Morgunblaðið - 05.08.1977, Síða 32
Tekinn með
marihuana
í Keflavík
RÚMLEGA þrítugur maður var
tekinn á Keflavikurflugvelli í
fyrrakvöld með 410 grömm af
marihuana í farangri sínum. Var
maðurinn að koma frá New York
og fundust eiturlyfin í töskum
hans vid leit tollþjóns, sem fannst
Framhald á bls 18.
Faldi féð í bensín-
brúsa á ÞingvöDum
Undirbjó flutning til Equador
64 reknetabátar f á
10.000 tonn og 89
nótabátar 200 hver
□--------------
□--------------
TRÚLEGT er að vestur-þýzki
afhrotamaðurinn Ludwig
Lugmeier verði sendur utan til
''-þýzkalands með flugvél á
sunnudagsmorgun. Unnið er
sleitulaust að rannsókn málsins
Sjá nánari fréttir og viðtöl á bls. 2, 3 og í opnu blaðsins
-□
-□
og sagði Ilallvarður Einvarðsson
rannsóknarlögreglustjóri, að
stefnt væri að þvf að Ijúka rann-
sókninni fyrir helgi. Morgunblað-
ið hefur eftir öruggum heimild-
um, að Lugmeier hafi falið mest-
an hluta þess fjár, er hann kom
með hingað til lands og fannst á
föstudagskvöldið, ( bensfnbrúsa f
hraungjótu á Þingvöllum. Hafi
hann náð f féð nóttina áður, en
Framhald á bls 18.
„VIÐ ERUM að byrja að gefa út
síldveiðileyfin núna og það er
ljóst, að allir, sem sóttu um og
hafa staðfest umsóknirnar, fá
Ieyfi“, sagði Þórður Asgeirsson,
skrifstofustjóri f sjávarútvegs-
ráðuneytinu, í samtali við Mbl. í
gær. Samkvæmt reglunum, sem
ákveðnar hafa verið, fá rekneta-
bátarnir 10.000 tonna heildar-
kvóta f sinn hlut, sem er nýjung,
og 89 nótahátar fá 200 tonna
kvóta hver, en Þórður sagði, að
búast mætti við að einhverjir
heltust úr lestinni, þannig að
Fékk nót-
ina í
skrúfuna
LOÐNUSKIPIÐ
Guðmundur Kristinn frá
Fáskrúðsfirði fékk nót-
ina í skrúfuna um 70 míl-
ur út af Straumnesi
aðfaranótt miðvikudags-
ins. Varðskipið Ægir
kom á staðinn og tókst
varðskipsmönnum að
skera úr skrúfunni.
Guðmundur Kristinn
var á leið til lands í gær
með afla.
reiknað væri með þvf að útkoman
yrði nálægt 15.000 tonnum á nóta-
bátana og væri þannig stefnt að
25.000 tonna heildarveiði, eins og
lagt hefði verið til.
Þorður Ásgeirsson sagði að 64
bátar fenju leyfi til reknetaveiða
og mega þeir veiða 10.000 tonn, en
sérstakur kvóti er ekki settur á
hvert skip. Sagði Þórður að það
væri nýjung að ákveða kvóta fyrir
reknetabátana. Þess skal getið að
áður hafði verið ákveðið að leyfi
til sildveiða fengju bátar nú, sem
hvorki fengu síldveiðileyfi í fyrra
né árið þar á undan.
Varðandi nótaveiðina sagði
Þórður að menn þættust sann-
færðir um að ekki myndu allir
fara á sildveiðar, sem fengju
leyfi, og þvi væri settur 200 tonna
kvóti á skip, enda þótt 89 fengju
leyfi, sem gerði meira en þau
15.ooo tonn sem til skiptanna eru,
ef miðað er við 25.ooo tonna
heildarafla.
„Það yrði illtof erfitt í fram-
kvæmd að ætla að fara að leió-
rétta þetta, þegar langt er komið
fram i veiðarnar,“ sagði Þórður.
„Þá eru ef til vill einhverjir búnir
og þeir myndu aldrei fara af stað
aftur fyrir 10—20 tonn til viöbót-
ar, sem þeir gætu fengið frá þeim,
sem heltust úr lestinni. Þannig
erum við að reyna að láta þetta
koma sem réttlátast fram og telj-
um, að útkoman verði ekki það
langt frá lð.ooo tonnum ef nokk-
uð, að það skipti máli til eða frá.“
LÖGREGLUMENN RANNSAKA MAL LUGMEIERS — Þýzku lögregiumennirnir, sem staddir eru hér
á landi til að fylgjast með máli þýzka afbrotamannsins Ludwigs Lugmeiers sjást fremst á þessari mynd,
Dieter Ortlauf t.v. og Karl Heinz Georg til hægri. Pálmi Matthiasson og tvar Hannesson standa hjá
þeim, en Njörður Snæhólm yfirlögregluþjónn, er við skrifborðið. (Ljósm. Mbl. Friðþjófur).
Hveragerði:
Hreinsun borholanna
kostar 2 millj. á ári
KOSTNAÐUR við að hreinsa hvert skipti samkvæmt þeim upp-
kalkútfellingu úr borholum hita- lýsingum sem Mbl. hefur aflað
veitu Hveragerðishrepps í Hvera- sér. Notaðar eru tvær holur fyrir
gerði mun nema um 500 þús kr. f I hitaveituna á staðnum og þar sem
Korchnoj og Polugaevsky í samtölum við Mbl.:
„Tefli upp á jafntefli”
„ÉG er búinn að missa áhugann
á þessu einvfgi og þess vegna
ætla ég að tefla beint til jafn-
teflis á laugardaginn", sagði
Viktor Korchnoj, er Mbl. ræddi
við hann í gær, en með jafntefli
á laugardag tryggir hann sér
sigur í einvíginu við
Polugaevsky. Þegar Mbl. ræddi
svo við Polugaevsky, kvaðst
hann ekkert hafa að segja um
þessa fyrirætlun andstæðings-
ins og vildi heldur ekkert láta
uppi, þegar Mbl. spurði hann,
hvort hann myndi hætta öllu til
að koma í veg fyrir ætlun
Korchnojs, eða sættast á það að
einvfginu lyki með þessum
hætti. „Ég kenni loftslaginu
hér um ófarir minar f fyrri
hluta einvfgisins, sagði
Polugaevsky," og tel, að ég hafi
sannað f seinni hluta einvígis-
ins, að ég tefli ekkert sfður en
andstæðingur minn, þegar að
stæður eru mér ekki f móti.“
Korchnoj sagði, að í þessu
einvígi hefði gripið sig sama
tilfinning og í skákmóti áður í
Viijk an Zee, en þar hefði hann
verió kominn með 9H vinning
eftir tíu umferðir, síðan tapað
fyrir Portisch og þá misst allan
áhuga á mótinu og endað það
með tómum jafnteflum. „Ég
veit eiginlega ekki, hvað þetta
er,“ sagði Korchnoj. „Ég er
bara einhvern veginn svona
upplagður og stundum tekst
Korchnoj
Polugaevsky
mér alls ekki að sigrast á þess-
ari tilfinningu.
Þetta einvígi er búið fyrir
mér og ég er þegar farinn að
hugsa gott til ferðar um Banda-
ríkin, þar sem ég ætla að tefla
fjöltefli og síðan þarf ég að fara
að hugsa um búferlaflutning
frá Hollandi til Vestur-
Þýzkalands." Þegar Mbl.
spurði, hvort Korchnoj byggist
við að hitta Fischer að máli í
Bandaríkjunum, svaraði hann:
„Ég á von á þvi að við hittumst
að máli og ræðum meðal annars
Framhald á bls 18.
„Hef sýnt styrk minn
99
þarf að hreinsa holurnar tvisvar á
ári er kostnaður við hreinsun
þeirra um 2 milljónir króna. Við
þetta bætist hreinsunarkostnaður
á heimæðum og spfralaskipti f
heimahúsum f Hveragerði einu
sinni til tvisvar á ári. Eins og Mbl.
skýrði frá í gær, hefur komið
fram mikil kalkútfelling f borhol
um Hitaveitu Suðurnesja við
Svartsengi og kvaðst Jóhann Ein-
varðsson formaður Ilitaveitu
Suðurnesja telja að máiið væri
sviðaðs eðlis og í Hveragerði og
kostnaður við hreinsun hola ekki
meiri en þar.
Magnús f. Magnússon, tækni-
fræðingur hjá Hveragerðis-
hreppi, sagði í samtali við Mbl. í
gær, að útfelling i borholum og á
heimaæðkerfi hjá hitaveitu
Hveragerðis væri mikið vandamál ■
hjá þeim. „Það eru notaðar tvær
borholur fyrir hitaveituna hér í
þorpinu. Ríkið á þessar holur og
Orkustofnun selur okkur vatnið
fyrir hönd rikisins. Stórfelld út-
felling hefur komið fram og við
teljum að ríkið sé að selja okkur
gallaða vöru.“
Magnús kvað Hvergerðinga
vera afskaplega illa stadda með
sina hitaveitu, þar sem ekki væri
nóg með að útfelling væri í holun-
um, heldur stífluðust allar heim-
æðar og ennfremur spiralar í
varmaskiptum með vissu milli-
bili. Væri hreppurinn nú með
Framhald á bls 18.