Morgunblaðið - 26.04.1978, Side 29
i
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1978
29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10 — 11
FRA MANUDEGI
rw i/jswntni ~ '(j! r
mun betri en þeir íglenzku söngv-
arar sem viö eigum í dag.
Mér skildist einnig á þeim
stöllum í sjónvarpinu að þetta
hefði alltaf verið svona „þetta bara
er svona og það er ekkert við þessu
að gera“, sögðu þær. Vissulega er
það slæmt, og hér þarf að verða
breyting á, en hún gerist náttúr-
lega ekki á einum degi og ekki af
einum manni eða áðila. Það þarf
að vinna að því að breyta eitthvað
þessum viðhorfum og taka upp
nýja stefnu í þessum málum ef
verða má til framdráttar íslenzk-
um söngvurum, sú kynslóð sem nú
hefur starfað í 20—30 ár fer
bráðum að víkja fyrir þeim sem
eru nú í uppsiglingu og af þeirra
brautryðjendastörfum má margt
læra. Þeir hafa búið í haginn og
aflað dýrmætrar reynslu sem
eftirkomendur geta fengið í vegar-
nesti.
Að lokum vil ég þakka fyrir
skemmtilegan þátt hjá sjónvarp-
inu og eiga stjórnandi, söngkon-
urnar og allir sem þar komu
nálægt þakkir skilið fyrir góða
skemmtun. Söngaödáandi."
Þessir hringdu . . .
• Ríkin f jögur
Sveinn Sveinsson.
„Kvennaríki, Snorrabrautar-
ríki, Lindargöturíki og Skuldarík-
ið. Mig hefur lengi undrað að
þessum fjórum ríkjum hefur lengi
verið blandað saman. Svo ólík sem
þau þó eru. Skuldaríkið er að mínu
viti íslenzka þjóðarbúið og er því
annað ríki en hin þrjú, þótt tengsli
séu þar á milli. Við þegnarnir
gerum kröfur til þjóðarbúsins æði
oft og nokkuð ósvífnar. En það
virðist sem almenningur álíti
skuldaríkið sem eitthvert einstakl-
ingsfyrirtæki sem alltaf sé að
plokka okkur með ýmiss konar
svikabralli. Ég hef oft heyrt fólk
segja að bannsett ríkið sé ekki of
gott til að borga þetta eða hitt, en
við gerum okkur ekki ljóst að við
erum að kalla yfir okkur meiri
útgjöld þegar við erum að gera
stórfelldar kröfur. Ég vil nafn-
breytingu og aðskilja ríkin og
nefna Skuldaríki þjóðarbú eins og
það raunverulega er. Myndu þá
ekki kröfurnar minnka? Þetta er
tillaga mín og gaman verður að
vita hvernig henni verður tekið.
Við sjáum til. Ekki meira um það
að sinni, kannski vill einhver ræða
þetta frekar."
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti í Leipzig
í A-Þýzkalandi í fyrra kom þessi
staða upp í skák Á-Þjóðverjanna
Möhrings og Knaaks. sem hafði
svart og átti leik.
• Merkilegt starf
„Þegar ég las greinina heilsu-
samlegur matur beint úr ríki
náttúrunnar, í Dagblaðinu 14.4. ‘78
minntist ég þess að ég ætlaði fyrir
löngu að minnast á sams konar
matargerð framkvæmda af frú
Pálínu Kjartansdóttur húsmæðra-
kennara, matráðskonu á Heilsu-
hæli Náttúrulækningafélagsins í
Hveragerði. Ég undirritaður hefi
fjórum sinnum verið'á því heilsu-
hæli frá tveimur vikum upp í sex
vikur í hvert skipti og hefi ég ekki
getað annað en dáðst að hæfileik-
um Pálínu til að laga góðan og
ljúffengan mat eingöngu úr jurta-
ríkinu. Ég vil fyrir mitt leyti
heimfæra slíka matargerð undir
list. Ég tala nú ekki um framburð-
inn sem lokkar mann og laðar að
matnum. Það er dásamlegt að
koma að sunnudagsborði frú
Pálínu fagurlega skreyttu og mjög
girnilegu á allan máta, svo að
maður nú ekki tali um hollustu
slíks matar. Mér virðist að frú
Pálína Kjartansdóttir sé verðug
æðsta heiðursmerki íslenzka ríkis-
ins fyrir starf sitt svo frábært sem
það nú er. Tugir þúsunda inn-
lendra og útlendra hafa notið
þessara ljúffengu og hollu rétta
hennar og ekki er annað hægt en
að dást að því á allan hátt. Margt
fólk sem verið hefur á Heilsuhæl-
inu undrast hvernig henni hefur
tekist að laga svo góða fæðu úr
þessum efnum. Ég þakka henni af
alhug.
Einnig þakka ég yfirlækni,
Birni Jónssyni, fyrrverandi for-
stjóra, Árna Ásbjarnarsyni, yfir-
hjúkrunarkonu Guðrúnu Helga-
dóttur og frú Guðrúnu Magnús-
dóttur, frúnum sem hafa verið á
símanum, og öllu starfsliði. Frá
mínu sjónarmiði ætti að heiðra
allt þetta fólk því það hefur unnið
alþjóð til heilla; landsmenn allir
sem aðstöðu hafið til, kynnið
ykkur störf þessa fólks og metið að
verðleikum.
HOGNI HREKKVÍSI
J
lí
S
... er mættur!
23. ... Re4! og hvítur gafst upp.
Eftir 24. Dc8+ - Kh7 25. fxe4 -
Dxb5 falla peð háns á drottning-
arvæng. Ungverjinn Tompa
sigraði á mótinu, hlaut 7 v. af 10
mögulegum. Næstir komu heima-
mennirnir Ilennings og Knaak
með 6‘/2 v.
83? SlGeA V/öGA S iiLVtMU
MANNELDISFRÆÐIi
Vegna mjög mikillar eftirspurnar hefjast ný námskeiö í
manneldisfræöi í næstu viku.
NÁMSKEIÐIÐ FJALLAR MEDAL ANNARS UM EFTIRFAR-
ANDI ATRIÐI:
• Grundvallaratriöi næringarfræöi.
• Innkaup, vörulýsingar, auglýsingar.
• Ráöleggingar sem heilbrigöisyfirvöld margra pjóöa hafa birt um æskilegar
breytingar á mataræöi, til aö fyrirbyggja sjúkdóma.
• Fæöuval, geró matseóla, matreiósluaóferóir (sýnikennsla) meó tilliti til áóurnefndra
ráölegginga.
• Mismunandi framreiósluaöferöir, dúka og skreyta borð fyrir mismunandi tækifæri.
• Megrunaraóferóir. Sérnámskeió. Kynnist pvi sem nióurstöður nýjustu vísindalegra
rannsókna hafa aó segja um offitu og megrunaraóferóir.
MUNIÐ aó varanlegur árangur næst einungis ef grundvallarpekking á vandamálinu og
meóferð pess er fyrir hendi. Rangar megrunaraóferóir eru mjög skaðlegar og geta
valdió varanlegu heilsutjóni.
VEIZT ÞÚ AÐ GÓÐ NÆRING HEFUR ÁHRIF Á:
• Andlegan, líkamlegan og félagslegan proska allt frá frumbernsku.
• Mótstöóuafl gegn sjúkdómum og andlegu álagi.
• Líkamspyngd pína,
AÐEINS RÉTT NÆRDUR EINSTAKLINGUR GETUR
VÆNST BEZTA ÁRANGURS í NÁMI, LEIK OG STARFI.
Allar nán*.ri upplýsingar eru gefnar í síma 74204 kl. 9—12 f.h. og eftir kl. 7 á kvöldin.
Kristrún Jóhannsdóttir, manneldisfræóingur.
Eigum fyrirliggjandi frá
DUALMATIC
1
í Bandaríkjunum:
Driflokur — Stýrisdempara — Hjólbogahlífar —
Tilsniöin teppi á gólf — Varahjóls- og bensínbrúsa-
grindur — Bensínbrúsa — Hettur yfir bensínbrúsa og
varahjól — Blæjuhús á Willysjeppa, hvít og svört.
Getum útvegaö blæjuhús á flestar geröir annarra
fjögradrifabíla.
Póstsendum.
Einkaumboö á íslandi:
VELVANGUR HF
Hamraborg 7, Kópavogi
Símar 42233 — 42257
EF ÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
[ w AUGLÝSINGA- ÍMM FR*
22480