Morgunblaðið - 15.05.1977, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.05.1977, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MAÍ 1977 37 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL. 10— 11 FRÁ MANUDEGI að birta þau bréf á þessum stað i blaðinu, verður gerð undan- tekning i þetta sinn, þar sem bréf- ritari hefur áhuga á mjög svo óskyldum málum, svo sem: % Orkumál og bakstur „Kæra Morgunblað. Mið langar að skrifast á við kvenfólk á aldrinum 25—40 ára. Hef áhuga á öllu, svo sem: Orku- málum þjóðarinnar, fljúgandi furðuhlutum, fyrirlestrum, trúar- legum ritum, fuglum, hjólreiðum, sundi, eldhúsverkum, bakstri, bridge, náttúruhamförum og öllu þvi, sem gerist I kringum mig. Er þybbinn, ljóshærður og bláeygur ekkjumaður. Svara öllum bréfum, mynd fylgi fyrsta bréfi. Vonast til að fá mörg bréf. Stefán Magnús Skúlason, Karfavogi 16, R.“ 0 Sjónvarp í sumarfríi? Frá gamalli konu barst sú fyrir- spurn til eyrna Velvakanda fyrir nokkru síðan hvort sjónvarpið sæi sér ekki fært að hafa einhvers konar útsendingar i júlimánuði n.k. þegar sennilega verður farið í fri. Sagðist gamla konan sakna svo mjög að geta við litið unað þegar sjónvarpið sleppti, útvarpið væri ekki alltaf hægt að hlusta á og ekki færi hún út á skemmtanir. Væri ekki hægt, sagði hún, að hafa eina og eina útsendingu, þó ekki nema eins og tvær í viku, einhverjar kvikmyndir eða ann- að, sem ekki þyrfti kannski mjög mikið að hafa fyrir að senda út. Þessari fyrirspurn konunnar er hér með komið á framfæri og það væri fróðlegt að fá að heyra hvort þetta er framkvæmanlegt, eða hvort þetta er of mikið fyrirtæki til að hægt sé að verða við þessari ósk, sem án efa er ekki aðeins fyrir hendi hjá einni gamalli komu. Stuttir og slðir kjólar. BrúSarkjólar og höfuSskraut. Stutt og síS pils sFSbuxur og blússur. GJAFAVARA Sundbolir og bikini Stuttir og sFSir sloppar BaStöskur og skartgripakassar Lady — Marlane brjóstahöld og magabelti FLUGLEIÐIR HF. Aðalfundur Flugleiða h/f verður haldinn þriðju- daginn 24. maí 1977 í Kristalssal Hótel Loft- leiða og hefst kl. 1 3:30. Þessir hringdu . . . % Sveitasælan í Laugardalnum Húsmóðir f Vogunum: — Hér i hverfinu er mikið af börnum og þau komast ekki öll í sveit, en þeirra sveitarsæla hefur verið að fá að fara gegnum Laugardalinn í sundlaugarnar 1 Laugardal. Nú bregður svo við að tvö hlið eru komin á þessa leið og þeim er læst svo búið er að hálf- loka leiðinni. Hægt er að vfsu að fara þriðju leiðina, kringum griðingu, en þar er ekki göngu- eða hjólreiðaleið, nema á hluta leiðarinnar. Börnin verða þvl helzt að fara í alla umferðina á Suðurlandsbraut eða á Laugarás- veginum. Okkur húsmæðrum hér i hverfinu væri mun rórra ef við vissum að börnin kæmust i laug- arnar án þess að vera í stórhættu. Því viljum við fara þess á leit við þá, sem hér ráða, að umrædd hlið verði opnuð og við erum ekki að fara fram á neina akbraut, aðeins að hægt verði að ganga þessa leið, eins og verið hefur. SKÁK Umsjón: Margeir Pétursson Sovézki stórmeistarinn Vassily Smyslov er okkur íslendingum að góðu kunnur. Hann sigraði Mikhail Botvinnik i einvígi um heimsmeistaratitilinn árið 1957 með 1214 vinning gegn 914 og varð þar með heimsmeistari. Sú sæla varð þó skammvinn, þvi árið eftir sigraði Botvinnik 1214 — 1014 og endurheimti þar með titilinn. í stöðunni hér að neðan hafði Smyslov hvítt og átti leik gegn Botvinnik í einvigi árið 1954. 19. Dxe4! — dxe4, 20. Hb8+ — Bc8, 21. Bb5+ — Dxb5, 22. Hxb5 og hvítur vann létt. Þeir skildu jafnir í einvíginu 12 — 12 og þvi hefur Smyslov yfirhöndina i ein- vigjum sínum við Botvinnik, hef- ur hlotið 35 v gegn 34 v. En lifið er stundum óréttlátt og Botvinnik yar^ heimsmejstari ,i „ 12 %ár„ en. Smýslov aðeins i eitt. Ég fer sjálf oft á hjóli i laugarnar og ég þori varla að fara eftir þessum miklu umferðargöt- um, þvi það er yfirleitt farið þannig með hjólreiðamenn, að þeir eru alltaf i stórhættu og helzt alltaf fyrir bilunum. En eins og ég sagði áðan er Laugardalsgarður- inn sveitasæla barnanna, sem ekki komast í sveit, þar dvelja þau oft á sumrin i góðu veðri og því ekki að leyfa þeim að fara þar um á leið i sundlaugarnar. % Flóamarkaður Fóstbræðra Ein af fóstbræðrafrúnum, sem héldu flóamarkað um daginn, hringdi og kvaðst vilja koma á framfæri þakklæti til þeirrar konu, sem svo góðfúslega hafði skilað hlut, sem var seldur i mis- gripum. Þess hafði verið farið á leit að hann væri auglýstur i Vel- vakanda og kom konan með hann þegar hún sá beiðnina frá Fóstbræðrakonunum. HÖGNI HREKKVISI Hann ætlar á humarvertfðina! S\G€A V/(3fGá £ Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. sam- þykkta félagsins. 2. Breytingar á samþykktum félagsins. 3. Önnur mál. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir hluthöfum á aðalskrifstofu félagsins, Reykja- víkurflugvelli, frá og með 1 7. maí nk. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu vera komnar í hendur stjórnar- innar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Þeir hluthafar, sem enn eiga eftir að sækja hlutabréf sín í Flugleiðum h/f, eru beðnir að gera það hið fyrsta. Stjórnin. Lögberg - Heimskringla á vaxandi vinsældum að fagna Á þessu ári verður íslensk blaðaútgáfa í Kanda 100 ára. Blaðið er nú sent til 8 af 10 fylkjum Kanada, það fer til 34 rikja í Bandaríkjunum og það er sent til meira en 20 landa í Evrópu, Afríku og Asíu. Gerist áskrifendur að Lögbergi-Heimskringlu, það er forvitnilegt blað, fróðlegt og ódýrt. Hringið í sima 7 41 53 i Reykjavík, og blaðið verður sent um hæl. Lögberg-Heimskringla kemur út einu sinni i viku. Viðlesið blað og vinsælt. Það borgar sig að auglýsa i Lögbergi- Heimskringlu. Afgreiðsla blaðsins, Dúfnahólum 4 tekur við auglýsing- um. Sími 7 41 53. Auglýsingar islenskra fyrirtækja eru lesnar með athygli í Vesturheimi og viðar. Fjöldi Vestur-íslendinga kemur til íslands á hverju ári og það eykur enn auglýsingagildið Þeir, sem vilja senda Vestur-íslendmgum kveðjurá íslendingadaginn ættu að hafa samband við afgreiðsluna í Reykjavik, sem fyrst, Hátíðarblaðið kemur út um miðjan júlí. Lögberg-Heimskringla sendir áskrifendum sínum á íslandi kveðjur, og býður nýja áskrif- endur velkomna i lesendahópinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.