Morgunblaðið - 05.08.1977, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. AGUST 1977
LOFTLEIBIR
H- 2 1190 2 11 38
■ 5IMAK
ÍO 28810
car rental 24460
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTÚNI 24
BlLALEIGA JONASAR
Armúla 28 — Sími 81315
SKIPAUTGCRB RIKISIN
M/S ESJA
fer frá Reykjavík midvikudagmn
10. þ.m., vestur um land í hring-
ferð.
Vörumóttaka: föstudag og mánu-
dag til Vestfjarðahafna. Norður-
fjarðar. Siglufjarðar. Ólafsfjarð-
ar. Akureyrar, Húsavíkur. Rauf-
arhafnar, Þórshafnar og Vopna-
fjarðar.
Flugleiðir
fljúga fyrir
Air India
til Indlands
Um hádegi sl. þriðjudag
fór Loftleiðaþota í flug
milli Parísar og Indlands í
leiguflugi fyrir Air India. í
frétt sem Morgunblaðinu
barst í gær frá Flugleiðum
segir, að undanfarna daga
hafi staðið yfir samningar
milli Flugleiða og Air India
um leiguflug til Frakk-
lands og Indlands.
Um hádegi sl. þriðjudag hafi
svo Loftleiðaþota farið í fyrsta
flugið frá París til Indlands. Átti
vélin að hafa víðkomu í Nýju
Delhi og Bombay og flytja far-
þega báðar leiðir. Ný áhöfn var
send til Nýju Delhí og átti að taka
þar við þotunni og fljúga henni til
baka til Parísar.
í fréttinni segir ennfremur að á
leiðinni til Indlands hafi átt að
miililenda í Dharan í Saudi
Arabfu og á heimleiðinni í Dubai í
Sameinuðu arabfsku furstadæm-
unum.
Næstu leiguferðir Flugleiða
fyrir Air India verða 21. og 30.
ágúst.
Irar
skoða Tý
ÞRÍR æðstu menn írsku land-
helgisgæzlunnar eru væntanlegir
til tslands sfðar í þessum mánuði
til að kynna sér starfsemi fs-
lenzku landheigisgæslunnar. Irar
ætla sér að auka skipastól írska
gæzluflotans og munu írarnir
hafa mikinn áhuga að skoða varð-
skipið Tý vel, því þeir telja að
skip svipað Tý muni henta vel til
gæzlustarfa við írlandsstrendur.
Irska gæzluskipið Setanta, sem
nú er í Reykjavikurhöfn, var al-
menningi til sýnis i gær og verður
einnig í dag.
Útvarp ReykjavlK
FÖSTUDAGUR
3. ágúst
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.00: Vjiborg Dagbjartsdóttir
les þýðingu sfna á „Nátt-
pabba" eftir Maríu Gripe
(10).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Spjallað við bændur kl.
10.05.
Morgunpopp kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Sinfónfuhljómsveit Lundúna
leikur „Ouverture“ eft
Georges Auric og „Parade"
eftir Erik Satie; Antal Dorati
stj./ Fílharmoniusveitin f
Berlín leikur „Vorblót",
ballettmúsik eftir Igor
Stravinský; Herbert von
Karajan stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.25 ''eðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Vjð vinnuna:
Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Sólveig
og Halldór" eftir Cesar Mar
Valdimar Lárusson les sögu-
lok (15).
15.00 Miðdegistónleikar
Kammersveitin í Prag leikur
„Medea“ forleik eftir Luigi
Cherubini; Jirf Ptácnfk
stjórnar.
Pierre Pierlot og Atniqua
Musica Kammersveitin leika
Konsert nr. 12 f C-dúr op 7
fyrir óbó og strengi eftir
Tommaso Albinoni; Jacques
Roussel stjórnar.
Annie Jodry og
Fontainehleau-
kammersveitin leika Fiðlu-
konsert nr. 4 f F-dúr op. 7
eftir Jean-Marie Leclair;
Jean-Jacques Werner stjórn-
ar. Enska Kammersveitin
leikur Sinfónfu í B-dúr nr. 2
eftir Carl Philipp Emanuel
Bach; Reymond Leppard
stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.16 Veðurfregnir).
16.20 Popp
17.30 „Fjöll og firnindi“ eftir
Árna Óla
Tómas Einarsson les um
ferðalög Stefáns Filippusson-
ar (9).
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Byrgjum brunninn
Margrét Sæmundsdóttir
fóstra flytur erindi: Börnin
og umferðin.
20.00 Sinfónfskir tónleikar
Werner Ilaas og Óperu-
hljómsveitin f Monte Carlo
leika Konsert-Fantasfu op. 56
fyrir píanó og hljómsveit eft-
ir Piotr Tsjaikofskí; Eliahu
Inbal stjórnar.
20.30 Noregsspjall
Ingólfur Margeirsson ræðir
við Kára Halldór leikara.
21.00 Kórar úr óperum eftir
Weber, Verdi, Leoncavallo
o.fl. syngja.
Kór Ríkisóperunnar f
Miinchen o.fl. sýngja.
21.30 Útvarpsagan: „Ditta
mannsbarn“ eftir Martin
Andersen-Nexö. Þýðandinn,
Einar Bragi, les (16).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfegnir
Kvöldsagan: „Sagan af San
Michele" eftir Axel Munthe
Þórarinn Guðnason les (24).
22.40 Áfangar
Tónlistarþáttur sem
Ásmundur Jónsson og Guðni
Rúnar Agnarsson stjórna.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
5. ágúst
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Norðurlandameistara-
mótið í skák. Umsjón Ingvar
Asmundsson
20.45 Fljótastaskepna jarðar
Dýralffsmynd um blettatfg-
urinn í Afrfku, fótfráasta
dýr jarðar. Þýðandi og þulur
Óskar Ingimarsson.
21.10 Skattarnir enn einu
sinni. Bergur Guðnason lög-
fræðingur stýrir umræðum
um skattamál f tilefni af út-
komu skattskrárinnar 1977.
Þátttakendur: Björn Þór-
hallsson, form. Landssam-
bands. ísl. verzlunarmanna,
Jón Sigurðsson, ráðuneytis-
st jóri og Skúli Pálsson Ilrl.
22.00 Draugabærinn
(Yellow Sky)
Bandarfskur „vestri" frá ár-
inu 1948. Aðalhlufverk
Gregory Peck, Anne Baxter
og Richard Widmark.
Bófaflokkur rænir banka og
kemst undan við ilian leik
til afskekkts bæjar, sem
kominn er f eyði og þar er
ekki annað fólk en gamail
maður og barnabarn hans,
ung kona.
Þýðandi Jón Thor Haraid.v
son.
23.35 Dagskrárlok.
L
Draugabærinn kl. 22.00:
Myndin er úr
einu atriði
kvikmyndar-
innar ogsýnir
hún þá Gregory
Peck og
Richard
Widmark f
hlutverkum
sfnum.
Kvikmyndin sem sjónvarpið sýnir f kvöld er bandarfsk frá árinu
1948 og heitir „Yellow Sky“ á frummálinu. Yellow Sky er f
myndinni nafn á bæ einum sem er f eyði en hefur blómstrað fyrrum
sem silfurnámabær. Myndin gerist laust eftir borgarastrfðið.
Söguþráður myndarinnar er á þá leið að 6—7 menn hafa myndað
ræningjahóp og rænt banka. Þeir komast naumlega undan með þvf
að fara yfir eyðimörk. Þeir koma til „draugabæjarins", Yellow Sky,
en þar eru þá gamall maður og barnabarn hans, ung stúlka.
Ræningjarnir eru nær dauða en lífi þegar þeim koma en hafa þó
þrek til að velta fyrir sér og finna út hvað það er, sem gerir gamla
manninum og barnabarni hans kleift að lifa á þessum slóðum.
Anne Baxter leikur ungu stúlkuna, en Gregory Peck leikur
bófaforingjann.
I uppsláttarriti um kvikmyndir fær þessi kvikmynd góða dóma og
mönnum ráðlagt að missa ekki af henni, einkum þykir Joe Macdon-
ald hafa tekizt vel upp f kvikmyndun.
Leikstjórinn, William Wellman, var fæddur í Massachusetts í
Bandaríkjunum árið 1896 og hefur gert allmargar þekktar kvik-
myndir M.a. „The Ox Bow Incident" (1943) og „A Star is Born“
(1937).
Það segir i uppsláttarritinu fyrrnefnda að í þessari kvikmynd geri
Wellman tilraun til að endursegja „The Tempest" (Ofviðrið), eftir
Shakespeare, sem „vestra".
Kvikmyndin, sem heitir „Draugabærinn" á íslenzku er á dagskrá
kl. 22.00.
Áfangar kl. 22.40:
Aftur í sviðsljósið eftir þriggja ára hlé
I kvöld er á dagskrá útvarpsins tónlistarþátturinn, Afangar f umsjá
Guðna Rúnars Agnarssonar og Asmundar Jónssonar.
Mbl. hafði samband við Guðna Rúnar f gær og spurði hann um
efni þáttarins að þessu sinni. Hann sagði aó í þeim hluta þáttarins,
sem hann sæi um í kvöld, fjallaði hann um Stevie Winwood og
hljómlist hans, en hann hóf feril sinn í popp-heiminum aðeins 16
ára að aldri með hljómsveitinni „Spencer Davis Group“. Að sögn
Guðna hætti Winwood þar árið 1967 og stofnaði brátt hljómsveitina
Traffic sem náði miklum vinsældum þegar f stað og starfaði allt til
ársins 1974.
Guðni sagði að tilefnið að umfjöllun sinni um Steve Winwood
væri það að nú væri nýútkomin sólóplata frá honum og væri það í
fyrsta sinn í 3 ár að eitthvað heyrðist frá honum. Sagði Guóni að
hann myndi leika tvö lög af þessari nýju plötu í þættinum.
Þátturinn er á dagskrá kl. 22.40.