Morgunblaðið - 15.05.1977, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.05.1977, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAl 1977 7 Skyggnstu um I því safni liðinna alda, sem þú átt aðgang að, og hvarvetna verða fyrir þér menn, sem biðja. Leitaðu í sögu lifs og lista, hvarvetna verða fyrir þér biðjandi menn. Og lengra enn: Upp úr myrkri forsögunnar, þar sem ritaðar heimildir þrýtur, er fornleifa- fræðin að draga fram i dags- birtu nýja og nýja þekkingu á högum þeirra kynslóða sem áður lifðu en við höfðum vitneskju um. Einnig þetta fólk, þessar órafjarlægu þjóðiráttu sina eðlisbundnu guðsþrá, sem leitaði sér út- rásar i bæn með spenntum greipum og hneigðu höfði. Trúarbrögð voru og eru margvísleg. Stórkostlegt af- rek var tilraun Gautama Búddha í þá átt að skapa trúkerfi án trúará persónu- legan Guð og án bænar En ekki voru langir timar liðnir, unz meginstraumur búddha- dóms hafði hnigið til þeirrar áttar, að Guð og bæn var þungamiðja hans. Þetta hlaut þannig að fara. Af engri kynslóð er til frambúð- ar hægt að hafa það, sem dýpstum rótum stendur í barmihennar og i eðli hennar liggur innst. Bænin Að sjálfsögðu er með mörgu móti beðið Fjöl- breytni mannlifsins sér um það Og þó er bænin em, innsti grunnur hennar einnn, innsta þráinein, þótt tajningin finni sér margvisleg form, þótt af einni rót séu runnin. í dag er almennur bæna- dagurisl. þjóðkirkjunnar. Um bænina hljótum við þvi að hugsa og algildi hennar. Undan rótum trúaðrar mannssálar rennur hennar heilaga lind. Hún er trúuðum manni eins sjálfsögð og andardrátturinn er líkaman- um. En þegartrú gerist veik fjölgar efasemdum um gagn- semi hennarog spurnangun- um um bænheyrsluna sjálfa. Sú hugmynd, sem hvað frumstæðust er og mörgum til ásteytingar, er sú að með því að biðja sé unnt að fá Guð til að gera eitthvað sem hann ætlaði ekki að gera áð- uren maðurinn bað hann. Þannig túlka margiráður hina alkunnu sögu Gamla- testamentisins um glimu Ja- kobs við Jahve, Guð Gyð- inga. Og Þannig er stundum túlkuð sagan í Nýjatesta- mentinu. Um manninn, sem loks lét undan þrábeiðni kon- unnar til þess að hafa hana af sér og fá frið. Bænin breytirekki Guði, en til hvers er þá að biðja? Það sem þú þráir og skiptir þig miklu og er jafnframt þér til góðs, hefur Guð alltaf vilj- að veita þér, en með því að biðja i auðmýkt og trausti opnar þú honum farveg að sál þinni með gjöf, sem á valdi þinu er að þiggja eða þiggja ekki. í þúsund eða þúsundir ára hafði straumþungi Sogsms talað máli, sem menn skildu ekki, er sátu i myrkum og köldum moldarbæjum. Þeir höfðu horft á geisla sólar og mána leika á straumöldum vatnsins og gefið honum nafnið Ljósafoss. Nú þegar hann lýsir og vermir híbýli manna, vitum við fyrst hvílík- ur Ljósafoss hann er. Þannig er umhverfeokkar þrungið blessun Guðs, andlegri og líkamlegri og biður þess að við þiggjum hana. Visinda- tæknin breytir ekki vilja Guðs, en hún gerir okkur kleift að þiggja þá blessun, sem lengi, lengi biðurokkar. Hvernig gerist bæn- heyrslan? Hér stigur fótur þinn á land mikilla leyndar- dóma. Dulsálarfræðin hefur leitt i Ijós staðreynd fjarhrif- anna, a hugsun berist frá einum huga til annars eftir leiðum, sem augað greinir ekki. Er óhugsandi, að bænin sé einskonar fjarhrifasam- band milli biðjandi manns og Guðs? Er óhugsandi að þann- ig berist bæn okkar til Guðs og bænheyrslan til okkar frá honum? Sú er biblíuleg trú, stað- fest af reynslu kynslóðanna, að við séum umkringd her- skörum Guðs huldu heima, vitsmunaverum sem Ritn- ingin kallar ..þjónustubundna anda" og falið er að vaka yfir mannkyni. Bæn sem þú sendir og beinir til Guðs finnur veglausan veg fjar- hrifanna til hans, en hún kann einnig að vekja berg- mál elsku og samúðar í mörgum sálum í Guðs hulda heimi. Bendirekki þetta til hinnarfornu kirkjukenningar um „samfélag heilagra" á himni og jörð. „Anda sem unnast fær aldregi eilífð aðskilið" kvað Jónas. Þótt „háa skilji hnetti himingeimur" og okkur ægi fjarlægðir ómælis- viddanna, liggja vegir, sem andinn veat og ratar frá sál til sálar. Bænin, sem frá jarðar- barninu leitartil alheims- sálarinnar, Guðs, veit sinn veg. En hún berst visast lika til annarra sálna sem Guð kann af vísdómi sínum að nota til þess að veita þér það sem þú biður um og er þér til blessunar. Svo kenndi mér á sínum tíma, og öðrum lærisveinum sínum próf. Haraldur Níels- son, og ekki hafa aðrir siðar kennt mér um leyndardóm bænalifsins betur en hann. Ég bað, en Guð bænheyrði mig ekki, — segir þú. Bæn- heyrslan kemurekki ævin- lega með þeim hætti, sem þú hafðir vænzt. Eftir fáein ár kannt þú að lita öðrum aug- um en í dag á nauðsyn þess, sem þú biður um. Forðastu umfram allt að lita á bæn þína sem glímu Jakobs við Drottin, enda væri það von- laus leikur. En trúðu örugg- lega þvi að emlæg bæn finnur leið til Guðs. En minnstu þess, sem lausnar- inn sagði i Getsemane i sárri raun: „Þó ekki sem ég vil, heldur sem þú vilt". Reyndu aðfela bænheyrsluna honum sem einn veit, hvað þér er fyrir beztu T-bleian með plasturKMnagt tra naoinycM ar aonaga nentug Fæst í ötlum apótekum og stærri matvöruverzlunum. JdZZBaLLödCSkÓLÍ BQPU, þ N N Dömur athugið líkamsrækt V. 3ja vikna sumarnámskeið hefjast 1 6. mai. •Jf Stuttir og strangir kúrar 4 sinnum i viku i 3 vikur, þar sem einn timinn i viku hverri fer i fundarhöld um mataræði og litið er yfir árangur liðandi viku. if Einnig timar tvisvar í viku fyrir þær sem ekki þurfa svo stranqan kúr •jf Morgun-, dag- og kvöldtimar. if Sturtur — sauna — tæki — Ijós. Upplýsingar og innritun í slma 83730. J jŒZBaLLeddQkóLi bópu 5 s co 7V P VÖRUBILSTJORAR RUTUBILSTJORAR JEPPAEIGENDUR Til sölu Vörugeymsla Vörugeymsla okkar (ca. 300 fm.) að Borgartúni 21 (Vöruflutningamiðstöðinni) er til sölu. Nánari upplýsingar á skrifstofu okkar Sími 26788 FÓLKSBÍLAEIGENDUR HJÓIDARDRSÓIUnm HP Dugguvogi 2 Reykjavik simi 8 4111 Postholf 1046

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.