Morgunblaðið - 14.04.1978, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978
Bjössi Lár.
þjálfar nyrðra
EINN litríkasti leikmaður íslenzku knattspyrnunnar
síðastliðin 15 ár heíur ákveðið að draga sig í hlé frá
toppknattspyrnunni í sumar. Maðurinn, sem hér um ræðir,
er Björn Lárusson, sem á síðasta ári lék sinn 300. leik með
meistaraflokki Akraness. Björn hefur ákveðið að gerast
þjálfari hjá Ungmennafélagi
tilkynnt félagaskipti þar að
Björn Lárusson lék til að byrja
með sem íramlínumaður og skor
Björn Lárusson hefur betur í
skallaeinvígi við Árna Sveinsson
í pressuleik fyrir tveimur árum,
Ágúst Guðmundsson og Ástráður
Gunnarsson fylgjast með, en þeir
munu báðir hafa lagt skóna á
hilluna.
Mývetninga í sumar og hefur
lútandi.
aði þá mikið af mörkum. Síðari
árin hefur Björn lcikið sem
bakvörður og staðið sig frábær-
lega í þeirri stöðu, ekki aðeins
með ÍA hcldur einnig með ís-
lenzka landsliðinu. Björn er 33
ára gamall og hefur þjónað
mcistaraflokki Skagamanna
dyggilega síðan 1962. Björn hcfur
fjórum sinnum orðið íslands-
meistari í knattspyrnu með
fþróttabandalagi Akraness.
-------------- - áij
Unglingalands-
liösmaður til
liðs við Austra
UNGMENNAFÉLAGIÐ Austri á
Eskifirði hefur fengið góðan
liðsauka þar sem er Sigurður
Gunnarsson, unglingalandsliðs-
maður úr Víkingi. Lék Sigurður
fyrir tveimur árum með ungl-
ingalandsliðinu i knattspurnu við
góðan orðstír og þá einnig nokkra
leiki með meistaraflokki Víkings.
Er ekki að efa að hann verður
Eskifjarðarliðinu mikill styrkur,
en Sigurður er einnig unglinga-
landsliðsmaður í handknattleik
og er meðal sterkustu leikmanna
liðsins, sem tekur þátt í Norður-
landamótinu í Noregi þessa
dagana.
Juno
Já, þaö er ótrúlegt en samt er þaö satt, aö í JUNO
bakarofni er hægt aö steikja kjöt og/eöa fisk um leiö
og bakaö er. Sem sagt, þér getiö bakað meö
eftirmiödagskaffinu um leiö og þér steikiö „sunnudags
steikina”.
Nú, eða þá aö baka fjórar mismunandi kökutegundir
samtímis, til dæmis smákökur og/eða formkökur.
Meö því aö nota JUNO ofn spariö þér rafmagn og tíma.
JUNO tæki. Vestur-Þýzk gæöavara.
Leitiö nánari upplýsinga hjá umboðsmönnum JUNO
verksmiðjanna á íslandi.
JON J0HANNESS0N 0 C0. S.F.
Hafnarhúsinu. Símar 26988 og 1 5821.
Úr leik Þróttar og Stúdenta fyrr í vetur. Gunnar
Árnason gegn tveimur stúdentum.
IS og Þróttur
leika til úrslita
í blakbikarnum
Á MORGUN leika ÍS og Þróttur til úrslita í bikarkeppni í blaki!
Þetta er í 4. sinn sem leikið er til úrslita í bikarkeppni BLÍ, ÍS
vann 1975 og 1976 en í fyrra vann Þróttur Laugdæli í úrslitum.
Leikir ÍS og Þróttar í vetur hafa verið mjög spcnnandi og oft
hefur verið mjótt á mununum, en ÍS stendur betur að vígi ef á
heildina er litið.
Bæði liðin munu tefla fram sínum bestu mönnum í þessum leik
og hafa Þróttarar örugglega í hyggju að verja bikarinn, en
róðurinn verður þeim þungur þar eð stúdentar hafa fullan hug
á að endurheimta bikarinn likt og íslandsmeistaratitilinn.
Þetta verður síðasti stórleikur vetrarins í blakinu og er
áhugafólk um blak þvi hvatt til að mæta og sjá spennandi leik.
Leikurinn hefst kl. 13.30 í íþróttahúsi Ilagaskólans.
Þs/kpe
Blakþing
um helgina
6. ÁRSÞING Blaksambands íslands verður haldið á Hótel Sögu
og hefst strax að ioknum úrslitaleiknum í bikarkeppninni og er
gert ráð fyrir að þingsetning verði um kl. 16.00 á laugardag. 90
fulltrúar frá 22 ungmenna- og héraðssamböndum og íþrótta-
bandalögum hafa rétt til setu á þinginu auk stjórnar- og
nefndarmanna BLÍ.
Aðalmál þingsins verður fyrirkomulag deildarkeppninnar og mun
stjórnin leggja áherslu á að kynna þingfulltrúum kosti og galla
fjögurra, fimm og sex liða fyrstu deildar svo og átta liða deildar
sem skipt yrði í tvennt eftir fyrri umferð.
I ljósi lítillar þátttöku fulltrúa víða utan af landi á fyrri þingum,
svo og vegna þess að á þessu þingi verður 5 ára afmælis BLI
sérstaklega. minnst hefur stjórn BLI ákveðið að þingið verði opið
öllu blakáhugafólki með málfrelsi undir liðnum „skýrsla stjórnar".
Núverandi formaður Blaksambandsins er Guðmundur Arnalds-
son.
' þs/kpe.
Stórsvigsmót
í Skálafelli
og Bláfjöllum
REYKJAVÍKURMÓT í stórsvigi
verður haldið í Skálafelli á morg-
un, laugardag, en fresta varð
stórsvigskeppninni um síðustu
helgi. Keppt verður í flokkum 13
ára og eldri. Á laugardag verður
hins vegar fyrri hluti stórsvigs-
móts Ármanns í Bláfjöllum og
hefst það klukkan 13. Verður
keppt í flokkum 12 ára og yngri í
Bláfjöllum á laugardag, en flokk-
um 13 ára og eldri á sunnudag.
3. deild karla í
handknattleik:
LOKA-
STAÐAN
EINS og skýrt hefur verið frá, lauk
keppni í deiidinni í síðustu viku. En
Eyjaliðið Þór haföi pá pegar nokkru
áður tryggt sér sigur og sæti í 2.
deild næsta ár. Breiöablik í Kópa-
vogi hreppti annað sætið og rétt til
pess að leika heima og heiman við
næstneðsta lið í 2. deild um sæti
Þar. Eyjaliðið Týr var í priöja sæti.
Þessi prjú lið skáru sig nokkuð úr
í deildinni að pessu sinni. En
Þórsarar reyndust sterkastir á
lokasprettinum.
Keppnin í þessari deild var æði
götótt á köflum og gekk hvergi nærri
eðlilega fyrir sig. Þurftu mörg liðanna
aö þola veruleg hlé sitt á hvaö og á
löngu tímabili seinni helmings keppn-
innar voru sum liðin með upp í
helmingi færri teiki leikna en önnur,
svo að ekki varð neitt jafnræði í
stigakeppninni. Liö Breiðabliks varö
verst úti að þessu leyti, fékk engan
leik í tvo mánuði samfleytt. Þá fór
margt úr skorðum í lokin, vegna
þess aö lið Dalvíkinga mætti ekki í
leiki og síöast ekki heldur lið
Keflvíkinga.
Ekki er ennþá Ijóst viö hvaöa lið
Blikarnir keppa um 2. deildar-sætiö.
Akureyrarliðið Þór og Breiöholtsliöið
Leiknir þurfa að keppa fyrst um
þriöja neösta sætiö í 2. deild, heima
og heiman. Leiknisliðið fer norður um
næstu helgi og Þórsliðið kemur suður
um þar næstu helgi. En þá sömu
helgi er ætlunin aö koma á fyrri leik
Blikanna og þess liðsins, sem hafnar
móti þeim. Þessi aukaleikja-keppni
er nú þegar oröin mjög langdregin.
Leiknir lék síöasta leik sinn í 2. deild
4. mars, en Þór hefur leikiö tvo leiki
síöan þá. Innbyrðis keppni þessara
liða verður svo ekki búin fyrr en 21.
eöa 22. apríl, en þá hefur lið
Breiðabliks beöið 3 vikur og ekki víst
að þeirri biö Ijúki þá. Þetta allt og
þróun deildakeppninnar í handknatt-
leik í heild í vetur 3ýnir fyrst og
fremst, aö endurskoða verður leikja-
skipulagið frá grunni og samræma
það.
Lokastaðan f 3. deild varð þessi,
Þór Eyjum 14 11 2 1 286,241 24
Breiðablik 14 10 1 3 288.257 21
Týr Eyjum 14 9 1 4 263.232 19
Afturelding 14 8 0 6 319,314 16
Akranes 14 6 0 8 288.290 12
Njarðvík 14 4 2 8 248.265 10
Keflavfk 14 3 0 11 247.314 6
Dalvík 14 2 0 12 221.258 4
Markatölur eru ósambærilegar, vegna 5
gefinna leikja.
— herb.
2. DEILD
KVENNA
KEPPNI í deildinni lauk um síðustu
helgi. Orslit varðandi fyrsta og
annað sætið urðu Ijós fyrir fjórum
vikum, en pá voru eftir tveir leikir,
sem skipulagið gerði ráð fyrir loks
núna. Lið Njarðvíkur gaf leik sinn
gegn liði Grindavíkur. En lið Þróttar
sigraði hins vegar lið ÍR með 17
mörkum gegn 11 í leik, sem fram fór
í Laugardalshöll.
Eins og áður hefur verið greint frá,
hlaut Breiöablik fyrsta sætiö ídeild-
inni og þar með sæti í 1. deild næsta
tímabil. íþróttabandalag Keflavíkur
hlaut annaö sætiö og með því rétt til
þess að leika tvo leiki við næstneösta
liðið í 1. deild um sæti þar. Þessi
félög skáru sig úr í keppninni, en
innbyrðis sigraði lið Breiðabliks
Keflavíkurliðið í báðum leikjum
liöanna með eins marks mun, og
kom upp sama markatala í báöum
leikjunum.
í upphafi voru 8 li í deildinni, en
lið Fylkis var dregið út úr keppni áöur
en það hafði leikið nokkurn leik og
undir lokin hætti lið KA og var
þurrkað út af töflunni.
Lokastaðan f deildinni er þessi.
Breiðablik
Keflavfk
Þróttur
Grindavík
ÍR
Njarðvfk
10 7 1 2 157,111 15
10 7 0 3 143. 97 14
10 4 2 4 119.116 10
10 4 1 5 105,129 9
10 3 1 6 100.124 7
10 2 1 7 69.116 5
— herb.