Morgunblaðið - 09.10.1977, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 09.10.1977, Blaðsíða 40
KRUPS Rafmagns heimilisfæki fást um allt land Jón Jóhannesson & Co. s. f. Símar 26988 og 15821 SUNNUDAGUR 9. OKTÓBER 1977 Mokveiði hjá loðnu- skipunum MIKIL veiði var hjá loðnu- skipunum á Kolbeinseyjar- svæðinu í fyrrakvöld ofí í fyrrinótt. Frá hádegi á föstudas til hádegis í sær tilkynntu 15 skip um sam- tals 8.750 tonn en þar af voru 7 skip sem fengu afla eftir miðnætti, samtals um 3.470 tonn. Þessi skip voru Freyja meó 350 tonn, Fífill 560, Hrafn Sveinbjarnarson 260, Loftur Baldvinsson 670, Helga II. 450, Gullberg 540 og Pétur Jónasson með 640 tonn. Fréttaritari Mbl. í Siglu- firði sagði til marks um veiðina i fyrrinótt, að Pét- ur Jónsson hefði haldið út frá Siglufirði um 6-leytið á föstudag en hefði síðan nær fyllt sig í tveimur köst- um og væri nú á leið til Bolungarvíkur með aflann. Nokkur loðnuskip voru á leið til Siglufjarðar í gær með afla en þar er allt að fyllast. Flugleiðir: Ljósmynd Mhl. Móses Geirmundsson Togarinn Runólfur kom til Njarðvíkur ( gær með 100 tonn af kolmunna af Dornbankaslóðum, en þar fékk togarinn stærsta kolmunnahal sem íslenzkt skip hefur fengið, 70 tonn í einu hali. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar búið var að ná pokanum sprengfullum inn á þilfar skuttogarans en þykktin á pokanum á þilfarinu er um mannhæð. Vilja 275 dollara far- gjald yfir Atlantshaf „VIÐ SÓTTUM á sínum tlma um tvenn fargjöld, 360 dollara og 275 dollara. Síðara fargjaldið var fellt af bandarískum flugmálayfir- völdum á þeim grundvelli, að það væri skaðlegt leiguflugi, en svo tók Carter Bandaríkjaforseti þá ákvörðun að beita neitunarvaldi á þessa afgreiðslu yfirvaldanna og nú erum við aftur komnir með umsókn um 275 dollara fargjald- ið,“ sagði Sigurður Helgason, for- stjóri Flugleiða, í samtali við Mbl. f gær, en í sfðasta hefti viku- ritsins Time er fjallað um flug Freddie Lakers fyir Atlantshafið og fargjaldastrfð flugfélaganna á þeirri leið. 1 greininni er þess getið að Loftleiðir sé þekktasta vestræna flugfélagið, sem ekki er aðili að Alþjóðasambandi flugfé- laga (IATA) og sagt að beiðni Eggert í 1. sætið? MORGUNBLAÐIÐ hafBi samband vi8 Eggert G. Þorsteinsson alþingis- mann í gœr og innti hann eftir því hvort hann hygðist bjóða sig fram i 1. sæti á lista Alþýðuflokksins i Reykjavík fyrir næstu kosningar. en undirbúningur að prófkjöri stendur yfir. Eggert kvaðst taka ákvörðun i málinu um helgina en hann kvaðst hafa áskorendur og meðmælendur bæði i 1. og 2. sætið. Þá hafði Mbl samband við Vilmund Gyifason og spurði hann um ákvörðun varðandi þátttöku í prófkjöri Alþýðu- flokksins í Reykjavík Vilmundur sagði að verið vaeri að huga að málmu. félagsins um 275 dollara fargjald bíði nú nýrrar afgreiðsiu. Sigurður Helgason sagði, að reynslan af 360 dollara fargjald- inu hefði verið sú að Flugleiðir fluttu svipaðan farþegafjölda yfir Atlantshafið síðustu tvær vikur og á sama tima i fyrra. Þetta fargjald er að sögn Sigurðar í áttina að þvi, sem Laker býður upp á, 236 dollarar), en þó hærra en fargjöld þau, sem önnur flug- félög svöruðu Laker með. (256 dollarar). Hins vegar er hægt að bóka ferð á sliku fargjaldi hjá Flugleiðum með 48 stunda fyrir- vara. 275 dollara fargjaldið er. að sögn Sigurðar i hópi svonefndra Super APEX fargjalds, sem flug- félögin hafa ákveðið að bjóða með Framhald á bls. 33. Fjármálaráóherra um BSRB-deiluna: Vongóður um lausn fyrir þriðjudag - ótrúlegt ad samkomulag verdi á borðinu í tæka tíð, segir frkv.stj. BSRB „VIÐ munum halda áfram að ræða þær hugmyndir, sem komu fram í gær og í nótt,“ sagði Matthías Á. Mathiesen, fjármálaráð- Þingsetning á mánudag — fjárlaga- frumvarpið á þriðjudag ALÞINGI verður sett með hefðbundnum hætti á morgun, mánudag. Sitja þingmenn í upphafi messu í Dómkirkj- unni kl. 1.30 þar sem sr. Hjalti Guðmundsson prédikar en að því búnu verður gengið til Alþingis, þar sem þingfundur verður settur. Þing þetta sem nú hefst er að þvi leyti merkilegt, að í hönd fara tvennar kosningar — bæði sveitarstjórna- og alþingiskosningar og er ekki ólíklegt að það muni setja mark sitt á störf þingsins. Ýmsir kunnir stjórnmálamenn hafa einnig lýst þvi yfir að þetta þing verði þeirra síðasta, svo sem Ingólfur Jónsson, fyrrum ráðherra, Ásgeir Bjarnason, forseti sameinaðs þings og Gylfi Þ. Gísiason hefur lýst þvi yfir að hann muni ekki fara í framboð í næstu alþingiskosningum. Þá hefur Jón Árnason, formaður fjárveitinganefndar Alþingis, andast frá því að sjðasta þing var haldið. Fjárlagafrumvarpið verður svo að venju lagt fram sem þtngskjal númer eitt á öðrum fundi þingsins, sem væntan- lega verður á þriðjudag. herra, er Mbl. ræddi við hann í gær fyrir samninga- fund ríkisins og BSRB, sem hófst klukkan 14. „Ég hef þá trú, að okkur takist að brúa bilið, sem á milli er, þannig að ekki komi til verkfallsins á þriðju- daginn.“ Haraldur Stein- þórsson, frkvstj. BSRB, sagði hins vegar, að eins og málin hefðu gengið og staðan væri, þætti sér ótrú- legt að samkomulag yrði komið á borðið í tæka tíð til að afstýra verkfallinu. Þegar Mbl. spurði Harald, hvort BSRB myndi hugsanlega fresta verkfallinu, ef verulegur skriður kæmist á samningamálin um helgina, svaraði hann: „Stjórn og samninganefnd geta afboðað verkfallið. En til þess að sá mögu- leiki verði hugleiddur, þarf eitthvað ákveðið að liggja fyrir og forsendur að hafa gjörbreytzt.“ Á fundunum í fyrradag lögðu báðir aðilar fram tilboð; ríkið um 1,5% viðbót i nóvember, þó aldrei lægri upphæð en 3000 krónur, og BSRB svaraði meó því aó lækka kröfur sinar á alla launastiga um 10.000 krónur, en jafnframt fylgdu breytingar á aldurs- hækkunum. Þungt haldinn eftir barsmíðar UNGUR piltur liggur nú á gjör- gæzludeild Borgarspítalans eftir að hafa orðið fyrir heiftarlegri Hkamsárás. Gerðist þetta síðari hluta dags á föstudag f íbúð f Breiðholti og var aðdragandinn sá, að slegið hafði í brýnu milli tveggja bræðra. Kom til handa- lögmáis á milli þeirra og sfðan blóðugra slagsmála, sem lauk með því að flytja varð annan stór- slasaðan í sjúkrahús eins og áður segir. Færri umferðaróhöpp í Reykjavík en áður Sektargreidslur vegna umferðar- lagabrota ekki undir 100 millj. Sjá bladsfáur 14 og 15. -□ UMFERÐARÓHÖPPUM hefur fækkað verulega í Reykjavík undanfarin ár en fyrstu níu mánuði þessa árs gaf lögreglan skýrslur um 1959 árekstra. Sambærileg tala fyrir árið 1976 var 2183 og árið 1975 gaf lög- reglan skýrslur um 2490 árekstra í umferðinni f Reykja- vík fyrstu niu mánuði ársins. I síðasta mánuði gaf lögreglan i Reykjavík skýrsiu um 233 um- feðraróhöpp og er þar einnig um verulega fækkun að ræða. Nú fer f hönd sá tfmi, sem undanfarin ár hefur veríð erf- iðastur í umferðinni og hver man ekki þá skelfilegu slysa- öidu, sem reið yfir í skammdeg- inu árið 1974 og 1975. Þvf er full ástæða fyrir ökumenn að sýna aukna varkárni i umferð- inni og þó talað sé um að um- ferðaróhöppum hafi fækkað þá er það eigi að sfður hryggileg staðreynd að í ár hafa 6 manns látið lffið í umferðinni í Reykjavík og er það aukning frá fyrstu 9 mánuðum tveggja síðustu ára. í viðtali við Óskar Ólafsson, yfirlögregluþjón Umferðar- deildar lögreglunnar i Reykja- vík, á blaðsíðum 14—15 kemur fram, að þegar hámarks hraði var hækkaður á nokkrum göt- um í Reykjavik i síðasta mán- uói ijöigaói árekstrum ekki. Hins vegar segir Óskar það sína skoðun, að árekstrar hafi orðið harðari og slysin í þeim verði sífellt alvarlegri. Sektir hækkuðu verulega vegna brota á umferóarlögum á síðasta ári og þá er einnig geng- ið harðar eftir greiðslum nú en áður. Telur lögreglan þetta veita ökumönnu'm meira aðhald en áður og hafi veríð rétt spor. Það sem af er þessu ári hafa 11.580 ökumenn verið kærðir fyrir umferðarlagabrot i Reykjavik og má áætla að þeir hafi verið sektaðir um 100 milljónir króna. Inni i þessu( dæmi eru þó ekki stöðumæla- sektir, sem nema hundruðum þúsunda. Algengustu brotin eru of rnikill ökuhraði, en 2965 hafa verió kærðir vegna of mik- ils aksturshraða, 5100 hafa ver- ið sektaðir fyrir að leggja bif- reið á löglegan hátt og 886 hafa verið teknir vegna gruns um ölvun við akstur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.