Morgunblaðið - 16.08.1978, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.08.1978, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 175. tbl. 65. árg. MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Á mánudaginn kemur eru tíu ár liðin frá því að sovézkar hersveitir réðust inn í Tékkóslóvakíu í nafni Varsjárbandalagsins og járntjaldið féll á „vorið í Prag“, eins og frjálsræðistímabil Alexanders Dubceks, þáverandi forsætisráðherra og stuðnings- manna hans, hefur verið nefnt. Síðan hefur Dubcek ekki átt upp á pallborðið og er sjaldan getið í fréttum, en mynd þessa tók John Myhre. blaðamaður norska blaðsins Aftenposten, af honum á götu í Bratislava í byrjun þessa mánaðar. Myhre var annar þeirra blaðamanna, sem tékkneska lögreglan handtók og kyrrsetti meðan gögn þeirra voru rannsökuð fyrir fáum dögum. sbr. frétt neðst á síðunni. Tvær filmur þeirra voru eyðilagðar, en þessi mynd var meðal þeirra sem blaðamennirnir höfðu enn í fórum sínum við komuna til Osló og birtist hún fyrst í gærkvöldi. Á skiltinu, sem Dubcek er að ganga fram hjá, stenduri „Bílastæði fyrir slóvakfska flokksnefndarmenn“. (AP-símamynd) Lögregla skaut fjóra verkfallsmenn tíl bana Salishurv — 15. ájfúst — Reutcr Fékk fimm ára út- legð fyrir rit um „refsilækningar ” Moskva. 15. ágúst. — AP. Rcuter. ALEXANDER Podrabinek. 25 ára gamall sovézkur andófsmaður, var í dag dæmdur í fimm ára útlegð í Síberíu. Honum var gefið að sök að breiða út óhróður og róg um Sovétríkin á Vesturlöndum. Dómurinn var kveðinn upp í heimabæ Podrabineks. Electrosal, smábæ skammt frá Moskvu. Bærinn er á iðnaðarsvæði, þar .sem útlendingum er bannað að fara um. Aðeins foreldrar Podrabineks var leyft að vera við réttarhöldin. Podrabinek starfaði í hópi andófsmanna, sem nátengdir eru Helsinki-hópnum í Sovétríkjunum. Hann gaf út bók ásamt félögum sínurn um meðferð sovézkra geð- lækna á andófsmönnum. í bókinni sem heitir „Refsilækningar,“ er að finna skrá yfir lyf, sem sovézkir eru sagðir beita, 102 geðlæknar eru tilgreindir í henni og einnig 200 andófsmenn, sem sætt hafa meðferð geðlækna. Bók þessari, sem rituð er í þurrum skólabókar- stíl, var smyglað til Bretlands, en þar hefur Amnesty International séð um að dreifa henni. Fyrir réttarhöldin hafði Podra- binek farið fram á, að brezkur hæstaréttarlögmaður að nafni Louis Blom Cooper fengi að verja hann fyrir dómi, en yfirvöld tóku beiðni hans ekki til greina og skipuðu sovézkan lögfræðing að nafni Yevgeny Schulman verjanda hans. Podrabinek hafnaði honum og kaus að verja sig sjálfur. Fyrr á þessu ári sagði Podrabinek, að KGB heföi hótað honum fangelsisvist, ef hann bæri ekki vitni gegn Júrí Orlov, sem nýlega var dæmdur til 7 ára þrælkunarvinnu og 5 ára útlegðar. Aloxander Podrabinok TIL mikilla átaka kom milli verkfallsmanna og lögreglu við koparnámu í Mangula í Rhódesíu í dag. Lögreglan hóf skothríð á verkfallsmenn, sem áætlað er að hafi verið um þrjú þúsund samankomnir, með þeim afleiðingum að fjórir létu lífið og fimm særðust alvarlega. Einn lögreglumaður særðist lítillega, en sex námuverkamenn voru teknir höndum. Utanþingsstjóm er talin Kklegust Námamenn í Mangula hafa verið í verkfalli að undanförnu til að ítreka kröfur sínar um aðgerðir til að ráða bót á atvinnuleysi, sem ríkjandi er í Mangula-héraðinu skammt norður af Salisbury. Skæruliðar úr hreyfingu Joshua Nkomos láta mjög til sín taka á þessum slóðum og fara umsvif þeirra vaxandi. I Mangula eru mestu koparnámur í Rhódesíu og eru námamenn undantekningarlít- ið dökkir á hörund. Til að halda aftur af verkfallsmönnum, sem söfnuðust saman í morgun, kom lögreglan fyrir tálmunum, og kom til átaka þegar reynt var að hindra verkfallsmenn í að komast yfir þær. Segir lögreglan þá hafa beitt öxum, kylfum og jarnstöngum, og hafi ekki annað verið til ráða en að hefja skothríð þegar tveir lögreglumenn höfðu verið dregnir inn í þvöguna. bissabon — 15. ágúst. AP. HAFT var eftir áreiðanlegum heimildum í Lissabon í dag að stjórnmálaflokkar myndu ekki eiga aðild að fyrirhugaðri ríkisstjórn Alfredo Nobre da Costa. Leiðtogi miðdemókrata, Freitas do Amaral, sagði að loknum fundi með da Costa að stjórnarmyndun með þátttöku flokkanna yrði „afar torveld. ef ekki með öllu útilokuð", og væri sennilega ekki um annað að gera fyrir da Costa en að kveðja til menn utan þings til að taka við ráðherraembættum. Eftir yfirlýsingum annarra flokks- leiðtoga að undanförnu að dæma virðist því utanþingsstjórn líkleg- asta lausnin. Da Costa hittir að máli forystumenn iðnaðar, landbúnaöar og verkalýðs í dag. Hann hefur lýst því yfir að hann muni hefja eiginleg- ar stjórnarmyndunartilraunir á fimmtudag, og skýra síðan Eanes forseta frá því um næstu helgi hvort þær tilraunir leiddu til árangurs eða ekki. Alfredo Nobre da Costa Norskir fréttamenn útilokaðir frá Moskvu NORSKA utanríkisráðuneytið mótmælti í gær synjun sovézkra stjórnvalda á vega- bréfsáritun fyrir fjóra norska blaðamenn, sem hugðust fylgja Jens Evensen hafréttar- ráðherra til Moskvu þar sem hann ræðir við Alexander Ishkoff sjávarútvegsráðherra um friðunaraðgerðir við Svaibarða. Sovézka sendiráðið í Osló bar því við að ekki væri unnt að útvega blaðamönnunum gistingu í Moskvu og væri vegabréfsáritun því óþörf. Norska blaðamannasambandið hefur jafn- framt borið fram mótmæli við sovézka sendiherrann í Osló, og gefið til kynna að skortur á gistirými sé ekki frambærileg ástæða fyrir synjuninni. Einn þeirra blaðamanna, sem hér um ræðir, er Hans Petter Nilsen hjá Aftenposten, en hann var hér í Reykjavík á vegum blaðsins í sumar og sendi heim fréttir af kosningum og fjallaði meðal annars um fjármálatengsl Alþýðuflokksins og norska Verkamanna- flokksins. Nilsen tjáði Mbl. í gær, að áritunarmálið hefði vakið athygli í Noregi, ekki sízt vegna þess hve málatilbúnaður sovézka sendiráðsins væri ósannfærandi. Aftenposten hefði reyndar fengið þær upplýsingar hjá Intourist, hinni opinberu sovézku ferðaskrifstofu, sem annast alla fyrirgreiðslu vegna ferða til Sovétríkjanna, að sovézka sendiráðið hefði aldrei spurzt fyrir um það hvort hægt væri að fá gistingu fyrir blaðamennina. „Hér í Noregi er litið á það sem tilraun til íhlutunar í samskipti norskra fjölmiðla og norskra yfirvalda þegar stjórn- völd annars ríkis reyna að hindra það, eins og hér hefur gerzt, að fréttaflutningur af stjórnarviðræðum geti farið fram með eðlilegum hætti," sagði Nilsen. „Það dregur svo ekki úr að fyrir fáeinum dögum voru tveir Aftenposten-menn kyrrsettir í Tékkóslóvakíu méðan yfirvöld þar grandskoðuðu öll þeirra gögn, og þegar þeir fengu þau aftur í hendur um leið og fararleyfið var búið að eyðileggja fyrir þeim tvær filmur." Aftenposten, norska útvarpið og fleiri fjölmiðlar í Noregi eru með fasta fréttaritara við störf í Moskvu, þannig að ekki verður fréttalaust frá viðræðum Evensens og Ishkoffs, þrátt fyrir þessar ráðstafanir sovézkra stjórnvalda. Nilsen kvaðst hafa talað við Arne Treholt, nánasta aðstoðar- mann Evensens, símleiðis í gær, og sagði hann viðræðurnar fara vel fram og í góðum anda. Væri ekki við því að búast að í viðræðunum yrði fjallað um óútskýrðar skipaferðir Sovétmanna við strendur Norð- ur-Noregs né áritunarmálið, heldur yrði kappkostað að ná árangri í sambandi við nauðsynlegar friðunaraðgerðir við Svalbarða. Sovétmenn eru eina fiskveiðiþjóðin á þessum miðum, sem ófáanleg er til að gefa upp aflamagn sitt, en það torveldar aftur friðunaraðgerðir, sem Norðmenn eru að reyna að skipuleggja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.