Morgunblaðið - 21.06.1978, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978
43
Asmundur Magnússon framkvæmdastjóri Sfldarverksmiðja ríkisins.
dag eru í kringum 400 tonn, en
þegar skilyrði eru góð fer þetta
upp í svona 450—600 á dag.
Ástandið er þannig hjá okkur nú
að lýsið er allt selt og farið en ekki
nema helmingur mjölsins er far-
inn.
Segja má að atvinnuástand sé
yfirleitt gott hér. Töluverð breidd
er í atvinnulífinu, bæði í sjávarút-
vegi — sem auðvitað skipar
hæstan sess og svo er Vegagerðin
með sína starfsemi. Þá er hér
starfandi sauma- og prjónastofa
og hefur hún verið starfrækt í
rúmt ár og ég held að ég geti
fullyrt að hún hefúr gengið bara
nokkuð þokkalega miðað við hlið-
stæðar saumastofur og framleiðsl-
an hefur líkað vel. Þá er mikið
byggt hér, bæði af íbúðarhúsum og
atvirinuhúsnæði þannig að mikil
gróska er hjá iðnaðarmönnum.
Reyðarfjörður er nú innflutn-
ingshöfn fyrir allt Austurland og
hafa skipafyrirtækin orðið mjög
góða aðstöðu hér fyrir sína starf-
semi. Þá er nýlokið byggingu
tollvörugeymslu sem verður
væntanlega tekin í notkun bráð-
lega. Að byggingu hennar standa
flest viðskiptafyrirtæki og sveitar-
félög á Austurlandi. Með tilkomu
tollvörugeymsiunnar og góðri að-
stöðu skipafyrirtækjanna má
segja að íbúar Austurlands standi
nokkuð vel að vígi hvað þetta
varðar, en þetta er geysilegt
hagræði miðað við ástandið eins
og það var áður.
Hvað varðar samgöngur eru þær
góðar á sjó og fáum við flestar
vörur þá leið, einnig er nókkuð um
landflutninga. Landleiðin er nú
orðin mjög góð, sérstaklega eftir
að hægt er að krækja fyrir
Lónsheiðina út fyrir Hvalnesið, en
áður fyrr lokaðist Lónsheiðin oft
nokkurn tíma yfir háveturinn. .
Um vegina sjálfa er bezt að segja
sem minnst, þeir eru algerlega
ómögulegir og mætti í því sam-
bandi benda „rallyökumönnum" á
að kona bara hingað austur í stað
þess að leita að lélegum vegum upp
til sveita. En það stendur víst allt
til bóta með auknum fjárframlög-
um sem hefur verið lofað. Sam-
göngur eru mjög góðar við Egils-
staði í sambandi við flugið,
áætlunarbíll og vöruflutningabíll
fara hér á milli einu sinni á dag.
Hvað með verklegar fram-
kvæmdir? — Nú eru í byggingu
verkamannabústaðir og unnið
hefur verið við lagningu varanlegs
slitlags á götur bæjarins en ég tel
það vera verk sem borgar sig mjög
vel. Þá höfum við lengi verið með
íþróttahús og sundlaug í byggingu
og væntanlega verður lokið við
þær framkvæmdir innan tíðar.
Þá hafa farið fram tilraunir með
borunum eftir heitu vatni fyrir
bæjarbúa og hafa þær tilraunir og,
rannsóknir bent ótvírætt til þess
að heitt vatn sé fáanlegt hér. Það
myndi auðvitað gjörbreyta allri
hitaveitu, en í dag er allt raf-
magns- eða olíukynnt. Og mjög
erfiðlega hefur gengið að fá leyfi
fyrir rafmagnshitun í nýjum
húsum vegna rafmagnsskorts og
er áætlað að svo verði þangað til
Kröflulínan er komin í gagnið,
sennilega á næsta ári.
Félagslíf hefur verið mjög dauft
hér, en það er vegna þess að fólk
hér vinnur alltof mikið. Einnig eru
hér að mínu viti of mörg félög
fyrir of fátt fólk. Blessuð pólitíkin
vaknar aðeins rétt fyrir kosningar,
síðan ekki söguna meir,“ sagði
Ásmundur Magnússon að síðustu.
ákaflega innan handar og vil ég
endilega nota þetta tækifæri til að
þakka honum svo og öllum fram-
ámönnum bæjarins fyrir mjög góð
störf í þágu okkar Borgfirðinga.
Að síðustu í sambandi við atvinnu-
málin vil ég geta þess að nú er
unnið að því að innrétta hér hús
fyrir saumastofu sem hreppurinn
mun reka í framtíðinni. Þar munu
10 konur fá starf við saumaskap.
Þá er hið tímabundna atvinnuleysi
yfir vetrartímann mjög bagalegt
og væri mjög æskilegt að hægt
væri að finna einhverja lausn á
þeim vanda.
Hvað með helztu framkvæmdir
á vegun hreppsins? — Lang-
stærsta verkefni síðustu ára er
bygging nýs og glæsilegs félags-
heimilis. Við tilkomu þessa glæsi-
lega félagsheimilis er nú mjög góð
aðstaða til ýmiss konar félags-
starfsemi og er allt félags- og
tómstundastarf hér með miklum
blóma. Menn tefla og spila bridge
einu sinni í viku. Þá hefur
leikstarfssemi lengi verið í heiðri
höfð og ekki sízt með tilkomu
félagsheimilisins. Við höfum feng-
ið hingað menntaða leikstjóra sem
hafa staðið sig mjög vel. Við
fengum fyrst hingað Hörð Torfa-
son og síðan kom Einar Þórbergs-
son en hann er jafnframt skóla-
stjóri barnaskólans á staðnum. Og
fyrst að skólinn berst í tal finnst
mér rétt að geta þess að okkur
hefur jafnan gengið vel að fá
hingað kennara þvert á móti því
sem gengur og gerist annars
staðar á landinu.
Á síðustu tveimur árum hefur
verið unnið að lagninu holræsa í
Jón Sigurðsson bóndi Sólbakka
Borgarfirði eystri.
mönnum hér í Borgarfirði og hafa
þeir jafnan reynst með ágætum.
Það var mjög algengt hér áður
fyrr að 1—2 bátar væru smíðaðir
hér yfir vetrartímann. Þá er og
hirða þessara báta mjög til
fyrirmyndar. Kaupfélagið hér er
útibú frá Kaupfélagi hérðasbúa og
rekur það verzlun, frystihús,
fiskmjölsverksmiðju og saltfisk-
verkun. Þá er Hilmar Jónsson með
saltfiskverkun. Trillurnar eru all-
ar gerðar út af einstaklingum og
svo eru nokkrir aðkomubátar sem
leggja hér upp afla sinn. Eftir að
Þorsteinn Sveinsson kaupfélags-
stjóri kom hingað að kaupfélaginu
hefur hann verið Borgfirðingum
Fjallasýn frá Sólbakka.
Sólbakki í Borgarfirði.
þorpinu á vegum hreppsins og
hafa þær framkvæmdir gengið
ágætlega og lögð hefur verið ný
neysluvatnslögn úr Bakkafjalli
niður í þorpið. Þá er alltaf af og
til unnið að ýmis konar endurbót-
um á flugvellinum á vegum
Flugmálastjórnar og er það sam-
dóma álit allra hér að mjög vel sé
að þeim málum staðið og erum við
sérstaklega þakklát fyrir þennan
mikilvæga þátt.
Nú ert þú bóndi Jón, hvaða
þætti búskapsins fæst þú aðallega
við?
— Ég, eins og allir aðrir bænd-
ur hér í sveitinni, er eingöngu með
fjárbú. Nokkrir eru með hesta sér
til skemmtunar og enn aðrir með
kýr til heimilisnota. — Það sem
veldur okkur mestum áhyggjum
nú er, að hér hefur skotið upp veiki
í fénu, svokallaðri „riðu“, sem er
i dag algerlega ólæknandi. Við
henni hafa hvorki lyf né bólusetn-
ingar dugað. Þetta er sjúkdómur í
miðtaugakerfi dýranna sem lýsir
Framhald á bls. 63.