Morgunblaðið - 14.04.1978, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978
17
Geir Hallgrímsson forsætisráðherra um kosningalög:
Ekki samstaða um gild-
istöku breytinga núna
En hugsanlega eftir næstu Alþingiskosningar
Geir Hallgrímsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær, að ekki væri samstaða um framgang frumvarpa um
breytingu á kosningalögum, með gildistöku nú þegar. Hins vegar væri til athugunar, hvort unnt væri að ná slíkri
samstöðu með gildistöku eftir komandi Alþingiskosningar. Þá lýsti hann yfir þeirri skoðun sinni að nauðsynlegt
væri að endurskipuleggja stjórnarskrárnefnd, til að flýta því að hún skilaði ætlunarverki sínu. Hann sagði
ennfremur að Alþýðubandalagið hefði sýnt algjört áhugaleysi um hugsanlegar breytingar á kosningalöggjöf til
jöfnunar á vægi atkvæða.
Fjörugar umræður urðu utan
dagskrár í efri deild Alþingis í gær
um hugsanlegar breytingar á
kosningalögum til jafna vægi
atkvæða. Ragnar Arnalds, for-
maður þingfl. Alþýðubandalags-
ins, minnti á, að flokkurinn hefði
flutt í byrjun þings tillögu um
viðræðunefnd þingflokka, til að
kanna möguleika á samstöðu um
nauðsynlegar breytingar á kosn-
ingalögum. Sú tillaga hefði ekki
fengið afgreiðslu í þingnefnd.
Forsætisráðherra hefði heitið því
að beita sér fyrir viðræðum
þingflokka um sama efni. Efndir
hefðu ekki verið umtalsverðar.
Frumvörp, sem nú hefðu komið
fram, til breytinga á kosninga-
skipan, væru gölluð. Frv. um að
afnema hlutfallsákvæði við út-
reikning uppbótarsæta rétti e.t.v.
hlut Reykjavíkur en ekki Reykja-
ness, þar sem vægi atkvæða væri
minnst. Það gæti jafnvel skert
hlut þess kjördæmis við hugsanleg
kosningaúrslit, t.d. hliðstæð þeim
sem urðu 1971. Loks las Ragnar
samþykkt þingflokks Alþýðu-
bandalagsins, frá 12. apríl sl., þar
sem lagt er til að stjórnmálafl. á
Alþingi skipi nefnd í þinglok til að
fjalla um hugsanlegar breytingar
á kosningalöggjöfinni, svo „að
annað kjörtímabil líði ekki án þess
áð tekið sé á þessum málum á
raunhæfan hátt, þar sem sýnt
virðist að stjórnarskrárnefnd er
ekki líkleg til að hafa þar forystu
um“.
Geir Hallgrímsson forsætisráð-
herra sagði m.a., að þingfl. Sjálf-
stæðisfl. hefði þegar í þingbyrjun
skipað þá Gunnar Thoroddsen og
Ingólf Jónsson í viðræðunefnd um
kosningalög. Hann hefði sjálfur
kunngjört Ragnari Arnalds þá
skipan munnlega. Formenn þing-
flokka hefðu og rætt þessi mál á
sl. hausti. Alþýðubandalagið hefði
í fáu sýnt áhuga á þessum
viðræðum. Tillaga þeirra hafi legið
í nefnd mánuðum saman án þess
að þeir ýttu á eftir afgreiðslu
hennar. Forsætisráðherra sagði að
þrennt kæmi einkum til greina
varðandi breytingar, án þess að
snerta stjórnarskrá: 1) úthlutun
uppbótarþingsæta, eins og lagt
væri til í frv. Ellert B. Schram o.fl.
2) að tiltekið heildarkjörfylgi
skapi rétt til uppbótarþingsætis,
eins og lagt væri til í frv. Jóns
Árm. Héðinssonar og í 3) að
breyta vægi útstrikana eða til-
færslna á kjörseðli.
Forsætisráðherra sagði að ekki
samstöðu um að framkomin frum-
vörp um breytingar á kosningalög-
um næðu fram að ganga með
gildistöku nú þegar. Hins vegar
væri athugunarefni, hvort ná
mætti slíkri samstöðu með gildis-
töku eftir komandi alþingiskosn-
ingar. Sjálfsagt væri að þingflokk-
ar héldu áfram viðræðum um
hugsanlega samstöðu, í þessu efni,
eins og Ragnar Arnaíds hefði lagt
til. Loks þyrfti að endurskipu-
leggja núverandi stjórnarskrár-
nefnd, til að ýta eftir því að hún
skilaði ætlunarverki sínu. Ríkis-
stjórnin myndi hafa samráð við
þingflokka sína í ljósi upplýsinga,
sem komið hefðu fram og myndi
hann bíða með endanlega niður-
stöðu, unz það samráð hefði átt sér
stað.
Jón Árm. Héðinsson, Oddur
Ólafsson og Jón Helgason tóku og
til máls við þessa umræðu. Sá
síðast nefndi, sem sæti á í
allsherjarnefnd Sameinaðs þings,
staðfesti, að Alþýðubandalagið
hefði í engu ýtt á eftir afgreiðslu
tillögu þeirrar, er Ragnar Arnalds
hefði minnst á í frumræðu sinni.
Auto ’78 öpnar í dag:
Sigfús Sigfússon, forstjóri P. Stefánsson, ásamt starfsmönnum, en þeir voru að Gísli Guðmundsson og aðrir starfsmenn Bifreiða- og landbúnaðarvéla unnu við að
ljúka við að setja upp sýningarbásinn. setja upp skreytingar sínar í gærdag.
„AUtaf mikil bílasöluár þeg-
ar sýningar eru haldnar”
UNNIÐ var af fullum krafti við
undirbúning bílasýningarinnar
Auto ‘78 í gær er Morgunblaðs1
menn litu inn í sýningarhöllina
við Bíldshöfða. Sýnendur voru
önnum kafnir við að útbúa
sýningarbása sína, setja upp
skreytingar, myndir og merki og
koma bílunum fyrir. Raunar var
ólíklegt að þarna væri í ráði að
opna sýningu í dag, þar sem allt
var á fleygiferð og á rúi og stúi,
en kl. 19 verður hún opnuð
almenningi.
Bæði iðnaðarmenn og starfs-
menn bílaumboðanna sem þarna
voru að verki bjuggust við að
eiga eftir að vinna fram á nótt,
en öllu á að vera lokið um
hádegið í dag, föstudag.
í sýningarbás P. Stefánssonar
h.f. voru starfsmenn langt
komnir við undirbúning og sagði
Sigfús Sigfússon forstjóri að
eiginlega væri ekkert eftir nema
að ryksuga.
— Það er tvímælalaust margt
sem svona sýning hefur uppá að
bjóða, sagði Sigfús, hér geta
gestir séð alla bíla á einum stað
og borið þá saman að vild, verð,
útlit, kosti og galla og segja má
að þetta skapi nánara samband
á milli viðskiptavinanna og
bílaumboðanna. Nú eru liðin 5
ár frá síðustu sýningu og er í
ráði að sýna framvegis á tveggja
ára fresti.
Um sýningarstaðinn sagði
Sigfús að hann væri hinn
ákjósanlegasti, húsið væri
teiknað sem sýningarhús og
væri að öllu leyti mjög hentugt
sem slíkt. Hann sagði að hjá P.
Stefánsson myndu um 20 manns
í allt starfa á sýningunni.
í næsta bás við hliðina voru
starfsmenn Bifreiða- og land-
búnaðarvéla að ganga frá og
voru bílarnir komnir inn en
verið var að hengja upp skreyt-
ingar.
— Menn hafa lagt gífurlega
vinnu í þessa sýningu, sagði
Gísli Guðmundsson, og finnst
mér eiginlega réttara að hafa
svona sýningar oftar og hafa þá
heldur minna umstang í kring-
um þær. Við verðum með fjóra
bíla í okkar bás Lada Sport og
Lada 1600 og 1500 station og
sérstaka gerð af Moskvitz.
Verður áberandi söluaukning
við sýningu sem þessa?
— Það eru alltaf mikil bíla-
söluár þau ár sem sýningar hafa
verið haldnar, en hvort það er
eingöngu þeim að þakka skal ég
ekki segja um eða hvort góðæri
hefur sitt að segja einnig, en ég
minnist þess að mikil sala hefur
jafnan verið þegar bílasýning er
betta er grind úr Alfa Romeo Alfetta 2000, en á sýningunni verður
hún sett í gang þannig að gestir geta séð hvernig vél og gírkassi
starfa.
haldin, en þær hafa ekki verið
nema tvisvar áður.
Sýningarsvæðið er tæplega
9000 fermetrar á tveimur hæð-
um og hinum megin við götuna
að Tangarhöfða 8—12 verða
sýndir vörubílar, jeppar, hjól-
hýsi o.fl. en sýnendur eru alls
um 50. Á efri hæð sýningarhall-
arinnar var einnig verið að
ganga frá og voru bílarnir hífðir
beint inná hæðina og teknir inn
af palli fyrir utan.
Jöfur h.f. sem hefur umboð
fyrir Skoda og Alfa Romeo
verður með 8 bíla alls og sagði
Svavar Egilsson framkvæmda-
stjóri Jöfurs að ráðgert væri að
hafa 5 af gerðinni Alfa Romeo
og 3 Skoda. — Ég geri ráð fyrir
að sýningin kosti okkur um það
bil 11—12 milljónir króna, sagði
Svavar, og þá á ég við leiguna
á sýningarbásnum og kostnað-
inn við að skreyta hann og
útbúa, en þá tel ég ekki með
vinnu starfsmanna umboðsins,
heldur aðeins það sem er beinn
útlagður kostnaður.