Morgunblaðið - 24.05.1978, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978
43
Helgi Ólafsson skákmeistari íslands
Á FIMMTUDAGINN var
tryggði Helgi Ólafsson sér
íslandsmeistaratitilinn í skák
með því að sigra í þriðju
einvígisskák sinni við Hauk
Angantýsson. Helgi hafði þar
með hlotið tvo og hálfan
vinning gegn hálfum vinningi
Hauks og þar sem einvígið var
alls fjórar skákir er frekari
' taflmennska óþörf. Sigur
Helga í einvíginu var með
eindæmum giæsilegur og eng-
inn getur efast um að hann sé
vel að sigrinum kominn. Þctta
ár ætlar að verða merkur
áfangi á skákferli Helga, en
sem kunnugt er hlaut hann
fyrir nokkru alþjóðlegan meist-
aratitil f skák og verður nú
íslandsmeistari í fyrsta skipti.
En víkjum nú að einvíginu
sjálfu. Það einkenndist allmikið
af taugaóstyrk á báða bóga og
var töluvert um mistök. Slök
taflmennska Hauks kemur sér-
staklega á óvart. í fyrsta lagi
virtist hann mjög illa undirbú-
inn fyrir byrjanaval Helga og
einnig tefldi hann mun kraft-
lausara en oft áður. Hann var
t.d. alls óþekkjanlegur í síðustu
skákinni, en hana tefldi hann
langt undir styrkleika. Þetta
kom mjög á óvart, því að
Haukur er þekktur fyrir flest
Helgi Ólafsson
annað en að láta deigan síga á
örlagastundu. Þetta varpar þó
engri rýrð á frammistöðu Helga.
Hann tefldi af sínu alkunna
öryggi og hagnýtti sér veikleik-
ana í taflmennsku andstæðings-
ins til hins ýtrasta.
Þriðja skákin
Hvítti Haukur Angantýsson
Svarti Helgi Ólafsson
Katalan byrjun
1. d4 (í fyrstu skákinni hóf
Haukur taflið með 1. c4) Rf6, 2.
c4 - e6, 3. g3 - d5, 4. Bg2 -
dxc4! (Þessi leikur er af flestum
talin öruggasta leið svarts til
þess að jafna taflið í þessari
byrjun) 5. Da4+ (Leikurinn 5.
Rf3!? hefur notið mun meiri
vinsælda upp á síðkastið en
leikur Hauks) Rhd7, 6. Rf3 —
a6. 7. Rc3 — Be7. 8. Dxc4?!
(Ónákvæmni. Betra er 8. Re5!?
eða einfaldlega 8. 0-0) b5, 9. Dh3
(9. Dd3 kemur ekki síður til
greina. Hins vegar græðir hvít-
ur ekkert á 9. Dc6 — Ha7 10.
Bf4? - Bb7!) Bb7,10. 04) - c5,
(Svarta staðan er nú þegar orðin
virkari ) 11. Hdl? (Eftir þennan
leik á hvítur við mikla erfiðieika
að etja. Bezta framhald hans í
stöðunni var líklega 11. dxc5 —
Bxc5,12. Bf4) c4!, 12. Dc2 - b4,
13. Rbl (13. Ra4 var einnig
slæmt vegna 13. ... Da5 og 14.
... Be4 vofir yfir) Hc8, 14. Rel
- Db6, 15. e4 - 0-0, 16. h3 -
e5, 17. d5? (Haukur virðist hafa
verið gjörsamlega heillum horf-
inn í skákinni. Næstum sjálf-
(Hvíta staðan er nú mjög
grátbrosleg. Allir menn hvíts
nema drottningin eru uppi í
borði og slíkt kann auðvitað ekki
góðri lukku að stýra) Re8, 19.
Bxc4 - Bxf2+, 20. Dxf2 -
Dxf2, 21. Kxf2 - Hxc4,
(Yfirburðir svarts í endataflinu
sem nú er komið upp eru
augljósir. Hann hefur miklu
betri liðsskipan og getur sótt að
peðinu á e4 í rólegheitum) 22.
Rd2 — Hc8, 23. g4 (Hvítur varð
að hindra 23.... f5) Rd6, 24. a3
- Rc5, 25. Ke3 - b3. 26. Rd3
- Rxd3. 27. Kxd3 - a5!, 28.
Rxb3 - Hc4, 29. Be3 - Ba6,
30. Kd2
Hb8. 31. Rc5 - Rxe4+, 32. Rxe4
— Hxb2+ og hvítur gafst upp.
Samtímis sem þeir Helgi og
Haukur tefldu einvígi sitt fór
fram einvígi um drengjameist-
aratitil íslands í skák á milli
þeirra Ágústs Karlssonar og
Þrastar Þórssonar. Ágúst sigr-
aði, hlaut þrjá vinninga gegn
einum vinningi Þrastar.
Skák
eítir MARGEIR
PÉTURSSON
„Skákin er mitt
líf’ eftir Kortsnoj
í fyrra kom út í Englandi bók
eftir Viktor Kortsnoj sem ber
heitið „Chess is my life“ eða
Skákin er mitt líf. í þessari
fróðlegu bók lýsir Kortsnoj ævi
sinni í Sovétríkjunum, baráttu
sinni bæði við skákborðið og
valdhafana og aðdragandanum
að flótta sínum frá föðurland-
inu. Ennfremur eru í bókinni
yfir 70 af beztu skákum hans um
ævina. Bókinni er skipt í rúm-
Skák
eftir GIJNNAR
GUNNARSSON
lega 20 kafla sem spanna líf
hans frá bernsku, háskólaár,
stórmeistaraferil hans, sigra og
töp. En athyglisverðastar eru
frásagnir hans af viðskiptum
við þá sovézku skákmeistara
sem að hans áliti eru „þægir"
valdhöfunum og gerðu honum
oft lífið leitt eins og t.d.
Petrosjan sem hann byrjaði
snemma illdeilur við og síðast
núverandi heimsmeistara, Kar-
pov.
Þar eð þeir Kortsnoj og
Karpov eiga nú fyrir höndum
mikla orrahríð á Filipseyjum í
júlí n.k. með tilheyrandi sálar-
stríði er ekki úr vegi að
endursegja örlítið úr bók Korts-
nojs um viðskipti þeirra er þeir
háðu síðast einvígi árið 1974.
Aðstoðarmenn
þeirra
Fyrir einvígi þeirra 1974 var
ákveðið að aðstoðarmenn Kar-
povs yrðu þeir Furman og
Geller. Furman var áður aðstoð-
armaður Kortsnojs og góður
vinur hans og þekkti allar hans
veiku og sterku hliðar. Kortsnoj
gekk hins vegar mjög erfiðlega
að fá aðstoðarmenn og telur að
sovézka skáksambandið og vald-
hafarnir hafi gert allt til þess að
torvelda honum að fá öfluga
skákmeistara sér til hjálpar.
Eftir að hafa leitað lengi að
góðum aðstoðarmönnum fékk
hann loksins þá Osmos og
Djindindasvili, en svo fór þó að
lokum að hann treysti ekki
þessum aðstoðarmönnum sínum
fyrir fyrirætlunum sínum þar eð
hann grunaði þá um að hafa
„læðzt inn í óvinaherbúðirnar"
og sagt frá fyrirætlunum hans.
Frásögn Kortsnojs af þessum
atvikum er hin ótrúlegasta en
hann nefnir sem dæmi 17.
skákina í einvíginu þar sen?
hann fórnar peði í byrjuninni |
(sem hann er ekki vanur að
gera) en Karpov hafði engan
áhuga á að halda í peðið og
svaraði með öðrum leik á
svipstundu. Þessi viðbrögð voru
ákaflega óeðlileg og ólíkt Kar-
pov að vilja ekki umframpeð.
Hræðilegri hugsun skaut niður
í huga Kortsnojs: Hver hafði
svikið hann? Hafði einhver sagt
Karpov frá fyrirætlun hans?
Kortsnoj, sem var.vanur að fá
góða stöðu með hvítu út úr
þessari byrjun (Katalan), var nú
öllum lokið og nagandi óvissan
og grunsemdir settu hann út af
laginu og hann tapaði að lokum
skákinni.
Hvítti Kortsnoj
Svarti Karpov
Katalan-byrjun
17. einvfgisskák 1974
1. d4 - RÍ6, 2. c4 - e6, 3. g3
- d5, 4. Bg2 - dxc4, 5. Rí3 -
c5, 6. 00 - Rc6, 7. Da4!
(Þetta var hið leynilega her-
bragð Kortsnojs, sem átti að
koma Karpov á óvart. Leikurinn
felur í sér peðsfórn, mjög
hugvitsamleg, sem myndi þó
færa hvítum hagstæðara tafl ef
hún yrði þegin: 7. ... cxd4, 8.
Rxd4! — Dxd4, 9. Bxc6 — Bd7,
10. Hdl — Bxc6, 11. Dxc6 —
bxc6, 12. Hxd4 og hvítur vinnur
aftur peðið til baka með mun
traustari peðastöðu en svartur)
7. ... Bd7!
(Svarleikur Karpovs sem kom á
svipstundu. Eftir margra tíma
rannsóknir hjá Kortsnoj þarf
Karpov ekki einu sinni að gefa
þessum leik nema andartaksum-
hugsun!?).
8. Dxc4 — c5xd4, 9. Rxd4 —
Hc8, 10. Rc3 - Da5. 11. Hdl
(Kortsnoj eyddi 36 mínútum í
þessan sjálfsagða leik)
11.... Be7,12. Rb3 - Dc7,13.
Rb5 - Db8, 14. Rc5 - a6. 15.
Rxd7 — Rxd7,16. Rc3 — Rde5,
17. Da4 - OO, 18. Bf4 - Da7,
Viktor Kortsnoj
19. Bxe5 — Rxe5, 20. De4 —
Rc6, 21. Hd7 - BÍ6. 22. Hadl
- Db6, 23. Dc2 - Ra5, 24.
Hdl-d3 - h6,25. a3 - Hc7,26.
b4?
(Betra 26. H3d6 - Dc5, 27. b4)
26. ... Hxd7, 27. Hxd7 - Hc8,
28. Hd3 - Rc4,29. Re4 - Dc7,
30. Rc5? ?
(Betra var 30. Rxf6 — gxf6, 31.
Hc3 - b5, 32. De4)
30. .. .Re5, 31. Hd2?
(Rétt var 31. Hc3)
31. ... b6, 32. í4 - bxc5, 33.
fxe5 - Dxe5, 34. Bb7 - Hc7,
35. De4 - Dal, 36. Kg2 -
Dxa3,37. bxc5 - Hxc5,38. Hd3
- Da5. 39. Df3 - Db6. 40. Hd7
- Hf5, 41. Dg4 - Df2,42. Kh3
- g6 hvítur gafst upp.