reykiavíkur. HÖT4L /A«A LÆKJARHVAMMUR/ ÁTTHAGASALUR Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar og söngkona Þuriður Sigurðardóttir DANSAÐTILKL. 1 Kappreióar Fáks hefjast kl. 15 í dag Þjóddansasýning Vorsýning Þjóðdansafélagsins verður haldin í Laugardalshöllinni í ’dag sunnudaginn 15. maí kl. 3.00. Afhending styrktarfélagsmiða og sala lausra miða verður í Laugardalshöllinni við innganginn frá kl. 1 EFNISSKRÁ Þjóddansar frá 20 þjódlöndum. M.a. Italía —■ Rússland — Perú Danmörk — Tékkóslóvakía og ísland

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.