Morgunblaðið - 16.08.1978, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.08.1978, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978 Á Selíossi stendur nú yfir landbúnaðarsýning ein mikil, sem nargir eiga sjálfsagt eftir að sjá. Mbl. brá sér austur fyrii íja.ll í gær og ræddi við nokkra sýnendur og tók Rax meðíylgjandi myndir við það tækifæri. Fálkinn og stál: Kynna nýja mjaltavél Meðal þess sem er til sýnis hjá Fálkanum og Stál á landbúnaðarsýn- ingunni á Selfossi er mjaltavél sem ekki hefur verið á markaðnum áður og er hún afkastameiri en þær sem áður hafa tíðk- ast. Sýning fyrirtækisins nær yfir marga hluti sem viðkoma búskap og einnig eru sýnd ýmis handverk- færi og fleira. Er blaðamenn komu á sýning- arsvæði þeirra utanhúss stóð yfir sýning á þvottafroðu og hreinsitæki og háþrýsti vatns- hreinitæki fyrir mjólkurbíla, frystihús og skip. Þessi sýning fer fram einu sinni á dag þar sem ekki fæst nægilegt loft oftar. Friðrik Halldórsson tæknifræðingur sýndi gestum hvernig nota ber slík tæki. Friðrik tjáði okkur að sýning Fálkans og Stáls væri yfirlits- sýning yfir margt sem viðkemur landbúnaði. Friðrik Halldórsson, tœknifrœbingur aö hreina dráttarvél með froöu. (Jtungunarvélin vekur mikla athygli gesta, einkum og sér i lagi bama og unglinga. M.R. sýnir á þrenuir stöðum í kjallara gangfræða- skólans er mjólkurfélag Reykjavíkur með einn hluta sýningar sinnar, en mjólkurfélagið er auk þess með sýningarbás ut- andyra og útungunarvélin í gripahúsunum er frá því. Erling Karlsdóttir fræddi okkur á því að Mjólkurfélagið sýndi ýmislegt fóður og fræ, auk brynningartækja og fóðrara fyrir hænsni. Þá eru í kjallaran- um ýmis garðáhöld, sem og ungabúr og útungunarvél. Á útisýningarsvæðinu sýnir fyrirtækið girðingarnet, af ýmsum tegundum, fóðurkerrur og vagna, baggabörur og hjól- börur stórar sem venjulegar. Útungunarvélin í gripahúsi því, sem svínin og hænsnin eru í, er sennilega sá sýningargripur M.R. sem mesta athygli hefur vakið. Útungunarvélin er alltaf í gangi og af og til skríður hæsnaungi úr eggi, við mikinn fögnuð sýningargesta, þó eink- anlega hinna yngri. Þórh.f.: Dráttarvél úthúin þœgindum mílíma bús Magnús S. Ríkharðsson viö stálgrindahús þaö, sem Héðinn notar sem upplýsingamiðstöð. Kynna stál- grindarhús „VIÐ kynnum hér nýjar gerðir af Ford-dráttarvél- um. Það eru fyrst og fremst nýjungarnar sem við kynnum en það al- genga er líka með. Við erum með 8 dráttarvélar frá 47 upp í 94 hestöfl og þar af er ein með drifi á öllum hjólum", sagði Einar Þorkelsson hjá Þór h.f. Á sýningarsvæði Þórs gat einnig að líta handverkfæri frá Wolf og var sýningarmaður til staðar frá því fyrirtæki og kynnti hann og sýndi meðferð vélanna. Þýska fyrirtækið Welg- er var einnig með sinn umboðs- mann á svæðinu en frá því fyrirtæki sýndi Þór heybindivél- ar, múgavélar og heyhleðslu- vagna. Umboðsmaðurinn frá Welger tjáði okkur að fyrirtæk- ið hefði verzlað við ísland í 12 ár en þetta var í fyrsta sinn sem hann kæmi til landsins. Hann sagði að sýningar af svipuðu tagi væru haldnar þó nokkuð oft í Evrópu en þetta væri stærsta smásýningin sem hann hefði séð í þeirri heimsálfu. Það var ýmislegt annað til sýnis á svæði Þórs en Einar sagði okkur að dráttarvél nokk- ur ný og stór hefði vakið einna mesta athygli sýningargesta. Vélin er útbúin öllum þeim þægindum sern nútima bíll er yfirleitt búinn út með svo að hér eftir væri vinna á dráttarvél varla nein sorpvinna eins og Einar komst að orði. FYRIRTÆKIÐ Garða-IIéðinn sýnir á landbúnaðarsýning- unni stálgrindarhús, en hús þessi eru framleidd í einingum og að sögn Magnúsar S. Ríkharðssonar henta þau til hvers konar nota. sama hvort um er að ræða flugskýli eða einbýlishús. Má sem dæmi nefna að bæði gripahúsin á landbúnaðarsýningunni eru stálgrindarhús frá Garða-IIéðni. Magnús sagði að hráefnið í húsin kæmi frá Svíþjóð og væri það stál, en húsin eru hins vegar sett saman hér. Að utan eru þau klædd með stálklæðningu og er um tvær klæðningar að velja, annað hvort heit-zinkhúðað stál og hins vegar klæðningu, þar sem stálið er fyrst galvaniserað og síðan plasthúðað á framhlið en lakkað á bakhlið. Hægt er að hafa húsin eins löng og hver vill, en þau eru framleidd í breiddinni sex metr- ar. Að sögn Magnúsar hefur verðið á húsunum þótt allgott og hafa þau reynzt vel hérlendis. í Hann unir sér augsýmtega vel litli snáöinn á dráttarvélinni en aö baki honum er hin nýja og fullkomna dráttarvél sem Þár kynnir á landbúnaöarsýn- ingunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.