Morgunblaðið - 26.04.1978, Síða 1
32 SÍÐUR
85. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Handtökuskípaiiir
vegna ráns Moros
Rómaborg, 25. apríl. Reuter — AP.
í DAG var gefin út í Rómaborg heimild til að handtaka
níu manns vegna ránsins á Aldo Moro, á sama tíma og ítalir
biðu af eftirvæntingu eftir fréttum um afdrif Móros vegna
neitunar stjórnarinnar um að láta lausa 13 fangelsaða
skæruliða í skiptum fyrir Moro.
í dag hringdu fjölmargir í fréttastofuna ANSA og sögðu,
að Moro hefði verið tekinn af lífi, en talið var að um gabb
hefði verið að ræða í öllum tilvikum og engin hringinganna
verið frá Rauðu herdeildinni. Þá sendi fjölskylda Moros
honum bréf í kvöld um að hún vonaðist til að heimta hann
á lífi.
í handtökuheimildinni sem Luci-
ano Infelisi saksóknari gaf út í dag
er sex af níu mönnum gefið að sök
að hafa framið fjöldamorð, mann-
rán og stofnað vopnaða bófasveit.
Þessir sex eru Prospero Gallinari,
Corrado Alunni, Enrico Bianco, Hinum þremur, Franco Pinna,
Patrizio Pecci, Susanna Ronconi
og Oriana Marchioni. Þau eru
kunn fyrir aðild sína að Rauðu
herdeildinni og hefur lögreglan
alla tíð frá ráni Moros lýst eftir
þeim til yfirheyrslu.
Þessi uppdráttur sýnir hvar Japaninn Sugano og Kóreumaðurinn
Tae-wan sátu f kóreönsku farþegaflugvélinni. Þeir létust þegar
sovézka orrustuþotan gerði skotárás á vélina. Afstaða orrustuþotunn-
ar sést einnig á myndinni.
Valerio Morucci og Adriana Far-
anda, lýsir lögregla sem vinstri-
sinnuðum öfgamönnum sem ekki
eru tengdir Rauðu herdeildinni.
Efnt var til mikilla mótmæla við
hryðjuverkum um alla Ítalíu í dag
um leið og fagnað var, að 33 ár eru
liðin frá því að þjóðin losnaði
undan oki fasismans. Þúsundir
manna tóku þátt í mótmælunum
og kom til smávægilegra átaka í
Róm í lok mótmælagöngu vinstri-
sinnaðra námsmanna sem báru
spjöld með áletruninni: „Burt með
hryðjuverk stjórnvalda, burt með
Rauðu herdeildina.“ Fjögur ung-
menni voru færð á sjúkrahús eftir
Framhald á bls 18.
Simamynd AP
Eiginkona Aido Moros, frú Eleon-
ora Moro. Myndin er tckin í fyrra
og í baksýn sést maður hennar.
Hafréttarráðstefnan:
Ekki upp-
kast í Genf
Genf. 25. aprfl. AP
FLESTAR sendinefndir á Ilaf-
réttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Genf. þar sem nú er
haldinn sjöundi fundur ^ráð-
stefnunnar, eru á þeirri skoðun
að ekki verði gengið frá hafrétt-
arsáttmála á yfirstandandi
fundi og til þess þurfi að
minnsta kosti einn fund tii
'viðbótar.
Ilamiiton Shirley Amera-
singhe. forseti ráðstefnunnar.
hvatti ráðstefnu fulltrúa
í dag til að reyna að miðia
málum og slaka á kröfum
sínum. þar sem upp væri komið
alvarleg staða í samningavið-
ræðunum. „Ráðstefnan ber ár
angur ef við komumst að
samkomuiagi en ef það mis-
tekst má búast við hatrömmum
Framhald á bls 18.
Vorster fellst á
siálfstæði Namibíu
IIofðaborK. Samcinuðu þjtiðunum.
WashinKton. 25. aprfl. AP. Reutcr.
JOHN Vorster forsætisráð-
herra Suður-Afríku skýrði
frá því í dag að stjórn hans
hefði fallizt á tillögur fimm
vestrænna ríkja um frið í
Suðvestur-Afríku (Namibíu)
og sjálfstæði landsins. Hefur
ákvörðun stjórnarinnar
hvarvetna verið vel tekið.
Vorster sagði að ákvæði í
tillögunum um að öryggis-
sveitir frá Suður-Afríku
yrðu í Suðvestur-Afríku eft-
ir sjálfstæðið ef kjörið þing
landsins óskaði þess, hefði
ráðið úrslitum um afstöðu
stjórnar sinnar til tillagn-
anna.
Með þessari tilkynningu
Vorsters líta sérfræðingar
svo á, að ekkert sé því til
fyrirstöðu að efnt verði til
almennra kosninga í Suðvest-
ur-Afríku og að landið hljóti
sjálfstæði 31. desember, eins
og tillögur Bandaríkja-
manna, Breta, Frakka, Vest-
ur-Þjóðverja og Kanáda-
Eldflaug var skotið
að farþegaþotunni
Seoul. Moskvu, Tókýó.
London, 25. aprfl. AP. Rcutcr.
BREZKA blaðið Daily Telegraph hefur það í dag eftir
háttsettum foringja norska flughersins í bænum Kirkenes
við landamæri Noregs og Sovétríkjanna, að sovézka
orrustuþotan, sem skaut að kóreönsku farþegaflugvélinni,
hafi skotið eldflaug sem að líkindum sprakk rétt við
farþegavélina. Norski liðsforinginn segir þetta niðurstöðu
af úrvinnslu gagna frá radarmælingum á svæðinu þar sem
skotið var á farþegaflugvélina.
Jafnframt skýröi utanríkisráð-
herra Japana, Sunao Sonoda, frá
því í dag að stjórn landsins færi
hugsanlega fram á skaðabætur frá
Sovétmönnum vegna dauða Japan-
ans Yoshítake Sugano í skotárás-
inni á vélina. Læknir sem krufði
lík Sugano sagði í dag, að hann
hefði , ekki látizt ef hann hefði
hlotið aðhlynningu lækna innan
tveggja klukkustunda frá skot-
árásinni, þar sem mikilvægustu
líffæri hefðu ekki skaddazt í
skotárásinni. Læknirinn sagði að
Sugano hefði blætt út.
Haft var eftir háttsettum em-
bættismanni sovézka utanríkis-
ráðuneytisins í dag að flugstjóri og
siglingafræðingur kóreönsku
vélarinnar hefðu verið fluttir til
Leningrad vegna frekari rann-
sóknar á málum farþegaþotunnar.
Blaðið Joong-ang í Seoul hefur
eftir bandarískum embættismönn-
um, sem eru milligöngumenn
stjórnarinnar í Seoul í máli
tvímenninganna, að þeir verði
lausir úr haldi ef til vill innan
viku.
Aðrir sovézkir embættismenn,
sem ekki vildu heldur láta nafna
sinna getið, sögðu í dag að skotið
hefði verið á farþegaflugvélina
samkvæmt fyrirmælum beint frá
Moskvu.
Embættismaðurinn sagði að
skotið hefði verið á vélina eftir að
hún hafði flogið í tvær klukku-
stundir í sovézkri lofthelgi, án þess
að sinna talstöðvarköllum, alþjóð-
legum merkjum tveggja orrustu-
þota um að vélin skyldi fylgja
þeim eftir og lenda og merkjaskot-
um sem var skotið við nef
vélarinnar.
Embættismaðurinn sagði að
reynt hefði verið að ná sambandi
við vélina á öllum venjulegum
bylgjulengdum frá jörðu niðri en
án árangurs.
Framhald á bls 18.
manna gera ráð fyrir. Til-
lögurnar eiga einungis eftir
að hljóta samþykki Sam
Nujoma, leiðtoga Blökku-
mannasamtakanna SWÁPO,
sem Sameinuðu þjóðirnar
telja eina lögmæta fulltrúa
Suðvestur-Afríku, og
Öryggisráðs SÞ.
Nujoma lýsti því yfir á
sérstökum aukafundi Alls-
herjarþings SÞ um málefni
Suðvestur-Afríku, að hann
afneitaði alls ekki málamiðl-
unartillögu hinna fimm vest-
rænu ríkja. Þegar hann frétti
af ákvörðun stjórnar Vorst-
ers var hann stuttorður og
sagði: „Hún er hans mál.“
Donald Jamiesson utan-
ríkisráðherra Kanada, helzti
talsmaður ríkjanna fimm,
sem lögðu fram málamiðlun-
artillögu til lausnar deilunni
um Suðvestur-Afríku 30.
Framhald á bls 18.
Siniamynd AP
Tárin streyma niður kinnar
Shigeru Sugano þar scm hann
heldur á mynd í sorgarborða af
föður sínum. Faðir Shigeru,
Yoshitaka, lézt í skotárás sov-
ézkrar orrustuþotu á kóreönsku
farþegaflugvélina sem neydd var
til að lenda í Rússlandi. Myndin
af Shigaru, sem er 10 ára, var
tekin á Tókýó-flugvelli þar sem
hann tók á móti kistu föður sins.
Haig
neitar
New York, 25. apríl. AP.
ALEXANDER Haig hershöfð-
ingi. yfirmaður herafia NATO.
neitaði í dag fréttum um að
hann hefði hótað að segja af sér
vegna ágreinings við stjórn
Carters forseta um nifteinda-
sprengjuna og önnur mál.
Haig hefur ekki farið dult með
óánægju sína með þá ákvörðun
stjórnarinnar að fresta smíði
nifteindasprengju, en hann neit-
aði í dag að láta nokkuð eftir sér
hafa um fréttir þess efnis að
ágreiningur út af þessu máli og
Framhald á bls 18.