Morgunblaðið - 16.08.1978, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978
Þessir voru
med lodnu
EFTIRTALIN skip tilkynntu loðnu-
afla til Loðnunefndar frá því kl. 15
,í fyrradan tii kl. 17 í gæri Kap 2.
VE 630 iestir, Freyja RE 385,
Dagfari ÞII 500, Loftur Baldvins-
son EA 730, Súlan EA 800. Hákon
ÞII 800, Helga 2. RE 540, Skarðsvík
SH 620, Huginn VE 550, Börkur NK
1150, Sigurður RE 1450, Magnús
NK 350, Guðmundur RE 850, Arni
Sigurðsson AK 840, Gunnar Jóns-
son VE 300, Harpa RE 620, Bergur
VE 300 og Óskar Haiidórsson RE
420 lestir.
Sýningin á Selfossi:
Meira en 30
þús. manns
hafa komið
MEIRA cn 30 þúsund manns
höfðu skoðað landbúnaðarsýning-
una á Selfossi í gærkvöldi, en í
gær komu alls 4174 manns á
sýninguna. Þá komu einnig í
gærkvöldi stærsti og minnsti
hestur landsins og vcrða þeir
hafðir til sýnis, þar til sýning-
unni lýkur.
í dag, miðvikudag, er sýningin
opin frá kl. 14 til 23 og meðal
dagskráratriða eru heimilis-
iðnaðarsýning, sýnikennsla á veg-
um afurðadeildanna kl. 14, 16, 18
og 20, þá verða hryssur á sýning-
unni sýndar. Skógræktarstarfsemi
verður kynnt kl. 20 og kl. 21 verður
tízkusýning, þar sem sýndur verð-
ur ullar- og skinnafatnaður. Á
morgun, fimmtudag, verður sér-
stakur dagur æskunnar á sýning-
Nautið Vinur ieitt um sýningar-
svæðið. Ljósm. RAX.
Ljósm. Mbl.: Ol. K.M.
Egill Skúli Ingibergsson borgarstjóri á skrifstofunni í gærmorgun.
„Fyrsti dagurinn
margbreytilegur”
„ÞESSI fyrsti dagur minn í
starfi borgarstjóra var marg-
brcytilegur, enda ekki furða,
þar sem allt var nýtt fyrir
mér,“ sagði Egill Skúli Ingi-
bergsson borgarstjóri þegar
Morgunblaðið spurði hann,
hvernig honum hefði Iikað
fyrsti dagurinn í hinu nýja
starfi.
Hann sagðist hafa setið sinn
fyrsta borgarráðsfund og eins
tekið þátt í undirbúningi hans.
„Það komu ýmis mál fyrir í dag,
og það eru mörg óskyld mál sem
rekur á fjörur og mörg þeirra
þarf að skoða gaumgæfilega.
Þetta er nú það helzta sem kom
fyrir mig í dag,“ sagði Egill
Skúli.
Skagaströnd:
4 útlending-
ar handteknir
LÖGREGLAN í A-Húnavatnssýslu
handtók í fyrradag fjóra útiend-
inga á Skagaströnd, sem þar voru
að selja plötur og bækur og
kváðust vera að útbreiða sína trú.
Við nánari eftirgrennslan kom í
ljós, að útlendingarnir höfðu ekki
hreint mjöl f pokahorninu, og
hefur þeim nú verið vísað úr iandi.
Samkvæmt því sem Morgunblað-
inu var tjáð í gærkvöldi, þá höfðu
útlendingarnir, sem eru tveir Bret-
ar, Indverji og Ný-Sjálendingur,
Drukknaði
skammtfrá
Akranesi
TÆPLEGA sextugur maður frá
Akranesi, Þorsteinn Þorsteinsson
til heimilis að Háholti 17, fannst
drukknaður í fjöruborðinu undan
Hafnarlandi í fyrrakvöld. Þor-
steinn hafði fyrr um daginn farið
til silungsveiða við landið og
þegar hann kom ekki heim á
eðlilegum tíma var farið að
svipast um eftir honum. Bíll
Þorsteins fannst fljótlega, og
skömmu síðar fannst lík Þor-
steins í sjónum. Er jafnvel talið
að hann hafi fengið aðsvif og
fallið í sjóinn, en krufning átti að
fara fram í gær.
Þorsteinn Þorsteinsson var
fæddur 29. júlí 1920. Hann var
ókvæntur.
Skreiðin:
NÚ ER verið að losa 19 þús. pakka
af skreið úr skipi Víkur h.f.,
Hvalvík, í Lagos í Nígeríu, en losun
hófst þar s.l. laugardag. Frá Lagos
fer Hvalvík til Port Ilarcourt en
þar á land fara 17 þús. pakkar og
sfðan fer skipið með 3 þús. pakka
til Cala Bar. Annað skip Víkur h.f..
Eldvík, iagði af stað tii Nígeríu í
fyrradag með 8000 pakka af skreið
og um 7 þús. pakka af þurrkuðum
þorskhausum, eða um 15 þús.
pakka alls. Sá farmur fer til Warrí
í Nígeríu.
Bragi Eiríksson forstjóri Skreiðar-
samlagsins sagði í samtali við
Einar Ágústsson:
„Kallaður ráðherra,
en er það samt ekki.”
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samhand við Einar Ágústsson
utanríkisráðhcrra og varafor-
mann Framsóknarflokksins og
innti hann eftir því hvort hann
hefði ekki verið í framboði í þá
Einar Ágústsson
viðræðunefnd sem kosin var
hjá framsóknarmönnum til
viðra'ðna við Sjálfstæðisflokk
og Alþýðufiokk um stjórnar-
myndun. Einar kvaðst hafa
verið tilbúinn til þess að taka
þátt í þeim viðræðum af hálfu
framsóknarmanna og var hann
þá spurður að því hvernig hann
tæki því að hafa ekki náð kjöri.
„Ég tek því aldeilis prýðilega,"
sagði ráðherrann, „og mér þótti
vænt um að fá að vera laus við
þetta. Það tókst nú reyndar ekki
betur en fram er komið, en það
er ekkert óyndi í mér.“
Einar var spurður að því
hvort hann liti á það sem
vantraust á sig í ráðherraem-
bætti að ná ekki kjöri í viðræðu-
nefnd framsóknarmanna varð-
andi nýja ríkisstjórnarmyndun.
„Það tel ég ekki vera," svaraði
Einar, „ég tel þetta vera fram-
hald af því að þeir menn, sem
voru kosnir í þessa viðræðu-
nefnd, höfðu tekið þátt í viðræð-
unum um myndun nýrrar
vinstri stjórnar. Þessir menn
stóðu sig vel í þeim viðræðum og
síðan hefur formaður flokksins
einnig komið inn í viðræðurnar,
en ég er ekkert hissa á því að
þessir menn fengu traust fram-
sóknarmanna til áframhaldandi
viðræðna."
Einar var spurður álits á
þeirri þróun sem átt hefur sér
stað í stjórnarmyndunarviðræð-
um.
„Það er erfitt að segja nokkuð,
maður veit svo lítið. Þetta er
leiðindaástand. Maður er kallað-
ur ráðherra, en er það samt
ekki. Maður má ekkert gera, en
má þó ekki fara.“
flutt á eðlilegan hátt 800 hljómplöt-
ur með sér til landsins, en þegar
leitað var í farangri þeirra, fundust
2700 hljómplötur, 50 snældur og
hundruð bóka, sem innihéldu trúar-
skoðanir þeirra. Ljóst er að útlend-
ingarnir höfðu komið miklu fleiri
hljómplötum, snældum og bókum
til landsins, þar sem þeir viður-
kenndu að hafa stundað þessa iðju
sína á átta stöðum á landinu áður
en þeir komu til Skagastrandar og
einn þeirra var t.d. með 800 þús. kr.
í peningum á sér. Tveir útlending-
anna höfðu komið með Smyrli til
landsins og voru með farmiða til
baka og hafa þeir nú verið sendir til
Seyðisfjarðar, hinir tveir voru með
flugmiða og voru þeir sendir til
Reykjavíkur.
Hljómplöturnar og snældurnar
voru gerðar upptækar, en bækurnar
innsiglaðar hjá sýslumanni á
Blönduósi.
47 þúsund pakkar
farnir til Nígeríu
Morgunblaðið, að Bjarni Magnússon
hefði dvalið í eina viku í Nígeríu
áður en Hvalvíkin kom þangað til að
undirbúa komu skipsins og ganga frá
öllum pappírum. Gekk allt það vel,
að skipið var kailað inn á höfn á
fjórða degi frá því það kom að strönd
landsins. Áður en Bjarni Magnússon
fór til Nígeríu voru þeir Bragi
Eiríksson og Magnús Friðgeirsson
búnir að vera þar í tvær vikur til að
ganga frá skreiðarmálum.
Þegar Mbl. ræddi við Braga í gær,
sagði hann, að í Hvalvík og Eldvík
væru um 47 þús. pakkar af skreið.
Næsti farmur ætti að fara í septem-
ber skv. samningi eða 34 þús. pakkar
og síðan aðrir 34 þús. pakkar í
október, eða alls 115 þús. pakkar.
Um framhald skreiðarsölu til
Nígeríu sagði Bragi, að væri ekki
vitað enn. Nígeríumenn hefðu rætt
um í maí s.l. að ef vel gengi að selja
skreiðina — sem hann sjálfur efaðist
ekki um — kynnu þeir að ræða við
íslendinga á ný um skreiðarkaup í
október n.k.
Margeir
efstur með
5 vinninga
AÐ leiknum sex umferðum á
alþjóðaskákmótinu í Gausdal í
Noregi, cr Margeir Pétursson
einn efstur, með 5 vinninga.
Næstu menn eru með i'A vinn-
ing. í sjöttu umferðinni, sem
tcfld var í gær, gerði Margeir
jafntefli við Guðmund Sigur-
jónsson í 20 leikjum, en Margeir
hafði svart.
I 2.-5. sæti eru þeir Guðmund-
ur Sigurjónsson, Vibe, Schussler
og Grúnfeld með 41k vinning. í
6.—10. sæti eru síðan þeir
Westerinen, DeFirmian, Scudorf,
Wahldon og Watson með 4
vinninga. Haukur Angantýsson
er með 3 vinninga, Jón L.
Árnason með 2 'k og Jóhann
Hjartarson með 2.
Helztu úrslit á mótinu í
Gausdal í gær voru þau, að
Margeir og Guðmundur sömdu
um jafntefli, eins og fyrr sagði,
Jón L. vann Guldbrandsen, Hauk-
ur vann Berg og Jóhann gerði
jafntefli við Heyberg.
Sjöunda umferð mótsins verð-
ur tefld í dag og þá teflir Margeir
við Schússler og hefur hvítt og
Guðmundur teflir við Grúnfeld.
í þeim þrem umferðum, sem
eftir eru, þarf Margeir Pétursson
1 vinning til að ná öðrum áfanga
alþjóðlegs meistaratitils, en
fyrsta áfanga af þrem náði hann
á skákmótinu í Lone Pine i
Kaliforníu fyrr á þessu ári. Meðal
þátttakenda á skákmótinu í
Gausdal eru 3 stórmeistarar og
10 alþjóðlegir meistarar.
Óskar eftir opin-
berri rannsókn
Ríkissaksóknaraembættinu hef-
ur borizt bréf frá aldraðri móður
og stjúpa Guðbjarts heitins Páls-
sonar um að fram fari opinber
rannsókn á skrifum sem orðið
hafa vegna mála Guðbjarts nú að
undanförnu.
V iðskiptaráðuney ti:
Jón Skaftason
deildarstjóri
FYRIR nokkru var staða deildar-
stjóra í viðskiptaráðuneytinu aug-
lýst laus til umsóknar. Morgun-
blaðinu er kunnugt um að við-
skiptaráðherra hefur ákveðið að
skipa Jón Skaftason fv. alþingis-
mann í þessa stöðu.
Þá hefur viðskiptaráðherra
jafnframt skipað Önnu Þórhalls-
dóttur fulltrúa í ráðuneytinu í
stöðu deildarstjóra, en Anna hefur
starfað í viðskiptaráðuneytinu frá
því að það var stofnað.