Morgunblaðið - 16.08.1978, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGUST 1978
MEIRI ORKA OG
SKAPANDIGREIND
Almennur kynningartyrirlestur um tæknina Innhverf
íhugun er aö Hverfisgötu 18 (gegnt Þjóðleikhúsinu) í
kvöld kl. 20.30. Tæknin er auðlærð og auöstunduö,
eykur orku og þrótt og auögar vitundarlífiö. Þetta
staöfesta vísindalegar rannsóknir. Allir velkomnir.
Maharishi Mahesh Yogi íslenska íhugunarfélagið
M polyvlies
. ÓD.ÝR
GOLFDUKUR
Verö pr. ferm.: 1.980.- 2.068.- 2.198.-
2.248.-
@SAMBANDIÐ BYGGINGAVÖRUR
^SUDURLANDSBRAUT 32-EINNIG INNAKSTUR FRAARMULA29
Ofremdarástand
framundan í
skólamálum
íbúa Seljahverfis
Ljóst er, að glundroðaástand er
framundan í skólamálum í Selja-
hverfi í Breiðholti eftir að meiri-
hluti borgarstjórnar Reykjavíkur
ákvað að skera niður framlag til
hyggingar Seljaskóla í Breið-
holti. Að sögn Davíðs Oddssonar,
sem sæti á í fræðsluráði, var
Seljaskóli forgangsverkefni, því
fra'ðsluráði var ljóst, að hefja
yrði þær framkvæmdir strax í
haust, ef ekki ætti að horfa mjög
óheiilavænlega með allt skólahald
í hverfinu.
Það kom einnig fram í umræð-
um um málið í fræðsluráði, að
þessi niðurskurður var ákveðinn
án nokkurs samráðs við fræðslu-
ráð, en slík vinnubrögð eru
nýlunda að sögn Davíðs Oddsson-
ar.
Framangreind atriði eru byggð
á sk'riflegu svari fræðslustjórans
í Reykjavík við spurningum
Davíðs Oddssonar, Elínar Pálma-
dóttur og Ragnars Júlfussonar í
fræðsluráði. sem lagt var fram á
fræðsluráðsfundi nú á mánudag.
Svar fræðslustjóra við fyrir-
spurninni fer hér á cftir í heild.
í Breiðholti II tók Ölduselsskóli
til starfa haustið 1975 og hefur
nemendafjöldi í skólanum undan-
farin skólaár verið þessi:
notuð sem kennarastofa og tvær
til kennslu í sérgreinum. I haust
verða 3 færanlegar kennslustofur
settar niður við skólann. Þannig
verða alls fyrir hendi 16 kennslu-
stofur til almennrar kennslu fyrir
38 bekkjardeildir. Þrísetning í
skólanum í vetur verður u.þ.b. eins
mikil og við verður komið og meiri
en framkvæmanleg verður eftir að
skólinn hefur tekið inn 8. og 9.
bekk. Að óbreyttu húsnæði eru
engin tök á að skólinn geti tekið
við nemendaaukningu á skólaár-
inu 1979—80.
Undirbýningi að byggingu Selja-
skóla hefur af hálfu fræðsluskrif-
stofunnar verið hagað í samræmi
við upphaflega fjárhagsáætlun
borgarinnar fyrir yfirstandandi
ár. Teikningar að skólanum eru
fullfrágengnar og var verkið
tilbúið til útboðs í sumar miðað við
að framkvæmdir hæfust með
haustinu.
Fjölgun nemenda í Breiðholti II
á skólaárinu 1979—80 er hugsan-
legt að mæta með einhverjum
eftirfarandi ráðstöfunum:
a) Hafin verði bygging Seljaskóla
nú í haust og framkvæmdaáætlun
á þessu og næsta ári við það miðuð
að eitt kennsluhús skólans (6
Skólaár. Grunnslólanemar. Forskólabörn. Nemendur og deildir samtals.
1975— 76 80 nem í 5 d + 15 nem í 1 d. = 95 nem í 6 d.
1976— 77 186 nem í 8 d + 40 nem í 2 d. = 226 nem í 10 d.
1977— 78 486 nem í 17 d +109 nem í 6 d. = 595 nem í 23 d.
1978— 79 706 nem í 28 d +200 nem f 10 d. = 906 nem í 38 d.
(áætl.) . _______________________
Síðari árin hefur nemendafjölg-
un frá ári til árs í hverfinu verið
frá rúmlega 300 til um 370 nem.
eins og fram kemur af ofanskráðu.
Erfitt er að áætla með nákvæmni
nemendafjölgunina frá ári til árs
þar sem alltaf er óljóst hvenær
þær íbúðabyggingar sem unnið er
að verða teknar í notkun. Óvarlegt
er þó að gera ráð fyrir að
nemendafjölgun í hverfinu skóla-
árið 1979—80 verði til muna minni
en verið hefur undanfarin ár.
í Ölduselsskóla eru 16 almennar
kennslustofur en af þeim er ein
kennslustofur + miðrými) verði
tilbúið til kennslu 1. sept. 1979.
b) Fjölgað verði færanlegum
kennslustofum við Ölduselsskóla
um ca. 8 stofur. Þar sem fáar, ef
nokkrar af þeim færanlegu
kennslustofum, sem í vetur verða
í notkun, munu losna skólaárið
1979—80, yrði hér um nýsmíði á
færanlegum kennslustofum að
ræða og verulega fjárfestingu.
c) Þeim nemendum úr Breiðholti
II, sem ekki rúmast í Öldusels-
skóla, verði ekið í skóla í eldri
hverfum borgarinnar.
Rannsakað andlát
ungs blökkumanns
Port Elizabeth, 16. áxúst. Reuter.
RANNSÓKN hófst í dag á dauða
ungs hlökkumanns sem lögreglan
scgir hafa látizt eftir að hafa
stokkið út um glugga á höfuð-
stöðvum öryggislögreglunnar í
sfðasta mánuði.
Lögreglan segir að Lungile
Tabalaza sem var 20 ára hafi
stokkið út og fallið fimm hæðir
þegar verið var að yfirhcyra
hann vegna gruns um þátttöku
hans í sprengjutilræðum og
hryðjuverkum. Lögregluforingi
skýrði rannsóknarmönnunum frá
því að hann hefði verið viðstadd-
ur þegar sjúkrabifreið sótti
Tabalaza og hafi pilturinn þá
verið með lífsmarki. Fallið er 19,5
metrar.
Tabalaza er annað ungmennið
sem lætur lífið eftir fall í höfuð-
stöðvunum á tveimur árum. Leið-
togi blökkumanna, Steve Biko, var
til yfirheyrzlu í þessum stöðvum
áður en hann lézt úr heilameini í
fyrra.
Ungmenni, sem handtekið var
með Tabalaza og situr nú inni
fyrir þjófnað, hefur skýrt frá að
lögreglan hafi misþyrmt þeim. Við
læknisrannsókn síðar kom í ljós að
pilturinn var við eðlilega heilsu og
ómeiddur.
er nu i fullum gangi.
KJÓLAR—KÁPUR—SPORTFATNAÐUR
BLÚSSUR — PILS O.FL.
ALLT NÝJAR OG NÝLEGAR VÖRUR.
Komiö og geriö góö kaup.
v/Laugalæk