Morgunblaðið - 24.05.1978, Qupperneq 32
64
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1978
REYKJAVÍK:
BANKASTRÆTI10. SÍMAR: 29322
AKUREYRI*
HAFNARSTRÆTI 94. SÍMI: 28715.1
SVNNA
BIÐUR ALLT ÞAÐ BESTA
SEM TIL ER í SÓLARLÖNDUM
Dagflug til allra vinsælustu sólarlandastaðanna.
Beint flug með stórum þotum ÁN MILLILENDINGAR
lækkar ferðakostnaðinn
GRIKKLAND
Þér getið valið um dvöl á eftirsóttustu hótelum og
íbúðum í baðstrandarbœjunum við Aþenu, Glyfada
og Vouliagmeni, dvöl á Rhodos, rósaeynni fögru í
gríska eyjahafinu. Farið í œvintýrasiglingu með 17000
smálesta skemmtiferðaskipi.
Hœgt er að skipta Grikklandsdvölinni milli þessara
staða og njóta þannig alls þess besta sem Grikkland
hefur upp á að bjóða í einni og sömu Grikklands-
________ferðinni með Sunnu.
FARASTJORAR MEÐ MIKLA REYNSLU AÐ BAKI.
Starfsfólk Sunnu í Grikklandi sem veita farþegum leiðsögn, öryggi
og þjónustu eru: Óttó Jónsson, menntaskólakennari, sem þúsundir
íslendinga þekkja af eigin raun efti 17 ára farsœl störf í sólarlöndum.
Halldór Briem, eini íslendingurinn sem er búsettur í Grikklandi,
býr þar-með grískri fjölskyldu sinni, talar grískuna eins og innfœddur
og hefur verið aðstoðar hótelstjóri á einu stœrsta hóteli Aþenu s.l.
4 ár og Gunnar Eyjólfsson, leikari, sem þekkir Grikkland og sögu
þess vel.
FJÖLBREYTTAR SKEMMTI- OG SKOÐUNARFERÐIR.
Frá skrifstofu Sunnu á Aþenuströnd er efnt tilfjölbreyttrar skemmti-
og skoðanaferða með farastjórum Sunnu.
Dagsferðir um fagrar byggðirfornra sagna tilDelfi, Argolis, Korintu,
um Aþenuborg, Agropolis, Maroþonsvelli. Ennfremur til Spörtu,
Olympíu og margra fleiri sögufrœgra staða.
Eins dags sigling til þriggja eyja.
Einnig er boðið upp á vikuferðir með þœgilegum bílum til flestra
sögufrœgustu og fegustu staða Grikklands.
ÆVINTYRASIGLINGIN SEM ALLA DREYMIR UM.
Vika um borð í 17000 smálesta skemmtiferðaskipi, sem býður upp á flest sem hugurinn girnist.
Fólk getur sannarlega notið lífsins um borð í þessu
glœsilega skemmtiferðaskipi. Allar íbúðir með þœgindum
og einkabaði, nœturklúbbar með skemmtiatriðum á
hverju kvöldi, casino, stór sundlaug, verslanir með
tollfrjálsum vamingi, hárgreiðslustofa, kvikmyndasalur,
setustofur, kaffiteria, rúmgóð sólbaðs þilför fyrir 750
farþega. Allar íbúðir teppalagðar með loftkœlingu,
útvarpi, og tónlist af segulböndum í hverri fbúð.
Sunna hefur fráteknar fyrir gesti sína 20 íbúðir í hverri
vikusiglingu. Viðkomustaðir og skoðunarferðir á hverjum
stað, frá Aþenu til eyjanna Rhodos, Krýtar og Korfu,
Dubrovnik í Júgóslavíu, Feneyja í Ítalíu og aftur
til Aþenu. SannkaUað luxusævintýri, á viðráðanlegu verði.
KANARŒYJAR
NÝTT. Vegna hagkvxmra
samninga getum við í sumar
boðið fjölskyldum, ókeypis
Fjölskylduparadís sumarsins-
ókeypis fyrir bömin. Nú fá
íslendingar í fyrsla sinn tækifæri
til sumarleyfisdvalar á
Kanaríeyjum. Þúsundir þekkja af
eigin reynslu þessar paradisar-
eyjar í vetrarsól. Aldrei of kalt og
aldrei og heitt, þar er sjórinn,
PORTUGAL
ferð og dvöl í íbúð, fyrir öll böm
innan 12 ára.
sólskinið og skemmtanalífið eins
og fólk vill hafa það 365 daga á
ári. Hægt er að velja um dvöl á
vinsælustu og bestu hótelum og
íbúðum sem fáanleg eru.
Sunnu skrifstofa með þjálfuðu
íslensku starfsfólki, nú opin allan
ársins hring.
ífyrsta sinn reglubundið leiguflug
beint til Portúgal. Við höfum
valið glæsilegt hótel og íbúðir i
eftirsóttustu baðstrandarbæjum
Estoril og Casacais í aðeins 30 km
fjarlægð frá höfuðborginni
Lissabon. Frægir gististaðir kónga-
fólks, - og nú Sunnufarþega, - á
viðráðanlegu verði. Fjölbreyttar
skemmti- og skoðunarferðir og
íslenskir farastjórar Sunnu á
staðnum.
Einnig Sunnuflug tU:
MALLORKA dagflug á sunnudögum
COSTA DEL SOL dagflug á föstudögum
COSTA BRAVA dagflug á sunnudögum
ITALIA dagflug á þriðjudögum