Morgunblaðið - 09.10.1977, Blaðsíða 23
22
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1977 !
,,Gamli bærinn
mun alltaf hafa
mesta sjarmann,,
sagði Bjami í Brauðbæ
„Við erum staðsettir í gamla
bænum. Hingað kemur alltaf mik-
ið af fólki, þótt margir hafi misst
trúna á gamla bænum höfum við
ákveðið að vera áfram hér við
Óðinstorgið og erum með ýmis
framtíðaráform varðandi breyt-
ingu og stækkun staðarins, sagði
Bjarni f Brauðbæ.
60 MANNS VINNA
HJÁBRAUÐBÆ
Bjarni sagði að fyrirtækið
Brauðbær hefði verið stofnað árið
1964, og höfðum við þá á boðstól-.
um smurt brauð. Nokkrum árum
síðar stækkuðum við og opnuðum
almennan veitingastað. Núna rek-
ur Brauðbær tvo aðra veitinga-
staði, Krána við Hlemm og Kaffi-
stofuna Bankastræti 12 (örðu
nafni prikið), og vinna um 60
manns hjá fyrirtækinu.
LANDSÞEKKTAR
SAMLOKUR
Flestir Reykvikingar og aðrir
landsmenn kannast við samlok-
urnar frá Brauðbæ, en þær eru
framleiddar i miklu magni og
seldar víða. Bjarni sagði að frá
upphafi hefði verið lögð mikil
áhersla á samlokuframleiðsuna,
því þær væru sennilega bezta
kynning fyrirtækisins út á við.
Nýjasta framleiðsla okkar á því
sviði eru hinar svokölluðu Lang-
lokur, sem eru geysivinsælar.
GOTT HRÁEFNI —
GOTTSTARFSFÓLK—
GÓÐ ÞJÓNUSTA
Höfuð markmið Brauðbæjar
hefur frá upphafi verið að nota
gott hráefni og hafa á að skipa
góðu starfsfólki, og mér finnst
okkur hafa tekist þetta nokkuð
vel þó ekki sé maður alltaf full-
komlega ánægður sagði Bjarni.
Við förum eftir frönsku reglunni
hvað salarkynni snertir. Við höf-
um frekar fá sæti, en með því
móti er hægt að veita hverjum og
einum persónulegri þjónustu, þ.e.
matreiðslumaðurinn getur sjálfur
sett stimpil sinn á réttina, ef svo
mætti að orði komast. Auk geysi-
fjölbreyttra rétta sem eru á mat-
seðli okkar býður Brauðbær þá
þjónustu að laga heitan og kaldan
veizlumat sem fyrirtaekið sendir
út um borg og bæ. Einnig hefur
fyrirtækið lagt áherslu á að hafa
ávalt á boðstólum rétti fyrir fólk,
sem hyggur að „línunum", þ.e.
rétti með fáum hitaeiningum.
Auðvitað stöndum við líka undir
nafni okkar, og seljum smurt
brauð og veizlubrauð I miklu úr-
vali.
BRAUÐBÆR ÓDÝR
FJÖLSKYLDUMAT-
STAÐUR
Við hugsum lfka um börnin svo
foreldrar geti tekið þau með út að
borða. Sérstakur barnamatseðill
er á boðstólum fyrir aðeins kr.
300.-, og Aladdins Is I verðlaun
fyrir góðu börnin, sem klára allan
matinn sinn. Þetta á lika við um
Krána við Hlemm sagði Bjarni og
bætti við að það ætti að vera ódýr-
ara fyrir fjölskylduna að snæða
hjá þeim, en að laga matinn
heima.
HRAÐI — BREYTINGAR
—NÝJUNGAR—
nUtímakröfur
Við hjá Brauðbæ hyggjum á
talsverða stækkun á aðstöðunni
við Óðinstorg. Aætlað er að inn-
rétta 80 manna sal á annarri hæð
hússins, svo og lítinn fundarsal á
4. hæð, en frá þeim sal verður
skemmtilegt útsýni til vesturs yf-
ir gamla bæinn og höfnina.
VEITINGAREKSTUR í
LANDINU
Hvað vilt þú segja um þau skrif
sem hafa verið um mötuneytin?
Þau eru dulbúin skattfrjáls
kaupuppbót til þeirra sem njóta,
en það eru ekki aðeins starfs-
menn hjá riki og bæ sem njóta
þessara vanmetnu hlunninda,
heldur virðast allmörg fyrirtæki
vera farin að taka upp þetta óeðli-
lega fyrirkomulag, sem stendur I
vegi fyrir eðlilegri framþróun
veitingareksturs í landinu.
Við spurðum hvort hann tryði á
langlífi gamla miðbæjarins.
„Gamli bærinn mun alltaf hafa
mesta sjarmann" sagði Bjarni í
Brauðbæ á lokum.
k Hljómdeild
, KARNABÆR
LÁUGAVEGI 66, 1. HÆÐ Simi frá skiptiborói 28155
orlDfon
hinar frábæru
hljóðdósir (pic-up)
sem bæta hljómburðinn.
Margar gerðir.
Sjónvörpin & hljómtækin
sem vöktu gífurlega athygli landsmanna á undanfömum sýningum
í Laugardal, eru nú fyrirliggjandi — Aldrei meira úrval
Sértilboð
SHARP á litsjónvörpum
©
VtU-XZ&R
stereo-
samstæðan
20 tommu skermur.
Verð kr. 284.900 -
Útb. kr. 100.000.-
Eftirst. 184.900,-
greiðast á 8 mánuðum.
SHARP
frábæra
Verð aðeins kr.
169.900.-
M-6500
^PIOIMEEIT
Brautryðjendur 140 ár.
Stereosett. sem vert er að veíta sérstaka
athygli —
2 gerðír
40 ára reynsla Pioneer hljómtækja tryggir gæðin
— 3ja ára ábyrgS,
hvers vegna?
Þau bila bara alls ekki.