Morgunblaðið - 05.08.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. AGUST 1977
15
CIA gerði tilraunirmeð breyt-
ingu á kynferðislegu atferli
Washington. 4. ágúst Reuter.
EDWARD Kennedy öldungar-
deildarþingmaður sagði að
bandarfska leyniþjónustan hefði
bersýnilega leigt gleðikonur til
að koma í kring milljón dollara
tilraun sem miðaði að þvf að
breyta m.a. kynferðislegu atferli
manna með lyfjum er næðu valdi
yfir huga þeirra. Hann sagði
þetta á fundi þingskipaðrar
nefndar sem athugar nú málið.
Vitnisburður sem fyrir liggur
hnígur f þá átt að gleðikonurnar
hafi komið ýmsum tegundum
lyfja ofan í menn án þess að þeir
hefðu hugmynd um það, og leitt
þá sfðan til sængur. Var sfðan
fylgzt með atferli mannanna um
sérstaklega útbúinn spegil og fór
þetta fram f fburðarmiklum
öryggishúsum f San Fransisco og
EDWARD KENNEDY
Johnson svindlaði
í kosningum 1948
Austin, 4. águst Reuter
SKJÖL og plögg í eigu Lyndons
B. Johnsons, fyrrverandi Banda-
rfkjaforseta, sem birt voru í dag,
um mjög umdeild kosningaúrslit
1948, þegar Johnson bauð sig
fram til öldungadeildarinnar,
staðfestu að Johnson hefði beitt
brögðum til að komast að.
Átta rauð handritabox sem f
voru um fimm þúsund skjöl upp-
JOHNSON
Björgunar-
sveitir til
Mósambik
Maputo4. ágúst Reuter.
SUÐUR-afrískir björgunarsér-
fræðingar koma til Mósambik í
dag til að freista þess að bjarga
150 námamönnum sem lokuðust
niðri f námu. Er óttast að margir
mannanna séu látnir.
Stjórnin í Mósambik sagði í
gærkvöldi að lítil von væri til þess
að mönnunum yrði bjargað lif-
andi. Ægileg sprenging varð i
námunni á þriðjudag og hrundi
hún saman. Ekki hafa nöfn og
þjóðerni námamannanna verið
birt en að sögn fréttastofnana eru
flestir erlendir starfsmenn sem
vinna i námum í Mósambik,
portúgalskir eða belgískir tækni-
fræðingar. í Jóhannesarborg
sagði talsmaður stjórnarinnar að
Mósambikstjórnin hefði óskað
sérfræðilegrar aðstoðar og hefði
verið ákveðið samstundis að
verða við beiðninni.
Carter að end-
urskipuleggja
öryggisþjónustu
Washington 3. ágúst Reuter.
CARTER Bandaríkjaforseti mun
í dag tilkynna endurskipulagn-
ingu á bandariskum öryggismál-
um sem miðar að þvi að styrkja
eftirlit af hálfu Hvita hússins með
öllu sliku starfi að því er emb-
ættismenn skýrðu frá í gær. Þeir
sögðu að forsetinn myndi líkast til
ekki tilnefna „keisara" til að fara
með yfirstjórn öryggisstofnana
ríkisins, en búizt er við því að
Stansfield Turner, yfirmaður
CIA, fái aukin völd og áhrif.
lýstu þó ekki annað en það sem
þegar hafði verið á kreiki manna
á meðal. Luis Salas, fréttamaður
AP, hafði birt ftarlega frásögn
um málið þar sem hann sagðist
hafa fundið 200 fölsuð atkvæði
Johnson f vil. Johnson var lýstur
sigurvegari kosninganna eftir
mikið þref með 87 atkvæða mun.
Salas sagði AP að verzlunin
með þessi 200 atkvæði hefði farið
fram síðla nætur á fundi þeirra
Johnsons, Georges Parr, Salas
sjálfs og annarra áhrifamanna
demókrata. Tilraunir Coke
Stevensons, fyrrverandi ríkis-
stjóra í Texas og aðal keppinauts
Johnsons, til að ná kjöri var stöðv-
uð að skipun frá Hugo Black
hæstaréttardómara. Salas sagði
að atkvæðin 200 sem bætt var við
hjá Johnson hefðu verið tekin í
stafrófsröð af einum kjörskrár-
listanum. Salas sagði að meðal
þeirra hefðu verið hjón að nafni
hr. og frú Miguel Acero og Hector
nokkur Cerda. Salas sagði að
hjónunum hefði fyrst verið bætt á
listann og siðan Hector Cerda.
Hann hefði ekki verið stuðnings-
maður demókrata og hefði orðið
fjúkandi vondur. Cerda var kall-
aður sem vitni þegar rannsókn
var hafin á málinu. Þar neitar
Cerda þvi eindregið að hann hafi
greitt atkvæði í kosningum, enda
þótt kjörskrá benti til annars,
enda hafði þá fölsunin farið fram.
Manntjón
í flóðum á
Indlandi
Nýju Delhi, 3. ágúst. Reuter.
AÐ MINNSTA KOSTI þrjátfu
manns hafa látist f miklum mon-
súnrigningum sem hafa gengið
yfir norður hluta Indlands sfð-
ustu daga að þvf er opinberar
heimildir f Nýju Delhi skýrðu frá
f dag.
Sagt er að rigningarnar sem
komið hafa af stað miklum flóð-
um i mörgum héruðum hafi vald-
ið þvf að um fjórar milljónir
manna hafi orðið að flýja heimili
sín eða orðið fyrir einhvers konar
tjóni af þessum völdum og upp-
skerutjón er metið á tvær milljón-
ir sterlingspunda. I Reuterfrétt
er tekið fram að Indira Gandhi,
fyrrverandi forsætisráðherra,
hafi komið til flóðasvæðanna í
grennd við Nýju Delhi. Önnur
svæði sem hafa orðið illa úti eru
Bihar, Orissa, Gujarat og
Harayna. Þá hafa ýmis héruð ein-
angrast vegna flóðanna og er ótt-
ast að ástand sé þar víða alvar-
legt.
New York. Kennedy sagði að að-
gerð þessi hefði verið kölluð
„Miðnættisfullnægingin".
Tilraunirnar sem hófust árið
1953 spönnuðu tuttugu ár og voru
þær hafnar af ótta við að
Sovétrikin og Kina hefðu þróað
með sér mjög fullkomna aðgerð
við að heilaþvo menn og fundið
leiðir til að stjórna huga manna í
þá veru að þeir öfluðu skjala og
leynigagna fyrir CIA, nánast án
þess að vita af þvf.
Stansfield Turner, yfirmaður
CIA, sagði á fundi nefndarinnar
að þessar tilraunir yrðu ekki
teknar upp að nýju. Hann sagði að
CIA hefði meðal annars notað of-
skynjunarlyf, svo sem LSD, við
þessar tilraunir, svo og sérstakt
lyf sem gefið er krabbameins-
sjúklingum til að deyfa þján-
ingar. Turner lýsti megnustu and-
styggð á þessum tilraunum og
sagði þær í senn lágkúrulegar,
ósæmandi og dýrslegar og slíkt
hefði aldrei gerzt undir sinni
stjórn. CIA mun hafa varið um 15
milljónum dollara í þessa áætlun
og ekki komizt á snoðir um neitt
sem máli skipti.
LENIN
svipmyndir af Lenin þar
sem hann situr i setu-
stofu á heimili sínu
ásamt eiginkonu og ketti.
Nokkrar fleiri svipmynd-
ir eru af Lenin og munu
teknar á árinu 1919.
Fyrir ári kom filman upp í
fiskinet og var rammlega um
Fundin kvik-
my nd af Lenin
Kaupmannahöfn. 3. ágúsl. Router.
SJALDGÆF mynd um
Lenin og Rauða herinn
sem fannst á botni
Norðursjávar, hefur ver-
ið viðgerð af hálfu
danska sjónvarpsins og
er nú tilbúin til sýninga
hjá sjónvarpinu í náinni
framtið. í myndinni eru
hana búið, en siðan höfðu
hrúðurkarlar og sjávargróður
setzt á umbúnaðinn. Sjómaður
sá sem fann myndina, Lauge
Iversen, afhenti böggulinn til
sögumyndasafns danska ríkis-
ins og við athugun kom síðar í
ljós hvað i filmunni var. Mun
hafa tekizt vel til með viðgerð á
filmunni og er sýninga beðið
með eftirvæntingu að sögn
Reuters.
VjSHÓSO^