Morgunblaðið - 14.04.1978, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978
Landshappdrætti
SVFÍ fer af stað
HAFIÐ er nú landshappdrætti
SlysavarnafélaKS íslands í tilefni
50 ára afmælis félagsins fyrr á
árinu. Aðalvinningur happdrætt-
isins er að þessu sinni Chevrolet
Malibu-bifreið og að auki eru 9
sjónvarpsspilavinningar og er
verðmæti þessara vinninga sam-
tals um 4.4 milljónir króna.
„Öll vinna samfara þessu happ-
drætti mun verða unnin í algerri
sjáifboðavinnu. Söluna munu
deildirnar víðs vegar um land
annast. Seit verður í hús, á götum
úti svo og við skemmtistaði
borgarinnar. Þá má geta þess, að
Slysavarnafélagið verður með sér-
stakan sýningarbás á bílasýning-
unni Auto 78 í Bílshöfða og verða
miðar að sjálfsögðu seldir þar,“
sagði Gunnar Friðriksson forseti
Slysavarnafélags Islands á blaða-
mannafundi í gær.
„Það var samþykkt á s.l. lands-
þingi félagsina á Höfn í Horna-
firði að efna til þessa happdrættis.
Ágóðanum verður fyrst og fremst
varið til viðhalds og uppbyggingar
björgunarskýlum víðsvegar um
landið, en þau eru í dag 98 talsins,
Gunnar Friðriksson forseti SVFÍ ásamt þremur happdrættisnefndarmönnum, Herði Friðbertssyni, Guðjóni
Jónatanssyni og Böðvari Ásgeirssyni.
Eruð þér að
Lausnin er
TERRAZZOP LAST
byggt á Desmodur/Desmophen
hugsa um efni á gólfið?
Gult/Flögur Nr. J
Gólftex er mjög fallegt og slitsterkt,
tveggja þátta plastefni, ætlað á gólf
í heimahúsum, (geymslur, ganga
þvottahús, stigahús, baðherbergi,
eldhús. bílskúra), verksmiðjuhús-
um, skrifstofuhúsnæði og víðar.
Hringið eða skrifið og biðjið um nánari upplýsingar.
EFNAVERKSMIÐJAN SJÖFN
Akureyri. Glerárgata 28 . Sími (96)21400
Reykjavík . Hringbraut 119 . Sími (91)17045
en í bígerð er að fjölga þeim
nokkuð. Þá mun einnig verða varið
fjármunum til að kaupa fluglínu-
tæki og að lokum höfum við lagt
út í mikinn kostnað vegna afmælis
félagsins á þessu ári. Sem dæmi
um það höfum við látið útbúa
litskuggamyndir úr starfi félags-
ins sem sendar munu verða í alla
barna- og unglingaskóla landsins.
Með því vonumst við til að ná til
um 58000 ungmenna og kynna
þeim starf okkar,“ sagði Gunnar
ennfremur.
„Eins og áður sagði er sala
miðanna þegar hafin, sendir hafa
verið miðar víðs vegar um landið.
Við munum ekki senda neina miða
heim með gíróseðlum, en munum
aftur á móti senda fólki miða heim
HAPPDRÆTTI 1978
ef þess er óskað. Verð hvers miða
er 500 krónur, en við gefum út alls
45000 miða. Dregið verður 17. júní
n.k. og nauðsynlegt er að vinninga
sé vitjað innan árs,“ sagði Gunnar
að lokum.
Starfandi er nefnd sem sér
algerlega um framkvæmd happ-
drættisins, en í henni eru þeir
Hörður Friðbertsson, sem er
formaður, Guðjón Jónatansson,
Böðvar Ásgeirsson, Einar Sigur-
jónsson, Ólafur Jónsson og Eggert
Vigfússon.
í Koupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI