Morgunblaðið - 16.08.1978, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978
15
Lífstíð fyrir
strídsglæpi
Berlín, 16. ágúst. AP.
AUSTUR-ÞÝSKUR dómstoll
dæmdi á niánudaií Ilerbort Pa-
land fyrrverandi herlögreKluþjón
til lífstíðarfangelsisvistar fyrir
að taka af lífi 30 sovézka borgara.
að því er flokksmálgagnið Neues
Deutschland skýrði frá í gær.
Paland, sem er 63 ára og frá
bænum Halle, var gefið að sök að
hafa framið „ómannúðlega stríðs-
glæpi“ á árunum 1941—1944 þegar
hann var foringi herlögregludeild-
ar sem hafði aðsetur á herteknu
sovézku landi handan núverandi
landamæra Póllands og Sovétríkj-
anna.
Honum var gefið að sök að hafa
sjálfur tekið 30 manns af lífi, neytt
a.m.k. 96 aðra til þrælkunarvinnu
og að hafa misþyrmt sovézkum
föngum. Paland var sekurTundinn
með aðstoð sovézkra rannsóknar-
manna, með vitnisburði sovézkra
sjónarvotta og af skýrslum tekn-
um af félögum hans í lögreglu-
deildinni á stríðstímanum.
Komin heim í heiðardalinn
Christina Onassis. skipacigandinn sem þessa dagana stendur í ströngu vegna ástamálanna, sneri óvænt
aftur til manns síns í Moskvu í fyrradag. í gær birgðu hjónin sig upp af matvælum í forréttindaverzlun
í Moskvu. þar sem ekki fá aðrir aðgang cn flokksbroddar og útlendingar, sem greiða með erlendum
gjaldeyri. Eftir komuna til Moskvu hefur Christina vísað á bug aðdróttunum um að skilnaður sé í
uppsiglingu. og segir för sína til Grikklands og Bretlands um helgina aðeins hafa verið viðskiptalegs
eðlis. (AP-símamynd).
Hryð juverkaalda í k jöl-
far framsals Króata?
Recklinghausen, 16. ágúst. AP.
VESTUR-ÞÝZKUR lög-
fræðingur króatísks þjóð-
ernissinna. sem búsettur er
í Vestur-Þýzkalandi, sagð-
ist í dag óttast að til
alvarlegra hefndaraðgerða
komi ef stjórnin í Bonn
ákveður að framselja
júgóslavneskum yfirvöld-
um skjólstæðing sinn.
Dómstólí í Köln úrskurðaði
á föstudag að júgóslavnesk
yfirvöld hefðu lagt fram
næg sönnunargögn á hend-
ur Króatanum til að rétt-
læta framsal hans.
Stada dals-
ins batnar
London. 16. ágúst. Reuter.
STAÐA Bandaríkjadals gagnvart
helztu gjaldmiðlum hatnaði tals-
vert í gær í kjölfar þess að falla
verulega gagnvart japanska jen-
inu, svissneska frankanum og
vcsturþýzka markinu. Talið er að
helzta ástæðan fyrir þessari við-
reisn dalsins sé sú að ýmsir
stærstu bankar í Mið-Evrópu hafa
keypt talsvert af Bandaríkjadal
upp á síðkastið. Verð á gulli
lækkaði verulega í London við
batnandi stöðu dalsins, eða úr
rúmum 216 dölum í 213 dali únsan.
„Verk Baader-Meinhof hópsins
munu verða smámunir á móts við
það sem gerizt ef Stjepan
Bilandzic verður framseldur.
Hatrið sem hefur grafið um sig
meðal Króatanna mun blossa
upp,“ sagði Wilhelm Schöttler
lögfræðingur í viðtali við AP.
Skjólstæðingur hans er 39 ára
leiðtogi þjóðernissinnaðra Króata
og hafa yfirvöld í Belgrad sakað
hann um tilræði gegn stjórninni
og um að hafa smyglað vopnum til
hryðjuverkamanna í Júgóslavíu.
Óskum um framsal þriggja
annarra Króata var vísað til baka
af dómstólnum á þeirri forsendu
að ekki lægju fyrir nægjanleg
sönnunargögn á hendur viðkom-
andi. Bæði stjórnirnar í Bonn og
Belgrad neita að nokkurt samband
sé á milli óska Júgóslavíu um
framsal á króatískum þjóðernis-
sinnum búsettum í Vestur-Þýzka-
landi og handtöku fjögurra Baad-
er-Meinhof hryðjuverkamanna og
óskum stjórnarinnar i Bonn um
framsal þeirra.
í kjölfar úrskurðar dómstólsins
í Köln í máli Bilandzic komu
króatískir frelsissinnar í Banda-
ríkjunum fyrir tveimur dýnamit-
hleðslum á miðri Manhattaneyju í
New York á mánudag. Hvorug
hleðslan sprakk, en í bréfi sem
fannst hjá annarri hleðslunni
hótuðu samtökin frekari
sprengingum ef Bonn-stjórnin
framselji félaga þeirra.
Söguleg víxl-
un komabama
Haifa. 15. ágúal. AP
SÖGULEGUM ruglingi á tveimur stúlkubörnum, sem varð á
fæöingardeild sjúkrahúss eins í Haifa fyrir tveimur mánuöum, lauk
í dag, priöjudag, er mæöur stúlknanna tveggja skiptust á peim í
fjóröa sinn. Þaö var nefnd skipuö af heilbrigðisráöuneytinu, sem fókk
Þaö hlutverk aö ganga úr skugga um hvor væri eign hverrar. Eftir
aö nefndin haföi tekiö blóðsýni af foreldrum og öfum og ömmum
beggja stúlknanna kvaö hún upp úrskurð sinn, en Það tók
nefndarmenn alllangan tíma aö sannfæra mæöurnar um aö Þœr
heföu fengiö rátt barn í hendur.
Rannsókn nefndarinnar á þessu
máli leiddi í Ijós, aö þrisvar höfóu
mistök átt sér staö á sjúkrahúsinu.
í fyrsta sinn hafði veriö skipt um
nafnspjöld á stúlkunum af óþekkt-
um ástæöum. Nokkrum dögum
síöar víxlaöi svo ein hjúkrunarkon-
an stúlkunum aftur er hún þóttist
réttilega hafa uppgötvað mistökin.
Síóan víxlaöi þriöja hjúkrunarkon-
an, sem ekki vissi um fyrri mistök
vinnufélaga sinna, stúlkunum
tveimur.
Nefnd sjúkrahússins, sem kvaö
á um stúlkubörnin, hefur vítt fimm
af starfsmönnum fæöingardeildar
viókomandi sjúkrahúss fyrir kæru-
leysi og ógætni í starfi.
co
ERLENT
Þetta gerðist
1956 — Nasser forseti Egypta-
lands hættir þátttöku í fyrstu
ráðstefnunni um Suez-skurðinn,
sem haldin var í London.
18% — Gull finnst í Alaska við
lok gullæðisins í Klondike.
Innlent. Winston ChurchiII
kemur til Reykjavíkur 1941 —
Sveinn Björnsson verður sendi-
herra t Danmörku 1920 -
Prestsetrið í Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd brennur til kaldra
kola 1662 — Sighvatur kemur
með lið sitt í Skagafjörð 1238 —
F. Olafur Friðriksson 1886 —
Sigurjón Sigurðsson 1913 —
Róhert Arnfinsson 1923.
Orð dagsins. Gullöld rennur
aðeins upp fyrir mönnum ef þeir
gle.vma efnisverðmætum. —
G. K. Chesterton, enskur rithöf-
undur (1874-1936).)
1974 — Tyrkneskir innrásar-
menn á Kýpur skipta eyjunni í
0&0M
Græna veltan
' Cfif VIACCT
& 0I1LI U99l
Einn af hinum fjölmörgu og athyglisverðu þáttum Land-
búnaðarsýningarinnar 1978 á Selfossi, er vafalaust Græna
veitan, hlutavelta garðyrkjubænda. Á Grænu veltunni gefst
þér tækifæri til að vinna ríflega útilátin sýnishorn afurða
garðyrkjubændanna, — fallegt grænmeti fyrir sama og
ekkert verð.
Sýningin er opin 11.-20. ÁGÚST
Virka daga kl. 14 — 23, kl. 10 — 23 laugardaga og sunnudaga.
tvö svæði og lýsa yfir vopnahléi.
1973 — Drukkinii Líbýumaður
rænir líbanskri farþegaflugvél
með 125 farþegum og áhöfn og
stýrir vélinni tjl ísraels til að
sannfæra yfirvöld þar í landi
um að ekki séu allir Arabar
óvinir þeirra.
1969 — F.nskar hersveitir sker-
ast í leikinn í mestu bardögum
kaþólikka og mótmælenda í
N-Irlandi, sem orðið hafa í
trúarbragðadeilu þeirra.
1964 — Nguyen Khan hrekur
Duong van Minh yfirgenerál frá,
nær völdurn í S-Víetnam og sest
á forsetastól.
1960 — Eyjan Kýpur, fyrrum
nýlenda Breta, hlýtur sjálfstæði
með Makarios erkibiskup sem
forseta.
Komið á Selfoss — Komið á Landbúnaðarsýninguna 1978
Ævintýri fyrir alla fjolskylduna