Morgunblaðið - 26.04.1978, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1978
Mótmæla kjara-
skerðingunni
MORGUNBLAÐINU hafa borizt
að undanförnu allmarsar álykt-
anir verkalýðsfélaga um samn-
ingamálin, þar sem félög eru
hvött til að styðja við aðgerðir
Verkamannasambands íslands.
Miðstjórn Málm- og skipa-
smiðasamhands íslands lýsti á
fundi sinum 13. apríl fyllsta
stuðningi við VMSÍ og sambands-
félög þess í baráttuaðgerðum
þeirra til að knýja fram fulia
greiðslu verðbóta frá 1. marz í
samræmi við gildandi kjarasamn-
ingsákvæði. Jafnframt hvetur
miðstjórnin aðildarfélögin tii að
styðja framkvæmd aðgerða
Verkamannasambandsins og að
athuga með baráttuaðgerðir á
félagssvæðum sínum, sem miði að
þvi að hnekkja skerðingu rikis-
valdsins á umsömdum verðlags-
bótum eins og það er orðað
„Aðalfundur Verkalýðsfélagsins
Víkings, Vík í Mýrdal, haldinn
sunnudaginn 16. apríl, mótmælir
eindregið aðgerðum ríkisstjórnar-
innar í kjaramálum og lýsir yfir
fullum stuðningi við viðbrögð
Verkamannasambands íslands".
„Aðalfundur Verkalýðsfélags
Akraness, haidinn 8/4 1978, lýsir
fyllsta stuðningi sínum við áfram-
haldandi aðgerðir, sem boðaðar
hafa verið til þess að fá kjara-
samningana í gildi á ný. Fundur-
inn heitir því á öll verkalýðsfélög
í landinu að taka þátt í boðun
útflutningsverkfallsins sem fyrst
og hrinda þeirri óhæfu, sem lög
ríkisstjórnarinnar eru, að skerða
jafnt verðbætur þeirra sem hafa í
dagvinnu innan við 115 þúsund
krónur í mánaðarlaun, en verða að
taka alla yfirvinnu sem tiltæk
verður til þess að framfleyta sér
og sínum, og þeirra hálaunamanna
og forystumanna þjóðfélagsins
sem svára því hlæjandi í sjónvarp-
inu, að þeir hafi því miður
innviklast í kerfið með 800 til 900
þúsund króna mánaðarlaun. Ó-
hætt hefði verið að ætla að þeir og
fjöldi annarra hátekjumanna
hefðu engar verðbætur þurft.
Fundurinn heitir á samtaka-
mátt verkalýðshreyfingarinnar
enn sem fyrr að rétta hlut
verkafólksins í landinu og láta
ekki á þennan hátt ræna umsömdu
kaupi láglaunastéttanna".
Þá hefur blaðinu borizt eftirfar-
andi tilkynning:
„Fundur í Kennarafélagi
Menntaskólans við Hamrahlíð,
Framhald á bls. 19
Bíllinn fór niður í fjörur
HÖRKUÁREKSTUR varð milli tveggja bíla á mótum Fornustrandar og Norðurstrandar á
Seltjarnarnesi laust fyrir klukkan sex í gær. Þetta voru bílar af Austin og Volkswagengerð. Fór svo
að Áustin bfllinn hafnaði f fjörunni fyrir neðan gatnamótin mikið skemmdur. Kona, sem var í bflnum,
slasaðist á andliti. Ökumaður Volkswagenbflsins viðurkenndi hjá lögreglunni að hafa ekið á 80 km
hraða. Ljósm. Friðþjófur.
Fékk sér leðurstíg-
vél í tilefni dagsins
í gær var eitt ár liðið síðan „sjónvarpsbindindið” hófst
1 GÆR var eitt ár liðið sfðan
þau Jóhanna Kristjónsdóttir,
Elsa Þorsteinsdóttir, Sighvatur
Björgvinsson og Stefán Jökuls-
son slökktu í síðustu sígarett-
unumf þætti Sigrúnar Stefáns-
dóttur fréttamanns og hófu
tóhaksbindindi, sem þjóðin
fylgdist með fyrstu dagana á
eftir. Morgunblaðið hafði í gær
samband við þátttakendur og
spurðist fyrir um hvernig
gengið hefði. Kom þá í ljós að
þau Jóhanna og Sighvatur
höfðu haldið bindindið 100%,
Elsa byrjaði aftur að reykja í
janúar s.l. en ekki náðist f
Stefán, en samkvæmt upplýs-
ingum blaðsins mun hann
a.m.k. farinn að reykja einn og
einn vindil.
Fékk sér leðurstígvél
í tilefni dagsins
„Ég hef staðist þessa þolraun
og það hefur komið mér
skemmtilega á óvart, svo og
munu ýmsir aðrir undrandi
líka,“ sagði Jóhanna Kristjóns-
dóttir blaðamaður. — Ég varð
þess vör í fyrra að ég var talin
líkleg til falls fljótlega af því
hvað ég var hreinskilin í kvört-
unum mínum, en þar með fékk
ég útrás sem var bara til
hjálpar. Ég var núna að koma
utan úr búð og keypti mér þar
húðvæn leðurstígvél í tilefni
merkisdagsins. Ég hef lagt
peningana fyrir að mestu. Líðan
mín andlega sem iíkamleg var
ágæt fyrir og hefur ekki breytzt
svo að ég finni. Sem betur fer
finnst mér til dæmis alveg
jafngott að sofa á morgnana og
sprett ekki upp eins og fjöður
við sólarupprás. Ég hef ekki
hugsað mér að hefja reykingar
á ný, ég hef lagt það hart að mér
að ég vil ekki eyðileggja árang-
urinn. Það kemur fyrir að mig
langar í sígarettu — svona
stundum og þó sérstaklega á
kvöldin."
Hættur að hugsa
um sígarettur
„Ég er svo gjörsamlega hætt-
ur að hugsa um sígarettur og ég
gerði mér hreinlega ekki grein
fyrir því að eitt ár væri liðið
siðan við hættum," sagði Sig-
hvatur Björgvinsson alþingis-
maður. „Ég hef á þessu eina ári
tekið reyk í 3—4 skipti og alltaf
orðið illt af því svo ég vona að
ég sé hólpinn. Eg fann greini-
legan mun á mér fyrst á eftir,
manni Ieið miklu betur. Því
miður hef ég nú ekki lagt neitt
til hliðarfyrir hnattferðinni,
sem ég hafði reiknað út að
mætti fá fyrir peningana sem
spóruðust. Ríkisstórnin sér fyrir
því að maður sér af peningunum
jafnóðum.“
Sprakk eftir
9 mánuði
Ekki náðist í Elsu Þorsteins-
dóttur talsímakonu, þar sem
hún liggur nú á sjúkrahúsi en
eiginmaður hennar, Karl
Einarsson, sagði i gær að Elsa
hefði byrjað að reykja aftur í
janúar eftir 9 mánaða bindindi.
Sagði Karl að Elsa væri að
hugsa um að byrja í tóbaksbind-
indi aftur.
Þá náðist ekki í Stefán Jökuls-
son kennara. Hann starfar nú á
Hallormsstað og símstöðin þar
lokaði klukkan 18 í gær. Sam-
kvæmt þvi sem blaðið hefur
fregnað hefur Stefán a.m.k.
tekið einn og einn vindil en ekki
er vitað nánar um framgang
bindindisins hjá Stefáni.
Þau slökktu í síðustu sígarettunum fyrir réttu ári, Jóhanna, Stefán, Elsa og Sighvatur, talið frá vinstri.
Dýrasýning
í Laugar-
dalshöll
7. maí n.k.
F J Á RÖFLUN A RN EFND dýra-
spítala Watsons heldur árlega
dýrasýningu sunnudaginn 7. maí í
Laugárdalshöll, og verður öllum
ágóða varið til tækjakaupa fyrir -
dýraspítalann, að því er segir í
fréttatilkynningu frá undirbún-
ingsnefndinni.
Á sýningunni verða ýmsar teg-
undir af dýrum svo sem hundar,
geitur, marsvín, ennfremur 15
tegundir af fuglum, dúfur, dverg-
hænsni, skjaldbökur og kanínur.
Þá koma Fáksmenn í heimsókn, og
er gert ráð fyrir mörg hundruð
manna hópreið. Fáksmenn ætla
einnig að kynna yngri kynslóðinni
hestana og verður þeim leyft að
bregða sér á bak.
Guðrún Á. Símonar kemur á
sýninguna með fagúrt lið katta og
sýndar vi-rða hlýðnisæfingar
hunda.
Veitingar verða á boðstólum í
Laugardalshöll og sjá Fákskonur
um framleiðsiu þeirra.
N áttúruvemd-
arþing
NÁTTÚRUVERNDARÞING, hið
þriðja í röðinni, verður haldið
dagana 29. og 30. apríl næstkom-
andi. I náttúruverndarlögum, sem
í gildi gengu vorið 1971, eru
ákvæði um að náttúruverndarþing
skuli haldið þriðja hvert ár og var
fyrsta þingið háð í Reykjavík í
apríl 1972.
Á náttúruverndarþingi er fjall-
að um náttúruvernd landsins og
gerðar tillögur um þau verkefni,
sem brýnast er talið að leysa.
Skýrsla náttúruverndarráðs er
lögð fram og rædd. Þá kýs þingið
6 menn í náttúruverndarráð og 6
menn til vara, en formann og
varaformann skipar menntamála-
ráðherra.
Rétt til setu á náttúruverndar-
þingi eiga fulltrúar allra náttúru-
verndarnefnda, en þær starfa í
hverri sýslu og kaupstað. Auk þess
fulltrúar allmargra samtaka og
stofnana, fulltrúar allra þing-
flokka og náttúruverndarráðs-
menn.
Þingið verður haldið á Hótel
Loftleiðum í Reykjavík
Á náttúruverndarþinginu í vor
verða ýmis mikilvæg mál tekin til
meðferðar. Þar á meðal má nefna
meðferð auðlinda, verndun vatns-
og jarðhitasvæða, staðarval iðnað-
ar, fræðslu um náttúruvernd,
mengunarmál, umferðarrétt um
landið og endurskoðun náttúru-
verndarlaga.
Náttúruverndarráð undirbýr
þingið og veitir skrifstofa ráðsins
allar nánari upplýsingar.
Sovésk kvik-
mynd um ferð for-
sætisráðherra
SOVÉSK kvikmynd um opinbera
heimsókn Geirs Hallgrímssonar
forsætisráðherra til Sovétríkjanna
á síðasta ári verður sýnd almenn-
ingi ásamt fleiri myndum í MÍR
salnum, Laugavegi 178, 29. apríl
n.k.
í fréttatilkynningu frá MÍR
segir, að .með kvikmvndinni um
ferð forsætisráðherra verði sýndar
tvær stuttar myndir. Önnur nefn-
isl „Niöjar Ingólfs", kvikmynd
með ensku tali, sem sovéskir
myndatökumenn gerðu í tilefni
1100 ára afmælis Islandsbyggðar.
Þriðja kvikmyndin, sem sýnd
verður, er elst og fjallar um ferð
nokkurra íslendinga til Sovétríkj-
anna á árinu 1956. Myndirnar
þrjár verða sýndar á laugardaginn
kl. 14 og kl. 15.30.