Morgunblaðið - 09.10.1977, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.10.1977, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. OKT0BER 1977 28 Norski fískifræðingurinn Arvid Hylen: „Stefnum að því að hrygningarstofn þorsksins í Barents- hafi verði 1 milljón tonn eftir nokkur ár” „Um þessar mundir teljum við að hrygningarstofn norska heimskautsþorsksins sé um 850 þúsund tonn og við stefnum að því að hrygningarstofninn verði kominn í 1 millj. tonna eftir nokkur ár, en af þeirri stærð teljum við að hrygningarstofn- inn megi minnst vera, til að stofninn geti staðið af sér léleg klakár, og haldið áfran að stækka,“ sagði norski fiskifræðingurinn Arvid Hylen þegar Morgunblað- ið ræddi við hann á ársfundi Alþjóðahafrannsóknaráðsins í Reykjavík. Arvid Hylen starfar við norsku hafrannsóknastofnun- ina í Björgvin, og er deildar- stjóri botnfiskadeildar. Hefur hann einkum stundað rann- sóknir á þorsk- og ýsustofnum við Noreg, og þegar hann kom til fundarins í Reykjavík var hann nýkominn úr leiðangri á hafrannsóknaskipinu G.O. Sars. Var þetta hinn árlegi „O- grúppu" leiðangur og við rann- sóknirnar kom í ljós, að klak þorsks og ýsu virtist hafa heppnazt þolanlega á þessu ári, og ennfremur urðu vísinda- mennirnir varir við töluvert af karfaseiðum. „Við áttum von á, að útkoman yrði verri að þessu sinni, „segir Hylen. 810 þúsund tonn af þorski í ár I framhaldi af þessu sagði Hylen, að ástandið í Barents- hafi, þar sem heimskautsþorsk- urinn héldi sig, væri ágætt núna. Alþjóðahafrannsókna- ráðið hefði mælt með 810 þús- und tonna heildarkvóta fyrir næsta ár, og væri það sami afli og mætti veiða á þessu ári og tvö sl. ár. Þannig hefði tekizt að halda 810 þús. tonna ársafla á þessum slóðum. Norðmenn fá 330 þús. tonn „Þorskkvótanum í Barents- hafi er skipt á milli þjóða, þannig hafa Norðmenn og Rússar fengið að veiða 330 þús- und tonn hvor þjóð, og 150 þús- und tonn hafa farið til annarra landa, en með 200 mílna fisk- veiðilögsögu Noregs og Rúss- lands minnkar sá afli sem aðrar þjóðir fá að veiða. Auk þessa afla mega Norð- menn veiða 40 þúsund tonn af svokölluðum strandþorski og Rússar 40 þúsund tonn af Mur- mansk-þorski. Norski strand- þorskurinn telst vera sérstakur stofn, en Murmansk- þorskurinn telst til heims- skautsþorskins,“ segir Hylen. — Hvernig hefur klak heim- skautsþorskins heppnazt und- anfarin ár? Aðeins 2 veikir árgangar á 7 árum „Síðasti sterki árgangurinn er frá 1973, svo komu veikir árgangar 1974 og 1976, en ár- gangarnir frá 1975 og nú 1977 virðast ætla að vera sterkir, 75- árgangurinn er yfir meðallag og árgangurinn frá í vor lofar mjög góðu. Ef víð lítum lengra til baka, þá voru árgangarnir 1971 og 1972 sæmilegir og sá frá 1970 mjög sterkur. Utkom- an er þvi sú, að aðeins er vitað um tvo veika árganga á þessu tímabili. Við höfum stundað „O- grúppu" rannsóknir í allmörg ár, og að sjálfsögðu höfum við samvinnu við Rússa þegar heimskautsþorskurinn er rann- sakaður. I sumar voru tvö norsk rannsóknaskip og þrjú rúss- nesk í þessum leiðangri.“ — Er hrygningarstofn ýs- unnar sterkur á þessum slóð- um? „Hann hefur minnkað, en þó ekki það mikið, að hann sé í beinni hættu, og ástæðan fyrir því er, að nú eru fjórir sterkir árgangar í uppvexti, 1974—1977. Rússar og Norð- menn eru sammála um, að ekki megi veiða meira en 120 þús. tonn af ýsu á þessu ári. 50 þús. tonnum er úthiutað til Rússa, 50 þús. til Norðmanna og 20 þús. til annarra þjóða. A næsta ári gerum við hins vegar ráð fyrir að óhætt verði að veiða 150 þúsund tonn.“ » Nauðsynlegt að veravakandi Þegar Hylen var spurður að því hvort útlitið væri þá ekki bjart framundan i Barentshafi, sagði hann: „Þó hættan sé ekki mikil í augnablikinu, þá þurfa ekki að koma nema nokkrir veikir árgangar, — og ef svo fer verða menn að ver: vakandi, til þess að dregið verði úr veiðum tímanlega. Meðal annars af þessari ástæðu eru norskir og sovézkir fiskifræðingar sam- mála um, að hrygningarstofn þorskins i Barentshafi verði að ná 1 milljón tonna innan nokk- urra ára, með því móti á hann að geta staðið af sér skakkaföll og ennfremur að geta orðið enn stærri en nú er. Ennfremur stefnum við að þvi, að ungviðið verði látið meira i friði en nú er, til að meðalaldur þorskins verði hærri og það er hægt að gera m.a. með stærri möskvum í veiðarfærum skipanna." Arvid Hylen — Nú hefur þú kynnt þér skýrsluna um ástand íslenzka þorskstofnsins. Ertu sammála íslenzkum fiskifræðingum um að sá stofn sé í verulegri hættu? Hrygningarstofn • íslenzka þorsksins alltof lítill „Ég er algjörlega sammála ís- lenzkum fiskifræðingum um, að hrygningarstofn islenzka þorskstofnsins er orðinn alltof lítill og það er stór hætta á ’erðum, þegar ársveiðin er orð- ín meiri en stærð hrygningar- stofnsins. Stofninn verður að vera af skikkanlegri stærð, en annars getur allt hrunið, og það er oft seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan í. Annars vil ég ekki tjá mig frek- ar um íslenzka þorskstofninn, því það eru islenzk stjórnvöld, sem eiga að sjá um viðgang hans. Og mér skilst að allir Is- lendingar séu sammála um að vernda þennan stofn meðal annars með því að draga úr veiði á ókynþroska fiski, sem er bráðnauðsynlegt að mínu mati.“ Hylen sagði að þótt deilt væri á hinar svokölluðu „0-grúppu" rannsóknir, þá gæfu þær nokk- uð nákvæma mynd af stærð hvers árgangs, en þessi aðferð hefði verið notuð síðan 1965, og rannsóknaaðferðin væri nú margendurbætt, þannig að ná- kvæmnin ykist stöðugt. Reynt aö fylgjast með uppvextinum „Núna siðustu árin, erum við og þó einkum Rússar farnir að reyna að fylgjast nákvæmlega með uppvexti viðkomandi ár- gangs, allt þar til hann kemst á hrygningaraldur, en á þessu sviði hefur ekki enn náðst full- komnun. 1 Noregi er nú verið að kanna hvort ekki sé hægt að nota sérstaka dýptarmæla til þessara rarinsókna og við mun- um fara í tilraunaleiðangur íjanúar—febrúar á næsta ári, þótt við séum ekki enn ánægðir með tækin, en allt verður gert til að leysa þau vandamál sem fyrir eru og upp koma. 1 þessu sambandi má geta þess, að tölva verður tengd við dýptarmælana, en hún er ekki enn orðin nógu fullkomin, þrátt fyrir sífelldar endurbætur. Það er hins vegar nauðsynlegt að geta fylgzt með uppvexti þorsksins og annarra fiskteg- unda í framtiðinni, alveg eins og bóndinn fylgist með upp- vexti gripa sinna,“ sagði Arvid Hylen. Þ.O. Bridge Umsjón ARNÓR RAGNARSSON Tafl og bridge- klúbburinn. Hafinn er fimm kvölda tvímenningskeppni hjá okkur. 32 pör mættu til leiks og er spilað 1 tveimur 16 para riðlum. Staða efstu para: Tryggvi Glslason — Guðlaugur Nielsen 292 Sverri Kristinsson — Sigtryggur Sigurðsson 246 Ólafur Tryggvason — Guðjón Sigurðsson 244 Albert Þorsteinsson — Sigurður Emilsson 242 Björn Kristjánsson — Þórður Elíasson 239 Hilmar Olarsson — Olafur Karisson 237 Jón Pálsson — Kristín Þórðardóttir 235 Kristján örn Kristjánsson — Haukur Gunnarsson 235 Meðalskor 210 Næst verður spilað á fimmtudaginn kemur f Domus Medica og hefst keppnin klukkan 20 stundvíslega. XXX Bridgefélag Kópavogs SI. fimmtudag 7. okt. var spiluð 2. umferð tvímenningskeppni hjá Bridgefélagi Kópavogs. Birgir og Guðmundur halda enn fyrsta sæti en tvö pör fylgja fast á eftir. Birgir Isleifsson — Guðmundur Pálsson 269 Grímur Thorarensen — Guðmundur Pálsson 259 Sverrir Armannsson — Guðmundur Arnarson 257 Sigurður Thorarensen — Jóhann Bogason 230 Armann J. Lárusson — Haukur Hannesson 230 Kristinn A. Gústafsson — Arni Jónasson 226 Guðmundur Kristjánsson — Hermann Finnbogason 226 Siðasta umferðin í keppninni verður spiluð næsta fimmtudag f Þinghól Hamraborg 11 Stjórnin hefur gert eftirfarándi áætlun um starfsemi félagsins fram að áramótum: Tvímenningur: 29. sept. — 13. okt. '71 3 kvöld Hraðsveitakeppni 20. okt. — 17. nóv. ’77 5 kvöld Einmenningur/Firmakeppni 24. nóv. '17 fyrri hluti Tvfmenningur — Butler 1. — 15. des. '77 3 kvöld Jólafrf Einmenningur/Firmakeppni 6. jan. ’78 sfðari hluti Aðalsveilakeppni hefst 12. jan, ’78 — liklega 7 kvöld. Framhald verður ákveðið síðar. Bridgefélag Hafnarfjarðar Eins kvölds tvfmenningur var spilaður sl. mánudag og urðu úrslit þessi: Bjarnar/Þórarinn 184 Björn/Magnús 183 Arni/Sævar 180 Dröfn/Einar 169 Meðalskor 156 A morgun verður byrjað á aðaltvfmenningskeppni félags- ins sem stendur yfir f 4 kvöld. Spilað verður í Sjálfstæðishús- inu. Keppnisstjóri verður Guð- mundur Kr. Sigurðsson. Félag- ar ungir og aldnir, gamlir og nýir, konur og karlar eru hvattir til að fjölmenna. Þessi mynd var tekin af Hylen (t.h.) og Lars Midtun fyrir nokkrum vikum, en þá voru þeir að koma úr árlegum „0-grúppu“leiðangri á hafrannsóknaskipinu G.O Sars. Myndin birtist f Fiskaren.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.