Morgunblaðið - 26.04.1978, Síða 23

Morgunblaðið - 26.04.1978, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1978 23 j radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar fundir mannfagnaöir Aðalfundur Skógræktar- félags Reykjavíkur veröur haldinn miövikudaginn 26. apríl kL 20.30 í Félagsheimili Hreyfils, gengiö inn frá Grensásvegi. Funarefni: Venjuleg aöalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin Hestamanna- félagið Gustur Hesthúsaeigendur í Glaöheimum. Muniö fundinn í Félagsheimili Kópavogs, fimmtu- daginn 27. apríl kl. 20.30. Unglinganámskeiðin byrja mánudaginn 1. maí kl. 14 í Glaöheimum. Leiöbeinandi Sigurborg Daöadóttir. Upplýsingar hjá Bjarna Sigurössyni og í símum 10160 og 66699. Gustur. I I Aðalfundur Aðalfundur Félags framleiöslumanna verö- ur haldinn aö Óöinsgötu 7, 4. hæö, miövikudaginn 26. apríl 1978, kl. 14.30. Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf. Önnur mál. Félagsmenn, mætiö vel og stundvíslega. Stjórnin. Aðalfundur Körfuknattléiks deildar Vals veröur haldinn aö Hlíöarenda, fimmtud. 27. 4. kl. 20. Venjuleg aöalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin. v EF ÞAÐ ER FRÉTT- i^PNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í \L.morgunblaðinu Aðalfundur Fjárfestingafélags íslands h.f., áriö 1978 veröúr haldinn aö Hótel Sögu, Lækjar- hvammi, fimmtudaginn 11. maí n.k. kl. 17. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Aögöngumiöar og atkvæöaseölar veröa afhentir á skrifstofu Fjárfestingafélagsins að Grendásvegi 13, 3 síöustu virka daga fyrir fundardag, og til hádegis á fimmtudag 11. maí. Garðeigendur Tökum aö okkur standsetningu lóða, hellulagnir, hleöslur, þakningu, plöntun og önnur garöyrkjustörf. Blómabúöin Dögg, símar 33978 og 53848. Fuglahundar 2—3 hvolpar mjög efnilegir af úrvals veiöihundakyni, veröa seldir, ef góöir húsbændur finnast handa þeim. Þeir aöilar, sem eru í aöstööu til aö þjálfa veiðihunda og hafa útivist og sportveiðar, sem aöaláhugamál eru vinsamlegast beðnir aö leggja nafn sitt og símanúmer inn á afgr. Mbl. merkt: „Þaö bezta — 3609“, sem allra fyrst. — Minning Einar Framhald af bls. 18 ekki öllum gefin. Guð blessi þeim ógengin spor. Frá okkur streyma hlýjar kveðjur samúðar og trega. Starfsfólk Leikfélags Vestmannaeyja. í dag verður vinur minn Einar Þorsteinsson rakarameistari til moldar borinn. Það var einn af síðustu vinnudögum fyrir páska að ég kom á rakarastofuna til hans þar sem hann vann hér í borg. Ég sá samstundis að hann var sár- þjáður. Þetta kom mér að vísu ekki á óvart, því að Einar var búinn að vera meir og minna veikur lang- tímum saman og því næsta furðu- legt að hann skyldi mæta til vinnu. A sjúkrahús og til vinnu aftur var orðinn fastur liður á lífsbraut hans nú síðustu- ár. Já, standa meðan stætt var hans boðorð, það var líka ósvikið haldið. Þvílíkur hetjuskapur. Mín fáu orð gefa hér hvergi nærri næga lýsingu. Ég heilsaði glaðlega eins og ég var vanur en hugsaði mig um hvort ég ætti að fara í stólinn. Vinurinn tók af mér ómakið og sagði strax að ég þyrfti að fá klippingu fyrir páska. Ég lét hann ráða en sagði sem svo að ekkert lægi á og hann skyldi bara taka þetta rólega. Ekki stóð á svari. „Ætli ég dundi ekki við þetta eins og venjulega." Ekki vantaði hið netta og góða handbragð þótt svona stæði á. Einar var frábær í sínu fagi. Ósjálfrátt kviknaði sá grunur minn að þetta væri okkar síðsti fundur. Hann lét líka þau orð falla að líklega gæti ekkert orðið úr þeim ráðagerðum sem við töluðum um fyrir nokkrum mán- uðum. Það stóðst. Ég kynntist Einari Þorsteins- syni fyrst í Vestmannaeyjum þegar ég var þar á vegum leik- félags staðarins. Hann var einn af máttarstoðum leikfélagsins i Eyj- um, og hafði sjálfur brennandi áhuga fyrir starfseminni. Einar skildi eftir sig margan skemmti- legan og minnistæðan karakter. Hann gerði sér far um að kynna sér vel hlutverkið áður en hann fór að vinna það, fór sér hægt, byrjaði á byrjuninni, en skilaði hlutverk- inu. Það var ánægjulegt að vinna með honum. Alúð, vandvirkni og samviskusemi einkenndi hans vinnubrögð, hvort sem var í leik eða öðru starfi. Þrátt fyrir mikið starf á rakara- stofunni sinni átti hann annað áhugamál. Honum þótti gaman að dusta af sér rykið og ganga inn í Dal og slá nokkur högg með kylfunum sínum. Þar hitti hann líka fyrir vini sína og viðskiptavini hressa og káta. Einu sinni fór ég með honum mér til skemmtunar í besta veðri og brá'á leik. Eftir að hafa farið einn hring eða svo mæti ég mínum manni sem hafði staðið sig vel. Hann leit á mig og spurði: „Hvar eru allar kúlurnar þínar?" „Þær eru í tjörninni," sagði ég vandræðalega. „Það stendur heima, það eru aðeins utanbæjar- menn sm slá þær þangað." Ég komst ekki hjá að sjá brosið hans. Slík var kímnigáfa hans sem hann notaði aðeins á réttum tíma og á réttum stað. Ég átti margar ánægjulegar stundir með honum utan leikhúss- ins á hans ágæta heimili í Vestmannaeyjum. Endurminning- in verður ekki frá okkur mönnun- um tekin og seint mun minningin gleymast um þennan góða dreng. Fjölskyldu hans votta ég samúð mína. Ilöskuldur Skagfjörð Fáein kveðjuorð um góðan dreng, vin og mág. Um uppruna hans og æskuár læt ég aðra um fjalla. Nú eru hart nær þrjátíu og fimm ár síðan okkar kynni hófust, þá vorum við ung og lífið lék við okkur. Ekki kannski eins og lifið leikur við ungmenni nú til dags, en við tókum því eins og við vorum menn til og reyndum að nýta þau tækifæri sem gáfust og þar stóð Einar sig með afbrigðum vel. Arið 1946 gengur hann að eiga systur mína Henny Dagnýju, allt lék í lyndi. Tveim árum síðar býðst þeim tækifæri til að flytjast til Vestmannaeyja og þar með að hefja sjálfstæðan atvinnurekstur sem var 'þeirra draumur. Við systur sem örlög höfðu aldrei aðskilið nema stuttan tíma í senn urðum nú að skilja en hugguðum okkur við að þetta yrði nú ekki nema fáein ár, skipti ekki máli enda tíðförult milli lands og Eyja. Dvöl þeirra í Vestmannaeyjum varð í tuttugu og fimm ár, og á þessum mörgu árum skeði margt. Ungu hjónin komu sér vel fyrir og allt var fullkomnað þegar þau eftir tíu ára hjúskap eignuðust sitt fyrsta barn, soninn Pál Heimi og svo þrem árum síðan dótturina Arnfríði. Þeirra hamingja var fullkomin. Hafi óskabörn fæðst á íslandi leyfi ég mér að fullyrða að þessi börn eru í þeirra hópi. Einar og Henny fluttu til Vestmannaeyja meö lítinn farang- ur og léttan sjóð, en þegar börnin voru komin var unnið af tvöföldu kappi, byggt hús og allt miðaðist við þarfir barnanna þeirra, sem sagt þetta var fullkomið. En slík ánægja og yndi gat ekki varað lengi. Fyrir rúmum sex árum fékk Einar sinn dóm, hann þessi stóri og sterki maður var kominn með sjúkdóminn ægilega, krabbamein. Litlu síðar verður svo eldgosið í Heimaey. Einar og Henny flúðu til lands eins og aðrir heimamenn, snauðari að veraldlegum auð en þegar þau komu, en að öðru leyti ríkari; nú voru börnin tvö með. Nú var að standa sig, finna sér samastað og búa um sig á nýjan leik. Þetta hefur tekist vonum framar. Mér eru efst í huga þessi síðustu ár, aldrei heyrðist víl eða vol hjá þeim; hvern einasta dag sem Einar gat á annað borð staðið í fæturna lét hann sig ekki vanta til vinnu. Það var gott að koma á heimili þeirra, aldrei var kvartað eða látiö sem ekkert væri að. Þegar ég hrjáð og lítilsmegnug fór að finna systur mína og börnin, langaði að hugga en vantaði orð, komst ég að því að þessi kærleiksríki faðir og vernd- ari hafði leitt börnin í allan sannleikann og bi'iið þau undir hvernig best væri að bregðast við þegar að endalokum kæmi. Þá hugsaði ég, að þennan mann hefði ég aldrei þekkt að fullu, siíkt karlmenni væri vandfundið í lífi venjulegs manns. Megi sá guð sem þau trúa á styðja þau þrjú sem eftir lifa. Öllum vandamönnum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Drottinn minn gef þú dánum ró, hinum líkn sem lifa. Ólöf Sigurjónsdóttir. + raöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi, JÓHANNES LAXDAL, lést aö Hrafnistu, 24. apríl s.l. Guörún Laxdal, Magnús Arnfinsson, Guðmundur Laxdal, Sigríöur Siguröardóttir Sesselja Laxdal, Höröur S. Guðmundsson. barnabarna og barnabarnabarna. Eiginkona mín og móöir okkar, LÁRA HÓLM, frá Eskifirði, Hjaröarholti 15, Akranesi, lézt á Sjúkrahúsi Akraness 23. apríl. Jaröarförin fer fram frá Akraneskrikju 29. apríl kl. 2 e.h. Þeir sem vildu mlnnast hennar láti Sjúkrahús Akraness njóta þess. Hallur Gunnalugsson og börn. + Hjartkær eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, GÍSLI JÓN EGILSSON, kaupmaöur, Merkurgötu 11, Hafnarfiröi lést 22. apríl. Sigrún Þorleifsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. + Eiginmaður minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, GUNNAR SVANHÓLM JÚLÍUSSON, Hjaltabakka 30, veröur jarðsunginn frá Bústaöarkirkju, fimmtudaginn 27. apríl kl. 1.30. Rósa Kolbeinsdóttir, Guörún Gunnarsdóttir, Ásgeir Sigurösson, Kolbrún Gunnarsdóttir, Birna Gunnarsdóttir, og barnabörn. + Inniiegar þakkir færum viö öllum, sem vottuöu okkur samúö og hlýhug viö andlát og útför elskulega drengsins okkar, BJÖRNS JÓSEFS GUNNLAUGSSONAR, Stekkjarflötum, Guö blessi ykkur öll, Guörún Kristjánsdóttir, Gunnlaugur Halldórsson, dœtur og tengdasynir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.