Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 55 Z-an bíður næsta þings; SáttatUlagan kom ekki til atkvæða Lárus Gylfi Þ. Jónsson, Gíslason. Atta á mælendaskrá móðurmálsum ræðu, er þinglausnir fóru fram Á næstsíðasta og síðasta degi Alþingis komu stafsetn- ingarmál til umræðu. Snemma á þinginu báru allmargir þingmenn úr fjór- um þingflokkum fram til- lögu til þingsályktunar þess efnis, að sætzt yrði í hinni langvinnu Z-deilu með því að rita Z eingöngu í stofni orða. Lárus Jónsson (S) hafði fram- sögu fyrir áliti meirihluta alls- herjarnefndar, sem mælti með samþykkt tillögunnar, með þeirri breytingu, að Islenzkri málnefnd yrði falið að semja reglugerð á grundvelli þingsályktunarinnar. Magnús T. Olafsson (SV) flutti framsögu fyrir áliti minnihluta nefndarinnar, en hann lagði til að tillagan yrði afgreidd með rök- studdri dagskrá. M.T.Ó taldi að þeir, sem að þingsályktunartillögunni stæðu, væru ekki með flutningi hennar að vinna að málamiðlun. Málatilbún- ingur þeirra sýndi að slíkt vekti ekki fyrir þeim. Orðrétt sagði M.T.Ó.i „Það, sem þeir (þ.e. flutningsmenn tillögunnar, aths. Mbl.) vilja vinna með því að ónýta allar stafsetningarreglur frá 1974, hvort sem þeir eru þeim í sjálfu sér samþykkir eða ekki, þá sýna þeir, að þeir hyggjast vinna þarna heiftarverk, svo að ég segi ekki fólskuverk, til þess að ná sér niðri á þeim, sem stóðu að setningu stafsetningarreglnanna frá 1973.“ M.T.Ó. vitnaði sérstaklega í umsögn nýstofnaðra Samtaka móðurmálskennara, sem leggja höfuðáherzlu á að ekki sé hrapað að breytingum á núgildandi staf- setningarreglum, sem séu að festast í sessi. Ennfremur vitnaði M.T.Ó í undirskriftir móðurmáls- kennara á grunnskólastigi, sem hann sagði að kennarar í 7. og 9. bekk hefðu haft forgöngu um, en þar segir m.a. að við margan vanda sé að glíma í stafsetningar- kennslu. Gylfi Þ. Gíslason (A) taldi að málatilbúnaður í þessu máli af hálfu menntamálaráðuneytisins væri blettur á ráðuneytinu, fyrst og fremst á fyrrverandi mennta- málaráðherra, en einnig á núver- andi ráðherra. Saga málsins síðan fyrrverandi menntamálaráðherra breytti meira en 40 ára gömlum stafsetningarreglum árið 1973 væri ennfremur dæmi um vald- níðslu af hálfu beggja ráðherra gagnvart Alþingi. G.Þ.G. taldi málatilbúnaðinn blett á ráðuneytinu vegna þess, að þáverandi ráðherra (M.T.Ó.) hefði skipað 5 manna endurskoðunar- nefnd um stafsetningarmál og hefði ekki verið um það vitað að hún væri að störfum fyrr en hún skilaði till. til þáv. menntamála- ráðherra. Hann hefði síðan farið að till. nefndarinnar án þess að leita umsagnar nokkurs aðila, hvorki íslenzkudeildar Háskólans né Islenzkrar málnefndar, sem starfar þó lögum samkvæmt. G.Þ.G. nefndi síðan dæmi um þá ringulreið, sem nú ríkir í stafsetn- ingarmálum. Þingmaðurinn rök- studdi því næst fullyrðingu sína um að ráðherrar hefðu framið valdníðslu gagnvart Alþingi og minnti á, að 29. apríl 1974 hefði Alþingi samþykkt skýlausa álykt- un þess efnis, að nýju reglunum skyldi hrundið og gamla skipanin tekin upp aftur. En þáv. mennta- málaráðherra hefði hundsað þessa ályktun Alþingis. „Sá ráðherra, sem neitar að haga stjórnarat- höfnum sínum í samræmi við ályktanir Alþingis á ekki lengur að sitja í ráðherrastóli. Það er mergurinn málsins," sagði G.Þ.G. Þá minnti G.Þ.G. á, að núver- andi menntamálaráðherra hefði á árinu 1975 fengið í hendur skrif- lega áskorun 33 þingmanna af 60 um að breyta reglunum frá 1974. Það væri annað dæmið um vald- níðsluna að þessi ráðherra hefði hundsað þann þingmeirihluta. Þriðja dæmið um valdníðsluna væri frá árinu 1976. Þá hefði frumvarp til laga um lögfestingu gömlu stafsetningarreglnanna verið til afgreiðslu á Alþingi og neðri deild afgreitt lögin með 25 Magnós T. Sverrir ólafsBon. Hermansson. Hj&lmarsson. atkvæðum gegn 14 og vitað að fyrir frumvarpinu var meirihluti í efri deild. Með bolabrögðum hefði fyrrverandi og núverandi mennta- málaráðherrum tekizt að koma í veg fyrir afgreiðslu málsins í efri deild á síðasta starfsdegi þeirrar deildar. G.Þ.G. endaði ræðu sína á því, að hann kæmist ekki hjá því að segja, að öll framganga fyrrver- andi og núverandi menntamála- ráðherra í þessu máli væri þeim því miður vægast sagt ekki til sóma og myndi verða lengi minnzt í þingsögunni. Sverrir Hermannsson (S) rakti sögu málsins í stuttu máli og kvað einsýnt, að nú tækist greinilegum minnihluta á Alþingi að hindra að þingviljinn kæmi i ljós. Hins vegar kvaðst hann engu kviða um það, að sigur ynnist í þessu máli. Islenzk tunga hefði ævinlega sigur, hún hefði sigrazt á dönskunni á sínum tíma og hún myndi nú sigra nýjabrumsmenn áður en langir tímar liðu. Sv.H. spurði á hvað þeir treystu, nýjabrumsmenn í máli þessu. „Treysta þeir því, hæstvirtur núverandi og fyrrver- andi menntamálaráðherra, að um ómunatíð muni sitja í embætti menntamálaráðherra á íslandi menn, sem eru handkurrur og hankatrog embættismanna?" Sv.H. taldi ekki líklegt að Sjálf- stæðisflokkurinn myndi lengi enn standa að myndun ríkisstjórnar á Islandi án þess að hafa með höndum hin mikilvægu mennta- mál. Sv.H. kvaðst hafa beitt sér fyrir þessari málamiðlun af heilum hug og tekið mjög nærri sér að teygja sig svo langt sem raun bæri vitni um. Hann kvað þeirri tilraun sinni nú lokið a.m.k. í bili, og myndi hann hverfa aftur að því að brjóta þeirri reglu leið, sem gilti frá 1929 og menn höfðu búið sáttir við i nærri hálfa öld. Sv.H. lauk máli sínu með því aö vekja athygli þingheims á því stóralvarlega máli, sem það hlyti að teljast að ekki næðist fram meirihlutavilji hins háa Alþingis. Síðasti ræðumaður var Vil- hjálmur Hjálmarsson. mennta- málaráðherra. Hann kvaðst vera hissa á því að síðustu mínútur þingsins skyldu vera notaðar til að ræða þetta mál. Ráðherrann kvaðst hafa aflað sér lögfræðilegr- ar álitsgerðar vegna þessara umræðna allra um stöðu Alþingis og stöðu ráðuneytisins í máli þessu. Las hann síðan upp langt mál úr þeirri álitsgerð. í álitsgerð- inni kemur fram að þingsályktanir séu yfirlýsingar Alþingis, sem ekki hafi lagagildi, enda ekki undirrit- aðar af þjóðhöfðingja. Aðalinntak álitsgerðarinnar var það, að fyrr- verandi og núverandi mennta- málaráðherrar hefðu ekki gerzt brotlegir við lög með þýí að fara ekki að meintum meirihlutavilja Alþingis í málinu. Að lokinni ræðu menntamála- ráðherra var umræðunni slitið, en þá voru enn átta þingmenn á mælendaskrá. Tillagan um sátt í Z-deilum kom því ekki til atkvæða og ákvörðunar Alþingis. Má því búast við að mál þetta komi enn til kasta nýkjörins þings, 100. löggjafarþings þjóðar- innar, sem hún kýs um sólstöður i sumar. Sigurlaug Bjarnadóttir: Læknisþjónusta í strjálbýli Á síðustu dögum þingsins voru samþykkt ný lög um heilbrigðis- þjónustu en lögin frá 1973 hafa undanfarin 2—3 ár verið í endur- skoðun hjá þar til skipaðri nefnd. Sigurlaug Bjarnadóttir alþm. er sæti átti í þessari endurskoðunar- nefnd, hafði framsögu í neðri deild fyrir nefndaráliti heilbrigðis— og trygginganefndar. Vitnaði hún í upphafi máls síns til ítarlegrar framsögu heilbrigðis— og trygg- ingaráðh. Matthíasar Bjarnas. er frumvarpið var fyrr í vetur lagt fram í deildinni en gerði síðan grein fyrir umfjöllun nefndarinn- ar um málið og nokkrum breytingartillögum hennar við frumvarpið, er allar voru sam- þykktar. M.a. lagði nefndin til, að dregið skyldi allverulega úr verk- efnum heilbrigðismálaráða þ.e. ekki virtist raunhæft að ætla þeim jafn fjölþætt hlutverk og frumv. gerði ráð fyrir. Ætti það sérstak- lega við um hin dreifbýlu læknis- héruð úti um land þar sem erfiðast væri um samgöngur og samskipti manna að vetrinum til. Er Sigurlaug hafði gert grein fyrir breytingartillögum heil- brigðis— og trygginganefndar, vék hún í lok ræðu sinnar að þeim vanda, sem enn er við að fást við að mannu ýmis læknishéruð úti í dreifbýlinu. Átaldi hún harðlega þá skipan mála, er viðgengist hefir undanfarin ár, — að læknastúd- entar, sumir varla meira en hálfnaðir í námi, hafa verið sendir út á land til læknisþjónustu í einn SinurlauK Bjarnadóttir mánuð en þá er skipt um og annar sendur í staðinn. Sigurlaug taldi furðulegt, að ráðningarstjóri læknastúdenta við Háskólann skuli fá að ráða í þessum málum. Útvegun lækna út í héruðin heyrði undir embætti landlæknis og það væri óhæfa, að námsmenn gætu rekið slíka vinnumiðlun í sumar- fríum, sem þýddi læknaskipti á mánaðarfresti. Hægt væri að viðurkenna þau rök, að það væri lærdómsrík reynsla fyrir verðandi lækna að fá að kynnast heilbrigðisþjónustunni úti á lands- byggðinni. Sú reynsla, sem svo stutt dvöl veitti, væri hins vegar hvorki fugl né fiskur og allsendis óboðleg fyrir það fólk, sem ár eftir ár verður að láta sér lynda þessa skipan mála. Skoraði þingmaður- inn á landlækni og yfirstjórn heilbrigðismála í landinu að kippa þessu í lag. AlÞinGI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.