Morgunblaðið - 26.04.1978, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1978
Rússar smíða ekki
nifteindasprengju
Moskvu. 25. apríl. AP
LEONID Brezhnev forseti
hét þvi í dag, að Rússar
mundu ekki smiða nifteinda-
sprengju ef Bandaríkja-
menn smíðuðu ekki slíka
sprengju.
Þetta er fyrsta svar forseta
Sovétríkjanna við þeirri ákvörðun
Carters Bandaríkjaforseta að
fresta smíði nifteindasprengju.
Brezhnev sagði einnig í ræðu í
Kreml, að nokkuð hefði miðað í
áttina að samningi um takmörkun
kjarnorkuvopna í nýafstaðinni
Moskvuheimsókn Cyrus Vance
utanríkisráðherra.
Carter sagði að endanleg á-
kvörðun um að sprengjan yrði ekki
VEÐUR
1 i heim
Amstardam 9 akýjaó
Apcna 23 heiðskírt
Berlín 12 sólskin
BrUssal 15 akýjað
Chicago 17 rigning
Frankfurt 20 heióskírt
Gonf 15 sófskin
Helsinki 1 skýjaö
Jóh.b. 20 skýjað
Kaupm.h. 7 akýjaó
Líssabon 19 rigning
London 18 skýjaó
Lot Angeles 21 rigning
Madríd 16 akýjaó
Malaga 20 lóttskýjaö
Miami 24 rigning
Moskva 7 snjókoma
New York 21 heióskirt
Ósló 5 sólskin
Palma, 16 akýjaó
Paría 20 aólskin
Róm 12 skýjaó
Stokkh. 12 skýjaó
Tel Aviv 21 skýjaó
Tokýó 20 skýjaó
Vancouver 14 skýjaó
Vínarborg 18 bjart
notuð færi eftir því hvort Rússar
sýndu samsvarandi stillingu og
loforð Brezhnevs virðist ekki
fullnægja þessu skilyrði. Harold
Brown landvarnaráðherra hefur
líka sagt að þótt Rússar lofuðu að
smíða ekki nifteindasprengju yrði
það ekki talið viðunandi svar við
ákvörðun Carters. Brown vill
meiri tilslakanir enda er nif-
teindasprengjan ætluð til aðgerða
gegn skriðdrekum sem Rússar
tefla fram í stórum stíl.
Brezhnev virtist ganga nokkuð
til móts við Carter og Brown þegar
hann sagði að Rússar ætluðu ekki
að fjölga í herafla sínum í
Mið-Evrópu „um einn einasta
mann, einn einasta skriðdreka".
Browri sagði að fækkun í skrið-
drekaliði Rússa mundi teljast
viðunandi svar við ákvörðun Cart-
ers.
Brezhnev gaf ekki til kynna að
niðurskurður væri á dagskrá en
sagði að Rússar hefðu ekki fjölgað
í herafla sínum í Mið-Evrópu um
3 nýjar
filmur m Kodak
Kódacolor 400
Negatíf filma fyrir litmyndir á
pappír.
Ljósnæmi 400 ASA = 27 DIN
24 og 36 mynda spólur fyrir 35
mm vélar.Einnig í stærðinni 120.
Kodak
Ektachrome|
FILM FOR COLOR SLIOE:
3« EXPOSURES
ED135-36
Filma fyrir litskyggnur. Ljós-
næmi 200 ASA = 24 DIN
20 og 36 mynda spólur fyrir
35 mm vélar.
HHBHgnnni
Filma fyrir iitskyggnur. Ljós-
næmi 64 ASA = 19 DIN
20 og 36 mynda spólur fyrir
35 mm vélar.
Allar þessar filmur eru
framkallaðar hér á landi
•
Reynió þessar frábæru nýju filmur —
þær opna Ijósmyndaranum nýja möguleika
VIÐ SELJUM
Kodak
HANS PETERSEN HF
Bankastræti — Glæsibæ — Austurveri
S. 20313 S. 82590 S. 36161
Brezhnev
langt skeið og að þeir hefðu ekki
slíkt í hyggju. Hann kvað ákvörð-
un Carters um að fresta smíði
nifteindasprengjunnar hálfkák en
Rússar tækju hana til greina og
því mundu þeir ekki hefja smiði
slíkrar sprengju.
Dayan til
Washington
Tel Aviv. 25. aprfl. AP.
MOSHE Dayan utanríkisráð-
herra ísraels fór í dag til
Washington og sagði við brott-
förina að hann hefði engar nýjar
friðarhugmyndir meðferðis en
hann ætlaði að mótmæla fyrir-
hugaðri sölu bandarískra her-
flugvéla til Egyptalands og
Saudi-Arabíu.
Hann sagði að Bandaríkjamenn
hefðu átt að efna það loforð sitt
að sjá ísraelska flughernum fyrir
þeim fiugvélum sem hann þarfn-
aðist án þess að tengja það
flugvélasölu til tveggja Araba-
landa. „Ef þeir vilja refsa okkur
verðum við að taka því, en
Bandaríkjamenn hafa algerlega
rangt fyrir sér og við getum ekki
breytt þeirri skoðun okkar," sagði
hann.
Dayan gaf í skyn að i viðræðum
Framhald á bls. 19
Rhódesíustjóm
gegn ráðstef nu
Salisbury 25. aprfl. Reuter.
Bráðabirgðastjórnin í
Rhódesíu hafnaði í dag
tillögu Breta og Bandaríkja-
Tekjuskattur
hækkar um
1% í Noregi
Óslú. 26. aprfl. AP.
NORSKA stjórnin hefur kynnt
endurskoðaða fjárhagsáætlun
með tilliti til aðgerða sem ákveðið
var að grípa til í þeim tilgangi að
takmarka vaxandi framleiðslu-
kostnað á norskum vörum og til
að rétta við versnandi efnahag
landsins.
í áætluninni er gert ráð fyrir að
tekjuskattur hækki um 1% 1. júlí,
en reiknað er með að einkaneyzla
minnki um einn milljarð norskra
króna vegna aðgerða stjórnarinn-
ar.
Á næstu árum verður norsk
meðalfjölskylda að greiða árlega
um 500 norskum krónum meira en
nú (um 25 þúsund krónur) fyrir
rafmagn, af því er fram kemur.
Loks er gert ráð fyrir að
greiðslur vegna veikinda hætti. Fá
launþegar 90% tekna frá fyrsta
veikindadegi.
manna um ráðstefnu allra
aðila Rhódesíudeilunnar.
„Hún virðist dæmd til að
mistakast,“ segir í yfirlýs-
ingu frá framkvæmdaráði
stjórnarinnar sem er í
tveimur deildum. Jafnframt
segir að ekkert bendi tlf þess
að meiri líkur séu á því að
ráðstefna allra deiluaðila
beri árangur en Genfarráð-
stefnan um Rhódesíudeiluna
1976.
í yfirlýsingunni segir að stjórn-
in sé ekki reiðubúin til að hefja að
nýju viðræður um mál sem tekið
hafi aðila stjórnarinnar þrjá
mánuði að ráða fram úr.
Utanríkisráðherrar Breta og
Bandaríkjanna, David Owen og
Cyrus Vance, fóru til Salisbury í
síðustu viku til að reyna að fá
aðila bráðabirgðastjórnarinnar til
að taka þátt í ráðstefnunni ásamt
leiðtogum Föðurlandsfylkingar
skæruliða. Föðurlandsfylkingin
hefur þegar fallizt á að taka þátt
í ráðstefnu allra deiluaðila.
Lögreglan í Salisbury handtók í
dag 80 svarta rhódesíska stúdenta
eftir mótmælaaðgerðir í miðborg-
inni gegn samkomulaginu um
myndun bráðabirgðastjórnarinn-
ar. Stúdentarnir eiga yfir höfði sér
sex mánaða fangelsi fyrir þátttöku
í ólöglegri mótmælagöngu.