Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 v 41 Guðmundur Egilsson: Guðsþjónusta á táknmáli í Garðakirkju á Álftanesi skrifað til áréttingar ummælum á fundi í samstarfsnefnd iðnaðar- ráðuneytisins og Náttúruverndar- ráðs 3. mars 1975. Var þessi fundur fyrsta tækifærið, sem Orkustofnun gafst til að láta í ljós áhyggjur sínar um framkvæmda- áform Kröflunefndar, en túrbín- urnar voru pantaðar 7. febrúar? Það eitt veit ég, að ég var á þessum fundi og um þetta leyti nýbúinn að frétta um túrbínukaupin. Hellti ég úr skálum reiði minnar yfir jafnhróplega heimskum vinnu- brögðum að gana út í framkvæmd- ir, þegar vitneskjan um jarðhita- svæðið var allsendis ófullnægj- andi. Orkumálastjóri tók í sama streng og ég, en dró nokkuð úr minni hörðu gagnrýni að mér fannst. Svo var marsbréfið skrif- að. Getur það verið, að einhverjir Orkustofnunarmenn hafi vitað af undirbúningi Kröflunefndar og framkvæmdaáformum og ekki komið á framfæri nauðsynlegum upplýsingum um það, hvernig undirbúa skuli háhitasvæði til virkjunar, kannski gefið í skyn, að ekkert væri því til fyrirstöðu að leggja í framkvæmdir á grundvelli þeirra niðurstaðna, sem fyrir lág um jarðhitasvæðið á þessum tíma. Ef svo er, þarf það að upplýsast. Hverjir kunnu ekki til verka? Sú skoðun hefur skýrlega komið í ljós hjá einum Kröflunefnefndar- manna, Ingvari Gíslasyni, að mistökin við Kröflu séu Orku- stofnun að kenna. Hún hafi ekki kunnað til verka. Bortæknikunn- áttunni er áfátt. Nú er þess að gæta, að þessi ágæti maður hefur ekki til að bera þá faglegu kunnáttu, sem gerir honum kleyft að dæma sjálfur um kunnáttu Orkustofnunar í þessum efnum. Hans vitneskja hlýtur að vera ættuð annars staðar frá. Það er ekki rétt, að „gufuskortur“ orsak- ist af bortæknilegum vandamál- um. Þar er fyrst og fremst „um að kenna" fremur lélegri vatns- leiðni jarðlaganna og útfellingum úr jarðhitavatninu, sem stífla borholurnar. Útfellingarnar eru líklega alvarlegasta vandamálið við gufuöflunina. Ég fullyrði það, að orsök ófaranna við Kröflu stafar af því, að Kröflunefnd kunni ekki til verka. Þegar þess er gætt, að ráðgjöf um virkjunar- framkvæmdir hlýtur að fela í sér mat á því, hvort forsendur fyrir ákvörðun séu fullnægjandi verður einnig að segjast í því ljósi, að ráðgjafaverkfræðingar Kröflu- nefndar hafi ekki heldur kunnað til verka. Ég get skilið, að ráðgjöf sé heilsteypt, ef hún tekur t.d. til uppsteypingar á húsi með meiru, en lætur sig ekki varða, hvort steypt sé á sandi eða bjargi. Skilningur á því hvernig haga skuli verkum við virkjun jarðhita er ekki bundinn við einhverja fagkunnáttu í raunvísindum eða verkfræði. Því getur nánast hver sem er tileinkað sér þá kunnáttu. Til eru ýmsar prentaðar heimildir um þessi mál. Held ég, að Kröflu- nefnd hefði farnast betur, ef hún hefði kynnt sér þessar heimildir og lagt meiri áherslu á vandvirkni og minni á framkvæmdagleði en reynslan sýnir. Verkfræðingar og jarðvísindamenn Ef til vill hefur það ekki komið algjörlega í ljós á opinberum vettvangi, að hópar verkfræðinga og jarðvísindamanna hafa oft deilt sín á milli um vinnubrögð við Kröfluvirkjun. I þessu sambandi væri þó líklega réttara að tala um rannsóknarmenn og framkvæmd- armenn. Þessir tveir hópar skiljast fyrst og fremst að á því, að hlutverk rannsóknarmanna við nýtingu jarðhita er að afla upplýs- inga til að undirbyggja þær forsendur, sem hönnun og ákvörð- un um virkjun byggir m.a. annars á. Framkvæmdarmennirnir hafa síðan það hlutverk 'að annast hönnun og athugun á fjárhagslegri hlið fyrirtækisins, og eru að sjálfsögðu í lausu lofti, byggi þeir ekki á þekktum forsendum. Nú er það svo, að frumáætlanir eru oft gerðar, þar sem „giskað" er á ýmsar forsendur með það fyrir augum að fá „á tilfinninguna", ætti maður að segja, hagkvæmni þess að reisa eitthvert mannvirki. Jákvæð niðurstaða slíkrar frum- áætlunar gefur tilefni til þess eins að Ieggja út í frekari vinnu og kostnað til að afla raunhæfra forsendna. Frumáætlanir af þessu tagi voru gerðar vegna hugsan- legrar virkjunar jarðgufu við Námafjall eða Kröflu. Það er hér, sem sorgarsagan hefst við svo marga mannvirkjagerðina á ís- landi, Kröfluvirkjun þar með talin. Það. er ekki fyrr búið að giska á einhverja forsenduna í frumáætl- un, en sú ágiskun er meðhöndluð sem staðreynd af framkvæmdar- mönnum. Þá er næsta stigið hönnun. Miðað við þessi vinnu- brögð eru rannsóknir og rannsókn- armenn óþarfir. Það þarf ekki að afla upplýsinga með rannsóknum. Það má bara giska á hlutina. Ábyrgð ráðgjafa Þegar slíkar ágiskanir eru vafð- ar inn í viðamiklar skýrslur, sem innihalda áætlun um hagkvæmni eru stjórnunarmenn vissulega oft narraðir út í ákvarðanatökur um framkvæmdir, sem ekki eru nægi- lega grundvallaðar. Þegar svona á sér stað, er naumast hægt að sakfella stjórnmálamenn, heldur Framhald á bls. 62. Það er sannarlega fátítt að sjá guðsþjónustu túlkaða á táknmál. Sunnudaginn 30. apríl á almenn- um bænadegi kirkjunnar efndi séra Bragi Friðriksson, sóknar- prestur í Garðahreppi til messu fyrir heyrnarlausa og sóknarbörn sín, þar sem einnig voru skírðir tveir ungir Islendingar. Fyrir atbeina Hallgríms Sæmundssonar, yfirkennara, sem er einn af stjórnarmönnum Foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufra, voru fengnir tveir félagar úr Félagi heyrnarlausra sem túlkuðu. Ungur starfsmaður kirkjunnar mælti falleg orð til kirkjugesta og bauð sérstaklega velkomna alla heyrnleysingja og skólastjóra Heyrnleysingjaskól- ans. Forspil annaðist Þorvaldur Björnsson og var það áhrifamikið. Hallgrímur Sæmundsson flutti bæn, sem Sigríður Skjaldberg túlkaði á táknmál til heyrn- leysingja sem voru í kirkjunni. Bæði fluttu þau mál sitt af blöðum og fylgdi táknmálið hinu talaða orði nokkuð vel. Kór kirkjunnar söng nokkra sálma. Berglind Stefánsdóttir túlkaði orð séra Braga. Ekki var þó öll stólræða prests túlkuð, en meginmál hennar var túlkað til heyrnleysingja. Ekki verður annað sagt en þessi fyrsta tilraun lofi góöu um framhald. í þessu tilfelli sem við sáum var hlutverk túlka að túlka fyrir áhorfendur, færa talmál yfir í sýnilegt mál. Þó hefðu túlkar mátt nota smæstu táknin meira, til að tengja táknmálið í samfelldar setningar og hefði það skapað meira, samhengi, það hefði verið fallegra. Að öðru leyti var þetta skilmerkilega sett fram. Skólakór Garðabæjar söng nokkra sálma, þar á meðal negra- sálma. Alltof sjaldan fær maður að heyra í vel æfðum barnakór og var þetta eitt það áhrifamesta í athöfninni fyrir heyrendur og mættu kirkjunnar menn vafalaust hafa það til athugunar þegar kirkjusókn gesta er í lágmarki. Stjórnandi kórsins er Guðfinna Dóra Ólafsdóttir. Ekki þurfti þarna að kvarta um slæma kirkjusókn, en Garðakirkja var þéttsetin og öllu tjaldað, sem til var af aukastólum og margir urðu að standa meðan á messu stóð. Bænagjörð var flutt. „Ó, faðir gjör mig lítið ljós" sungið og flutt á táknmáli af börnum Heyrna- leysingjaskólans undir stjórn Guðlaugar Snorradóttur og var það fríður hópur ungmenna sem fyllti kórgólfið og var það einn af hápunktum stemningar og áhrifa- mikil sjón. Almenn bænagjörð flutt af fjórum þátttakendum og presti var einnig túlkuð á táknmál. í tilefni þessa viðburðar þykir vel hæfa að fara nokkrum orðum um táknmálið. Tjáning flestra manna er rígbundin við orðið og tugir ára eru síðan lestrar- og skriftargerð var skylda í uppeldi hvers íslendings. En ritmál og talmál er aðeins eitt af tjáningar- formum mannsins (sem notað er til að flytja þekkingu frá manni til manns), t.d. eiga heyrnleysingjar sitt mál sem er táknmálið og við sáum og fundum áhrif þess og mátt í Garðakirkju. Hefur það stundum verið kallað móðurmál heyrnleysingjans. Málið nota þeir innbyrðis þegar þeir tala saman. Ekki hefur hinum lærðustu mönn- um, sem fengist hafa við kennslu heyrnarlausra alltaf komið saman um, hvað væri best til árangurs í kennslu heyrnarlausra, og hefur það verið skoðun sumra manna, að ef táknmálið væri kennt í auknum mæli truflaði það talkennslu og málþroska nemenda. Nú á seinni árum hefur „total kommunika- sjon“ eða alhliða tjáning verið tekin upp í mörgum skólum erlendis og þykir gefast vel, þar sem það eykur orðaforða og málskilning. En af hverju er táknmál og fingramál notað þegar túlkað er? Táknmálið hefuryfir- burði, það sést langt að og er eina tjáningarformið sem kemur til greina þegar túka þarf á ráðstefn- um, í kirkjum eða félagsfundum. Ef flytjandinn er heyrandi maður notar hann samtímis tal og tákn, sem hann tengir fingramáli, það er að segja hann talar um leið og hann táknar. Geta þeir sem heyra þá notið um leið. Gildir þetta þegar tilheyrendur eru bæði heyr- andi og heyrnarlausir. Þetta krefst mikillar einbeitningar túlks og er skemmst að minnst komu danska heyrnleysingjaráðgjafans Agnete Mundeso í Norræna húsið eða finnska prestsins Eino Savisaari sem fiutti guðsþjónustu á tákn- máli í Grensásskirkju og var öllum sem þar voru ógleymanleg. Séra Þorsteinn Stefánsson Það getur kostað mikið lýðræðið þegar það fer yfir skynsamleg takmörk. Eru það ekki fleirum en mér sem finnst það jaðra við landráð að leita aðstoðar erlendra aðila í baráttu gegn velferðarmál- um þjóðarinnar. Eða hvað er okkur meiri nauðsyn en að snúið sér af braut skuldasöfnunar, Eino Savisaari er bróðir Runo Savisaari, en hann köm til íslands 1973 og hvatti til að Ísland gerðist aðili að Doves Nordiske Rád, sem er eins og nafnið bendir til, Norðurlandaráð heyrnleysingja. íslenskir heyrnleysingjar gerðust aðilar að ráðinu 1974. Bræður þessir eru börn heyrnarlausra foreldra og hafa unnið stórvirki í allri félagsuppbyggingu heyrn- leysingja í Finnlandi. Eino Savisaari er heyrnleysingjaprest- ur en Runo er vatnsaflsverkfræð- ingur og er þekktur maður í sinni starfsgrein víða um heim. Ollum sem eitthvað þekkja til þessara mála er ljóst að ekki verður notast við eitt tjáningar- form heldur allt sem hægt er til að auka orðaforða og málþroska heyrnleysingja. Ekkert má leggja niður, allt verður að nota. Fyrir tæpum þremur árum var stofnuð samstarfsnefnd Félags heyrnarlausra og Foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufra, sem hafði það meðal annars á stefnu- skrá sinni að gefa út Táknmálsbók og safna saman öllum táknum, sem teljast íslensk. Engu hafði þá verið haldið til haga um þessi mál og varð hér því ærið að starfa. Bókin hefur litið dagsins ljós og var Heyrnleysingjaskólanum af- hent 20 eintök. Svo vel hefur bókinni verið tekið að upplag hennar er þrotið og er von á endurútkomu bókarinnar eftir nokkra daga. Höfum við orðið þess vör að þeir sem samfara heyrnar- leysi búa við aðra fötlun geta notfært sér táknin í bókinni og er það okkur gleðiefni. Vonandi eiga bækur þessar eftir að koma kennurum og nemendum að gagni, ef tekið verður upp fjölbrautarnám við Heyrnleys- ingjaskólann. Félag heyrnarlausra er fámenn- ur félagsskapur, enda munu heyrnarlausir vera um 2% af þjóðinni eða rúmlega 200 manns. Þetta er samstæður hópur, sem stundum virðist vera Iítið samfél- ag, sem lítið blandast heyrandi. En svo vikið sé að athöfninni í Garðakirkju ber Hallgrími Sæmundssyni og séra Braga Frið- rikssyni mikil þökk fyrir lofsvert framtak svo og öllum sem þar stóðu að málum. Guðmundur Egilsson. falskri kaupgetu og hallarekstri þjóðarbúsins. Guðmundur J, Guðmundsson hefur sagt frá því að leitað hafi verið til erlendra aðila að setja afgreiðslubann á íslenzk skip í erlendum höfnum. Þetta mun þó hafa runnið út í sandinn, en innrætið segir til sín, og orðin eru til alls fyrst. Það i er vel ef rétt er að láglaunafólki í Alþýðusambandinu sé að skiljast það, að kauphækkan- ir, sem ekkert fjármagn stendur á bakvið, renna jafnharðan út í verðbólguna og eru því engin kjarabót. En þetta kemur nú brátt í ljós við tvennar kosningar, sem brátt eiga fram að fara. Mér virðist það fullreynt, að ekki er hægt að semja við launþegasam- tökin um hjöðnun verðbólgunnar, meðan kommúnistar eru þar alls ráðandi. Þar verður fleira til að koma svo sem breytt vinnulöggjöf, afnám verðlagsvísitölunnar, og fyllri skilningur á skaðsemi verðbólgunnar. Ég get vel fallist á tillögu Gylfa Þ. Gíslasonar um þjóðhagsvísitölu, þar sem kauptaxtar eru miðaðir við afkomu þjóðarbúsins. Svo er og góður vinnufriður höfuðskilyrði fyrir bættum þjóðarhag. Gjört í Reykjavík í maí, Þorsteinn Stefánsson. Þorsteinn Stefánsson: Enginn kann tveim- nr herrum að þjóna Við alþingiskosningar þær, sem fram fara fjórða hvert ár eða oftar, ef þing er rofið áður en kjörtímabili er lokið, kemur fram að kjörfylgi lýðræðisflokkanna er eitthvað yfir 80%, en kommúnista undir 20%. Maður skyldi því ætla að lýðræðisflokkarnir væru alls ráðandi um stjórn landsins. En hér er ekki allt sem sýnist. Fjöldi þess fólks, sem kýs lýðræðisflokk- ana, er flokksbundið í stéttarfélög- um launþegasamtakanna, en þar hafa kommúnistar búið svo um sig að heita má, að þeir séu þar alls ráðandi og segja þar fyrir verkum. Þeirra fyrirskipunum verða fé- lagsmenn að hlýða hvort sem þeim líkar betur eða verr. Afleiðingin er svo sú að þetta fólk er liðsmenn lýðræðisins þann litla tíma, sem þeir eru í kjörklefanum. Allt þar á milli eru þeir liðsmenn skemmd- arverkanna í þjóðfélaginu, og á móti stjórn þeirra flokka, sem það hafði stutt við kjörborðið. Með vinnulöggjöfinni er launa- mönnum gefið það vald í þjóðfé- laginu að þeir geta haldið ríkis- stjórninni í spennitreyju aðgerða- leysisins meðan launþegasam- bandið teflir refskák um bjarg- ræðisvegi þjóðarinnar. Verkfalls- rétturinn hefur verið gerður að fjórðu trúarsetningu þjóðarinnar, eða jafnvel einu trúarjátningu fjölda fólks. Menn deila ekki svo um lítilfjör- leg réttindi eða hagsmuni, svo ekki sé tiltækur dómstóll eða mats- nefnd til að leysa málið, ef annar hvor aðili óskar þess. En þegar deilt er um afkomu atvinnuveg- anna, lífæðar þjóðfélags, þá eiga hlutlausir fulltrúar réttvísinnar þar ekkert atkvæði, og heldur ekki ríkisstjórnin. I kaupdeilum er það hnefarétturinn sem skal ráða. Lengi hefur það viðgengist, að haldið hefur verið uppi falskri" kaupgetu með taprekstri atvinnu- veganna og skuldasöfnunum er- lendis og ríkisstyrkjum. Mest hefur þó kveðið ?ð þessu nú á líðandi áratug. Óðaverðbólgar blómstrar nú ár frá ári, eins og fífill í túni, og er nú svo komið að íslendingar eru að verða vinnu- þrælar erlends fjármagns, sem í vaxandi mæli tekur væna sneið af þjóðartekjunum í vaxtagreiðslur. Ríkisskuldirnar eru á takmörkum þess viðráðanlega, sem þýðir að þar má engu við bæta. Hvað verður svo um sjálfstæði þjóðarinnar, ef þessu heldur fram? Þeir eru ófáir milljarðarnir, eða öllu heldur milljarðatugirnir, sem þjóðin hefur tapað á verkföllum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.