Morgunblaðið - 21.06.1978, Side 4

Morgunblaðið - 21.06.1978, Side 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978 Ásthildur Pétursdóttir: Félagsmál og S j álf stæðisf lokkurinn Á undanförnum árum hefur viðhorf til félagsmála gerbreyst hér á landi. Ýmis þjónusta, sem áður var annað hvort ekki fyrir hendi eða sinnt af góðgerðarfélög- um, þykir nú sjálfsögð mannrétt- indi. Félagssvið eru eftirsóttar námsbrautir og menntaðir starfs- menn á hinum ýmsu sviðum félagsmála streyma inn á vinnu- markaðinn og er þó þörfinni hvergi nærri fullnægt. Þessi þróun er vissulega ánægjuleg, því hvað er meira virði og meira áhugavekjandi en ein- staklingurinn? En þetta eru vandasöm störf og þau krefjast þess að þeir sem þau stunda hafi einlægan áhuga á öðru fólki og skilning á hinum ólíkustu mann- gerðum. Sé þetta ekki fyrir hendi, er allt nám á þessu sviði gagnslít- ið. Félagsmál og sjálf- stæðisflokkurinn Vinstri menn hafa lagt sig fram um að tileinka sér þennan mála- flokk, félagsmálin, og tel ég að Sjálfstæðisflokkurinn hafi hvergi nærri verið nógu vakandi í að kynna stefnu sína í þessum málum né heldur þau störf sem hafa verið «HI TO Klæðum og bólstrum gömul húsgögn. Gott úrval af áklæðum. BÓLSTRUNí ÁSGRÍMS, Bergstaðastræti 2, Sími 16807, unnin undir forystu sjálfstæðis- manna á þessu sviði. Nægir í því sambandi að benda á, að ungir sjálfstæðismenn undir forystu Friðriks Sophussonar hafa barist fyrir því að dregið yrði úr ríkisumsvifum og lagt mikla vinnu í að undirbúa raunhæfar tillögur þar að lútandi. Vinstri menn hafa gripið á lofti og slitið úr samhengi ýmislegt í þessum tillögum og skrumskælt það í þá veru að ungir sjálfstæðismenn væru á móti félagslegri þjónustu nema fyrir forréttindahópa. Allt of máttleys- islega hefur verið að því staðið að reka þessa útúrsnúninga heim til föðurhúsanna. Hér þarf að verða breyting á. Stefna Sjálfstæðisflokksins er heilbrigð og mannbætandi. Hún er að hjálpa einstaklingnum til sjálfsbjargar með ráðgjöf, upplýs- ingum, endurhæfingu og nauðsyn- legri fjárhagsaðstoð, tímabund- inni í flestum tilfellum. Ennfrem- ur er það í samræmi við stefnu Sjálfstæðisflokksins að áherslu beri að leggja á hvers konar starf sem spornar við félagslegum vandkvæðum og að aldrei vérði nóg áhersla lögð á mikilvægi sjálfsbjargarviðleitninnar, eflingu hennar og vaxtarmöguleika. í álitsgerð síðasta landsfundar Sjálfstæðisflokksins, þar sem fjallað er um félagslega þjónustu og endurhæfingu, segir svo: „Með félagslegri þjónustu verði annars vegar stefnt að öflugu varnaðar- starfi og hinsvegar aðstoð til sjálfsbjargar með velferð viðkom- andi fjölskyldu í huga. Sjálfstæð- isflokkurinn leggur áherslu á gildi jafnt læknisfræðilegrar sem fé- lagslegrar endurhæfingar og telur rétt, að skipulögð verði starfsend- urhæfing, sem miðar að því að auka vinnuhæfni viðkomandi ein- staklings og geri honum kleift að nýta starfsorku sem best. Jafn- framt verði stefnt að aukinni þjónustu og uppbyggingu endur- hæfingarstofnana með tilliti til síaukinna verkefna á því sviði." Þegar fólk fer að missa starfs- getu, hvort heldur sem er vegna aldurs eða örorku, þarf alltaf að vera einhver þáttur í atvinnulífinu þar sem þessu fólki er skapaður vettvangur. Þar sem starfsorka þeirra nýtist. Þeim manni, sem finnst það gefa lífi sínu tilgang að stunda fasta vinnu, á ekki að vera meinaður svo sjálfsagður hlutur, þó hann geti ekki lengur stundað það hefðbundna starf sem hann gerði meðan hann hafði óskerta starfsorku. Þetta eiga ekki að vera ómerkari mannréttindi en félags- leg þjónusta. Félagsþörf er ekki aldursbundin Félagsmál spanna yfir flest svið í mannlegu samfélagi, ajlt frá vöggustofu til elliheimilis. í starfi mínu með eldri bæjarbúum í Kópavogi, ellilífeyrisþegunum, hef ég skynjað mjög glöggt þau sannindi, að aldur er ekki spurn- ing um ár. Sú stefna að aðgreina aldursflokka félagslega hefur þó á vissan hátt ýtt undir félagslega möguleika þeirra. Það er að segja, leikskólar geta verið þroskandi fyrir börn, bæði vegna leiðsagnar fóstranna og félagsskapar við marga jafnaldra. Á sama hátt gefur félagsstarf aldraðra lífi þeirra aukið gildi. En nú, þegar fólki er að verða ljós félagsþörf hinna ýmsu aldurs- hópa í nútímasamfélagi, þar sem menn eru meira einangraðir en nokkru sinni fyrr og þurfa uppörv- un til að slást í hópinn, sýnist mér að við ættum að kanna, hvort ekki Asthildur Pétursdóttir. sé með einhverjum hætti unnt að draga úr þessari skiptingu eftir aldri. I raun erum við öll ein fjöl- skylda og áhugamál fólks fara eftir einstaklingseðli þeirra en ekki aldri. Margt fólk sem á uppkomin börn og eru búið að koma sér fyrir fjárhagslega, á erfitt með að taka upp aðra lifnaðarhætti og finna sér nýjan farveg þegar börnin eru flutt að heiman. Fullorðinsfræðsla hefur komið mikið til móts við einmitt þennan aldurshóp, en það sama hentar ekki öllum. Ég bendi á þetta vegna þess, að þótt félagsmál hafi tilhneigingu til að snúast um þá sem þurfa aðstoðar við og þeir sem eru í blóma lífsins séu best til þess fallnir að sjá um sig sjálfir, þá er félagsþörf ekki aldursbund- in. Vel mætti hugsa sér að meiri samákipti væru milli hinna ýmsu aldurshópa, öllum til gagns og gleði. Við eigum að stjórna félagsþjónustunni — ekki hún okkur En í allri þjónustu í félagsmál- um þarf að vera vel vakandi fyrir því að hún fari ekki úr böndum. Það er að segja, við eigum að stjórna félagsþjónustunni, en ekki hún okkur. Hvergi er meiri hætta á að kerfið taki yfirhöndina en einmitt þar. Slík þjónusta á að byggja upp, en ekki brjóta niður. Hún á að vera hvetjandi en ekki letjandi og hún á að staðfesta mikilvægi einstaklingsins í þjóðfé- laginu, en ekki gera hann að hópsál, sem lætur kerfið sjá fyrir þörfum sínum og ákveða hverjar þær séu. • Sjálfstæðisflokkurinn setur virðingu fyrir einstaklingnum ofar öðru. Með hliðsjón af úrslitum bæjarstjórnarkosninganna er ljóst, að í komandi alþingiskosn- ingum verður tekist á um grund- vallarviðhorf til þjóðmála, frjáls- hyggju eða sósíalisma. Mér bland- ast ekki hugur um hvort muni vera farsælla og vísa í því sambandi til heilræðis sem Gróa gaf syni sínum í Grógaldri Eddukvæða „Sjálfur leið þú sjálfan þig.“ Þegar við göngum að kjörborðinu 25. júní næstkomandi, skulum við gera hennar orð að okkar og kjósa þann flokk, sem einn allra flokka hefur það á stefnuskrá sinni að skapa samfélag þar sem maðurinn er í öndvegi — Sjálfstæðisflokkinn. Reyðfirðingar fá sjúkrabíl KovrtarfirAi 9. júní SJÓMANNADAGURINN var haldinn hátíðlegur hér að venju. Bátarnir Gunnar og Snæfugl voru báðir í heimahiifn og voru þeir skreyttir fánum í tilefni dagsins. Snæfugl fór í skemmtisiglingu um kl. 9 um morguninn. Siglt var um fjörðinn með börn og fullorðna og tók mikill fjöldi þátt í sjóferðinni. Sjómannamessa var í Búðareyr- arkirkju og söng kirkjukór Egils- staða við messu. Eftir messuna |>Olíð «í ÓtfÚlCQt Veðrunarþol er einn ve.igamesti eiginleiki, sem ber að athuga þegar málað er við íslenzkar aðstæður. Þol — þakmálningin frá Málningu h.f. hefur ótvírætt sannað gæði sín, ef dæma má reynslu undanfarinna ára. Stöðugt eftirlit rannsóknastofu okkar með framleiðslu og góð ending auk meðmæla málarameistara hafa stuðlað að vinsældum ÞOLS. ÞOL er alkýðmálning. Einn lítri fer á um það bil 10 fermetra. ÞOL er framleitt i 10 staðallitum, sem gefa fjölmarga möguleika í blöndun. ÞAKMÁLNING SEM ENDIST málninglf Stjórn slysavarnadeildarinnar Ársólar og nýi sjúkrabíllinn. Fremst á myndinni má sjá Gunnar Hjaltason formann. Ljósm.i Halla Einarsdóttir var lagður blómsveigur að minnis- varða drukknaðra sjómanna. Kappróður hófst kl. 2 og tóku tíu sveitir þátt í keppninni, 4 kvenna- sveitir og 6 karlasveitir. Sigurveg- arar í kvennasveit voru Frystihús- stúlkur K.H.B. á 1 m. 54,5 sek. Ungmennafélagið Valur vann í karlasveit á 1 m. 36 sk.. Fleira var ekki til skemmtunar en slysa- varnakonur seldu kaffi í félags- heimilinu og var margt um manninn þar. Til máls tók formaður slysavarnadeildarinnar Ársólar, Gunnar Hjaltason og skírði fyrir kaffigestum kaup á sjúkrabíl sem slysavarnadeildin keypti í vetur með góðra manna hjálp. Sjúkrabíllinn var til sýnis á Sjómannadaginn. Bifreiðin er af Scout-gerð og útbúin öllum nauðsynlegum tækjum. í bílnum er ýmiss konar útbúnaður er Lionsmenn hafa hefið deildinni, svo sem súrefnis- tæki, taska með öllum nauðsyn- legum sjúkrabúnaði og sjúkra- karfa sem rennur inn í sleða sem vélaverkstæði Björns og Kristjáns smíðaði hér á staðnum. Verð bifreiðarinnar er um 2,6 milljónir. Reyðfirðingar hafa ekki átt sjúkrabíl fyrr og er þetta því mikið öryggi fyrir plássið. Þakkar slysavarnardeildin Ár- sól öllum þeim sem rétt hafa hjálparhönd við kaup á sjúkrabif- reiðinni, en hún hefur nú þegar farið níu sjúkraflutninga til Egils- staða og Neskaupsstaðar. Sjómannadeginum lauk með dansleik í félagsheimilinu um kvöldið og lék hljómsveitin Adam fyrir dansi. Þá má geta þess að slysavarna- konur selja samlokur á öllum dansleikjum sem haldnir eru í félagsheimilinu og rennur ágóði til sjúkrabílsins. Gréta. Ný Morgan Kane bók komin út ÚT ER KOMIN 9. bókin úr bóka- flokknum um Morgan Kane, „LÖG- REGLUFORINGINN, erindreki and- skotans", eftir Louis Masterson. Sagan gerist í Florida og fjallar um baráttu lestarkónganna Planters og Zieglers, sem börðust um völdin þar. Það varð hlutverk Kanes að stöðva þessa blóðugu og samviskulausu baráttu. Útkoma bókar nr. 10 er fyrirhuguð 1. júlí. Prenthúsið hefur einnig hafið útgáfu á nýrri vasabrotsseríu, „SVARTA SERÍ AN“, og hefur fyrstu bókinni verið mjög vel tekið. Næsta bók úr þeirri seríu kemur út um mánaðamótin júlí-ágúst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.