Morgunblaðið - 15.05.1977, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.05.1977, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAl 1977 ÍtMW FRÁ tízkufréttaritara Morgunblaðsins í New York, HOWARD LAWRENCE: ALLT STÖRT OG HÖLKVITT, SVO ENGINN ÞARF 1 MEGRtJNARFÆÐIÐ Samtök sunnlenzkra sveitarfélaga: Skipulags- mál og byggða- þróun aðal verkefnin AÐALFLNDUR Samtaka sunn- len/kra sveitarfflana var haldinn f.vrir skömmu í ÖlfusborKum <>k flutti formartur samtakanna, Ölvir Karlsson skvrslu stjörnar- innar. í henni kom fram að starf- semi þeirra var mikil á s.l. ári og unniö hefur verið að sameÍKÍnleg- um ha«smunamálum sveitar- félaganna svo sem orkumálum, samKÖnKumálum, atvinnumálum <>k menntamálum. Unnið er að áætlun um uppbyKKÍnKU þriggja fasa raforkudreifikerfis I kjör- dæminu <>k athuKanir fara fram á því hvernÍK haf>kva‘mast sé að nvta innlenda orkugjafa til upp- hitunar húsnæðis f þéttbýlis- kjörnum. Þá kom fram i frétt frá samtökunum að sveitarfélögin hafa huK á að nota sér rétt sinn í samhandi við útrvminKU heilsu- spillandi húsnæðis <>(? vaxandi áhuKÍ er á því að b.vKKja íbúðir og aðstöðu fyrir aldraða <>K njóta lánaf.vrirgreiðslu húsna-ðismála- st jórnar f því sambandi. Að lokinni skýrslu stjórnar Kerði Guðmundur Gunnarsson í-rein fyrir fjárhaf> samtakanna, sem var erfiður framan af órinu sem leið, en er nú kominn á traustan f<rundv<>ll Skipul;iK-s- <>K hyKKðaþróunarmál voru aðalvið- fanK-sefni fundarins <>k voru frummælendur þrÍKKjo erínda þessir: Bjarni Einarsson forstöðu- maður hyfífíðadeildar Fram- væmdastofnunar ríkisins, er ræddi um hyjíf'ðaáætlanir al- mennt, starfsemi hyKfjðadeildar <>ft samstarf hennar <>f> landshluta- samtakanna. Gylfi ísaksson verk- fræðinftur, er ræddi um hyfiftða- áætlanir þétthýlissvæða með sér- stakri hliðsjón af hyftftöaáætlun Vestmannaeyja, sem nú er á loka- stifti, en hún hefur verið unnin í samvinnu Vestmannaeyjakaup- staðar, samtakanna <>ft Fram- kvæmdastofnunarinnar. Guð- mundur Siftþórsson, fulltrúi í landhúnaðarráðuneytinu flutti erindi um landltúnaðaráætlanir <>ft hyftftðaáætlanir i dreifbýli. Er- indi þessi þóttu hin athyftlisverð- ustu <>ft spunnust unt þau nokkrar umræður. Almenn ánæftja kom frani i sambandi við það að starf- semi hyftftðadeildar virðist nú vera að mestu fastmótuð <>ft vænta menn ntikils af henni í framtíö- inni. » * »---- — Sjálfsvörn Framhald af bls. 13. komulaft höfðu Islendingar einn- ift áður en samninfturinn frá 1901 var fterður, hæði að því er varöar ftrunnlínu <>ft fjöfturra mílna fjar- lættð frá þeim. 3. Islendingar eru nú að undir- húa ráðstafanir sínar á þessurn ítrundvelli." Stjórnin ftaf síðan út bráða- hirttðalöftin 19. marz, sem staðfest voru á Alþinfti um haustið. Ut- færslan varð að veruleika 15. maí 1952 oft hún fól i sér fjöfturra nn'lna landhelfti miðaö við ftrunn- línur dreftnar frá ystu skerjum og annesjum. Bannaóar voru botn- vörpu- of; draftnótaveiðar innan ntarkanna bæði innlendum og er- lendum veiðiskipum og útlendum jafnframt allar aðrar veiðar. i lög- um þessum var heimild til at- vinnumálaráðune.vtísins þess efn- is að það gat takmarkað fjölda veiðískipa sem og hámarksveiði hvers einstaks skips, ef það teldi unt ofveiði vera að r»>ða. Viðbröftð erlendra þjóöa voru æði misjöfn. Haustið 1952 knúðu brezkir togaraeigendur frant löndunarbann á íslenzkan fisk í Bretlandi. sem stóð allar götur frant i nóvembermánud 1956. — mf. Saint I.aurent Rive Gauche — 1977/78: Ullarkjóll með slá úr kfnversku prjónsilki og stígvél. „Nú hef ég séð tízkusýningar fyrir haustið 1977 í London, París og Mílanó og get ég með ánægju sagt að ennþá gefst konum tækifæri til að velja og hafna um leið og þær geta fylgt tízkunni. En tízkan fyrir kom- andi haust er dýr og ég er hræddur um að sá klæðnaður, sem konan á í dag, dugi ekki. Stuttur rauður kjóll úr flanneli frá Yves Saint Laurent. Nýja iínan er stór og við! Stórar, víðar kápur, viðamiklir jakkar, viðar peysur, stór pils, alit er yfirmáta stórt, vítt og næstum „rosalegt". Sýningar Jean Cleude de Luca og Claude Montana i París voru báðar mjög glæsileg- ar. Klæðnaður sá, sem þeir báð- ir kynntu, var ólíkt viðameiri og víðari en áður. Pilsin voru við, flagsandi og tekin saman með streng í mittið. Við þau voru léttar og þægilegar „bændaskyrtur", eins og þær eru kaliaðar og ofsalega stórir jakkar og kápur. Mynztraður rauður silki — „crepe“ kjóll frá Christian Dior. Givenchy: Chiffon blússa i svörtum kóral, hvitum og gyllt- um litum, með brúnum flauels- böndum. Pilsið er úr rústrauðu silki með brúnu, drapplitu og rústrauðu kögri. Brúnt „kaðla- belti“ með stórri gullspennu og brúnum steinum. Rauður kjóll með slá frá Christian Dior. YVES SAINT LAURENT er enn þá konungur tízkunnar i París. Sýning hans núna var mjög falleg. Mjúkur og kven- legur fatnaður og einnig skrautlegur. Blússukjólar með víðum undirpilsum, svörtum sokkum, mynztruðum leður- skóm og borða yfir ristina. Ef um einhverja hversdagsskó var að ræða, þvi nú eru allir I stig- vélum, voru þeir með lágum hælum. Sýnt var miklu meira af kvöldskóm, bandaskóm með gylltri eða silfurlitri líningu. Það, sem allir tizkufrömuð- urnir kepptust við að sýna i skófatnaði, voru stígvéi, stigvél og aftur stigvél. Aðalbreytingar á línu klæðn- aðar frá því á siðustu sýningum er að þröng, níðþröng föt eru horfin úr tízku. Nú geta feitu konurnar tekið sér frí og hætt við alla megrunarkúra. Allt er annað hvort tjaldvitt eða vitt og tekið saman í mittinu. Japanski tízkuteiknarinn Kenzo sýndi viða, stutta kjóla við sokkabuxur og stigvél. Siðbuxur þær, sem sýndar voru, náðu allar upp í mitti. Þær voru hjá Dior og Givenchy og allar beinsniðnar, frekar Lanvin: Kápa ( rauðu, „orange“, og brúnu með leður- belti yfir ullarpilsi, sem er bryddað með skinnkanti eins og myndin sýnir. þröngar. Hins vegar finna gallabuxurnar níðþröngu ekki lengur náð fyrir augum tízku- kónganna. Einnig virðist hinn sígildi klæðskerasaumaði klæðnaður njóta þverrandi vinsælda hjá hinum háu herrum. Á undan- förnum sýningum var t.d. ekki mikið um bein eða þröng pils og næstum engir blazer-jakkar. í stað þeirra eru komnar hólkvíð- ar peysur og víð pils. Annar japanskur tízkuteikn- ari, Kenzi Yamamoto, sýndi frá- bærlega skemmtilegar péysur með „komono-ermum“. Dorothee Biz var með peysu- kjóla og peysukápur, sem virt- ust handprjónaðar. DIOR sýndi fallega kvöld- kjóla, suma stutta, aðra mjög flegna og ýmist með felldu pilsi eða klauf. Michel Goma sýndi síð pils úr silkilérefti ásamt peysum með flauelslíningum og um háls sýningarstúlknanna var strútsfjaðrakragi. Það er mikið um kjóla núna, bæði kjóla fyrir hanastélsboð og veit- ingahús. Efnin, sem mest eru í tízku, eru kínasilki, satin, jer- sey og flauel og eru þau ýmist áprentuð eða laus við allt mynztur. LANVIN var i þetta sinn með eina fallegustu tízkusýninguna í París. Þar voru mussur yfir viðum pilsum, sem voru brydd- uð skinni. Fullt af hversdags- kjólum í bændastíl og óvenju- legar samsetningar efna, eins og til dæmis röndóttar ullar- dragtir í rauðu og bláu við föl- bláar silkiblússur og við þessa múnderingu voru svo skinn- jakkar eða loðfeldir, bæði til dag- og kvöldnota. Það er mikið um líningar á fatnaði, úr leðri hjá Givenchy og úr uil hjá Dior. DANIEL HECHTER var með sýningu og litu stúlkurnar hans út eins og þær, sem voru i menntaskóla fyrir tíu árum eða svo, nema hvað að þær hafa örugglega fáar efni á slíkum fatnaði í dag. Mikið af felldum pilsum og peysum i stil. Jean Patou, sem átti heiðurinn af einni af fallegustu sýningunum síðast, olli fremur vonbrigðum núna. Hann sýndi hnébuxurvið jakka, eða mussur eða skyrtu- blússukjóla, sem var ekkert sér- lega fallegt. KARL LAGERFIELD hjá Cloe var mjög rómantiskur. Sýndi hatta og stigvél eins og skytturnar i sögum Dumas klæddust og mikið af róman- tiskum 18. aldar kjólum með pifum, sem er ekki beinlinis hentugur nútímaklæðnaður. Klæðnaðurinn hjá Emmanuelle Kahn var beint frá sjötta ára- tugnum, svolítið kjánaiegur og ekkert athyglisverður ef frá eru talin nokkur felld pils og bundnar blússur. Bezt gerðu kjólarnir, bæði stuttir og síðir, voru í London hjá Marissu Martin, Jean Muir, Zandra Rhodes, Janice Wein- Michel Goma sýndi m.a. þessa ullarúlpu, fóðraða með lamb- skinni við stuttbuxur með upp- broti. Stígvélin eru frá Carel wright og Bill Gibb. Þau sýndu öll mjög fallega kjóla, klæði- lega og rómantfska. Við marga voru höfð mynztruð sjöl eða einföld. Nú dugir sem sé ekkert ann- að en áprentuð efni, fellingar, sjöl við allt og yfir öllu, mussur, Vatteruð regnkápa úr kaki frá Michel Goma. skinn, leður, líningar og stig- vél; stígvél við allan klæðnað. Enginn skyldi hafa áhyggjur af siddinni, hún er allt frá mjög stuttum pilsum við þykkar sokkabuxur, niður á hné, fyrir neðan hné, niður á miðja kálfa, niður á ökla og skósið. Litir eru bæði bjartir og fölir. Belti eru öll á mjöðmunum og með stórum málmspennum, hattar eru litlir, stundum hafð- ir með slæðum eða f jöður. Tízkan á þessum sýningum er falleg. Leiðinlegt að hún skuli þurfa að vera dýr líka! tnuiiuaudlr, ni zieuiu IrO'jrn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.