Morgunblaðið - 26.04.1978, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1978
25
fclk í
fréttum
+ Barbara Carrera er fædd í Nicaragua, alin upp í Evrópu og búsett í Bandaríkjunum. Hún var
fræg fyrirsæta áður en hún komst á hvíta tjaldið og hafði meðal annars komist á forsíður blaða
eins og Vogue, Playboy og Cosmopolitan. Hún var ein af 400 umsækjendum um hlutverk í kvikmynd
með Rock Hudson, en þrátt fyrir að margir væru um hlutverkið var hún sallaróleg því að allan
tímann var hún viss um að fá hlutverkið (spákona hennar hafði sagt henni það).
+ Carol Kane var aðeins 6 ára, þegar hún ákvað að verða
kvikmyndaleikkona. Og 23 ára gömul fékk hún sín fyrstu
Óskarsverðlaun, það var fyrir leik í myndinni „Hester Street“. Síðan
hefur hún m.a. leikið í einni mynd Woody Allen „Me and Annie“ og
með Rudolph Nureyev í „Valentino".
+ Jodie Foster er nú
þegar orðin heimsfræg
þótt hún sé aðeins 17
ára gömul. Hún fór
með aðalhlutverkin í
kvikmyndunum „TAXI
DRIVER“ og „BUGSY
MALONE", sem báðar
hafa verið sýndar hér
á landi. Nú hefur hún
einnig sýnt að hún
getur sungið og það
nokkuð vel. Hún kom
fram í sjónvarpsþætti
í Frakklandi með Gil-
bert Becaud og hlaut
góða dóma.
+ Leikarinn og dansar-
inn Fred Astaire hefur
ekki í hyggju að setjast
í helgan stein þrátt fyrir
háan aldur. Hann er nú
kominn hátt á áttræðis-
aldur. Hann hefur nýlok-
ið við að leika í sjón-
varpskvikmynd, sem
fjallar um eldri hjón sen
eiga í vandræðum með
að halda hjónabandinu
gangandi. Fred Astaire
er margfaldur milljóna-
mæringur og á hann
auðæfi sín ekki aðeins
kvikmyndaleiknum að
þakka, heldur einnig
dansskplum sem hann á
um gjörvöll Bandaríkin.
Hann segist hafa lifað í
sviðsljósinu og ætti sér
að deyja í því líka.
Bridgefélag
Reykjavíkur
Á síðasta spilakvöldi var
spiluð 1. umferð í Meistara-
keppni félagsins í sveitum.
Aðeins einni sveit tókst að
knýja fram afgerandi sigur. En
það var sveit Hjalta Elíassonar,
sem náði 17 vinningsstigum
gegn þremur stigum sveitar
Olafs H. Ólafssonar. Úrslit
annarra leikja urðu þessi: sveit
Steingríms Jónassonar vann
sveit Eiríks Helgasonar 11—9,
sveit Guðmundar T. Gíslasonar
vann sveit Jóns Hjaltasonar
12—8 og sveit Stefáns J. Guð-
johnsen vann sveit Sigurðar B.
Þorsteinssonar einnig með 12
stigum gegn 8.
Samhliða sveitakeppninni
skemmtu 12 pör sér í tví-
menningi. Var það ákveðið með
stuttum fyrirvara þar sem ekki
reyndist áhugi fyrir langri
sveitakeppni í 1. flokki. Sigur-
vegarar urðu þeir Bragi Braga-
son og Karl Logason og hljóta
þeir að launum fjórða hluta
keppnisgjalda þessara 12 para.
En annars varð röð efstu para
þessi:
Bragi Bragason
— Karl Logason
Hannes Jónsson
— Ágúst Helgason
Páll Valdimarsson
— Valur Sigurðsson
Steinberg Ríkarðsson
— Daníel Gunnarsson
Rögnvaldur Ólafsson
— Sveinn Sigurgeirsson
Meðalskor var 165
Sigurvegararnir eru kornung-
ir piltar. Eru þeir aðeins 15 ára
gamlir og er árangur þeirra
mjög skemmtilegur.
Sama fyrirkomulag verður á
spilakvöldum félagsins út maí-
mánuð. Tvímenningur samhliða
sveitakeppninni og fjórða hluta
spilagjalda varið til verðlauna.
Næst verður spilað í Domus
Medica í kvöld, 26. apríl.
194
183
177
171
170
Brldge
eftir ARNOR
RAGNARSSON
Bridgedeild
Breiðfirðinga-
félagsins
20 pör mættu til leiks í síðustu
keppni vetrarins hjá okkur og er
spilað í tveimur 10 para riðlum.
Alls verður spilað í fjögur kvöld
og eftir fyrsta kvöldið eru
Magnús Oddsson og Magnús
Halldórsson í efsta sæti, en sem
kunnugt er stóðu þeir sig mjög
vel í úrslitakeppni Islandsmóts-
ins sem fram fór um síðustu
helgi.
Staða efstu para:
Magnús — Magnús 150
Guðlaugur — Öskar 138
Gísli — Þórarinn 127
Anton — Sverrir 122
Margrét — Júliana 120
Ingibjörg — Sigvaldi 116
Ása — Sigríður 115
Steinunn — Þorgerður 112
Á morgun, fimmtudag, verður
gert hlé á tvímenningnum og
spiluð sveitakeppni gegn Bridge-
félagi kvenna en það er árlegur
viðburður í starfi félagsins.
28. maí n.k. er væntanlegur
þrjátíu manna hópur frá Nýja
bridgefélaginu í Færeyjum.
Munu þeir dvelja hér í viku og
búa hjá félögum innan bridge-
deildarinnar. Færeyingunum
mun m.a. verða boðið í skemmti-
ferð upp í Borgarfjörð svo
eitthvað sé nefnt. Breiðfirðingar
hafa tvívegis farið til Færeyja
og hafa sömu sögú að segja um
móttökur Færeyinga og aðrir
sem þangað fara. Þær eru
frábærar og þeim verður seint
gleymt.
GARÐYRKJUAHOLD
SKÓFLUR ALLSKONAR
RISTUSPAOAR
KANTSKERAR
GARDHRÍFUR
GREINAKLIPPUR
GRASAKLIPPUR
HEYHRÍFUR
GIRÐINGAVÍR, GALV.
SLÉTTUR
GARÐKÖNNUR
Járnkarlar
Jarðhakar
Sleggjur
SLÓNGUKLEMMUR
nota hinir vandlátu.
Stnröir Irá V«“—12“.
Einnig ryötríar
GARÐSLÖNGUR
VATNSÚÐARAR
SLÖNGUKRANAR
SLÖNGUTENGI
VÆNGJADÆLUR
Tjöruhampur
VIÐARKOL
FERNISOLÍA
Karbólín
Viðarolíur
Tjörur
Fúavarnarefni
RYÐEYÐIR — ryðvörn
MÚRARAVERKFÆRI
MURSKEIÐAR
MÚRBRETTI
MURHAMRAR
MÚRFILT
STALSTEINAR
Olíuofnar
með rafkveikju
Björgunarvesti
Árar — Árakefar
Bátadælur
Vélavistur
Hvítur — mislitur
Handfæravindur
HANDFÆRAÖNGLAR
NÆLONLÍNUR
HANDFÆRASÖKKUR
HAKARLAONGLAR
SKÖTULÓÐAÖNGLAR
GRÁSLEPPUNET
SILUNGANET
NETAFL0T
Ananaustum
Simi 28855