Morgunblaðið - 30.06.1977, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. JUNl 1977
43
Reykjavík-
urmyndir
Jóns Helga-
r
sonar í Arbæ
Noregur sýnir á heimilisiðnaðarþinginu I Hagaskóla gerð stafafláta og netdúka. Á myndinni er sýnishorn
af þvf.
Norrænt heimilisiðnaðar-
þing í 3. sinn á íslandi
Aðeins
spurning
hver verð-
ur 11. leik-
maðurinn
ISLENZKI landsliðshópurinn I
knattspyrnu hélt til Þingvalla að
lokinni æfingu á Laugardalsvell-
inum I slagveðursrigningu I
fyrrakvöld. Koma piltarnir tii
Reykjavíkur um klukkan 18 I
kvöld og tveimur timum sfðar
hefst 19. landsieikurinn f knatt-
spyrnu við Norðmenn. Kom
norska landsliðið til landsins sfð-
degis í gær.
Ekki er enn vitað hverjir 11
hefja leikinn fyrir íslands hönd,
en trúlegt er að Sigurður Dagsson
verði I markinu. Bakverðir Ólafur
og Janus. Miðverðir Jóhannes og
Marteinn, en Gísli Torfason að-
eins fyrir framan þá. Siðan komi
Guðgeir, Ingi Björn og Atli Eð-
valdsson, en i fremstu víglínu
verði þeir Skagamennirnir fyrr-
verandi, Teitur Þórðarson og
Matthías Hallgrímsson. Einnig
gæti Ingi verið fremstur með
Teiti, en Matthías yrði þá aðeins
aftar. Nokkurn veginn er ljóst
hverjir 10 af 11 byrja leikinn og
eina spurningin er hver leysir Ás-
geir Sigurvinsson af hólmi, en
Mbl. hefur trú á að Atli Eðvalds-
son fái það erfiða verkefni. Jó-
hannes landsliðsfyrirliði Eðvalds-
son reyndist vera í ágætri þjálfun
er hann kom til landsins að því er
landsliðsnefndarmenn hafa sagt
og verður hann því örugglega
meðal leikmanna landsliðsins f
kvöld, en talinn var vafi á því
hvort hann yrði i nægilegri æf-
ingu til þess.
Talsvert hefur verið deilt á val
þeirra Teits og Matthiasar I lands-
liðið, þar sem Matthías hefur litið
leikið með Halmia að undanförnu
vegna ágreinings við félag sitt og
Teitur þótti ekki sýna góðan leik
gegn N-írum fyrir 3 vikum. Hvað
um það, þá var leikið í bikar-
keppninni í Sviþjóð. Halmia gerði
sér lítið fyrir og sigraði 1. deildar-
liðið Derby 2:0, en að sögn Dagens
Nyheter hefði sigurinn getaó ver-
ið helmingi stærri.
Jönköping mætti Grimsás,
sænska liðinu sem hefur auglýst
eftir islenzkum leikmönnum i
Morgunblaðinu, og sigraði lið
Teits með 7 mörkum gegn engu.
Tókst liðinu þar að hefna fyrir
tap i 2. deildinni nýlega og það
rækilega. Gerði Teitur Þórðarson
2 mörk i leiknum og þótti einn
bezti maður liðs síns.
Landsleikurinn i kvöld verður
98. landsleikur íslendinga í knatt-
spyrnu. Leikinn dæmir D. Syme
frá Englandi, en linuverðir verða
þeir Magnús V. Pétursson og Óli
Olsen.
Blikastrákar
fá bronsmerki
TUTTUGU fótboltastrákar úr
Breiðabliki fá I leikhléi iands-
leiksins f kvöld sérstaka viður-
kenningu fyrir að hafa tekið
fyrsta stig knattþrauta KSt. Fá
þessir landsliðsmenn framtfðar-
innar bronzmerki i barminn, en
unglinganefnd KSt vinnur nú að
þvi að endurvekja áhuga félag-
anna á knattþrautunum.
Dagana 29. júnf til 1. júlí er
haldið f Hagaskóla Norrænt heim-
Hisiðnaðarþing og fjölþætt sýn-
ing I tengslum við það.
Norræna heimilisiðnaðarsam-
bandið (Nordens hemslöjdsför-
bund) stendur að þessu þingi. í
þvi starfa heimilisiðnaðarsamtök
Danmerkur, Finnlands, Noregs
og Svíþjóðar. Löndin skiptast á
um að halda þing þriðja hvert ár
og er venja að setja um leið upp
heimilisiónaðarsýningu, sem unn-
in er eftir ákveðnum einkunnar-
orðum, en þau eru að þessu sinni:
Nútfma heimilisiðnaður — gaml-
Skýrsla um ráð-
stefnu BHM
ÚT ER komin á vegum Bandalags
háskólamanna skýrsla frá ráð-
stefnu BHM um starfsemi sjálf-
stætt starfandi háskólamanna. 1
skýrslunni eru birt öll erindi er
flutt voru á ráóstefnunni ásamt
skýrslum vinnuhópa og útdrætti
úr umræðum. Á ráðstefnu BHM
var einkum fjallað um eftirtalin
f jögur efni. Samkeppni hins opin-
bera og sjálfstætt starfandi há-
skólamanna, eftirmenntun, trygg-
ingaþörf sjálfstætt starfandi há-
skólamanna og gjaldskrármál.
Skýrsla BHM um þessa ráðstefnu
er fáanleg á skrifstofu BHM eins
og skýrslur um fyrri ráðstefnur
bandalagsins.
ar vinnuaðferðir. Við lærum
hvert af öðru.
I samræmi við einkunnarorðin
verða löndin nú með sýnikennslu
i tveimur heimilisiðnaðargrein-
um, hvert I sinni sýningardeild,
auk þess sem fluttir eru fyrir-
lestrar og almenn kynning á
greinunum í þingsal. Einnig er
venja að landið, sem sér um þing-
ið hverju sinni, hafi jafnframt
stóra yfirlitssýningu á eigin heim-
ilisiðnaði. Slík yfirlitssýning á ís-
lenzkum heimilisiðnaði hefur nú
verið sett upp f þremur kennslu-
stofum Hagaskóla, í fjórðu
kennslustofunni fer svo fram is-
lenzka sýnikennslan i tóvinnu og
bandavefnaði (fótvefnaði og
spjaldvefnaði) auk kynningar á
jurtalitum. Hin löndin hafa hvert
sina stofu. Danmörk sýnir leir-
keragerð og hnýtingar, Finnland
karelska skilskeftu og keðjuhekl,
Noregur gerð stafafláta og net-
dúka, Svíþjóð barkarvinnu og
flókagerð.
Þetta þing, sem nú er haldið er
hið 16. í röðinni og í þriðja skipt-
ið, sem þaö er haldið á íslandi.
Hið fyrsta hér á landi var haldið
1948, annað 1962 i Iðnskólanum.
Mest öll vinna við undirbúning
þingsins er sjálfboðavinna félaga
I Heimilisiðnaðarfélagi Islands.
Þátttakendur í þinginu eru um
230, þar af um 200 erlendir gestir.
Norræna heimilisiðnaðarsam-
bandið var stofnað í Sviþjóð árið
1927 og er þvi 50 ára í ár. Aðilar í
þvi eru heildarsamtök f hverju
landi. Formaður Heimilisiðnaðar-
félágs íslands er Stefán Jónsson
arkitekt, sem einnig er formaður
Norræna Sambandsins.
Sýningin I Hagaskóla verður op-
in fyrir almenning næstu 3 daga
eftir þingið, 2.—4. júlí kl. 14—22.
Sýnikennsla fer fram alla dagana
kl. 14—16 og 20—22.
SKIPSTJÓRI i rækjubitnum Sig
rúnu ÍS fri Súðavlk hefur krafizt
sýknu vegna ikæru um að hafa veriS
a8 veiðum i alfriSuSu svæSi úti af
Kögri og byggir kröfu slna i þvl. aS
leyfi hans hafi niS til þessa svæSis.
eins og fram kom I MorgunblaSinu I
gær. MorgunblaSiS sneri sir til Jóns
B. Jónassonar I sjivarútvegs-
riSuneytinu og spurSi hann hvernig
i þvt stæSi, aS biurinn hefSi leyfi til
veiSa i svæSi sem friSaS væri.
Að þvi er Jón tjáði Morgunblaðinu
hefur þetta svaeði úti af Vestfjörðum og
vestanverðu Norðurlandi verið alfriðað
um margra ára skeið en hins vegar
hefði það I desember á sl. ári verið
stækkað nokkuð austur á bóginn, og
þar hefði báturinn einmitt verið að
veiðum þegar varðskip kom að honum.
OPNUÐ hefur verið i
Árbæjarsafni sýning á
Reykjavíkurmyndum Jóns
Helgasonar biskups. Á sýn-
ingunni eru 118 myndir
eftir Jón, 13 ljósmyndir af
Jóni og fleirum og tvær
myndir eftir aðra en Jón.
Jón Helgason var biskup
yfir íslandi frá árinu 1917
og til ársins 1938.
Árið 1945 eignaðist Reykja-
víkurborg myndir Jóns, sem eru á
sýningunni, og er það talið upp-
hafið að minjasafni Reykjavikur
Sýningin er í eimreiðarskemm-
unni í Árbæ og verður hún opin i
sumar á opnunartima safnsins,
klukkan 13 til 18 alla daga nema
mánudaga.
Báturinn fékk leyfi sitt i vor til rækju
veiða og sagði Jón, að ekki hefði þá
verið tilgreint sérstaklega í leyfinu að
ekki mætti stunda veiðar á rækju á
þessu svæði, enda ekki auðvelt að
koma slíkri tilgreiningu við, þar sem
þörfin á verndunaraðgerðum á hinum
ýmsu tímabilum gæti verið nokkur
breytileg frá timabili til timabils Hins
vegar hefði þessi viðbót við friðaða
svæðið verið rækilega auglýst á sinum
tlma i fjölmiðlum og birt kort sem
sýndu svæðið, auk þess sem Ijóst
mætti vera að þegar svæði væri alfrið-
að fyrir öllum algengustu veiðarfærum
botnfisks vegna smáfisks þá gilti hið
sama fyrir veiðar rækjubáta sem væru
með smáriðnustu möskva allra veiðar-
færa Þvi hefði verið talið að auglýsing
um friðun þessa svæðis væri fullnægj-
andi.
Schmidt að leggja
upp í Ameríkuferð
Bonn 29. júní.
Einkaskeyti til Mbl. frá AP:
EFNAIIAGSÞRÓUN í heimin-
um og ólík afstaða til kjarn-
orkumála verða þau mál, sem
Helmut Schmidt, kanzlari Vest-
ur-Þýzkalands, mun fjalla eink-
um um þegar hann leggur upp f
ellefu daga ferð f næstu viku.
Ætlar hann þá að hitta banda-
rfska og kanadlska leiðtoga en
hann hitti bæði Carter og
Trudeau á Lundúnafundinum í
maimánuði Uka.
Bandarfkjamenn hafa hvatt
Þjóðverja til að leggja meira af
mörkum til að hjálpa upp á
erfiðan efnahag vlða I heimin-
um en hins vegar hefur Banda-
rfkjastjórn nú lýst yfir stuðn-
ingi við efnahagsmálastefnu
þá, sem Schmidt og stjórn hans
hafa rnarkað. Þjóðverjar hafa
komið til móts við Bandaríkja-
menn með því að slaka til f
afstöðu sinni varðandi kröfu
um innflutning á úranfum en
þó eru ýmis vandamál sem bíða
úrlausnar.
Búizt er við að Schmidt ræði
sérstaklega um það við
Trudeau hvort unnt verði að
hefja á ný flutning á úranium
til Vestur-Evrópulanda, en
hann hefur verið bannaður.
Schmidt fer til Kanada á mið-
vikudaginn og hittir Trudeau í
Vancouver þann 7. júlí. Siðan
munu þeir eiga aðra fundi sam-
an dagana 11. og 12. júli.
Trudeau hefur neitað að af-
létta banni á sölu úraníums
nema Euratom, sem er sam-
starfsnefnd EBE um kjarn-
orkumál, fallist á að sett verði á
að nýju öryggiskerfi undir al-
þjóðlegu eftirliti. Eru það aðal-
lega Frakkar sem hafa lagzt
gegn þvi, að gengið verði að
kröfu Trudeaus.
Þegar Schmidt hittir Carter á
tveimur fundum í Hvíta húsinu
þann 13. og 14. júli má ganga út
frá þvi sem gefnu, að kjarn-
orkumálin verði þar einna efst
á baugi, að þvi er stjórnmála-
fréttaritarar telja öruggt.
Enda þótt Þjóðverjar hafi
skýrt frá þvi, að ekkert verði úr
þvi að gengið verði að skilmál-
unum sem stendur, hefur málið
þó engan veginn verið gefið
upp á bátinn. Heimildir í Bonn
segja að stjórn Schmidts muni
ekki aðeins halda til streitu
hugsanlegri tækniaðstoð við
Brasiliumenn til að framleiða
kjarnorkuvopn undir ströngu
gagnkvæmu eftirliti, heldur
neitar hún að útiloka að slíkir
samningar verði gerðir í fram-
tiðinni. Efnahagsþróunin í
heiminum svo og viðræður Suð-
ur-norður rikjanna verða siðan
annað megihmálið i viðræðum
Schmidts bæði þegar hann hitt-
ir Trudeau og Carter, að þvi að
talið er.
Schmidt og Loki, eiginkona
hans, munu hitta utanrikisráð-
herra Vestur-Þýzkalands, Hans
Dietrich Genscher, í Washing-
ton og siðan verða þau i Kanada
dagana 6.—13. júlí. Auk þess að
eiga viðræðufúndi við Trudeau
bæði i Vancouver og Ottawa
mun Schmidt, sem er áhuga-
maður um siglingar, sinna því
áhugamáli sínu og fara í skoð-
unarferðir um Alberta og
Ontario.
Tveggja daga dvöl hans í
Washington er opinber og mun
meðal annars verða notuð til
viðræðna við Jimmy Carter og
ýmsa hæstsettu embættismenn
bandarisku rlkisstjórnarinnar,
þar á meóa Cyrus Vance utan-
ríkisráöherra og fulltrúa i utan-
Helmut Schmidt.
rikismálanefnd öldungadeild-
arinnar.
Búizt er og við, að hann
ávarpi Bandariska blaðamanna-
klúbbinn áóur en hann fer síð-
an flugleiðis til Reykjavíkur
þann 15. júlí. Hann mun eiga
tveggja daga viðdvöl á islandi
og hitta þá að máli Geir Hall-
grlmsson forsætisráöherra og
sömuleiðis fara i skoðunarferð
til Vestmannaeyja.
Ræðir efnahags- og kjarnorkumál við Carter og Trudeau
Veiðileyfí á alfriðað svæði:
Tilkyraiing um alfriðun
svæðisins talin nægileg