Morgunblaðið - 21.06.1978, Side 14

Morgunblaðið - 21.06.1978, Side 14
46 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 1978 Eftirfarandi grein birt- ist í bandaríska blaðinu Newswéck þann 14. nóvem- ber síðastliðinn og er eftir fréttaritara þess í Hong Kong, Sidney Licu, ásamt Clifford May og Holger Jensen. Lýsir hún því ástandi er nú virðist vera ríkjandi í Kína meir en ári eftir dauða Maós for- manns. Með spjöld í bak og fyrir þarsem á var ritaður listi yfir glæpi sína, stóðu tíu kínverskir fangar nýlega fyrir framan hóp áhorfenda sem hæddust óspart að þeim. Þetta var í hafnarborg- inni Hangchow. Foringi í Frels- isher Alþýðunnar þaggaði niður í óróaseggjunum með því að slá í stóra silfurlitaða bjöllu. Síðan las hann upp ákærurnar gegn föngunum í gjallarhorn: Morð, íkveikjur og gripdeildir. Um leið og sérhver ákæra var lesin upp var hrópað „Niður með gagn- byltingarmennina. Þeir eiga það skilið að deyja. Að athöfninni lokinni var farið með fangana upp á nálæga hæð og þeir skotnir fyrir allra augum. Fyrir þá sem ekki höfðu tækifæri til að vera viðstaddir lét héraðs- dómstóllinn í Hangchow þekja hús með veggspjöldum þar sem á voru letruð nöfn þeirra er teknir höfðu verið af lífi. Yfir sérhvert nafn hafði verið strik- að stórt rautt X: Slík veggspjöld verða æ tíðari sjón. Jafnt í Peking sem úti á landi sjást þess merki þessa dagana, að stjórn Hua Kuo-feng hafi hrundið af stað harðvítugri baráttu fyrir lögum og reglu og er hún oft á tíðum blóðug. Samkvæmt var- kárustu ágiskunum vestrænna heimildarmanna hefur 98 dauðadómum verið fullnægt síðastliðna átta mánuði. Ýmsir breskir og franskir blaðamenn í Peking álíta að hugsanlega hafi aftökurnar verið miklu fleiri án þess að frá þeim hafi verið skýrt, einfaldlega vegna þess að þær hafi átt sér stað á svæðum sem lokuð eru útlendingum. Þeir hafa sagt að tala er skipti þúsundum væri miklu raun- sannari. Hver svo sem annars rétta talan er eru markmið herferðar Hua augljós, að binda enda á áhrif hinna róttæku fylgis- manna hinnar ofsóttu og niður- lægðu „klíku fjórmenninganna" innan flokksins og endurreisa „sósíalistiskan aga og lagagildi" í landi þar sem glæpir og félagsleg ókyrrð eru ennþá plága sem meira en áratugs stjórnmálalegur óstöðugleiki hefur skilið eftir sig. Þessi ögun virðist hafa verið hafin á öllum sviðum hins kínverska þjóðfélags. Ferða- menn sem lagt hafa leið sína til meginlandsins skýra frá því að bændur sem selja framleiðslu sína á svartamarkaðsverði hafi verið handteknir í stórum hóp- um. Umferðalagabrjótar geta ekki lengur púað á lögreglu- menn og horfið út í buskann án refsingar eins og áður. Ef hjólreiðamenn aka á gangandi vegfarendur eiga þeir nú á hættu að hin dýrmætu farar- tæki þeirra verði tekin af þeim á staðnum. Jafnvel þeir sem ganga óleyfilega yfir götu eru sektaðir. Og í alvarlegri tilfell- um geta nú glæpamenn sem áður hefðu sloppið með „endur- menntun", nú átt von á skyndi- aftöku og raunar hafa þeir er starfa við erlend sendiráð í Kína sem sérfræðingar í málefnum þess tekið eftir því að ákærur fyrir að „stela, brjóta og berja“ sem eru tiltölulega algengir glæpir á hinu byltingarsinnaða kínverska lagamáli, þýða oftar og oftar dauðadóma fyrir hina ákærðu (þess má geta að Mao formaður sjálfur lagði höfuð- áherslu á „endurmenntun" glæpamanna, einkum með því að þeir yrðu sendir til að vinna á samyrkjubúum úti í sveitun- um sem þeir svo stunduðu ásamt námi pólitískra fræða. Hann var andvígur beitingu dauðarefsingar nema í undan- tekningartilfellum eftir að allar leiðir til að snúa glæpamannin- um á rétta braut hefðu verið til þrautar reyndar, aths. þýð.). Fyrstu aftökurnar sem vöktu almenna alþjóðlega athygli voru gerðar heyrumkunnugar með stuttri yfirlýsingu frá Shanghai stærstu borg Kína og höfuðvígi Fjórmenninganna, í mars síð- astliðnum. Yfirlýsingin nefndi nöfn 26 manna sem skotnir hefðu verið af aftökusveit og 277 dauða- dóma sem frestað hefði verið að fullnægja. í ágúst voru tólf „gagnbyltingarsinnar" til við- bótar teknir af lífi í Anyang sem er í Hoanhéraði. Þessar aftökur ullu því að Amnesty Inter- national, sem nýlega hlaut friðarverðlaun Nóbels, og berst fyrir réttindum hugsjónafanga, lýsti djúpum áhyggjum sínum og sendi út ákall þess efnis að dauðarefsing yrði afnumin. I september staðfesti kínverska utanríkisráðuneytið að geðsjúk- ur maður hefði verið tekinn af lífi fyrir að hafa stungið lög- fræðing frá New York með hnífi í Peking. Síðan þá hafa að minnsta kosti tíu manns verið teknir af lífi í Peking að því er virðist fyrir glæpsamlegt at- hæfi. Tuttugu og þrír „gagnbylt- ingarsinnaðir" pólitískir fangar hafa verið teknir af lífi í Kunming og skýrt hefur verið frá álitlegum fjölda af öðrum aftökum í sex kínverskum borg- um. Þar sem allir þeir er gerast brotlegir við lögin eru stimplað- - ir „gagnbyltingarmenn", er erf- itt að greina á milli venjulegs glæpamanns og pólitísks and- ófsmanns. í Kína eru engin rituð refsilög í gildi og dómar þeir, sem „Alþýðudómstólarnir" svokölluðu kveða upp, eru mjög mismunandi þungir og oft ekki í samræmi við það hve alvarlegt brotið er. Maður úr alþýðufjöl- skyldu getur fengið fimm ára fangelsi fyrir morð, meðan annar úr borgarafjölskyldu gæti verið tekinn af lífi ef hann yrði sekur fundinn um að hafa stolið eigum ríkisins. Eins og opinber talsmaður sagði nýlega við hóp erlendra gesta í Heilukianghér- aði í norðausturhluta Kína hafa stjórnvöld byrjað að taka af lífi „einstaklinga sem klíka fjór- menninganna og fylgismenn hennar hefðu áður hlíft". Lítill vafi leikur á því að Hua notfærir sér þessa herferð fyrir lögum og reglu til að þurrka út pólitísk öfl sem enn halda tryggð við Chiang Ching, ekkju Maós formanns og aðra róttækl- inga. Hann hefur viðurkennt að „óæskileg öfl“ séu ennþá til innan Kommúnistaflokksins og skoðun ýmissa sem glöggt þekkja til mála er sú að ákvörðun Huas um að fresta til vors að kveða Þjóðþingið saman endurspegli löngun hans til að taka til á sínum pólitíska bæ áður. FYLGI ALMENNINGS: Ef litið er á þær óeirðir sem öðru hverju eiga sér stað, og kínversk dagblöð og héraðsbundnar út- varpsstöðvar skýra frá, virðist augljóst að herferð hins nýja formanns til að afmá síðustu ummerkin um áhrif róttækra í Kína eftir Maó, gangi hvorki eins hratt fyrir sig né eins átakalaust eins og æðstu leið- togar landsins hefðu kosið. Til dæmis er vitað að menn eins og fyrrverandi varaforsætisráð- herra landsins, Teng Hsio-Ping, sem áður var í ónáð en nú hefur fengið uppreisn æru og áhrif innan flokksins á ný, beita áhrifum sínum á Hua til að fá fram algera hreingerningu inn- an flokksins. Af 37 milljón félögum í kínverska kommún- istaflokknum, komst lauslega áætlað um þriðjungur til áhrifa á velmektardögum hinna rót- tæku í Menningarbyltingunni, og margir þeirra eru ennþá í áhrifastöðum. Teng segir nú að í stað „orðháka, lýðskrumara og grobbara" eigi að setja reynda, miðaldra starfsmenn í stöður, þá sem áður var ráðist á. Tvö háttsettustu og líklegustu skot- mörk Tengs, eru borgarstjórinn í Peking Wu Teh, og Chen Hisi-lien hershöfðingi sem er yfirmaður Peking-herstjórn- arsvæðisins. Þeir voru báðir endurkosnir í miðstjórn flokks- ins á ellefta flokksþinginu í ágúst síðastliðnum, en gagn- rýndir á áberandi veggspjöldum í október fyrir að vera í tengslum við fjórmenningaklík- una. En Hua verður að fara var- lega í sakirnar ætli hann að halda herferð sinni áfram. Stjórn hans hefur nýlega áunnið sér áberandi vinsældir meðal almennings fyrir að hafa eyði- lagt nokkrar af hinum bylt- ingarsinnaðri áætlunum hinna róttæku á sviði menningar og menntunar, og fyrir að hafa beitt sér fyrir fyrstu almennu kauphækkunum í landinu um árabil. Þó að harkalegar ráð- stafanir séu vafalaust nauðsyn- legar til að reisa við aga í verksmiðjum og á búgörðum í Kína, gætu þær allt eins vel snúist gegn honum sjálfum. Eftir ellefu ára ókyrrð hefur kínversku þjóðinni verið lofað hvíld. Skyndileg margföldun á handtökum, aftökum og stjórn- arfarslegri uppstokkun gæti skapað nýja ókyrrð, svert hinar uppörvandi áætlanir stjórnar- innar og gefið fólki það óþægi- lega á tilfinninguna að því meira sem breytist í Kína því meiri verði kyrrstaðan. „Hua sannfærði alþýðu Kína um að með því að ýta klíku fjórmenn- inganna til hlíðar markaði það tímamót fyrir hana,“ sagði vestrænn fréttaskýrandi í Hong Kong. „En hann verður áð viðhalda trúnaðartrausti sínu ef honum á að takast að halda til lengdar þeirri stöðu er síðasta ár hefur skapað." o

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.