Morgunblaðið - 15.05.1977, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.05.1977, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1977 ELUN eljusömu eldast best FYRIR stuttu var haldið lækna- þing á vegum félags geðlækna og taugalækna i Berlín. Helzta um- ræóuefnið á þingi þessu var öldr- un. Kom þar margt athyglisvert á daginn. M.a. bar flestum, sem tóku til máls, saman um það, að mikið væri til í þeim fornkveðnu orðum, að vinnan héldi mönnum ungum. Það hefur komið í ljós i rannsóknum, að þeir, sem hafa jafnan nóg að gera eldast hægar og betur en þeir, sem hafa tiltölu- lega hægan starfa fram eftir ævi, hætta svo að vinna og taka sér þá ekkert áhugamál fyrir hendur. Öldrunarfræðingar telja jafnvel, að mönnum þurfi lítið eða ekki að fara aftur fyrr en eftir nírætt, ef þeir hagi sér skynsamlega. Það kom og fram á þinginu, að menn villtust oftlega á ýmsum sjúkdómseinkennum og teldu þau merki um ellihrumleika. Þegar iæknar fengju gamalt fólk til meðferðar mættu þeir ekki láta sér nægja að huga að andlegum og iíkamlegum atriðum — þeir yrðu líka að gefa gaum að félags- legum atriðum, sem oft yllu ekki minna um heilsu fólksins. En því miður mun vera algengt, að gam- alt fólk hljóti laka eða ranga með- ferð. Það stafar ekki alltaf af mis- tökum lækna. Það veldur líka miklu, að ættingjar aldraðra og opinberar stofnanir vanrækja sinn hlut. Ennfremur standa við- horf gamla fólksins sjálfs því ósjaldan fyrir þrifum. Það hefur komið i ljós í athugunum, að við- horf lækna og hjúkrunarfólks til gamalmenna og sjúkdóma þeirra eru oft neikvæð. Þegar viðhorf gamalmennanna sjálfra eru líka neikvæð er varla við góðu að bú- ast. En þessum viðhorfum fylgir oft tilhneiging til uppgjafar fyrir sjúkdómum — einkum geðsjúk- dómum — í gamalmennum, og slík afstaða getur hæglega komið i veg fyrir lækningu og bata. Af könnun, sem gerð var i Göttingen, ekki alls fyrir löngu, má ráða, að heilsunni þurfi alls ekki endilega að fara hrakandi er menn eldast. Fjöldi manna var spurður; voru þeir allir sjötugir eða eldri. Tæp helft þeirra var við góða heilsu. Sumir kenndu sér jafnvel einskis meins. Þriðjungur virtist ekki eiga við neina andlega kviila að etja og 40% voru haldin einhverjum litilvægum kvillum, svo sem gleymni. Gamla fólkið var spurt þess m.a. hve oft það færi til læknis. Þá brá svo undarlega við, að 8% þeirra, sem bezt voru á sig komnir reynd- ust vitja læknis 10 sinnum á ári eða oftar — en 8% þeirra heilsu- tæpustu föru yfirleitt aldrei til læknis. Margir þeirra, sem aldrei komu til læknis voru bæði haldnir líkamlegum kvillum og andleg- um. Sumir voru ekki einu sinni færir um það að hringja til lækn- is. Algengt reyndist, að gamla fólk- ið sætti sig við veikindi sin og hugsaði sem svo, að lítið væri við þeim að gera. Aðspurðir kváðust að jafnaði haldnir 1.3 sjúkdóm- um. Við rannsókn kom aftur á möti á daginn, ; ð þeir þjáðust að jafnaði af fjórum sjúkdómum hver. Flestir þeir, sem leituðu læknis á reglulegum fresti höfðu fengið viðhlítandi meðferð og voru allvel haldnir eftir atvikum. Aðrir höfðu hins vegar ekki verið skoðaðir árum saman — og voru þó sumir haldnir langvinnum HARÐSTJORN—— Fjölskyldan sem hirti Nicaragua sjúkdómum. Margir höfðu þeir fengið lyf send reglulega án ljósra leiðbeininga. Ófáir reynd- ust ekki hafa hugmynd um það, hvað þeir ættu að gera við lyfin. Enn fremur reyndust 45% þeirra hafa fengið lyf, sem talin eru gagnslítil eða gagnslaus og öldr- unarfræðingar hafa hinn mesta imugust á. Einn sjúklinganna hafði jafnvel fengið sjö slík lyf samtimis. I fyrra var opnuð í Hamborg göngudeild fyrir gamalmenni, sem haldin eru andlegum kvill- um. Claus Wáchtler, læknir þar, tók til máls á þinginu í Berlín, sem hér hefur verið frá sagt. Kvað hann sig og starfsbræður sína á göngudeildinni vera hætta að gefa gömlu fólki „öldrunar- lyf“, sem sumir teldu örva heila- starfsemina. í staðinn fengi gamla fólkið hjarta- og blóðrásar- meðferð. Hann lagði og áherzlu á það, að gamalmenni haldin and- legum kvillum þyrfti að skoða vandlega, ef það mætti verða til þess að fyndust einkenni líkam- legra sjúkdóma, sem leynt hefðu á sér. Einkum væri áriðandi, að rannsaka slíka sjúklinga vel áður en þeim væru gefin lyf við geð- kvillum. Slík lyf gætu nefnilega orðið til þess að leyna einkennum annarra sjúkdóma. THE GERMAN TRIBUNE. Anastasio Somoza, forseti Nicara- gua, rekur rfki sitt eins og fjölskyldu- fyrirtæki — og það er rekiS meS gróða. Þessa verður Iftið vart á ytra borð- inu. Somoza er ekki jafn auglýsinga- glaður og Trujillo forseti Domini- kanska lýðveldisins var og Duvalier á Haiti er. Þeir höfðu nöfn sfn á öðru hverju götuhorni ! höfuðborgum rfkja sinna. Somoza þarf ekki að auglýsa sig á götum úti. Það vita hvort eð er allir, að hann á landið eins og það leggur sig, eða nærri þvi. Menn koma til Nicaragua ! þotu frá Lanica, flugfélagi Somoza for- seta. aka inn f höfuðborgina, Mana- gua, f strætisvögnum, sem Somoza flytur inn. Alla leiðina er ekið eftir vegum lögðum úr steinsteypu frá einkasölu Somoza. Maturinn sem menn fá á hótelum er frá fyrir- tækjum Somoza kominn: fiskurinn, kjötið. hrfsgrjónin. sykurinn, kaffið. saltið — og jafnvel fsmolarnir út f vfnið. Somoza forseti á sumsé 44 af stærstu fyrirtækjum f landinu. Mörg þeirra eru einkasölur. En auk þessa á hann fjölmörg fyrirtæki f félagi við ættingja sfna, ótalin hlutabréf ! enn öðrum fyrirtækjum. sem aðrir eiga að meiri hluta, og loks miklar eignir ! Bandarfkjunum, Evrópu og ýmsum Suðurameríkuríjum. UPPHAFIÐ Það var Anastasio I Somoza, faðir núverandi forseta. sem lagði grund- völlinn, að fjölskylduveldinu. Þegar landgöngulið bandarfska flotans fór frá Nicaragua árið 1933. var Anastasio I settur yfir þjóðvörð landsins og átti hann að gæta friðar og reglu fyrir frænda sinn, forsetann. Það gerði hann — f þrjú ár. Þá var hann orðinn leiður á þvf að vera undirtylla, steypti frænda sfnum af stóli og skipaði sjálfan sig forseta. Það var áríð 1936. Anastasio rfkti svo allar götur fram að 1956. Þá var hann ráðinn af dögum. Tók þá við forsetaembætti Luis, elzti sonur hans. Luis lézt árið 1967. Þá kom til rfkis Anastasio II. yngri bróðir hans. og hann er enn við völd. Anastasio I átti tvö böm önnur.' Annað var stúlka, Liliam. en hitt óskilgetinn sonur, Jose að nafni. TITANIK NÚ ERU liðin 65 ár frá því, að risaskipið Titanic, „sjóborgin ósökkvandi", rakst á ísjaka á norðurslóðum í jómfrúrferð sinni og sökk á þriggja kólómetra dýpi. Allar götur síðan hafa menn verið að brugga ráð til að komast að skipinu; með því sukku nefnilega geysileg auðævi, talin í milljörð- um sterlingspunda. Þessi ráð hafa verið misjafnlega hugvitssamleg — og ekkert svo hugvitssamlegt, að það dygði. Kostnaðurinn hefur líka hamlað tilraununum. Það yrði óhemjudýrt, að bjarga skip- inu. Aðstæður eru nærri jafn- slæmar og hugsast getur. Ýmsir sérfræðingar hafa haldið því fram, að ekki þýddi framar að hugsa til björgunar. Skipið væri búið að liggja of lengi á hafsbotni. En nú eru risnir upp þrír stór- huga athafnamenn, sem hyggjast reyna samt. Þetta eru þýzkir fjár- málamenn. Þeir ætla að fara nokkuð öðru vísi að en ráð hefur verið fyrif gert í öðrum áætlun- um. Oftast hefur verið ætlunin að ná skipinu upp f heilu lagi, eða nokkurn veginn, upp úr sjó. Mundi það nú ekki auðgert því, að það vegur 46 þúsund tonn. En Þjóðverjarnir ætla ekki að reyna það. Þeir ætla að láta kafa niður Fjársjóður á þrjú þúsund metra dýpi að skipinu og ná fjársjóðnum úr því þar, sem það liggur. Það er ekki ofmælt, þegar talað er um fjársjóð í Titanic. Það er áreiðanlegt, eins og fyrr sagði, að hann nemur milljörðum sterlings- punda. Margir ríkismenn voru um borð. Skartgripir þeirra eru í peningaskápum skipsins, og auk þess er vitað um óslíþaða dem- anta, er sendir voru frá Amster- dam og áttu að fara til New York og metnir hafa verið til 125 þús- unda dollara (u.þ.b. 24 millj. fsl. kr.). Thomas Gfrörer, einn Þjóð- verjanna, sem hyggjast koma höndum yfir fjársjóðinn kveðst einnig vita með vissu um perlu- festi, er hafi verið tryggð fyr'ir 750 þýsund dollara (u.þ.b. 143 millj. kr.) árið 1912 og sé örugg- lega orðin tfu sinnum verðmætari núna. Þeir Gfrörer og félagar hans, Jörg Sommerfeldt og Jörg Wolt- mann, segjast vera búnir að verja meira en nemi 60 þúsundum sterlingspunda (20 millj. kr.) í rannsóknir til undirbúnings björguninni úr Titanic. Segja þeir, að björgunin muni kosta jafnvirði 12 milljóna punda (u.þ.b. 4 milljarða kr.), þegar allt sé talið. Þeir félagar hafa í hönd- um teikningar af skipinu, þar sem sést peningaskápur þess og stend- ur með bakið i byrðinginn. Er ætlunin að senda kafara niður — fjarstýrð vélmenni, vel að merkja því, að menn komast ekki enn svo djúpt — og risti þeir gat á byrð- inginn og nái djásnunum þannig. FRANKLIN JORDAN. ATÓMSPRENGJAN NÚ ER búið að birta gamlar leyniskýrslur um „Manhatt- anáætlunina" bandarísku sem svo var nefnd. Það var áætlun um smíði kjarnorku- sprengju. En Bandaríkja menn urðu fyrstir til þess að smíða kjarnorkusprengju eins og kunnugt er. Hún var i smiðum í sjö ár, frá 1941 — 1947 Manhattanskýrslurnar eru i 35 bindum alls og er þar margt fróðlegt. Til dæmis það, að einar 200 tilraunir voru gerðar til skemmdarverka meðan stóð á smíði sprengjunnar. Meðan verið var að smiða sprengjuna reyndi Bandarfkjastjórn hvað hún gat til að afla sér upplýs- inga um það, hvert aðrar þjóðir væru komnar í kjarn- orkurannsóknum. Vitað var, að Bretar höfðu mikið rannsakað kjarnorku, en einnig var talið, að þýzkir og sovézkir visindamenn væru langt komnir. Loks höfðu einhverjar rannsóknir farið fram á ítaliu og f Jap- an. Það kemur reyndar fram i skýrslunum, að Sovétmenn voru komnir langt áleiðis i Kapp- hlaupið um þá stóru kjarnorkurannsóknum á ár- unum milli 1930 og 1940. En þeim rannsóknum var hætt i miðju kafi að boði Stalins. Hann sá engan hernaðarlegan ávinning af þeim! Helztu keppinautar Bandarikjamanna voru Þjóðverjar. Má skilja það af Manhattanskýrslunum, að Bandarikjamenn óttuðust mjög, að Þjóðverjarnir yrðu á undan þeim að smíða sprengju. Þjóðverjum mið- aði m.a.s. svo vel áfram, að Bandarfkjamenn óttuðust, að þeir mundu geta blásið geislavirku skýi yfir strend- urnar í Normandí þar, sem bandamenn hugðust gera innrásina. Kostnaðurinn við smiði bandarísku sprengjunnar varð gifurlegur, og segir i skýrslunum, að engin leið sé að reikna hann til fulls þar eð allar greinar banda- rísks iðnaðar hafi komið þar við sögu. En slikur varð kostnaðurinn, að við borð lá, að Bandarikin risu ekki undir honum. Til dæmis að nefna voru eitt sinn veitt í einu 17 þúsund tonn af silfri úr, ríkissjóði Það átti ekki að nota til greiðslu — heldur átti að bræða það og nota til sprengjusmfðinnar. Upphaflega grunaði bandaríska embættismenn, að Sovétmenn yrðu fyrstir til þess að smiða kjarnorku- sprengju. Árið 1939 hafði sovézkum visindamanni, A.l. Brodsky að nafni, tekizt að skilja úraníumísótópa. En það er nauðsynlegt til slikrar sprengju og var stórt skref i áttina. Bandarfkja- menn ákváðu þá, að leggja allt kapp á það að smiða sprengju og veita til þess allt það fé, sem þurfti með- an nokkuð væri til. Þóttust þeir verða að hafa hraðan á þvi, að þeir væru orðnir á eftir öðrum. Fengnir voru brezkir kjarnvisindamenn til aðstoðar, og leið ekki á löngu þar til Bandarikja- menn voru komnir fram úr öðrum sprengjusmiðum. Tvennt var það helzt, sem vildi Bandarikjamönn- um til i keppni þessari. Ann- að var það, að efnahagur þýzka ríkisins var þegar orðinn mjög lágur. Voru Þjóðverjar búnir að eyða um efni fram og höfðu ekki lengur fé sem þurfti til kjarnorkusprengjusmiði sinnar. En hitt var það, að Stalin stöðvaði sprengju- smiði Sovétmanna árið 1941, af ástæðu, sem fyrr var nefnd. Þegar kom fram á árið 1943 varð Sovétmönnum hins vegar Ijóst, að Banda- rikjamenn mundu vera i óða önn að smíða kjarn- orkusprengju. Skipti Stalin þá um skoðun sfna og skip- VERKSUMMERKI — Fyrsta atómsprengjan sem Banda- rikjamenn sprengdu í til- raunaskyni bræddi stálturn- inn sem henni var komið fyrir aði leyniþjónustunni að afla upplýsinga um bandarisku sprengjuna. Höfðu Sovét- menn nú úti öll spjót. Beittu þeir fyrir sig banda- rískum kommúnistum, sem áður höfðu stundað fyrir þá iðnaðarnjósnir. En mest gagn varð þeim að land- flótta visindamanni þýzk- um, Klaus Fuchs, sem vann að sprengjusmiðinni. Hann lét Sovétmönnum i té dýr- mætan fróðleik. Enn fremur höfðu þeir njósnara í brezk- bandariskri samstarfs- nefnd, og lét hann þá vita jafnóðum af gangi banda- rísku sprengjusmiðinnar. Þjóðverjar vissu hins veg- ar litið eða ekkert um sprengjusmiði Bandarikja- manna. Þjóðverjarnir héldu áfram að vinna að sinni sprengju þrátt fyrir slæma aðstöðu og miðaði vel eftir atvikum. Þegar farið var að athuga málið eftir strið kom i Ijós, að Þjóðverjar höfðu átt svo sem þriggja ára starf eftir við sprengjuna. Um Sovétmenn er það að segja, að þeir voru aftur búnir að ná sér á strik árið 1943. En svo gekk á efni þeirra í styrjöldinni, að sprengja þeirra varð ekki tilbúin fyrr en árið 1949. Þá voru Bandarikjamenn farnir að framleiða 100 kjarnorkusprengjur á dag. — ERNEST VOLKMAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.