Morgunblaðið - 16.08.1978, Page 3

Morgunblaðið - 16.08.1978, Page 3
MORGÚNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978 3 Mjölnir með skákmót á Lækjartorgi ANNAÐ Lækjartorgsskákmót Skákfélagsins Mjölnis verður haldið í lok þéssa mánaðar, að því cr segir í frcttatilkynningu frá Mjölni. Verður mótið haldið annaðhvort föstudaginn 25. ágúst eða föstudaginn 1. scptember n.k. Skákkeppnin er firmakeppni og er keppt eftir Monradkerfi. I fyrra tóku 34 firmu þátt í keppninni, og þá tóku allir sterkustu skákmenn landsins, að undanskildum Friðriki Ólafssyni, þátt í mótinu. Verðlaun á skákmótinu nú í ár eru mjög há, eða alls 350 þús. kr. og fær sigurvegarinn 100 þús. í sinn hlut. Frá Húsavík. Einstök veð- urblíða á Húsavík Húsvík 15. ágúst. ÞAÐ sem af er ágústmánuði hefur verið einstök veðurblíða hér um slóðir, hiti flesta daga 15—20 stig. Heyskapur hefur gengið með eindæmum vel og flestir bændur búnir að hirða og hyggja margir til hópferðar á landbúnaðarsýn- inguna á Selfossi. Munu leiðir þeirra liggja um Sprengisandsleið og um byggðir, og eru þeir á leið suður í góða veðrinu sem spáð er þar. — Fréttaritari Ljósm. Mbl.: Árni Johnsen. Björninn við dýpkunarframkvæmdir í Siglufirði. Aage Johansen stendur við kranamastrið. Jullan sem þeir Björn og Johanscn björguðust á er fyrir aftan krabbana. „Báturinn sökk undan okkur eins og steinn” Björn Þórðarson í Birninum s.l. sumar í Siglufjarðarhöfn. „BJÖRNINN bara sökk undan okkur eins og steinn og það var ekki annað að gera en að flýta sér yfir í julluna. scm við höfðum um borð. betta gekk allt mjög vel. við blotnuðum vart í fæturna.“ sagði Björn bórðarson annar eigandi dýpkunarbátsins Bjarnarins í viðtali við Mbl.. en báturinn sökk undan Staðarhólsfjöru í Siglufirði í gær. „Ég og félagi minn Aage Johansen höfum undanfarið unn- ið á Birninum, að því að dýpka smábátahöfn í Siglufirði. Þegar báturinn sökk vorum við komnir út á fjörð til að tæma bátinn og vorum byrjaðir á því. Björninn hallaði nokkuð þegar við byrjuð- um að losa en skyndilega fór hallinn að aukast og báturinn rétti sig ekki á ný og það má segja að hann hafi sokkið á nokkrum sekúndum, sagði Björn. Björninn var byggður árið 1965 en Björn og Aage keyptu hann 1960. Frá þeim tíma hafa þeir unnið að dýpkunum hafna víða á Norðurlandi, eins og í Siglufirði, í Grímsey, á Eyjafirði og Raufar- höfn. „Við lögðum af stað á juilunni til lands og rippuðum, eins og sagt er, en fljótlega kom bátur á móti okkur, enda horfði fjöldi fólks á þegar báturinn sökk,“ sagði Björn. Þegar hann var spurður hvað nú tæki við, sagði hann: „Maður náttúrulega hvílir sig og síðan verður maður að fara að gera eitthvað, eða þá að segja sig til sveitar." Til loðnu og rækjuveiða í Barentshafi FÆREYINGAR eru nú að sendj rækjubáta alla leið norður Barentshaf til þess að kannj möguleika á rækjuveiðum þai nyrðra. Munu bátarnir jafn reyna á hinu norska sem hini rússneska yfirráðasvæði. Þá fóru í gær þrjú færeysi nótaskip áleiðis norður í Barents haf til loðnuveiða. Verksmiðju skipið Norglobal er á þeim slóðun núna og mun skipið taka við afh bátanna. Byrjunarverðið, sen Færeyingarnir fá, munu vera urr 12 ísl. kr. fyrir kílóið. Rækjuveiðar Færeyinga vii vesturströnd Grænlands hafj gengið allvel í sumar og muni bátarnir vera langt komnir með ai fylla kvótann. Ólöf kona borgarstjóra Þau mistök urðu í Morgunblað inu í gær í frétt um að Egill Skúl Ingibergsson væri að taka vii starfi borgarstjóra, að rangt va; farið með. nafn eiginkonu hans Heitir hún Ólöf Eiín Davíðsdóttir Eru viðkomandi beðnir velvirðing ar á þessum mistökum. #Hvítlauksostur Nýi Hvítlauksosturinn er bragðmikill smurostur blandaður hvítlauki og dilli. Hann gefur erlendum ostum af sama uppruna ekkert 3Teftir hvað gæði snertir. Vegna bragðgæða og mýktar er Hvítlauksosturinn 4 " óska ále§g allra vuiiiuKusiur OStUY sælkera.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.