Morgunblaðið - 26.04.1978, Síða 28

Morgunblaðið - 26.04.1978, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 1978 KAVFINÚ \\ 'P Asni seturðu verið, — ekki sumartízkan — heldur skótízk- BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Er sjálfsagt að spila til baka lit makkers í varnarþraut vikunn- ar? Suður gaf og norður — suður á hættu. .. , Norður S. G6 H. ÁD54 »p 52 Austur L D10732 832 H. G92 T. D1086 L. Á98 Suður Vestur Norður Austur 1 T 1 S 2 L pass 3 G Allir pass Eftir nokkra umhugsun spilar vestur úr hjartaþristi. Lágt frá borðinu, við fáum á gosann en sagnhafi lætur sjöið. Og nú þarf að finna besta framhaldið. Áður en við spilum spaða, lit makkers, skulum viö líta nánar á stöðuna. Suður á greinilega ekki háspil í hjarta og mest 12 punkta í láglitunum, talið 1, 2, 3, 4. Og til að stökkva í þrjú grönd við tveim laufum verðum við að ætla honum minnst tvö háspil í spaða. En það þýöir, að hann stöðvar litinn tvisvar. Að þessu loknu getum við talið tökuslagi sagnhafa. Hann virðist munu fá tvo á spaða, tvo á hjarta, minnst tvo á tígul og fjóra slagi á lauf. Samtals tíu slagi ef við spilum spaða. Að vísu dugir að skipta núna í spaða ef suður á ÁD tvíspil. En það má afskrifa þann möguleika því þá hefði hann ekki látið lágt hjarta frá borðinu í upphafi. Þannig er orðið ljóst, að ekki dugir að búa til slagi á hendi makkers. Við verðum að koma í veg fyrir að sagnhafi nái að fría laufin. Til þess verður vestur að eiga tígul- gosa og fjórlit í hjarta. Og suður má ekki eiga fleiri en þrjú lauf. Þá getum við rofið samband hans við blindan með því að spila hjarta. Vestur S. K10974 H. K863 T- G7 Suður L- 64 s. ÁD5 * H. 107 T. K943 L. KG5 Spaðaspil frá okkur hefði sagn-- hafi tekið með ás og ráðist á laufið. en eftir að við höfum uppgötvað og spilað hjartánu á hann sér ekki viðreisnar von. Fær aðeins tvo slagi á lauf og átta í allt. Hann sagði fyrstu orðin í gær, sagði þeim hvar peningarnir voru faldir! COSPER 7687 Ég hef unnið í happdrættinu — en 10.000 krónur í stað milljón króna vinningsins! Mikil gróska í sönglífinu Tilefni bréfsins hér á eftir er mikil gróska í sönglífi víða um landið, að því er bréfritari segir, og að hver kórinn á fætur öðrum hafi haldið tónleika að undanförnu og sé það verðugt að minnast á það og þakka þess konar tónleikahald: „Ekki hef ég nú áður þjakað lesendur eða umsjónarmenn les- endadálka með skrifum, en ætla að leyfa mér að gera það nú. Tilefnið er ekki margbrotið, heldur aðeins að minnast á það að um skeið hefur manni virzt vera mjög mikil gróska í öllu sönglífi á Islandi. Fjölmargir kórar hafa lagt land undir fót og kvatt fólk saman til. að hlýða á söng sinn, aðrir hafa haldið tónleika í sinni heimabyggð og nú síðast voru samankomnir í Reykjavík allmargir kórar og sungu saman á kóramóti. Það var mjög áhugavert tiltæki og reyndar ljómandi gaman að því, það er ekki svo oft sem margir kórar taka sig til og syngja saman eða halda sameiginlega tónleika. Ekki varð annað séð af skrifum tónlistargagnrýnenda blaðanna en að þeir væru svona í heildina ánægðir með flutning viðfangsefn- anna er kórarnir völdu sér, enda má segja að hér sé á ferðinni merkilegt framtak, kórar áhuga- manna út um allt land, er starfa við misjöfn skilyrði og misjafna getu hreinlega. En allir sýndu kórarnir hvað í þeim býr og það er ekkert sem þeir þurfa að skamm- ast sín fyrir. Þegar þessum málum er aðeins velt fyrir sér er það e.t.v. ekkert undarlegt að kórar frá íslandi hafi náð langt í alls kyns mótum erlendis, t.d. bæði kór Öldutúns- skóla og kór Menntaskólans við Hamrahlíð, og þetta sýnir að við íslendingar eigum fyrirtaks söng- fólki á að skipa, sem getur náð langt undir góðri leiðsögn. Þá má einnig koma að því, og eiginlega í framhaldi af þætti þeirra ágætu söngkvenna í sjón- varpinu um daginn Guðrúnar Símonar og Þuríðar Pálsdóttur, er þær sögðu að ekkert væri gert fyrir söngvara. Vildu þær halda fram að fremur væri oft Ieitað erlendis eftir söngvurum í ýmis verk er flutt væru hérlendis og áttu þar sennilega við bæði Þjóðleikhús og Sinfóníuhljóm- sveit. Má vera að þetta sé rétt, ekki skal ég rengja þær um það og því finnst mér ástæða til að taka undir það með þeim að reynt verði eins og hægt er að nota þá íslenzku söngvara sem við eigum til þessara verkefna, en ekki eyða kröftum og verðmætum í að fá hingað erlend stórmenni, sem eru ekki endilega MAÐURINN A BEKKNUM Framhaldssaya eftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir íslenzkaói 28 eiginmaður hennar kæmi út af salerninu. — í þínum sporum myndi ég ekki síður einbcita mér að fólkinu á bekkjunum en búðun- um hér í kring. Hann mundi vel að hver bekkur hafði sfna föstu kúnna ef svo mátti orða það. Og þeir koma og tylla sér á bekkinn sinn á ákveðnum tímum dags- ins. Þeir sem framhjá ganga veita þeim ekki athygli. Sjald- gæft er aö maöur gefi þeim gaum sem á bekkjunum sitja. En þeir sem sitja á bekkjunum þekkja hver annan. Ilann minntist þess að kona hans hafði einu sinni af tilviijun tyllt sér. niður á bekk í Place d'Anvers og farið að tala við lítinn dreng sem sat þar. Þannig hafði hún af tiiviljun komizt á slóð morðingja? — Viljið þér ég láti til skarar skrfða í hverfinu og geri allsherjarleit? — Nei, fyrir alla muni ekki. Þú skalt bara setjast á bekk og skrafa við þá sem þar sitja. — Já, húsbóndi, sagði Neveau og andvarpaði og var ekki sérlega upprifinn. Hann hefði þrátt fyrir allt kosið að halda göngunni áfram. Hann hafði heldur ekki hug- mynd um að Maigret dauðöf- undaði hann og hefði viljað vera í hans sporum. 4. kapituli Jarðarför í rigningu Daginn eítir — miðvikudag — þurfti Maigret að vitna fyrir rétti og eyddi drjúgum tíma dagsins með því að bíða í vitnaherberginu. Enginn hafði haft hugsun á að setja hitann á, svo að hann skalf af kulda. Loks var þó hitinn settur á og tíu mínútum síðar var orðið alltof heitt. Sá sem var fyrir rétti var Rene nokkur Lecoer, sem hafði drepið frænku sína með því að berja hana í höfuðið með flösku. Hann var ekki nema rúmlega tvítugur, stcrkur sem sveitanaut og hafði barnaaldlit. Maigret var niðurdrcginn þegar hann kom út. Ungur lögfræðingur sem reyndi að vinna sig í álit með því að vera ágengur og helzt dónalegur réðst mcð offorsi á hvert vitnið á fætur öðru. Þegar röðin kom að Maigrct reyndi hann að fá fram þá niðurstöðu að ákærði hefði ekki játað fyrr en honum hafði verið misþyrmt á Quai des Orfevres, sem var auðvitað rakin vitleysa. — Vill vitnið gcra svo vel að skýra okkur írá því hversu lengi yfirheyrslan stóð yfir skjólstæðingi mínum? Lögregluforinginn vissi að þessi spuming myndi koma. — Sautján klukkutíma. — Án þess að fá nokkuð að borða? — Lecœr afþakkaði smurt brauð og samlokur sem honum var boðið. Lögfræðingurinn leit þýð- ingarmiklu augnaráði á dómar ana eins og hann vildi sagt hafa> — Þarna sjáið þið! Sautján klukkutímar og án þess að fá vott né þurrt! Hafði Maigret sjálfur fengið nokkuð að borða nema samlok- ur f þessa sautján klukkutíma? Og ekki var það hann sem hafði drepið frænku sína! — Viðurkennir vitnið að hann hafi þann 7. marz klukk- an þrjú um nóttina slegið ákærða án þess að nein ástæða væri til og þrátt fyrir það að ákærði var í handjárnum? - Nei. — Neitar vitnið að hafa slegið hann? — Ég gaf honum löðrung rétt eins og ég hefði gert við son minn. Aðferð lögíræðingsins var vitlaus. Ifann átti ekki að standa að málinu á þcnnan hátt. En hann hafði aðeins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.