Morgunblaðið - 31.12.1977, Síða 30
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 31. DESEMBER 1977
UmHORP
Umsjón: ANDERS HANSEN og TRYGGVI GUNNARSSON.
Viss pólitískur hópur manna
hefur eitt afskaplega skýrt ein-
kenni sem gerir það að verk-
um, að þeir þekkjast úr hvar
sem er í heiminum. Kenningar
sínar festa þeir viljandi í hnýtt
orðasambönd eða frasaviðjar.
Þeir skipta mönnum í stéttir
eins og borgarastétt, verka-
mannastétt, smáborgarastétt,
öreigastétt, auðvaldsstétt, kúg-
arastétt ofl. ofl. I hugum
flestra er nokkuð á reiki við
hvað er átt. Spurning er hvort
verkamaður geti verið smá-
borgari í borgarastétt auð-
valdsins. Borgari er að áliti
margra vinstrimanna og
marxista maður sem hefur að-
gang að fjármagni og notar það
til að kúga öreigana, halda
þeim i viðjum vanþekkingar
og fátæktar. En yfirleitt er
borgari bara maður með and-
stæðar skoðanir við vinstri-
menn og marxista, þeirra
manna er styðja Alþýðubarida-
lagið eða eru enn lengra til
austurs á þeirri línu. Annars
ber þessum mönnum ekki allt-
af saman hvar draga eigi mörk-
in á miili þessara stétta. Á
meðan erum við bara almenn-
ingur, — kannski meðlimir í
félagi smáborgara.
Lítil saga
í bókinni Guðinn sem brást
segir, meðal annarra, rithöf-
undurinn Arthur Koestler, frá
reynslu sinni og vonbrigðum
með kommúnismann. Á einum
stað minnist hann á stúlku
eina, sem á stríðsárunum hafði
orðið svo óheppin að lenda í
klóm Gestapo fyrir aðild að
samtökum kommúnista. Gesta-
po-foringinn sem yfirheyrði
hana fann lengi vel engar
sannanir fyrir sekt stúlkunnar
og var að því kominn að láta
hana lausa. Tók hann þá eftir,
að stúlkan notaði orðið „hlut-
lægur“. Stúlkan hafði hingað
til engan bilbug látið á sér
finna, en þegar yfirheyrslan
fór að snúast um það, hvar hún
hefði lært að nota þetta orð,
var stutt i endalokin.
Þessi Iitla saga sýnir svo
ekki verður um villst, hversu
áberandi talsmáti kommúnista
og annarra skoðanabræðra
þeirra er frábrugðinn talsmáta
annarra. Hann er orðinn svo
„háþróaður“ að í raun og veru
þarf mikla sérmenntun til að
geta rætt pólitik við þá af ein-
hverju marki.
Hinn „listræni
tilgangur“
sem baráttutæki eins og
kommúnistar gera í dagblöð-
um, það er ekki að ljúga, held-
ur bláköld nauðsyn“.
brjóstfylking kúguðu stétt-
anna, skipulögð sem ríkjandi
stétt til þess að geta haldið
arðræningjunum í skefjum,
getur ekki blátt áfram gert lýð-
ræðið yfirgripsmeira." (Ríki
og bylting).
Þessi stutta klausa gæti al-
veg eins verið rituð í dag eins
og fyrir fjörutíu árum, eins og
hún í raun og veru er. Frasar
eins og „kúgaðar stéttir“,
„rikjandi stétt", „arðræningj-
ar“, o.s.frv. eru eftirlæti
heittrúaðra vinstri manna. Ef
Marx gamli, Lenin, Trotsky og
allir þessir bræður
hvaðþeirnúheita, gætu risið
upp frá dauðum, væri ekkert
þeim til fyrirstöðu að taka þátt
í leiknum. Baráttuaðferðirnar
eru nákvæmlega þær sömu og
fyrir hálfri öld. Þessir slag-
orðafrasar eru notaðir í grið og
erg án nokkurs tillits til þess,
hvort þeir segi í raun og veru
einhvern sannleik. Eflaust
finnur það fólk, sem hvað mest
notar þá, að þetta eru mark-
laus orð! Ef til vill er það þess
vegna, sem það vílar ekki fyrir
sér að nota lygar til þess að tjá
sig um pólitíska andstæðinga
sína í þeim eina tilgangi að
lýsa fyrirlitningu sinni á mál-
stað þeirra. Það kann ekki önn-
ur ráð.
— Tilgangur
lyginnar —
Það má vel vera að það sé
listræn tjáning eða menningar-
leg skirskotun að kalla fólk
opinberlega njósnara, föður-
landssvikara, glæpamenn
o.s.frv. Formaður Sjálfstæðis-
flokksins er næstum daglega
kallaður landsölumaður i Þjóð-
viljanum. Við Heimdellingar
lesum það oft, að Heimdallur
sé afturhaldsamasta félag
norðan Alpa. Sé þetta listræn
tjáning, þá er listræn tjáning
ekkert annað en lygi. Náttúru-
lega hafa allir rétt til að ljúga
opinberlega, svo lengi sem all-
ml
Sigurður Sigurðsson:
Þegar staðið er
austan við heil-
brigða skynsemi
,MarkIaus orð“
„Alræði öreiganna, þ.e.
Nýlega bárust þau tíðindi
um landsbyggðina, að stofnað-
ur hefði verið svokallaður
„Málfrelsissjóður lslands“.
Hann hefur það markmið að
greiða sektir fyrir ærumeið-
andi og móðgandi ummæli, en
því aðeins að þau hafi „menn-
ingarlega skírskotun" og í fel-
ist „listræn tjáning". Þetta er
ofsaflott markmið, en ég er að
velta því fyrir mér, hvort
nokkur viðurlög séu fyrir „að
skirskota menningarlega" eða
að „tjá sig á listrænan hátt“.
Nei, allir vita að svo er ekki,
heldur er tilgangur sjóðsins
pólitísks eðlis. Tilgangurinn er
aó gerbylta íslensku stjórn-
skipulagi enda eru pólitiskar
skoðanir flestra stofnenda
hans í þá átt. Það er fólk af
sama sauðahúsi og stofnendur
þessa sjóðs, sem komið hafa
óorði á hugtök eins og frelsi,
lýðræði og jafnrétti. Reynt er
að koma þeirri hugmynd inn
hjá landsmönnum, að íslensk
löggjöf sé kolvitlaus og ósann-
gjörn.
Gamall kommúnisti sagði
einu sinni: „Að nota lygina
ir vita að verið er að ljúga og
enginn skaðast af því. En þeg-
ar lygin er höfð í frammi undir
einhvers konar yfirskyni til að
villa um fyrir einhverjum eða
öllum, þá er hin listræna tján-
ing ekki lengur ámælisverð,
húnersaknæm.
Listræn tjáning
ræn tjáning Jónasar Hall-
grímssonar í kvæðinu „Gunn-
arshólmi". Nei, ekki aldeilis,
þetta var ekki einu sinni list-
ræn tjáning. Þessi „listræna
tjáning" var og er lygi og átti
ekki að gegna neinu fagur-
fræðilegu hlutverki. Tilgang-
urinn var einungis sá að hræða
fólk frá þátttöku í undir-
skriftasöfnuninni og að svarta
þá, sem að henni stóðu, í aug-
um þjóðarinnar.
öllum er i fersku minni
undirskriftasafnanir Varins
lands. Arangurinn var stór-
kostlegur sigur fyrir alla fylg-
ismenn vestrænnar samvinnu.
Meðan á þessari undirskrifta-
söfnun stóð, kom berlega í ljós
hið rétta hugarfar manna sem
að útgáfu Þjóðviljans standa
og enn lengra til vinstri... A
„listrænan hátt“ tjáðu þeir sig
um forsvarsmenn söfnunar-
innar og þá sem tóku þátt í
henni. Þeir voru orðnir CIA-
agentar, landsölumenn, njósn-
arar, föðurlandssvikarar
o.s.frv. Allir geta verið sam-
mála um, að þessi brigslorða-
flaumur átti ekki að gegna
álíka hlutverki eins og til
dæmis listræn tjáning Kjar-
vals á Þingvöllum, eða þá list-
Tilgangurinn
helgar meðalið
Það má nú eflaust kalla það
„listræna tjáningu“ að kalla
Geir Hallgrímsson föðurlands-
svikara, enda þótt öllum sé það
vel ljóst, að hann er það ekki.
Tilgangurinn er bara sá að
gera hann óvinsælan Það að
kalla Heimdall afturhaldsam-
asta félag norðan Alpafjalla er
þáttur í því að hræða fólk frá
þátttöku í starfi félagsins.
Tilgangurinn helgar meðal-
ið, hugsa þeir sem standa aust-
an við heilbrigða skynsemi.
Varla getur það talist neitt
merki um afturhaldssemi að
berjast fyrir frjálsum útvarps-
rekstri eða valddreifingu eins
og þó Heimdallur gerir. En
hvort meiri afturhaldssemi er
að fylgja skoðunum John
Stewarts Mills í bók hans
„Frelsið" eða trúa kenningum
Marx og Engels má eflaust
deila um endalaust.
Sirkus
Ef til vill er það rétt, sem
gamla konan sagði, að pólitikin
væri sirkus, þar sem það eitt
gilti að gera eitthvað nógu
glæfralegt og frumlegt svo
fólk taki andköf af aðdáun.
Ganga til dæmis á hárri línu
hátt yfir jörðu, ekki til að kom-
ast á milli tveggja staða ein-
hverra erinda, heldur til að
sýna fimi sína. Sú skreytni að
kalla Heimdall afturhaldssam-
asta félag norðan Alpafjalla er
kannski sett fram til að sýna
orðfimi sína og frumleika í nið-
urröðun orða í áróðurslegum
tilgangi, það er aldrei að vita.
Vel má vera að það sé list-
ræns eðlis að ganga á línu yfir
Gullfoss, en að kalla fólk nöfn-
um eins og landsölumenn,
njósnara, föðurlandssvikara,
o.s.frv. getur ansakornið ekki
talist listræns eðlis, — jafnvel
þótt það geti verið satt.
Þrjár staðreyndir
Þrjú atriði varðandi mál-
frelsissjóðinn koma upp um
hinn eiginlega tilgang hans:
1. Flestir stofnenda eru yfir-
lýstir vinstrimenn eða komm-
únistar.
2. Sú staðreynd að greiða
eigi sektir fyrir þá sem dæmd-
ir voru fyrir ærumeiðandi um-
mæli um forystumenn Varins
lands.
3. Sú staðreynd, að menn-
ingarleg skírskotun og listræn
tjáning jafnt í umræðum um
almenningsheill sem og allt
annað er ekki bönnuð í íslensk-
um lögum.
Eflaust má telja fleiri atriði
til, sem sanna hinn pólitíska
tilgang sjóðsins; að brjóta nið-
ur allt álit fólks á réttlæti hins
íslenska réttarfars. Sjóðstofn-
unin er einn af mörgum sam-
spilandi þáttum sem markvisst
vinna að þvf að bylta íslensku
þjóðskipulagi.
Sú spurning hefur komið
upp, hvon sjóðstofnunin brýt-
ur í bága við ákvæði stjórnar-
skrárinnar um félagsstofnun í
löglegum tilgangi: Fróðlegt
væri að vita hvort stofnendur
sjóðsins myndu vera sammála
þeirri sjóðstofnun, sem hefði
það að markmiði að greiða
sektir fyrir skattsvik, eða þeim
sjóði, sem greiða myndi sektir
og tjón sem þeir valda, er neita
að aka hægra megin akvega.
Hvað sem öllu líður er sjóð-
stofnunin hápólitfsk.
Eignarhlutföll
ASÍ og SÍS jöf n
í Landsýn h.f.
Svo sem skýrt var frá í fréttatil-
kynningu 12. október s.l„ hafa
Samvinnuhreyfingin og A.S.l.
ákveðið að gerast eignaraðilar að
Ferðaskrifstofunni Landsýn h.f„
en sem kunnugt er hefur Alþýðu-
orlof átt og rekið ferðaskrifstof-
una frá 1. maf 1974.
A framhaldsaðalfundi Land-
sýnar h.f„ sem fram fór 1. nóvem-
ber s.l. var formlega gengið frá
þessu samstarfi og höfðu þá hinir
nýju eignaraðilar skráð sig fyrir
hiutaf járauka þeim sem aðal-
fundur hlutafélagsins samþykkti
að bjóða út, að fjárhæð 25 millj.
króna. Eigendur Landsýnar h.f.
eru nú:
ALlþýðusamband Islands og AI-
þýðuorlof annars vegar og Sam-
band isl. Samvinnufélaga og Sam-
vinnutryggingar hins vegar.
Eignarhlutföll eru jöfn milli að-
ila.
Framhaldsaðalfundurinn kaus
félaginu nýja stjórn og er hún
þannig skipuð:
Af hálfu ASÍ/Alþýðuorlofs:
Björn Jónsson, Einar Ögmunds-
son og Óskar Hallgrímsson.
Af hálfu SÍS/Samvinnutrygg-
inga: Erlendur. Einarsson, Axel
Gislason og Hallgrímur Sigurðs-
son.
Stjórnin hefur skipt með sér
verkum þannig að formaður er
Hallgrímur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Samvinnutrygg-
inga og ritari Óskar Hallgrímsson,
formaður Alþýðuorlofs.
Framkvæmdastjóri Landsýnar
hefur verið ráðinn Eysteinn
Helgason.
Svör við erlendri fréttagetraun
Svör við eriendri
fréttagetraun:
1-d, 2-a, 3-c, 4-a, 5-c, 6-b, 7-b, 8-c,
9-d, 10-b, 11-a, 12-d, 13-c, 14-d,
15-b, 16-a, 17-d, 18-d, 19-c, 20-a,
21-b, 22-a, 23-b, 24-c, 25-b, 26-c,
27-d, 28-a, 29-d, 30-b, 31-b, 32-a,
33-c, 34-c, 35-b, 36-a, 37-d, 38-c,
39-b, 40-d.
Myndir f erlendri
fréttagetraun:
41 — V-þýzk vfkingasveit, sem
freslaði gfsla Lufthansaþotunnar
f Mogadishu.
42 — Sirimawo Bandaranaike
fyrrum forsætisráðherra Sri
Lanka og Indira Gandhi fyrrum
forsætisráðherra Indlands.
43 — Sovézki ísbrjóturinn „Ark-
tika“.
44 — Chiang Ching og Chan
Chun-cbiao. Brúðurnar voru
hengdar upp á Torgi hins himn-
eska friðar f Peking.
45 — Bokassa keisari Mið-Afrfku
keisaradæmisins.
Ferðaskrifstofan Landsýn mun
eins og áður veita alla almenna
ferðaþjónustu innanlands sem er-
lendis en sérstök áherzla verður
lögð á þjónustu við félagsmenn
þeirra fjöldasamtaka sem að
ferðaskrifstofunni standa. Af að-
ild Samvinnuhreyfingarinnar
leiðir að sjálfsögðu að náið sam-
starf verður milli Landsýnar og
Samvinnuferða i því skyni að ná
sem mestri hagkvæmni í rekstri
skrifstofanna beggja.
Ferðaskrifstofan Landsýn er
sem fyrr til húsa að Skólavörðu-
stíg 16 og sími skrifstofunnar er
28899.
(Frá Ferðaskirfstofunni Landsýn
h.f.)
Lausn á
innlendri
frétta-
getraun
Svör við innlendri fréttaget-
raun: lc, 2b, 3c, 4c, 5c, 6d, 7c, 8a,
9c, lOc, lld, 12b, 13b, 14d, 15,16b,
17a, 18d, 19d, 20c, 21b, 22a, 23a,
24d, 25b, 26d, 27b, 28c, 29b, 30c,
31c, 32c, 33d, 34c, 35b, 36 Kristján
Thorlacius formaður BSRB með
samninganefnd Hjúkrunarfélags
tslands, sem færði honum rós í
samningaviðræðum BSRB og rík-
is, 37 Kekkonen Finnlandsforseti
landar laxi í Laxá í Kjós, 38 júdó,
39 Lucwig Lugmeier, þýzkur
bankaræningi, 40 40.
— 16 atriði
Framhald af bls.46
ingi af málefnum bændastéttarinnar I
hljóðvarpi og sjónvarpi. eins og nýliðin
dæmi um verðbreytingar á landbúnað-
arafurðum sanna
Ályktanirnar voru samþykktar sam-
hljóða