Morgunblaðið - 15.05.1977, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.05.1977, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SÚNNUDAGUR 15. MAÍ 1977 Og síðan var hljóðritað af miklum krafti i rumt ár, fram i mai 1976. Gekk reksturinn mjög vel á þessum tima, markaðurinn revndist miklu stærri en aðstandendur stúdiósins höfðu búizt við og kostnaðurinn við að koma stúdíóinu á fót hafði ekki verið svo vkja mikill. Voru að jafnaði teknar upp 2—3 stórar plötur á mánuði I stúdíóínu eða hátt 30 plötur á þessu fvrsta starfsári. En siðan kom stóra stökkið, úr átta rásum upp i 24 rásir. Það var tekið í júni 1976. Þá var stúdióinu lokað í rúman mánuð og trésmiðir og tæknimenn unnu nótt og dag við að innrétta stúdíóið að nvju og setja upp hljóðritunarbúnað af beztu gerð. —En hvers vegna var þetta stóra stökk tekið? Var þörf- in svo mikil fyrir fullkomið stúdió? „1 fvrsta lagi vorum við alltaf i vandræðum með tækin,“ segir Jón Þór. „Þau voru allmikið úr sér gengin. I öðru lagi vorum við bara ekki í takt við tímann og höfðum ekki upp á það að bjóða sem íslenzkir hljómlistarmenn vildu. Margir þeirra höfðu unnið i stúdióum elendis og kvnnst stúdíóum með betri 8 rása tækjum eða jafnvel 16 rásum og meiru. Það var þvi um annað- hvort að ræða að leggja þe.tta stúdíó niður eða að gera það nógu gott til að geta veitt þá þjónustu sem veitt er í betri eða beztu stúdíóum erlendis." Og Sigurjón bætir við: „Við hefðum þó gjarnan viljað nota sum tækin eitthvað lengur, brevta vfir i áföngum, nota gamla 16 rása stjórnborðið áfram i nokkra mánuði og vera þannig með 16 rása stúdíó um skeið. En við sáum fram á það að annaðhvort var að hrökkva eða stökkva — og við stukkum." 0 Jafngott þvf bezta erlendis Stökkið var stærra en þeir bjuggust við. Öll breytingin var miklu dvrari en ætlað var. Þeir höfðu tekið þá ákvörðun, fyrst fjölga átti upp i 24 rásir, að gera stúdióið það gott að það væri sam- keppnisfært við hvað sem væri erlendis. Ljóst var, að markaður- inn hérlendis mvndi litið stækka, þótt stúdióið yrði 24 rása, og þvi höfðu aðstandendur Hljóðrita hf. það i huga að revna að laða erlenda tónlistarmenn að til að vinna í stúdíóinu að plötum sínum. Og þessar breytingar kostuðu mikið fé. Sjö milljónir fóru f innréttingar. Bandariskur sér- fræðingur í hönnun stúdióa, John Storyck, lagði á ráðin í þeim efnum og var ekkert til sparað til að ná sem beztum árangri. Þannig var til dæmis haft mikið fyrir þvi að ná i fallegt íslenzkt grjót — af Jón Þór Hannesson, sem starf- aði sem hljóðtæknimaður hjá sjónvarpinu fvrstu 10 árin, hafði lengi átt sér þann draum að koma á fót góðu plötuupptökustúdiói, enda var hann sjálfur gamall liðs- maður pcpphljómsveita. Hafði hann átt viðræður við ýmsa aðila um þetta mál, m.a. Fálkann félaga í Ríó, Hljómum og fleiri, en skrið komst fyrst á máiið, er hann dvaldist um skeið í Noregi. „Ég kvnntist manni sem Roger Arnhoff heitir. Hann rekur upp- tökustúdíó og kassettugerð og hann vtti mér af stað með þetta. Hann lét okkur fá upptökutæki, sem m.a. höfðu verið notuð við hljóðritun platna fyrir Ríó, Roof Tops og fleiri. Þau voru kannski Svipmynd úr stúdfóinu: Jóhann G. Jóhannsson og Jakob Magnússon ræða málln og Tony Cook hlustar á. réttri bergtegund — sem siðan var sett á hluta af einum vegg stúdiósins. Þetta var ekki gert bara til skrauts, heldur af hljóm- burðarástæðum. Ef leikið er á hljóðfæri upp við grjótið, kemur fram hvellur tónn, en ef leikið er á þetta sama hljóðfæri á öðrum stað í stúdióinu kemur fram mattur eða dempaður tónn. Þannig skipulagði John Storyck hvern fermetra stúdíósins til að skapa mismunandi umhverfi fvrir hljóðfærin. 0 Og ekki voru tækin ódýr Búið var að fá til landsins 24 rása segulbandstæki, en nú vant- aði stjórnborð, þar sem hið gamla virtist ekki ætla að endast sem skvldi. Ný 24 rása stjórnborð fengust ekki fvrir minna en 40 þúsund dollara (liðlega 7 milljónir króna). „Við lágum i ráðunevtinu til að fá heimild til að taka erlent lán og það fékkst með þvi skilyrði að við veðsettum ibúðarhúsnæði okkar sjálfra. Við fórum út og i hálfan mánuð revndum við að fá stjórnborð og fengum það loks sent frá Kali- forníu," segir Sigurjón. Óhætt er að tala um nýtt stúdió frá þessum tima, brevtingin var svo mikil. Nýja stúdióið tók til starfa 10. júli á sl. ári og síðan hafa verið teknar upp hátt i 30 plötur þar. % Reksturinn er hugsjón Fyrir skömmu f jallaði Slagbrandur um 24 rása hljóðritunartækni og þá möguleika sem hún veitir, en sem kunnugt er starfar eitt stúdfó með slík tæki af beztu gerð í Hafnarfirði, stúdíó Hljóðrita hf. Tilkoma þess stúdfós fyrir tveimur árum varð upphafið af mikilli grósku- tíð f fslenzkri plötuútgáfu og má eiginlega segja að mestallt plötuflóðið á sfðasta ári sé þaðan komið. f dag fjallar Slagbrandur um stúdíóið. aðdragandann að stofnun þess, upp- bygginguna og framtíðarhorfurnar. Ræðir Slagbrandur við þá þrjá menn sem öðrum fremur hafa byggt stúdfóið upp sem fyrirtæki og stjórnað rekstri þess. Þeir eru Jón Þór Hannesson, sem lengi var hljóðtæknimaður hjá sjónvarpinu, Jónas R. Jónsson og Sigurjón Sighvatsson, en þeir sfðarnefndu eru löngu landskunnir popptónlistarmenn. Auk þeirra þriggja eru eigendur að stúdfóinu þeir Böðvar Guðmundsson hljóðtæknimaður hjá sjón- varpinu, Gunnar Þórðarson, Magnús Kjartans- son og Steinar Berg, en þeir þrír sfðastnefndu eru allir plötuútgefendur og hafa einmitt látið stúdfóinu f té bróðurpartinn af verkefnum þess fyrstu tvö árin. Stúdióið var opnað 11. april 1975 og fvrsta platan sem tekin var upp var fvrsta stóra plata Gvlfa Ægissonar, sem náði mikl- um vinsældum meðai almennings, sem kunnugt er. Er þvi óhætt að segja að vel hafi tekizt til strax í byrjun, þrátt fvrir að stúdíóið hafi ekki verið að öllu leyti tilbúið. „Það var varla búið að sópa saginu burt, þegar strákarnir bvrjuðu að taka upp,“ segir Sigurjón. „Það var búið að gera alls konar útreikninga á þvi hvernig afkoma fvrirtækisins yrði eftir brevting- una,“ segir Jónas, „og þeir hafa fæstir staðizt. Breytingin varð svo miklu dýrari en menn bjuggust við. En þetta er bara vinna og meiri vinna og þá nást endar saman og þetta gengur. Fvrir- tækið gerir ekki meira en það. Það skilar engum arði af peningunum sem i það hafa verið lagðir. Það myndi enginn maður leggja fé í þetta fyrirtæki af gróðaástæðum tii að fá arð. Þessi rekstur er bara einhver hugsjón." Starfsmenn stúdíósins eru ekki margir. Tveir upptökumenn eru þar í fullu starfi, þeir Tonv Cook og Jónas R. Jónsson, Tonv Cook er Englendingur og hefur nú starfað i stúdíóinu f rúmt ár. Hann var ráðinn eftir augtýsingu i brezku blaði til að vinna við hljóðritun með átta rása tækjunum, en ákvað svo að starfa hér áfram eftir að nýju tækin höfðu verið sett upp. Hér hefur hann haft geysimikið að gera — og gott kaup, en þó má ætla að honum þvki mestur akkur í þeirri miklu reynslu sem hann öðlast hér sem upptökumaður. Þótt Þessi mynd var tekin f stúdfóinu fyrir nokkrum vikum, þegar hönnuður stúdiósins, John Storyck, kom f eina af mörgum eftirlitsferðum sfnum ásamt tæknimanni, sem vann að uppsetningu nýrra tækja. Talið frá vinstri: Sigurjón Sighvatsson, Theodore Rothstein, tæknifræðingur, John Storyck hönnuður stúdiós- ins, Jónas R. Jónsson og blaðakonan Deborah Rothstein, en hún hefur skrifað grein um stúdfóið sem birtast mun f einu þekktasta tfmariti Bandarfkjanna á sviði stúdfómálefna. Stúdíó Hljóðrita hf. í Hafnarfirði: Stúdíóið er samkeppnis- fært við fræg- ustu stúdíóin erlendis ekki fvrsta flokks en gáfu þó meiri möguleika en áður höfðu þekkst hér á landi. Þetta kom okkur af stað og einnig loforð fjármálaráðunevtisins um að fella niður toll af tækjunum, þar sem þau ættu að fara til iðnaðarfram- Ieiðslu.“ Jón Þór fékk Böðvar Guðmundsson, annan hljóðtækni- mann hjá sjónvarpinu, í lið með sér og siðar Jónas R. Jónsson. „Menn voru búnir að ræða um þetta I mörg, mörg ár, alltaf þennan sama draum," segir Jónas. „Það þýddi ekkert að halda áfram að dreyma, það varð bara að vinna og framkvæma. Við fór- um út til Noregs um áramótin 1974/75 og gengum frá kaupum á tækjunum og siðan tókum við húsnæðið hér i Hafnarfirði á leigu og fórum að innrétta það og undirbúa opnun þess.“ Og á þessu stigi gekk Sigurjón Sighvatsson inn í samstarfið og tók að sér að sjá um rekstur stúdíósins og fjár- málin. Gylfi Ægisson fyrstur íí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.