Morgunblaðið - 14.04.1978, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978
— Farið að síga
Framhald á bls. 18
vil ekkert ræða þetta á þessu
stitíi.
Við reynum að þoka málinu
áleiðis, en ég nefni það bara sem
eitt dæmi, að það er oft erfitt að
finna hentugan fundartíma fyr-
ir nefnd, sem fjórir alþingis-
menn eiga sæti í.“
Hannibal sagði, að stjórnar-
skrárnefndin hefði gefið ein-
staklingum og samtökum rúma
fresti til að koma fram ábend-
ingum sínum. „En það kom nú
frekar lítið út úr því og mér
fannst sú útkoma í nokkru
ósamræmi við þann mikla
áhuga, sem margir virtust hafa
á stjórnarskrármálinu."
Spurningu Mbl. um það,
hverra breytingatillagna mætti
vænta frá nefndinni, svaraði
Hannibal á þann veg, að hann
vildi ekkert um slíkt tala nú.
— ASÍ fundur
Framhald af bls. 32.
búningi aðgerða, með það markmið
fyrir augum að fá samningana í gildi
eða sambærileg kjör.“
Á fundinum urðu miklar umræður
um samningamálin og kom fram í
máli Jóns Helgasonar, formanns
Verkalýðsfélagsins Einingar á Akur-
eyri, að atvinnurekendur nyrðra
heföu þau rök, að þeir gætu samiö
og vildu semja, en þeim hefði verið
tilkynnt að gerðu þeir þaö, yrði lokað
fyrir öll bankaviðskipti þeirra. Akur-
eyringarnir settu á sínum síma
ákveðinn fyrirvara fyrir þátttöku í
útflutningsbanninu — svipaðan og
Suðurnesjamenn. Jón Helgason
skýrði þennan fyrirvara og sagði að
þar sem Eining hefði verið meö fund
til að ákveða banniö strax í upphafi,
hafi menn viljaö hafa fyrirvarann á.
Hann taldi hins vegar samstöðuna nú
það góöa að fyrirvarinn væri ekki
lengur fyrir hendi. Eftir árangurslaus-
ar viöræöur Einingar við vinnuveit-
endur nyrðra, sagði Jón að ýmsir
vinnuveitendur heföu haft við sig
samband og sagt að fyrirtækin gætu
vel greitt fulla veröbótavísitölu, þar
sem hún væri aöeins lítið brot af því
sem vaxtahækkunin hefði á þá lagt.
Hins vegar hefði þeim veriö tilkynnt
að lokað yrði fyrir bankaviöskiptin,
semdu þeir.
Menn lýstu því aö mikill áhugi væri
á útflutningsbanninu i sinni heima-
byggð — alls staöar nema á
Suðurnesjum. Þá var það óráðin
gáta, hvaö gerast myndi á Vestfjörö-
um, enda enginn fulltrúi þess lands-
hluta á fundinum.
Strax að þessum fundi ASÍ loknum
var haldinn samráösfundur í Verka-
mannasambandi íslands og síöan var
ráðgerður framkvæmdastjórnarfund-
ur í Verkamannasambandinu í gær-
kveldi.
Á ASÍ-fundinum kom einnig fram
að Verkamannasambandið eitt
myndi ekki bera kostnað af út-
flutningsbanninu, ef hann yrði ein-
hver, heldur myndu önnur sambönd
innan ASÍ tilbúin til að styrkja
Verkamannasambandiö eða það fólk
þess, sem yröi fyrir verulega skertum
tekjum af aðgerðinni.
Vegna þeirra ummæla, sem Jón
Helgason viðhafði á fundi ASÍ um
vinnuveitendur nyrðra og bankavið-
skipti þeirra, spurðist Morgunblaðið
fyrir um þetta hjá Baröa Friðrikssyni,
framkvæmdastjóra Vinnuveitenda-
sambandsins, en hann tók þátt í
viöræðunum nyrðra, hvort slíkt hefði
komið fram þar. Baröi kvað ekki hafa
verið minnzt á nokkur slík atriði í
samningaviðræðunum. Taldi hann
þetta hina mestu firru.
— Hlítum
Framhald af hls. 1.
tx'ini á horóar aó vega og meta
rétt óháóra samtaka til aó reka
launaharáttu sína á móti þoim
þjóðfélagsvanda. sem af slíkri
haráttu hlýzt. p]nda þót vió
séum í grundvallaratrióum á
móti því aó kjarasamningar
séu útkljáóir með geróardómi
viðurkennum við þessa
ákviirðun ríkisstjórnarinnar
og munum fara eftir henni."
sagði Tor Ilalvorsen formaður
norska alþýðusamhandsins
ennfremur.
Akvörðun stjórnarinnar uni
að vísa deilu vinnuveitenda og
alþýðusambandsins til gerðar-
dónis hefur að vonum vakið
mikla athygli og umræður í
Noregi, en þetta er í fyrsta sinn
í 12 ár að aðalkjarasamningar
eru gerðir með þeim hætti.
Yfirleitt eru menn á einu máli
um að eftir að upp úr samkomu-
lagsumleitunum slitnaði á
miðvikudagsmorgun hafi ekki
verið um annað að ræða en að
fara þessa leið, og bendir allt til
þess að stjórnarandstöðu-
flokkarnir, aðrir en Sósíalíski
vinstriflokkurinn, muni ekki
greiða atkvæði gegn stjórnar-
frumvarpinu um gerðafdóm,
sem lagt verður fyrir Stórþing-
ið í næstu viku.
Lars Korvald, fyrrum for-
sætisráðherra og formaður
Hægri flokksins, og Káre
Willoch, leiðtogi Kristilega
þjóðarflokksins, hafa báðir lýst
því yfir að ákvörðun Nordlis
hafi verið rétt, fyrst ekki tókst
að útkljá deiluna með eðlilegum
hætti, en telja hins vegar að
stjórnin hefði getað afstýrt því
að samningaviðræðurnar sigldu
í strand með því að hefja fyrr
afskipti af málinu.
Aftenposten, sem styður
borgaraflokkana, segir m.a. um
málið í forystugrein: „Þegar
ríkisstjórnin sá að samningar
tækjust ekki átti hún einskis
annars úrkosti og forsætisráð-
herrann gerði því grein fyrir því
að deilunni yrði vísað til gerðar-
dóms. Með tilliti til hins alvar-
lega efnahagsástands í Noregi
hefði það líka verið út í hött að
láta 230 þúsund launþega fara í
verkfall, sem enginn hefði haft
ávinning af.“ Segist blaðið síðan
styðja þessa ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar og telur að sama
gildi um þorra landsmanna.
Síðan segir að engin ástæða sé
að leita að syndaselum þótt
svona hafi farið, en þó sé ástæða
til að vekja athygli á þeirri
tilhneigingu ríkisstjórnarinnar
að gera sem minnst úr vanda-
málunum og að það hafi torveld-
að samningaviðræður að ekki
hafi legið Ijóst fyrir hvaða
efnahagsráðstafanir stjórnin
hefði í hyggju. Aftenposten
segir í lok forystugreinarinnar,
að þótt gerðardómur sé ekki góð
lausn þá hafi ríkisstjórnin ekki
átt annarra kosta völ, og að
ákvörðun hennar hafi verið
tekin með tilliti til þjóðarhags-
muna. Það segi sig sjálft að
þegar methár framleiðslukostn-
aður og gífurlegar erlendar
skuldir séu staðreynd þá sé ekki
hægt að steypa sér út í allsherj-
arverkfall ef ætlunin sé að ná
því marki að halda fullri
atvinnu. auka samkeppnismögu-
leika á erlendum markaði og
stefna að stöðugleika í efna-
hagslífinu.
Arbeiderbladet, málgagn
Verkamannaflokksins, segir í
forystugrein m.a., að með tilliti
til baráttunnar fyrir því að
halda fullri atvinnu i landinu sé
það nauðsynlegt að hafa tök á
efnahagsmálum og það hefði
verið ábyrgðarleysi að kasta
landinu út í stórverkföll. Ríkis-
stjórnin hafi sýnt ábyrgð og
viljafestu með því að vísa
kjaradeilunni til gerðardóms
eftir að samningaviðræður rofn-
uðu.
— Mega nú taka
Framhald af bls. 2
enda sé andvirði nýrra vara í heild
ekki meir en 32.000 kr.
Að því er varðar innflutning
farmanna og flugliða, sem hafa
verið 20 daga eða skemur í ferð,
hækkar hámarksandvirði toll-
frjáls varnings úr 3.000 kr. í 7.000
kr. við hverja komu til landsins. Sé
lengd ferðar á bilinu frá 21 til 40
dagar skal farmönnum og flug-
liðum heimilt að flytja með sér
tollfrjálsan varning að andvirði
21.000 kr. í stað 9.000 kr. áður en
fyrir 32.000 kr. í stað 14.000 kr.
áður, sé ferð lengri en 40 dagar.
Engar breytingar eru frá eldri
reglugerð um það magn áfengis og
tóbaks, sem áhafnir mega taka
með sér til landsins, en ferða-
mönnum er nú heimilt að hafa
með sér 1 lítra af sterku áfengi í
stað 3A lítra áður.“
Oozz
Uoknin
n<2
Almennir jazztónleikar
B0DEGA BAN0
18 manna jazzhljómsveit frá Noregi í
Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut í
kvöld kl. 20.00.
Vorfájjnaður
í Skiphóli
r*
Hinir frábæru
Halli og Laddi
skemmta.
Modelsamtökin
sýna
vortízkuna.
■
Hljómsveitin Dominik
leikur fyrir dansi
til kl. 2.
Matur framreiddur
frá kl. 7.
Borðapantanir
í síma 52502.
F.U.F.
Strandgötu 1 Hafnarfiröi
sími 52502.
NORSKIR
TÓNLEIKAR
Stúdentakórarnir í Þrándheimi (TSS og TKS)
halda tónleika í dag föstudag í sal Menntaskólans
í Hamrahlíö kl. 19.
Miðar viö innganginn.
r0pið í kvöld Opiö í kvöld Opið í kvöld1
HÓT4L /A<iA
SÚLNASALUR
Hljómsveit
Ragnars
Bjarnasonar
og söngkonan
Þuríður
Siguröardóttir.
Dansað til kl. 1.
Opiö í kvöld Opiö í kvöld Opiö i kvöld
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
HOTEL
LOFTLEIÐIR
Sími 22322
TÍsku-
sýning
Föstudag kl. 12.30—13.30.
Sýningin, sem verður í Blómasal Hótels Loftleiða er
haldin á vegum Rammagerðarinnar, íslensks Heimilisiðn-
aðar og Hótels Loftleiða
Sýndir verða sérstakir skartgripir og nýjustu gerðir fatn-
aðar, sem unnin er úr islenskum ullar- og skinnvörum.
Módelsamtökin sýna.
Hinir vinsælu réttir kalda borðsins á boðstólum.
Verið velkomin.