Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 13

Morgunblaðið - 09.10.1977, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1977 13 Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins 17.—22. okt.: Aukin fræðsla um stjórn- málastarfsemina nauðsynleg Rætt við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, formann skóla- nefndar Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðisflokkurinn hefur undanfarin fimm ár haldið Stjórnmálaskóla f Reykjavík, þar sem veitt hefur verið fræðsla um margskonar félgsfræðileg og stjórnmálaleg efni. Þátttakendur f skólanum hafa komið vfða að af landinu og verið 25—30 f hvert skipti. Skólanefnd hefur ákveðið, að skólinn skuli f ár starfa frá 17.—22. október n.k. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, lögfræðingur hefur haft umsjón með skóla- haldi Stjórnmálaskólans frá þvf hann hóf starfsemi sfna á nýjan leikrið 1972. Morgunblaðið sneri sér í gær til Vilhjálms og bað hann að gera nokkra grein fyrir skólahaldinu. Hann sagði: - „Skólinn hefst 17. október nk. og stendur í eina viku eða til 22. október. Kennsla hefst á hverjum morgni kl. 9 og stendur til hádeg- is. Síðan er byrjað á ný kl. 13:30 og haldið áfram til kl. 18:00. Námsgreinar hafa verið rækilega auglýstar, en þar er fjallað um helstu viðfangsefni í stjórnmálum og félagsmálum. Sérfræðingar á þessu sviði flytja fyrirlestra og annast um kennsluna að öðru leyti.“ Hver er aðaltilgangur með skólahaldinu? „Megintilgangur með Stjórn- málaskóla Sjálfstæðisflokksins er að veita þátttakendum aukna fræðslu almennt um stjórnmál og stjórnmálastarfsemi. Við reynum að veita nemendum meiri innsýn í stjórnmálin en menn eiga kost á daglega, að gera þeim grein fyrir bæði hugmyndafræðilegu og starfrænu baksviði stjórnmál- anna. Mikilvægur þáttur i skólahaldinu er að þjálfa nemendur í ræðu- mennsku svo ennfremur að taka þátt í almennum umræðum, en þajlfun af því tagi er yfirleitt ekki að fá i skólum landsins. Með þessu móti viljum við gera fólk hæfara til þátttöku í stjórnmálum og almenu félagsmálastarfi." Þarf það sjálfstæðisfólk, sem áhuga hefur á skólahaldinu, að vera flokksbundið eða eru sett einhver skilyrði fyrir þátttöku? „Nei, það eru engin sérstök skil- yrði sett fyrir þátttöku i Stjórn- málaskólanum. Skólinn er opinn öllu sjálfstæðisfólki hvort sem það er flokksbundið eða ekki. Og ástæða er til að árétta .alveg sér- staklega, að hann er opinn fólki á öllum aldri. 1 siðustu skólum hafa nemendur til að mynda verið allt frá 15 ára aldri og að fimmtugu." Ertu ánægður með skólahaldið og árangur þess í þau 5 skipti, sem skólinn hefur verið haldinn, eftir að hann var endurreistur? „Ég held það sé óhætt að segja, að skólahaldið hafi heppnast von- um framar og orðið þátttakendum til mikils gagns. Þeir leiðbeinend- ur og kennarar sem kennt hafa við skólann, hafa sýnt mikinn áhuga á þessu starfi og stuðlað að þvi að gera allt skólahaldið skemmtilegt og frjálslegt. Fjöl- margir nemendur fyrri skóla hafa orðið mjög virkir i félagsstarfi Sjálfstæðisflokksins í sínum heimabyggðum og margir þeirra hafa tekið við forystustörfum. Nú þegar hafa margir skráð sig til þátttöku í skólanum og ég hvet fólk til að gera það sem allra fyrst,“ sagði Vlhjálmur að lokum. I skólanefnd Stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins eiga sæti: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður, Guðni Jónsson, Hrönn Haraldsdóttir, Margrét Arndórs- dóttir og Þór Erling Jónsson. Væntanlegir þátttakendur at- hugi, að skráning fer fram i Val- höll, simi 82900. Fjölfreeðtbaekur AB 7 David Burgess Wise Gamlir bílar ---Ford Escort Forslða bókarinnar Gamlir bllar. Ný bók frá BAB: Gamlir bílar Bókaklúbbur Almenna bókafé- lagsins hefur sent frá sér bókina Gamlir bílar eftir David Burgess Wise. Höfundurinn er brezkur og er ritstjóri bifreiðatímaritsins Vintage. Bókin er í bókaflokkn- um Fjölfræðibækur AB og er hin sjöunda, en ritstjóri flokksins er Örnólfur Thorlacius, mennta- skólakennari. Gamlir bilar er lýsing á þróun bifreiða úr frumstæðum gufu- vögnum á 18. öld fram til 1930 er fjöldaframleiðsla bifreiða var fyr- ir nokkru hafin. Er brugðið ljósi yfir litrík timaskeið bifreiðasög- unnar og saman tekinn mikill fróðleikur um efnið og hefur sumt af honum ekki komið fram áður, segir í frétt frá BAB. Fjöldi mynda prýðir bókina, litmyndir og teikningar og i bókarauka hef- ur Önrólfur Thorlacius tekið sam- an kafla um upphaf bílaaldar á íslandi. Þýðandi bókarinnar er Sigurður Thorlacius. Bókin Gamlir bílar er alls 160 bls. og hefur Prentstofa G. Bene- diktssonar annazt setningu, en bókin er prentuð i Verona á it- alíu. Þrír af fimm fyrstu bílunum í Nætur- rallinu 1. til 2. október voru af Ford Escort gerð Ford Escort sannar nú á íslandi — eins og hann hefur gert í þúsundum rally-keppna undanfarin 10 ár — að þegar aðstæður eru erfiðar, þá er Ford Escort bíll sem treysta má. 2. sæti (bílI nr. 14) 3. sæti (bíll nr. 6) 5. sæti (bíll nr 1 2) Escort 1600 BDA árg 1973 Escort 1 600 Sport árg 1 977 Escort 1600 Sport árg. 1977. L. FORD ESCORT — BÍLLINN SEM EKKI BREGST Sveinn Egi/sson hf. SKEIFUNNI 17 SIMI 85100 il í Kaupmannahöfn er óvehjufegt að þyí leyti að þar er töluð íslenzka. Það býður engan lúxus... enn sem komið er. En gísting með morgunmat er ódýFT svo af hverju ekki að gisj þú átt ieið um kóngsins Kai HOT )mann æst 29140 frá 09- Tekið á móti pöntunum 17 mánud.—föstud. SaReyrumst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.