Morgunblaðið - 14.04.1978, Qupperneq 32
AUGLVsiNGASÍMINN ER:
22480
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JH«rgunI>labit»
FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1978
„Kominn til að
ræða málefni en
ekki vandamál,>
- sagði K. B. Andersen utanríkisráðherra
Dana í upphafi opinberrar heimsóknar
„ÉG hefi hlakkaö mjög til fararinnar
og er ákaflega ánægður með að
vera kominn hingaö. Tengsl ís-
lendinga og Dana standa á gömlum
merg og við Eínar Ágústsson höfum
margt að tala um, eins og til dæmis
samvinnu á sviði utanríkismála og
menningarmála," sagði K.B. Ander-
sen, utanríkisráðherra Dana, við
komuna til Keflavíkur um þrjúleytið
í gærdag. „Samvinna landanna er
náin, og enda Þótt oft gefist
tækifæri til að skiptast á skoðunum
er petta kærkomið tækifæri til að
ræða vandamálin í næði, — nei
annars, ekki vandamálín, heldur
málefnin, pví að paö er ekki um
nein vandamál að ræða,“ sagði K.B.
um leið og hann bretti upp frakka-
kragann í kuldagjólunni á flugvellin-
um.
Einar Ágústsson utanríkisráðherra,
sem ásamt fylgdarliði sínu var
kominn til að taka á móti hinum
danska starfsbróður sínum, frú
Grethe og öðru föruneyti, sagði: „Það
er mér mikiö ánægjuefni að bjóða
velkominn hingað utanríkisráðherra
Dana í opinbera heimsókn og ég met
það mikils að hann endurgeldur
heimsókn mína til Danmerkur í
desember í vetur nú, þegar hann á
óvenju annríkt vegna formennsku
Vidgerd
á Rauða-
núp dýr
VIOGERÐ á togaranum Rauöanúp
ÞH 160 sem strandaði við Raufar-
höfn í fyrradag er talin munu verða
mjög kostnaðarsöm Þar sem botn
togarans er mjög illa skemmdur. Aö
sögn Helga Ólafssonar, fréttaritara
Mbl. á Raufarhöfn, athugaöi kafari
skemmdírnar í gær og kom Þá í Ijós
að stjórnboröshluti botns Rauða-
núps er sundurtættur.
Ennfremur er talið að viðgerð muni
taka jafnvel nokkra mánuði, og þar
sem togarinn Rauöinúpur hefur verið
kjölfestan í atvinnulífi Raufarhafnar í
nokkur ár, hefur fjarvera hans frá
veiðum einnig alvarlegar afleiðingar
fyrir atvinnumál staðarins, að sögn
Sveins Eiðssonar, sveitarstjóra á
Raufarhöfn. Sveinn sagði í viðtali við
Mbl. á Raufarhöfn að fjarvera
togarans frá veiðum kippti nánast
rekstrargrundvellinum undan frysti-
húsinu á Raufarhöfn.
Rauðinúpur var dreginn á flot af
strandstað í fyrrinótt af togaranum
Sléttbak frá Akureyri og varöskipinu
Þór. Göt komu á togarann þegar
hann var dreginn af strandstað sem
var stórgrýtt fjara. í gærkvöld lagði
björgunarskipið Goðinn af stað til
Raufarhafnar og er ætlunin að færa
Rauðanúp til Reykjavíkur.
Dana í Efnahagsbandalaginu. Við
höfum margt að ræða um, alþjóða-
mál, efnahagsmál og varnarmál, svo
eitthvað sé nefnt, en einnig samvinnu
ríkjanna almennt, sem er mikil og fer
vaxandi, bæði í Norðurlandaráði,
innan Atlantshafsbandalagsins og á
alþjóðavettvangi."
í dag ræðir K.B. Andersen viö dr.
Kristján Eldjárn forseta íslands, Geir
Hallgrímsson forsætisráðherra og
Einar Ágústsson, en i hádeginu situr
hann veizlu Birgis ísl. Gunnarssonar
borgarstjóra í Höfða. Ríkisstjórnin
heldur gestunum veizlu á Hótel Sögu
í kvöld, en í gærkvöldi snæddu þeir
kvöldverð á heimili Einars Ágústs-
sonar utanríkisráðherra og frú
Þórunnar Siguröardóttur. í fyrramálið
verður farið til Vestmannaeyja og
þaðan verður haldið til Egilsstaöa
og Reyðarfjarðar. K.B. Andersen
heldur á laugardagskvöldið veizlu að
Hótel Borg, en í bíti á sunnudags-
morgun heldur hann til Kaupmanna-
hafnar ásamt fylgdarliði sínu.
Meðan á viðræðum K.B. Andersen
við íslenzka ráðamenn stendur í dag
skoðar frú Grethe Andersen Barna-
spítala Hringsins, Listasafn íslans og
tízkusýningu Heimilisiðnaðarfélags
íslands, auk þess sem hún heimsækir
Sigurjón Ólafsson myndhöggvara.
O --------------------------------- D
— Sjá nánari frásögn á bls. 16
D -----------------------—--------- D
Einar Ágústsson utanríkisráðherra og frú Þórunn Siguróardóttir bjóða dönsku utanríkisráðherrahjónin
velkomin, en hingað komu Þau með potu Flugfélagsins síðdegis í gær. (Ljósm. Ól. K. Magn.)
Samráðsfundur ASÍ um samningamálin:
Mikill fundartími fór 1
karp milli Suðumesja-
manna og ASÍ-manna
FUNDUR miöstjórnar AlÞýöusam-
bands íslands, 10-manna nefndar
Þess og samstarfsnefnda svæða-
sambandanna var haldinn á Hótel
Loftleiðum í gærdag og stóð frá
klukkan 14 til klukkan 18. Allmikill
tími fundarins fór í karp milli
Suðurnesjamanna og annarra for-
ystumanna um aðgerð Verka-
mannasambandsins, útflugnings-
bannið, sem nú er sem óðast aö
taka gildi um mestallt landið, tók
m.a. gildi í Reykjavík í fyrrinótt.
Engir fulltrúar Vestfirðinga sátu
fundinn. Greinilegur vilji kom fram
um að haldið yrði áfram útflutnings-
banni, Þegar frá eru skilin sjónar-
mið Suðurnesjamanna, sem telja
ekki grundvöll fyrir slíkri aðgerð í
sinni heimabyggð.
Fundurinn samþykkti ályktun sem
er svohljóöandi: „Með riftun kaup-
gjaldsákvæða kjarasamninganna frá
22. júní síöastliðnum hefur ríkisstjórn
landsins og meirihluti Alþingis vegið
að hagsmunum alls launafólks og
ógnaö frjálsum, lögbundnum samn-
ingsrétti þess, og stofnað með því til
ófriðar í landinu með atvinnurek-
endasamtökin sér viö hlið.
Við því óheillaspori, að rifta
kjarasamningum, höfðu Alþýðusam-
bandið og önnur hagsmunasamtök
launþega í landinu varaö og lýst yfir,
að slíkt myndi hafa í för með sér
gagnráöstafanir af hálfu verkalýðs-
samtakanna. Þessum aðvörunum var
í engu sinnt.
Engum þarf að koma á óvart, þótt
verkalýðssamtökin hafi boðað til
aðgerða í því augnamiöi aö fá
atvinnurekendur til samninga.
Á þeim fjórum viðræðufundum,
sem fóru fram milli aðila í marzmán-
uði, neituðu atvinnurekendur meö
öllu að koma til móts við kröfur
verkalýöshreyfingarinnar. Á síösta
fundinum, 31. marz síðastliðinn,
tilkynntu atvinnurekendur að þeir
hefðu óskaö eftir viðræöum við
ríkisstjórnina og myndu kveðja
Frá sarnráðsfundi ASÍ á Loftleiðahótelinu (
Finnst vera farið að síga
á seinni hluta starfsins
— segir Hannibal Valdimarsson, formaður stjórnarskrárnefndar
„ÞAÐ MÁ til sanns vegar færa
að nefndin hafi ekki beinlinis
hraðað störfum sínum. enda
henni engin tímamörk sett. Ég
hneykslast því ekkert á þessum
ummælum forsætisráðherra,“
sagði Hannibal Valdimarsson,
formaður stjórnarskrárnefnd-
ar. er Mbl. ræddi við hann í gær
í tilefni af þeim ummælum
Geirs Hallgrímssonar forsætis-
ráðhe. ra í samtali við Mbl. að
stjórnarskrárnefndin hefði
„vægast sagt — ekki verið
athafnasöm".
Hannibal Valdimarsson
kvaðst ekki vilja spá neinu um
það, hvenær tillagna nefndar-
innar væri að vænta. „Mér
finnst nú sjálfum eins og það sé
farið að síga á seinni hluta
nefndarstarfsins, en lokin geta
nú reynzt erfiðust, því þá er
komið að ályktununum og
ágreiningsmálunum." Þegar
Mbl. spurði, hvort ágreinings-
málin væru mörg, svaraði
Hannibal: „Það tel ég vera, en ég
Framhald á bls. 18
fulltrúa ASÍ til fundar aftur, ef nú
viðhorf sköpuðust. Síðan hefur
ekkert frá þeim heyrzt.
Meðan þessu fer fram, dynja
samfelldar verðhækkanir yfir al-
menning í landinu.
í staö jákvæöra viöbragöa frá
atvinnurekendum við kröfum verka-
lýössamtakanna hafa þau mætt
hatursáróðri. Fundurinn telur ástæöu
til aö mótmæla sérstaklega tillögu
eins af þingmönnum ríkisstjórnar-
flokkanna, sem hann hefur lagt fram
á Alþingi, um bann við verkföllum.
Fundurinn lýsir fyllsta stuöningi viö
ákvörðun Verkamannasambands ís-
lands um útflutningsstöövun, og
hvetur jafnframt önnur aöildarsam-
bönd innan ASÍ til aö braöa undir-
Framhald á bls. 18