Morgunblaðið - 16.08.1978, Blaðsíða 18
I
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 1978
12. skákin:
Fyrirfram var reiknað
meö miklum sviptingum í
tólftu umferð heims-
meistaraeinvígisins sem
fram fór þremur dögum
eftir áætlaðan leikdag
vegna frestunarbeiðni
heimsmeistarans. Og
menn voru sannspáir því
báðir skákmenn sýndu ’
góöa taflmennsku framan
af. En um síöir hlupu báðir
keppendur á sig og yfirsást
til skiptis. Þegar skákin fór
svo í biö var hún orðin
sjónarspil leikleysu.
Korchnoi kaus að verjast
hvítu mönnum Karpovs
Sjónarspil
leikleysu
Harry Golombek
skrifar fyrir
Morgunblaöii)
meö opna afbrigöinu af
spönsku vörninni sem svo
oft var notuö í heims-
meistaraeinvíginu 1948. í
níunda leik valdi Karpov
aö leika drottningunni á
e2, leik sem bæði Keres og
Smyslov notuðu með góö-
um árangri í því einvígi.
Korchnoi náði að jafna
stöðuna í 18. leik, en í 21.
leik varð honum á í mess-
unni. Hann lék þá af sér og
missti peð og nú heföi
Karpov átt að geta unniö
taflið. Hann náði yfirtökun-
um en missti aftur frum-
kvæðiö þegar honum yfir-
sást aö leika f4 í 26. leik.
Þaðan í frá varö skákin
jafnteflisleg og í 43. leik
bauö Karpov jafntefli.
Korchnoi þáöi ekki jafntefl-
iö þar sem Karpov bauð
það ekki í gegnum Lothar
Schmidt dómara. Lék
Korchnoi biöleikinn sem
innsiglaöur er í umslagi og
bauö jafntefli með milli-
göngu Schmidts, en þá
hafði Karpov yfirgefið
keppnisstaö og taflið fór
því í bið. Ég tel líkur á að
keppendur komi sér sam-
an um jafntefli án þess að
leika skákina frekar.
10 ár frá innrásinni í Tékkóslóvakíu:
XJtifundur á Lækjar-
torgi á mánudaginn
Til að minnast þess, að 10 ár
eru liðin n.k. mánudag frá því að
rússncskar vígsveitir réðust inn í
Tékkóslóvakíu, hafa samtökin
Lýðræðissinnuð æska ákvcðið að
gangast fyrir útifundi á
Lækjartorgi.
Útifundurinn hefst á Lækjar-
torgi kl. 17.30 á mánudag með því
að hljómsveit, sem nefnist Hug-
Ekkert nýtt í
rannsókn á
morði Kinks
Washington, 15. áf(úst. Reuter.
ENDURTEKIN rannsókn á morð-
inu á blökkumannaleiðtoganum
Martin Luther King, sem rann-
sóknarnefnd á vegum fulltrúa-
deildar Bandaríkjaþings hefur
unnið við að undanförnu, hefur
ekki leitt í ljós neitt, sem varpað
gæti nýju ljósi á morðið.
Hins vegar hefur náinn vinur
blökkumannaleiðtogans látna
staðhæft við rannsóknarnefndina,
að morðið á King hafi verið
pólitískt og að hópur samsæris-
manna hafi staðið að því. Þessari
staðhæfingu sinni til áréttingar
hefur hann bent á, að afar
óeðlilegt hafi verið, að James Earl
Ray hafi getað farið huldu höfði í
tvö mánuði eftir morðið.
Rannsóknarnefndin mun hefja
endurrannsókn á morðinu á
Kennedy fyrrum Bandaríkjafor-
seta í byrjun næsta mánaðar.
leiðing, leikur lög af fingrum fram.
Þessa hljómsveit skipa m.a.
Magnús Kjartansson, Pálmi
Gunnarsson, Sigurður Karlsson
o.fl. Kl. 18.00 verða flutt stutt
ávörp og ræðumenn verða Einar
Kristinn Guðfinnsson nemi, Finn-
ur Torfi Stefánsson alþingismað-
ur, Jón Magnússon lögfræðingur
og Jón Sigurðsson ritstjóri.
Fundarstjóri verður Berglind
Ásgeirsdóttir blaðamaður.
Samtökin Lýðræðissinnuð æska
eru starfandi allsstaðar í V-
Evrópu og ú sama tíma og
fundurinn verður á Lækjartorgi
gangast þessi samtök fyrir sams-
konar útifundum víða í Evrópu.
Lýðræðissinnuð æska eru samtök,
sem eru ekki bundin neinum
sérstökum stjórnmálaflokki en
hafa að markmiði að berjast fyrir
mannréttindum, lýðræði og gegn
heimsvaldastefnu kommúnista.
Stjórn SH á
fund á morgun
STJÓRN Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna kemur saman til
fundar á morgun til að ræða
frekar um vandamál frystihús-
anna, en sem kunnugt er er fjöldi
þeirra þegar hættur rekstri og
fleiri bætast í hópinn 1. september
n.k.
Svæðafundum frystihúsa innan
SH og sjávarafurðadeildar Sam-
bandsins lýkur í dag, en þá verða
haldnir fundir á Austfjörðum, á
Vesturlandi og á Vestfjörðum.
Karpov missti af
gullnu tækifæri
í tólftu einvígisskákinni brá fyrir nokkrum
spennandi stöðum þegar Kortsnoj var kominn á yztu
nöf með að tapa skákinni. Hann reyndi nú sem fyrr
hið beitta afbrigði Spánska leiksins en Karpov valdi
nú nýja leið sem virtist gefa honum mjög góða
möguleika. En í 26. leik fann hann ekki bezta
framhaldið og glutraði niður því frumkvæði sem
hann hafði fengið og Kortsnoj slapp fyrir horn.
Biðstaðan er hinsvegar hnífjöfn og allar líkur á
jafntefli og alls óvíst að þeir tefli þessa skák frekar.
Kortsnoj getur hrósað happi í þessari skák og það
þarf mikið hugrekki hjá honum ef hann ætlar að
voga sér einu sinni enn í þetta afbrigði því nú virðist
Karpov loksins hafa fundið öflugt framhald fyrir
hvítan. En hvað tekur þá við hjá Kortsnoj. Kannski
Franska vörnin sem hann var einu sinni svo frægur
fyrir?
12. einvígisskákin
Hvítti Karpov
Svarti Kortsnoj
Spánski leikurinn
(Ópna vörnin)
1. e4 — e5,2. Rí3 - Rc6,3. Bb5
— a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. (H) -
Rxe4,
Enn á ný heggur Kortsnoj í
sama knérunn, en þessu afbrigði
hefur hann beitt fjórum sinnum
áður í þessu einvígi. Leikurinn
er, eins og áður hefur verið vikið
að, upphafið að einu hvassasta
afbrigðinu í Spánska leiknum og
vörnin ekki teflandi nema sam-
an fari mikil kunnátta og
hæfileg dirfska en Kortsnoj
skortir hvorugt! Kortsnoj fór
samt halloka í 8. skákinni er
hann beitti þessu afbrigði en þá
brá hann fyrir sig mjög hæpn-
um leik (10. — g6?) sem leiddi
til glötunar. í þessari skák
verður það Karpov að þessu
sinni sem bregður út af frá fyrri
olf Q l/’ll TYl I
6. d4 - b5, 7. Bb3 - d5,8. dxe5
— Be6, 9. De2 (Hér bregður
Karpov út af frá taflmennsku
fyrri skáka í einvíginu. Áður
hefur hann undantekningar-
laust leikið 9. c3 sem er langal-
gengasti leikurinn. Textaleikur-
inn hefur hinsvegar oft sézt líka
en upphafsmaður að honum er
hinn nýlega látni eisllenzki
skákmeistari Paul Keres sem
beitti honum óspart í heims-
meistaraeinvíginu 1948 með
góðum árangri. Aðaltilgangur
þessa leiks er að rýma dl-reit-
inn fyrir kóngshrókinn og herja
á peðið á d5. Til þess að hraða
þessari áætlun frestar hvítur að
leika c3 og hirðir ekki um að búa
kóngsbiskupi sínum undan-
komureit).
9. - Be7,10. Hdl - 0-0,11. c4
— bxc4,12. Bxc4 — Bc5, (Áður
fyrr reyndu sókndjarfir skák-
menn í þessari stöðu að fórna
drottningunni með 12. — dxc4!?
og fengu viss færi en með beztu
taflmennsku heldur hvítur öllu
sínu. En svartur verður að
bregðast hart við í stöðunni ef
hann á ekki að verða undir í
baráttunni).
13. Be3 — Bxe3, 14. Dxe3 —
Db8, (Með þessum leik hótar
svartur að drepa biskupinn á c4
og ógnar um leið peðinu á b2)
15. Bb3 - Ra5, 16. Rel!
(Þessum leik beitti fyrstur
vestur-þýzki stórmeistarinn
Robert Húbner í alþjóðlegu
stúdentamóti árið 1969 og vann
glæstan sigur. Hvítur hótar
fyrst og fremst að reka riddar-
ann af höndum sér með f3 því
riddarinn á engan undankomu-
reit. Andstæðingur Húbners
valdi að leika 16. — Rxb3, 17.
axb3 — Db6, 18. Dxb6 — cxb6,
en eftir 19. b4! fékk hvítur
yfirburðastöðu. Þessa tafl-
mennsku verður Kortsnoj nú að
endurbæta).
16. — Db6! (Kortsnoj býður
drottningauppskipti strax)
17. Dxb6 — cxb6, 18. f3 (18.
Bxd5? gengur að sjálfsögðu ekki
Skák
Gunnar Gunnarsson
skrifar um tólftu
einvígisskákina
vegna 18. — Had8 og hvítur
missir mann).
18. — Rxb3, 19. axb3 — Rc5,
20. b4 - Rd7, 21. Rd3 - g5?
(Óhætt er að gefa þessum leik
spurningarmerki þó tilgangur-
inn sýnist helga meðalið. Korts-
noj vill koma í veg fyrir f4 hjá
hvítum en tekur á sig óþarflega
miklar kvaðir þar sem leikurinn
veikir alvarlega kóngsstöðu
svarts og g-peðið verður ákjós-
anlegur skotspónn. Leikurinn er
samt einkennandi fyrir hinn
hvassa stíl Kortsnojs!)
22. Rc3 - Hfc8, 23. Rf2 -
(Vegna veika peðsins á g5 er nú
þessi leikur mögulegur. Eftir
skipti á peðum 23. — Rxe5, 24.
Rxd5 — Bxd5, 25. Hxd5 stendur
hvítur betur).
23. — d4! (Aftur mjög einkenn-
andi leikur fyrir Kortsnoj sem
nýtir til hins ítrasta þá mögu-
leika sem felast í stöðunni).
24. Re2 (Eftir 24. Hxd4 — Rxe5,
hefur svartur staðið af sér
mesta storminn).
24. — d3 (Svartur kýs að fórna
peðinu heldur en að leika 24. —
Rxe5 því eftir 25. Rxd4 stendur
hvítur tií muna betur að vígi;
ógnandi t.d. Re4 sem opinberar
óþyrmilega veikleika svörtu
kóngsstöðunnar)
25. Rxd3 - Bc4
26. Rg3? (Með þessum leik
missir hvítur af gullnu tækifæri
sem var fólgið í framrás f-peðs-
ins: 26. f4! og hvítur heldur
umframpeðinu og hefur dágóðar
vinningshorfur. Eftir t.d. 26....
gxf4, 27. Re2xf4 getur hvítur
undirbúið framhaldið Hel og
síðar He3. Eftir þennan leik
Karpovs færist jafnteflisblær
yfir skákina).
26.. .. Bxd3. 27. Hxd3 - Rxe5,
28. Hd5 - Rg6, 29. Hxg5
(Hvítur hefur nú unnið peð á
g5 en hann hefur vanmetið
næsta leik svarts). 29. ... Hc2!
(Samkvæmt hinni gullvægu
reglu: að takist hrók að festa sig
í sessi á annarri eða sjöundu
reitaröð andstæðingsins jafn-
gildir það sama og að vinna peð!
Eftir þessu að dæma hefur
Kortsnoj tekist að fá nóg
mótspil fyrir hið tapaða peð sem
raunar kemur vel í ljós).
30. b3 — IIb2, 31. Rf5 (Hvítur
kýs að gefa peðið til baka því
reyni hann að válda það með 31.
Ha3 fær svartur hættulegt
mótspil eftir 31. ... Hc8!) 31.
... IIxb3, 32. h4 - Kf8. 33. h5
- Re7, 34. Rxe7 - Kxe7, 35.
Hel - Kf8, 36. IIe4 - a5!
(Svartur myndar sér hættuleg-
an frelsingja á drottningar-
væng)
37. Heg4 - Ke7, 38. bxa5 -
Hxa5, 39. h6 - Hxg5, 40. Hxg5
- b5, 41. IIg7 - Hbl, 42. Kh2
- Hdl, 43. Hxh7 (Hér bauð
Karpov jafntefli en láðist að
fara að óskum Kortsnojs og gera
það með milligöngu skákdómar-
ans eins og Kortsnoj hefur
óskað eftir heldur flutti mál sitt
munnlega til áskorandans sem
hunzaði boðið og lék áfram).
43.. .. Hd8, 44. Hg7 (Þegar hér
var komið sögu innsiglaði
Kortsnoj biðleik sinn og bað
skákdómara einvígisins Lothar
Schmid að bera Karpov jafntefl-
istilboð sitt. Allar líkur eru því
á jafntefli í þessari skák.
■