Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 24.05.1978, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 61 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI yniJAmsPfara'u ir ganga þá braut þar sem klukkan á Lækjartorgi blasir við. í margar vikur hefur sá ágæti tímakvarði verið skertur sínu málfrelsi ef ég má taka svo til orða, því hann fær ekki að mæla til okkar, sem eigum leið um, á sínu algenga máli. Nú má ekki skilja það svo að ég ætli mér að vera harður við klukkuna og tillitslaus. Nei, þyrfti svo ágæt vinnukona á hvíld að halda myndi ég ekki mæla því í mót. En staðreyndin er sú að klukkur hafa betra af því að ganga en standa hreyfingarlausar og auk þess sem ætíð er gott og gagnlegt að líta á hana blessaða og vonast ég því til að ráðamenn hennar komi henni í gang sem fyrst. En svo ég spyrji sömu aðila: Hvers vegna í ósköpunum er klukkan ekki prýdd á hliðunum með skemmtilegum myndum í stað þess að halda sýningu á gömlum tréspjöldum sem sett eru í ramm- ana? Þar sem svo gagnlegur gripur sem klukkan á Lækjartorgi er og auk þess fyrir augum almennings dag hvern er óskandi að fá að líta hana prýdda á ný og með lífs- marki. Einar I. Magnússon.“ • Skemmtilegur þáttur „Mig langar til þess að koma á framfæri þakklæti fyrir skemmtilega þætti í sjónvarpinu á Vorkvöldi sem Ólafur Ragnarsson sá um. Hann er sá alhæfasti til að sjá um þætti af þessu tagi, helzt er hægt að líkja því við áramóta- skaupið góða sem hann sá um um síðustu áramót. Það vonast eflaust margir eftir því að þetta verði með svipuðu sniði á vetri komanda." Guðjón Kristinsson.“ Þessir hringdu . . • Gömlu fólki hegnt fyrir vinnu? T?—Maður á ferð og flugii — Ég hafði tal af gamalli konu sem er á níræðisaldri. Hún vinnur hálfan daginn og segist þess vegna ekki njóta sama réttar og annað gamalt fólk sem er á ellilífeyri. Það er tekin af henni tekjutrygging og heimilistrygging og ellilífeyririnn sem hún fær er lagður við hálfs dags vinnu hennar og fer beint til gjaldheimtunnar. Er þetta réttlátt? Eiga lífeyrisþeg- ar að greiða skatta þegar þeir eru komnir yfir áttrætt? Spyr sá sem ekki veit. Er ekki réttlætismál að gera eitthvað raunhæft til bóta. Islenzkur æskulýður Sveinn Sveinssoni — Notið ekki æskuþróttinn til skemmdarverka, notið hann ykkur sjálfum, landi og þjóð til farsæld- ar. Látið ekki það traust sem ég og önnur gamalmenni berum til ykkar fjúka út í veður og vind. Sameinizt nú öll, takið saman höndum, byggið yfir ykkur sjálf skemmtistað og látið þar ríkja fagurt framferði, sláið eldra fólkinu við. Sýnið að þið eruð ekkert upp á okkur eldra fólkið SKAK Umsjón: Margeir Pétursson Á alþjóðlegu skákmóti í Zilina í Tékkóslóvakíu í fyrra kom þessi staða upp í skák þeirra Antonovs, Búlgaríu og Banas, Tékkósló- vakíu, sem hafði svart og átti leik. 18.... Rf3+!!, 19. gxf3 - Dxh3 (Hótar 20.... Be5) 20. f4 - Hb5, 21. e5 - Bxe5!,22. fxe5 - Hxe5, og hvítur gafst upp. Skemmtileg flétta! komin. Gerið nú stórt átak, leggið smáupphæðir sem þið vinnið fyrir í bók Æskulýðssjóðs sem liggur frammi hjá gjaldkerum Alþýðu- bankans, sem ég hefi oft minnst á. Þið getið ekki tapað neinu, það sem þið leggið inn fáið þið til baka með vöxtum verði ekkert úr framkvæmdum. Ég hvet ykkur til athafna og dáða og treysti ykkur. Bregðist ekki trausti mínu, því um leið bregðist þið ykkur sjálfum og íslenzkri þjóð. Ég vænti mikils af ykkur, við skulum komast heil í höfn. Sjálfs er höndin hollust, lifið heil. „Ef æskan vill rétta þér örvandi hönd, ertu á framtíðar vegi.“ HÖGNI HREKKVÍSI Það var einhver að hrekkja kolkrabbann og reyndi að hremma mörgæsina? 1 sl i 4-* C // 0 RSKA- 5AFN1Ð 1 é r* jjTl- SIGGA V/öGA í ‘ííLVtRAW Tilkynning til fjáreigenda frá Sauðfjárveikivörnum Vegna hættu á dreifingu fjárkláða og annarra smitsjúkdóma í sauðfé á milli varnarhólfa, er hér með varað við því, að sleppa fé á afrétt nú í vor fyrr en giröingar hafa veriö lagfærðar sem tök eru á. Ber að hafa samráö viö fulltrúa Sauöfjárveikivarna á hverjum stað um þetta. Poul Ramel og Sven Olsons Trio mánudaginn 29. maí kl. 20:30 Þriðjudaginn 30. maí kl. 20:30 miövikudginn 31. maí kl. 20:30 Aögöngumiöar á kr. 1.000 - í kaffistofu Norræna hússins. íslensk-sænska félagiö Norræna húsiö. Aðalfundur félagsins verður haldinn í húsi Slysavarnafélags íslands, Grandagaröi, fimmtudaginn 25. maí kl. 21.00. Fundarefni: 1. Skýrsla formanns. 2. Lagabreytingar. 3. Innritun nýrra félaga. 4. Stjórnarkjör. 5. Kynnt hugmynd um keppni hraðbáta umhverfis ísland. 6. Önnur mðl. Látið fundarboöið berast og takið með ykkur gesti. Allir sportbátaunnendur velkomnir. Fjölmennum Stjórnin > C Bifreióar á kjördag D-listann vantar fjölda bifreiða til aksturs frá hinum ýmsu bifreiðastöövum D-listans á kjördag. Frambjóðendur heita á stuöningsmenn listans aö breðgast vel viö og leggja listanum liö m.a. meö því aö skrá sig til aksturs á kjördag 28. maí næstkomandi. Vinsamlegast hringiö í síma: 86216—82900. Skráning bifreiöa og sjálfboöaliöa fer einnig fram á skrifstofum hverfafélaganna. 111-listinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.