Alþýðublaðið - 05.11.1958, Blaðsíða 3
AlþýðublaðiS
3
Miðvikudagur 5. nóv. 1958
Alþýímblaöið
Útgefandi:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Auglýsingast j óri:
Ritstjórnarsímar:
Auglýsingasími:
Afgreiðslusími:
Aðsetur:
Alþýðuílokkurinn
H e 1 g i Sæmundsson.
Sigvaldi Hjaimarsson
Emilía Samúelsdóttii.
14901 og 14902.
1 4 9 0 6
1 4 9 0 0
Aiþýðuhúsið
Prentsmiðja Alþýðublaðsins Hverfisgótu 8—10
AKSEL LARSEN hefflr verið leystur frá formennsku í
danska kommúnistaflokknum vegna „endurskoðúnarstefn-
unnar svokölluðu. Og hér er hægt að gera langa sögu
stutta: Aksel Larsen hefur sannfærzt um, að kommúnism-
inn í Rússlandi sé harla umdeilanlegur sósíalismi. Hann
mat sannfæringu sína meira en flokksvöldin og metorðin,
gagnrýndi það, sem hann hafði áður vegsamað, og vildi að
flokkur hans áttaði sig á staðreyndunum og breytti sam-
kvæmt dómí þeirra. t>á var Mbskvuvaldinu nóg boðið. Sér-
legur fulltrúi Rússa mætti á þingi■dansfcra kommúnista til
£tð stjórna uppgjörinu við Aksel Larsen. .Nú er-hann svo ein-
íari í dönskum stjórnmálum. ,
Tilefni þessa eru atburðirnir aijslan járntjaids að und- .
anför.nu. Viðb.urfiirnir. í Ungverj aláridi ”fyrir. tveimur árum .
höfðu þær afleiðingar, að mikii mannfækkun sagði tij sín í
danska kommúnistaflokknum — meðlimatalan lækkaði úr .
■11000 í 7000. Og Aksel Larsen var nóg boðnð. ‘Hann hætti
einn góðan veðurdag að sáetta sig við það athsefi Rússa,
sem lamaði fiökk hans. Þess vegna var hann lagður til
hliðar að rússnesku valdboði um; helgina.
Aksel Larsen hefur naumast verið þetta sársaukalaust.
Hann á langan fer.il að baki í danska kommúnistaflokkn-
um, hefur fvlgt honum og stjórnað í blíðu og stríðu, trúað
á kommúnismann og sætt sig við rússnesku vonbrigðin af
mikilii þolinmæði. En nú er því sem sagt lokið. Aksel
Larsen gat ekki meira.
En í tilefni þessa verður manni hugsað til íslenzku
kommúnistanna. Þeir virðast alveg lausir við þau óþæg-
indi sálarlífsins, sem Aksel Larsen fékk ekki afborið.
Rússar þurfa ekki að senda sérlegan fulltrúa sinn á n-æsta
flokksþing þeirra. íslenzku kommúnistaforingjarnir fara
ár hvert austur til Moskvu og láta þar segja sér fyrir verk-
um. í hópi þeirra er ekki kunnugt um neinn Aksel Larsen.
Og þegar enn harðnar á dalnum af völdum rússneska veð-
urfarsins, er Brynjólfur Bjarnason kosinn formaður Sós-
ialistafélags Reykjavíkur. Hann er gunnreifasti andmæl-
andi „endurskoðunarstsfnunnar“ hérlendis og garðist til
þess að verja chæfuvsrkin í Ungverjalandi af miklum
dugnaði og ríkum rétttrúnaði.
En hvað um ,.lýðræðishatjurnar“ í Alþýðubandalaginu,
mennina, sem aldrei höfðu geng’ð í vam’a kommúnista-
flokkinn og ekki einu sinn komizt á skrá í Sósíalistaflokkn-
um, en voru kosnir á þing fyr'r A’þýðubandalagið og
þóttust ætla að stemrra stigu við Moskvukommúnisman-
um á íslandi? Hvernig líður Finnbogi Rúti Va’dimarssyni,
Hannibai Valdmarssyni o.g Alfreð Gíslasyni? Þeirri spurn-
ingu er erfitt að svara. Þeir láta ekki í sér heyra í tilefni
þeirra atburða, sem valda hruni kommúnismans á Vest-
urlöndum um þessar mundir. Eru þeir hr.x ddir — og þá við
hvað? Eða eru Þeir kannski orðnir harðari Moskvukomm-
únistaf en Aksel Larsen?
Þessa er meðal annars spurt vegna þeirra, sem kusu
Alþýðubandalagið í síðustu kosningum án þess að vera
komm.únistar. Þeir eiga kröfurétt á aö vita afstöðu þess-
ara manna. Þetta þarf ekki að ræða við Þjóðviljann eða
Brynjólf Bjárnason og sálufélaga hans frá liðnum árum.
Þeir aðilar eru svo sálarhraustir í hlýðninni við kommún-
ismann, að stingurinn, sem stakk Aksel Larsen, kemur
ekki við þá. En Finnbogi Rútúr, Hannibal og Alfreð eiga
ekki að hafa slíka afsökun. Hvers vegna heyrist ekki í
þeim stuna né hósti? Hafa þeir ánetjazt því, sem Aksel
Larsen hikaði ekki við að hafna að boði samvizku sinnar?
Eða er AJþýðubandalagið með þessa menn innanborðs
kannski orðið eitt Baltic Trading Co?
■■■■■■■■■■
■■■■•■■■■
Grettisgötu
Lindargötu.
Talið við afgreiðsluna. — Sírni 14-900.
Alþýðublaðið
Hinn frægi, enski kiarnorkufræðingur sir John Cockcroft var nýlega sæmdur Niels Bohrorð-
unni, sem Verkfræðingasambandið danska veitir árlega vísindamanni sem framúr skarar á
sviði kjarnorkuvísinda. A inyndinni sjást þeir vinirnir og samverkamennirnir sir John og
Nieis Bohr.
Fyrir friði og menningu
UNESCO 10 ára, flytur í nýjar höfuðstöðvar í París.
MÁNUDAGINN 3. nóv. var
hið nýja aðsetur UNESCO vígt
í París. Kostnaður þessarar
glæsilegu Y-mynduðu bygging
ar er áætlaður 70 milljón krón-
ur. Formaður undirbúningsráð-
stefnunnar, sem haldin var í
London í nóv. 1945, var pró-
fessor Alf Sommerfelt, formað-
ur norsku sendinefndarinnar.
Ári seinna var Unesco orðið
að veruleika. Nú eru rúm tíu
ár liðin. Hér fara á eftir svör
Alf Sommerfelt viðspurningum
norskra blaðamanna varðandi
þessi samtök.
— Hver var ástæðan til stofn
unar þessara alþjóðasamtaka 1
þágu vísinda, mennta og menn-
ingar?
— Á meðan á styrjöldinni
stóð vildu Þjóðverjar útmá all-
ar þjóðlegar menntir og menn-
ingu og skapa algjörlega ný
lífsviðhorf meðal hinna sigr-
uðu þjóða. Eftir að stríðinu
lauk, kom það í ljós, að bráð
nauðsyn var á að byggja aftur
upp rústirnar jafnt andlega
sem veraldlega. Bráðra úrbóta
var þörf á sviði vísinda og
mennta. í Póllandi var t. d. á-
ætlað að 50.000 kennara vant-
að í stað þeirra, sem verið
! höfðu.
Hugmyndin var, að sérfræð-
ingar stjórnuðu úrbótunum og
ynnu að auknum skilningi
milii þjóðanna.
.— Hefur þróunin gengið í
rétta átt?
— Þessi samtök áttu sem
mest að vera óháð pólitík.
Enda þóti fulltrúar þjóðanna
í UNESCO væru valdir vegna
persónulegrar hæfni, en ekki
sem fulltrúar stjómar heima-
lands síns, kom í ljós, að óger-
legt var að útiloka pólitík.
Kalda stríðið var hér einnig
mikil orsök.
— Þess vegna hefur UNESCO
ekki getað aðstoðað hinar sigr-
uðu þjóðir sem skyldi.
— 81 þjóð er nú aðili að
UNESCO, það er í sjálfu sér
gleðileg þróun.
— En er ekki, þrátt fyrir alla
erfiðleika, ástæða til að gleðj-
ast yfir starfi UNESCO?
—- Jú, UNESCO hefur látið
margt gott af sér leiða. Það er
i rauninni ómögulegt að hugsa
sér hvemig ástandið í heimin-
um væri nú hefði Unesco ekki
notið við. Enda þótt menning-
arlöndin þurfi ef til vill nokkru
að fórna, gefi meir en þau
þiggja, er slíkt nauðsyn, þar eð
væri neyð þeirra þjóða, sem
skemmra eru á veg komnar
látin afskiptalaus ylli það enn
meiri sundrung og styrjaldar-
hættu en nú ríkir í heiminum.
Er nokkuð sérstakt, sem þér
getið bent á, sem UNESCO hef-
ur komið úl leiðar?
Það liggur í hlutarins eðli,
að margt hefur mistekizt, en
UNESCO hefur þó unnið
að aukinni uppfræðslu almenn
ings, aðstoðað flóttamenn og
hlúð að vísindalegum framför-
um t.d. í Asíu og Suður-Ame-
ríku. 'Samvinnan milli menn-
ingarþjóðanna og hinna, sem
lægra standa hefur hvað mest
gildi
Eitt af viðfangsefnum Unesco
er 10 ára áætlun um menning-
arleg samskipti austurs og
vesturs. — 'Slík samskipti eru
líklegust til að stuðla að ör-
uggum friði. Til slíkra fram-
kvæmda þarf mikið fé. í*ær 10
—12 milljónir,' sem Unesco
hefur árlega til starfsemi sinn-
ar hrökkva skammt. Ákvörðun
Sameinuðu þjóðanna að veita
hinum óþroskaðri þjóðum 100
millj. dollara styrk árlega er
góð byrjun, en aðeins byrjun.
— í stuttu máli sagt: Hvert
er markmið UNIESCO i dag?
— Friður og sátt byggður á
gagnkvæmri vináttu og skiln-
ingi þjóða á millum.
Eldflaug lil fungls-
WASHINGTON, mánudag,
NTB. Bandaríkjmenn munu
innan skamjns gera tilraunir
til að skjóta eldflaug til
tunglsins. Varaformaður geim
könnunarne'fndar Bandaríkj-
anna, Hugh Dryden upplýsti
þetta á blaðamannafundi í
Washington í dag. Hann kvað
líkurnar á því að eldflaugin
kæmist á braut umhverfis
tunglið einn á móti tuttugu
og fimm. Búist er við, að til-
raunin verði gerð snemma
morguns einhvern dag í næstu
viku.
i Laugarvatnsskóli þrjátíu ára
>
LAUGARVATNS- ^
SKÓLI er 30 ára ^
um þessar mundir
og var afmælisins ý
minnzt í fyrradag S1
með hátíðlegri at- S
höfn á skólasetrinu. ^
Meðal gesta voru V
Jónas Jónsson fyrr-
verandi ráftiherra,
en skólinn tók til
starfa me’ftan hann
var menntamálaráð-
herra. Vandað af-
m'alisrit kemur út
innan skamms. —
Myndin er af Laug-
arvatnsskóla. Hún
var tekin fyrir brun
ann.