Morgunblaðið - 24.05.1978, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.05.1978, Qupperneq 22
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978 Ragnar Kjartansson, framkvæmdastjóri: lagsins Skeljiings af sveigj- anlegum vinnutíma SNEMMA á árinu 1974 tók Olíufélagið Skeljung- ur h.f., fyrst íslenskra stórfyrirtækja upp nýtt fyrirkomulag á vinnutíma starfsfólks við aðalskrif- stofu félagsins. Tilraunin var fólgin í svokölluðum „sveigjanlegum vinnu- tíma“, sem gaf starfs- manni valfrelsi um hven- ær hann vildi hef ja starf á tímahilinu frá kl. 08.00—10.00 að morgni, að því tilskyldu að hann lyki starfi sfnu réttum átta klukkustundum siðar. Sveigjanlegur vinnutími nær þannig til tveggja stunda í byrjun og lok hvers vinnudags, en á tímabilinu kl. 10.00—16.00 er allt starfs- fólk að störfum. Hið sveigjanlega vinnutíma- kerfi er að sjálfsögðu þeim annmörkum háð, að því verður ekki beitt við þau skrifstofustörf, þar sem einn aðili er veigamikill hlekkur í störfum fleiri aðiia. í þeim flokki má t.d. nefna símastúlku og gjald- kera. Kerfið hentar þann- ig bezt við tiltölulega sjálfstæð skrifstofustörf eða verkefni, en síður við hvers konar þjónustustörf. Nú eru liðin um fjögur ár frá því að þetta fyrirkomulag var tekið upp á aðalskrifstofu og í samtölum við starfsfólkið kem- ur glöggt fram, að valfrelsið gefur því meira svigrúm til að samhæfa eigin þarfir að hags- munum fyrirtækisins, þannig að minna verður um árekstra og þá streitu og óánægju sem þeim fylgir. Fólk álítur sig óháðara og ánægðara með starfið, jafnvel þótt það kjósi áfram sama vinnutíma og áður. Gagnvart fyrirtækinu verður ekki annað séð, en að kostir hins sveigjanlega vinnutíma séu miklir. Starfsfólk hefur betri tækifæri en áður til að sinna snúningum á eigin vegum utan vinnutíma. Þess utan bendir allt til, að kerfið auki starfsgleði fólks og afköst, enda er það raunin víðast hvar erlendis, þótt engin slík rannsókn hafi farið fram hér. Gallar hins sveigjanlega vinnutíma eru einkum þeir, að ekki geta aðilar í öllum störfum notið hans. Einnig getur það valdið stöku byrjunarerfiðleik- um að ná ekki örugglega í vissa persónu, nema á tímabilinu 10.00—16.00. Þessir gallar eru þó mun léttvægari á metskálun- um en kostirnir. Af framansögðu er einsýnt að kostir hins sveigjanlega vinnu- tíma koma fyrst og fremst launþegum til góða. Engu að síður virðast samtök verzlunar- fólks líta á allar nýjungar með rótgróinni tortryggni og séu enn þeirrar skoðunar, að vinnutími sé bezt rígbundinn í gamla farveginum á öllum vinnustöð- um, hjá öllum vinnuveitendum. Islensk fyrirtæki hafa verið mjög sein til að taka við sér í þessum efnum. Er aðeins vitað um örfá fyrirtæki sem gert hafa tilraunir með sveigjanlega vinnutíma og eru þau helztu Flugleiðir h.f., I.B.M. á íslandi og Olíuverzlun Islands. Óhætt er a.ð fullyrða að sveigjanlegur vinnutími á erindi til fjölmargra íslenskra fyrir- tækja og sætir furðu hversu mikils þrekleysis virðist gæta meðal vinnuveitenda, engu síður en samtaka skrifstofusfólks í þessum efnum. Bónuskerfi: Aukin hagræðing, sem bæði kemur launþegum og fyrirtækjum til góða Gísli Erlendsson og Kristján Sigurgeirsson framkvæmdastjórar Rekstrartækni s.f. Oft hafa ýmsir hópar haldið þvi fram að engin sifelld hagræðing eigi sér stað í rekstri íslenskra fyrirtækja. Engu að síður er staðreyndin sú að all mörg fyrirtæki, svokölluð rekstrarráðgjafafyrir- tæki, byggja rekstur sinn á því að sífelld hagræðing eigi sér stað í rekstri fyrirtækja og opinberra aðila. Til að kynnast lít- ilega starfssviði eins þess- ara ráðgjafafyrirtækja ræddi Viðskiptasiðan við framkvæmdastjóra Rekstrartækni s.f. þá Gísla Erlendsson og Kristján Sigurgeirsson. Rekstrartækni var stofnað 1972 og voru starfsmenn í upphafi þrír. Allt frá byrjun hefur verið fengist við lausn á hinum ólíkustu verkefnum en þó hefur meginverkefnaflokkurinn verið bundinn fiskvinnslufyrir- tækjum. Annar snar þáttur í rekstrinum er tengdur hús- gagnaiðnaðinum og nær þá jafnt til framleiðsluskipulags sem launakerfa. Eitt mikilvæg- asta atriði slíkrar þjónustu við fyrirtækin er stöðugt rekstrar- eftirlit það felur m.a. í sér að mjög fljótt verður fyrirtækið vart við hvort einhver ákveðin eining er framleidd með tapi. Framleiðsluna má því stöðva á þessum neikvæðu einingum áð- ur en stærra tjón hlýst af. Af öðrum aðilum er notfæra sér þjónustu ráðgjafafyrirtækja má nefna bæjarfélög og aðra opin- bera aðila. í dag starfa 19 starfsmenn hjá Rekstrartækni og er fyrirtækinu skipt í tvær megindeildir þ.e. tæknideild og tölvudeild. Helsta verkefnið er tengist fiskvinnslufyrirtækjum er upp- bygging og viðhald svonefndra bónuskerfa í frystihúsum og má nefna sem dæmi að í dag annast Rekstrartækni launaútreikn- inga fyrir um 9000 manns, aðallega í fiskvinnslu og með vikulegar launagreiðslur. En hver hefur þróunin verið í notkun bónuskerfanna og hvaða reynslu hafa menn öðlast á undanförnum árum? Þeir Krist- ján og Gísli voru sammála um að sífellt fleiri aðilar væru að taka upp bónuskerfi og væri orsökin fyrst og fremst sú að hér væri um sameiginlegt áhugamál vinnuveitenda og launþega að ræða, og má benda á að ávallt hefur verið mikið samstarf við fulltrúa samtaka launþega og vinnuveitenda eins og t.d. hagræðingarráðuneyta V.S.Í. og A.S.Í. Er við spurðum um hina margumtöluðu streitu sem sögð er vera samfara bónuskerfum sögðu þeir að hennar gætti aðeins fyrst í stað en með aukinni reynslu allra aðila fjaraði hún út smátt og smátt. Reynslan hefur einnig sýnt að mannabreytingar eru til muna minni hjá bónusfrystihús- um en hjá þeim er ekki hafa enn tekið þau upp. Stafaði þetta fyrst og fremst af hærri launum þrátt fyrir styttri vinnutíma oft á tíðum. Bónuskerfið þýddi einnig að þau fyrirtæki sem hafa tekið það upp standa betur að vigi til að fá fólk til starfa. Bónuskerfið krefst þess hins vegar að nægileg og sem jöfnust hráefnisöflun sé og einnig krefst Framhald á bls. 62. VIÐSKIPTI VIÐSKIPTI — EFINAHAGSMÁL — ATHAFNALlF. Minnkun erlendra lána Eins og fram kemur á myndinni hér að neðan hefur hlutfall erlendra lána af vergri þjóðarframleiðslu minnkað um tæp 4% á árunum 1975 til 1977. Greiðslubyrðin hefur minnkað nokkuð á sama timabili en ekki þó f sama hlutfalli og lánin sjálf. Erlendir fréttapunktar V-pýzkaland • Viðskiptajöfnuður V-þjóð- verja var hagstæður í marz • um 4.2 milljarða DM., en hafði verið hagstæður um 2.6 milljarða i febrúar. Marztalan er sú sama og í marz 1977. • Allar líkur eru nú til þess að gírkassaverksmiðjur Fiat og Benz bílaframleiðendanna verði sameinaðar. Stjórn- völd þau i Þýzkalandi, er fara með eftirlit um hringa- myndun eru þó nokkuð efins um lagalegt gildi þessa, þar sem þeir telja að samkeppni móðurfyrirtækjanna geti minnkað við þetta samstarf. VW-verksmiðjurnar gera ráð fyrir að sélja um 2,3 milljónir bíla á þessu ári og að nettóhagnaður af rekstri fyrirtækisins verði um 420 millj. DM en þetta eru sömu tölur hér um bil og á síðasta ári. Nýlega var gengið frá samningum við starfsmenn og var samið um 5.9% hækkun launa, er kemur til framkvæmda í áföngum. Aukning í Kfna • Kínverjar hafa slegið öll sín fyrri met hvað varðar iðnaðarvöruframleiðslu fyrstu þrjá mánuði ársins. Aukninguna má aðallega rekja til olíu, gas, kola og stálframleiðslu. Japan • I mótsögu við allar aðrar •þjóðir reyna Japanir nú að draga úr útflutningi sínum og er þá haldið í útflutning á bílum, stáli, litasjónvörp- um og skipum. Fram- kvæmdatímabil þessara áætlana er apríl 1978 — apríl 1979. Bretland • Eins og allflestum er kunn- ugt um hefur mikill aftur- bati átt sér stað í efnahags- lífi Englendinga, og má nefna í því sambandi við- skiptajöfnuð og minnkandi atvinnuleysi. Til að ná þessu marki hefur verið beitt mikilli hörku og minnast þá e.t.v. flestir verkfalls slökkviliðsmanna. Nú nýlega var hins vegar sett á stofn sérstök nefnd sem á að kanna hvort að framleiðni- aukning hafi átt sér stað hjá þeim fyrirtækjum er veittu meira en 10% í launahækk- anir á síðasta ári. Danmörk • Nú berast þær fréttir frá Danmörku að útflutnings- pöntun eins fyrirtækis sé í hættu þar sem ekki hefur tekist að ráða nægilegt starfsfólk. I dag eru tæplega 200.000 manns atvinnulausir í Danmörku. • Oft er því haldið fram að fjárframlög fyrirtækja til íþróttastarfsemi séu fyrst og fremst tilkomin vegna betli- starfssemi íþróttamanna. Þetta á þó varla við þegar rætt er um framlag Carls- berg-verksmiðjanna til danska knattspyrnusam- bandsins en það er í ár 1 milljón d.kr. eða tæplega 50 milljónir íslenskra króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.